Dagur - 23.02.1993, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 23. febrúar 1993 - DAGUR - 5
Ejjafjarðarsvæðið tekur þátt
í verkefhinu „Et levende Norden“
- kynningarfundur í íþróttahöllinni á Akureyri nk. fimmtudag
Nýlega var ákveðið að Eyja-
fjarðarsvæðið yrði þátttakandi
af hálfu íslands í norrænu
verkefni fyrir 10-16 ára börn
skólaárið 1993-1994. Verkefn-
ið hefur vinnuheitið „Et
levende Norden“.
Það er norræna ráðherra-
nefndin sem hefur haft forgöngu
að þessu verkefni, en megin til-
gangur þess er að gefa börnum og
unglingum kost á að hitta og
starfa með listafólki frá ýmsum
stöðum á Norðurlöndum. Lögð
verður áhersla á að kynna á
hverjum stað listgreinar sem lítið
hefur verið hægt að sinna þar.
Einnig gefst tækifæri til að kynn-
ast listgreinum á nýstárlegan hátt
í tengslum við þetta verkefni og
víkka þannig sjóndeildarhring
þátttakenda.
Undirbúningsnefnd
hafíð störf
Auk Eyjafjarðarsvæðisins taka
eftirtalin svæði á Norðurlöndum
þátt í verkefninu: Norður-
Þrændalög í Noregi, Wármlands
lán í Svíþjóð, Wasa lán í Finn-
landi, Viborg amt í Danmörku,
Álandseyjar, Færeyjar, Græn-
land (óvíst ennþá hvaða svæði)
og suðurhlutar samabyggðar í
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.
Undirbúningsnefnd hefur tek-
ið til starfa hér á Eyjafjarðar-
svæðinu með fulltrúum frá Akur-
eyri, Eyjafjarðarsveit og Dalvík.
Stefnt er að kynningarfundi fyrir
fulltrúa frá grunnskólum, sér-
skólum, félagsmiðstöðvum,
félagasamtökum o.fl. nk.
fimmtudag, 25. febrúar, nk. kl.
19 í íþróttahöllinni á Akureyri.
Þangað er einnig velkomið lista-
fólk af svæðinu og aðrir sem
kynnu að hafa áhuga á að kynn-
ast þessu verkefni.
Listafólk af Eyjafjarðar-
svæðinu hefur forgang
Þegar ráðið verður listafólk til að
vinna að þessu verkefni á hinum
ýmsu svæðum á Norðurlöndum,
þá mun listafólk af Eyjafjarðar-
svæðinu að öðru jöfnu hafa viss-
an forgang við ráðningu á lista-
fólki frá Islandi. Gefst listafólki
þar skemmtilegt tækifæri á tíma-
bundnum verkefnum á nýjum
slóðum.
í undirbúningsnefndinni hér á
Eyjafjarðarsvæðinu eru: Ingólfur
Ármannsson, skóla- og menning-
arfulltrúi, Akureyri, Atli Guð-
laugsson, tilnefndur af Héraðs-
nefnd Eyjafjarðar, Dröfn Frið-
finnsdóttir, tilnefnd af íþrótta- og
tómstundaráði Akureyrar, Guð-
mundur Óli Gunnarsson frá
Tónlistarskólanum á Akureyri,
Guðmundur Ármann Sigurjóns-
son frá Myndlistarskólanum á
Akureyri, Lárus Zophoníasson
frá Amtsbókasafninu á Akureyri,
Sunna Borg frá Leikfélagi Akur-
eyrar og Sveinbjörn Steingríms-
son, tilnefndur af Héraðsnefnd
Eyjafjarðar. (Frattatilkynning)
Akureyri:
Öskudags-
fagnaður
í Dynheimum
Á morgun, öskudag, heldur
Zontaklúbburinn Þórunn hyrna
sinn árlega öskudagsfagnað fyrir
börn í Dynheimum. Dagskráin
hefst kl. 14 og lýkur kl. 17. Margt
verður til skemmtunar, m.a.
hæfileikakeppni og grettukeppni.
Vegleg verðlaun eru í boði.
Einnig verða veitt verðlaun fyrir
bestu búningana. (Fréttatilkynning)
Lesendahornið
Ibúi í Glerárhverfi:
Misnotkun á félagslega kerfínu
Lesandi í Glerárþorpi hringdi og
vildi gera athugasemdir við grein
í Degi nýlega þar sem rætt var
var Guðríði Friðriksdóttur varð-
andi vaxtahækkanir í félagslega
kerfinu. Lesandinn sagðist leggja
þann skilning í greinina að þeir
sem lægstu launin hefðu bæru úr
býtum 100 þúsund krónur á mán-
uði og er þar vafalaust rætt um
heildartekjur í fjölskyldunni en
mjög margar fjölskyldur eru neð-
an við þau mörk.
„Greiðslubyrðin lækkar hjá
þessum hóp við vaxtahækkunina
og eins er Guðríður með viðmið-
un við 150 þúsund króna laun og
vissa lántöku í upphafi og enn-
fremur með 200 þúsund króna
mánaðartekjur. Ég er að velta
því fyrir mér hvað aðilar með 200
þúsund króna mánaðartekjur eru
yfirleitt að gera í þessu kerfi. Það
eru niðurgreiddir vextir í Bygg-
ingarsjóði verkamanna og menn
með 200 þúsund króna mánaðar-
tekjur eiga ekki að hafa mögu-
leika á láni í félagslega kerfinu ef
þeirra greiðslumat er byggt á
raunhæfum forsendum. Sam-
kvæmt núgildandi lögum á Hús-
næðisnefndin að endurmeta
greiðslugetu kaupendanna og ef
hún er þá orðin yfir þessum
mörkum þá eiga vextirnir að
hækka og síðan sjálfkrafa á
þriggja ára fresti upp frá því. Mér
er ekki kunnugt um að Hús-
næðisnefndin hafi nokkurn tíma
beitt þessum ákvæðum og þar
með er hún að leggja blessun sína
yfir misnotkun á þessu kerfi sem
starfað er eftir í dag“.
Kennarasamband
íslands
Kennarar -
Atkvæðagreiðsla
Allsherjaratkvæöagreiösla félagsmanna Kennara-
sambands íslands um verkfall kennara í grunnskól-
'um og framhaldsskólum fer fram í skólunum þriðju-
daginn 23. og fimmtudaginn 25. febrúar 1993.
Kennarar sem eru í náms- og veikinda- eöa barns-
burðarleyfi geta kosið í skólunum eða á skrifstofu
Kennarasambands íslands, Laufásvegi 81 í Reykja-
vík.
Kjörstjórn Kennarasambands íslands.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Verkmenntaskólinn á Akureyri
auglýsir
Getum bætt við þátttakendum á námskeið í ger-
bakstri og saumum á glæsiflíkum sem hefjast
fimmtudaginn 25. febrúar.
Upplýsingar á skrifstofu skólans sem er opin frá
8-15, sími 11710.
3
Greiðsluáskorun
Til íbúa Hálshrepps og eigenda fasteigna í Háls-
hreppi gjöld vegna, fasteignaskatts, sorpsgjalds,
útsvara og aðstöðugjalds fyrir 1989, 1990, 1991 og
1992 og voru fallin í gjalddaga 15. nóvember 1992
að greiða nú þegar, eða semja um greiðslu skuldar
sinnar innan 15 daga frá birtingu áskorunnar þessar-
ar.
Gjaldendur geta búist við innheimtuaðgerðum án
frekari fyrirvara, fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjald-
anna, ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem
af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, að liðnum
15 dögum frá birtingu áskorunnar þessarar.
Athygli er vakin á því að auk óþæginda hefur inn-
heimtuaðgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda.
Illugastöðum 22. febrúar 1993.
Oddvitinn Hálshreppi.
Enn um hreinlæti í matvöruverslunum:
Ekki hægt að sverta heila stétt
Sigurður Sigmarsson (231029-
4949) vildi koma á framfæri
eftirfarandi athugasemdum
vegna lesendabréfs í DEGI 9.
febrúar sl.:
„Svo sannarlega mál að linni er
fyrirsögn greinar Elísabetar
Kveðja frá
launamanm
Enn eru válynd veður
víða nú Kári kveður
kuldaleg ljóðin sín.
Punglega taktinn treður
trauðla úr handfylli hleður
hnípin er þjóðin mín.
Pjóðin á víst í vanda
valtir við stjórnvölinn standa
staurblindir Viðeyjarmenn.
Verðum áð fella þá fjanda
fólkið vart orkar að anda
álögin auka þeir enn.
Við skulum skipta um spor
sýna afoss þróttmikið þor
þar til að birtir á ný.
Sjáum hér vilja og vor
verkefni, starfsemi, slor
svartsýnin hverfur með gný.
Launamaður.
Hjörleifsdóttir í Degi nýverið og
vitnar hún í grein Brynjólfs
Brynjólfssonar sem bar tiltilinn
Erum við hugsunarlausir trassar
og sóðar?. Ég get ekki orða
bundist þegar hún ræðst á
afgreiðslufólk í matvöruverslun-
um með svívirðingar og dylgjur,
eða eins og hún segir: „Hve oft
sést jafnvel afgreiðslufólk bora
upp í nefið á sér fyrir framan við-
skiptavininn og snerta síðan á
einhverri matvöru." Vill Elísabet
ekki nefna þessa matvöruverslun
eða verslanir og það fólk sem um
ræðir. Hún getur ekki svert heila
stétt nema sanna sitt mál ella
biðja afgreiðslufólkið opinber-
lega afsökunar."
Kærar þakkir!
Akureyri 8. febrúar 1993.
„Kærar þakkir og hlýjar kveðjur
fær sá sem fann lyklaveskið mitt í
síðustu viku og kom því á lög-
reglustöðina.
Það er yndislegt að vita af fólki
í kringum sig, sem gerir sér svona
ómak, óbeðið, og án þess að vita
hverjum það er að gera greiða.“
Margrét Jónsdóttir.
Krákkar
Verðlaun fyrir besta sönginn.
Blikkrás vcitir 8 liAuin verOlaun fyrir besta
sönáinn á Öskudaginn frá kl. 8-líá.
Vcrðiaunin verða Pizza á Greifanum.
I dómncfnd vcrða starfsmenn Blikkrásar.
Ekkert tillit er tekið til búninga.
H*
BLIKKRÁS HF.
f