Dagur - 17.03.1993, Qupperneq 1
76. árgangur • Miðvikudagur 17. mars 1993 • 52. tölublað
Fermingarklæðnaður
Lcikfélag Akureyrar æfír nú óperettuna Leðurblökuna af fullum krafti en frumsýning verður föstudaginn 26. mars
nk. Þessi mynd var tekin á æfingu í vikunni en í helstu hlutverkum eru Jón Þorsteinsson, Ingibjörg Marteinsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir, Steinþór Þráinsson og Michael J. Clarke, sem hér sjást, og Aðalsteinn Bergdal, Þuríður Bald-
ursdóttir, Már Magnússon, Sigurþór Albert Heimisson, Bryndís Petra Bragadóttir og Þráinn Karlsson. Leikstjóri
er Kolbrún Halldórsdóttir og hljómsveitarstjóri Roar Kvam. Mynd: Robyn
Hólanes hf. á Skagaströnd:
Næg virma næstu mánuði
- flestir starfsmenn endurráðnir
Nóg er að gera í frystihúsi
Hólaness hf. á Skagaströnd og
horfur á nægri vinnu næstu
mánuðina, að sögn Lárusar
Ægis Guðmundssonar fram-
kvæmdastjóra. Flestir starfs-
manna Hólaness, sem sagt var
upp um áramót, voru endur-
ráðnir þegar vinnsla hófst á ný.
Vinnsla í frystihúsinu hófst á
ný í byrjun febrúar eftir að samn-
ingar tókust við Sigurð Ágústs-
son á Hellissandi um hráefnisöfl-
un. Hólanes fékk úthlutað 500
tonna þorskígildiskvóta frá Skag-
strendingi hf. og með því að
semja um „tonn á móti tonni“
verður hægt að treina þennan
kvóta í nokkra mánuði. Að sögn
Lárusar Ægis gengur allt vel í
frystihúsinu og rækjunni og hann
kveðst sjá fram á næga vinnu
næstu mánuði. Hann kvað flesta
starfsmennina hafa verið endur-
ráðna, en þeim var öllum sagt
upp störfum þegar frystihúsið
lokaði. sþ
Sauðárkrókur:
Atvinnuástandið svipað
- heldur fækkað á skránni í bili
Halldór Jónsson, bæjarstjóri og stjórnarmaður í ÚA:
Ákvörðun án vitundar
meirihluta stjórnarmanna
Halldór Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri og stjórnarmaður í
Útgerðarfélagi Akureyringa
hf., upplýsti á fundi bæjar-
stjórnar Akureyrar í gær að sú
ákvörðun að Útgerðarfélag
Akureyringa hf. tæki ekki þátt
í stofnun rekstrarfélags um
leigu á þrotabúi Niðursuðu-
verksmiðju K. Jónssonar á
Akureyri, hafi verið tekin án
þess að meirihluti stjórnar-
manna í fyrirtækinu vissi af því.
Fram kom í máli Halldórs að
hann hafi ekki vitað um stöðu
þessa máls fyrr en um kvöld-
matarleytið á sunnudagskvöldið,
en í fréttum Ríkisútvarpsins kl.
19 það kvöld var haft eftir Gunn-
ari Ragnars, framkvæmdastjóra
Útgerðarfélagsins, að félagið
tæki ekki þátt í stofnun nefnds
rekstrarfélags.
Bæjarstjóri upplýsti þetta á
Bæjarstjórn Akureyrar sam
þykkti samhljóða á fundi sín-
um í gær að auka hlutafé
bæjarins í Krossanesi hf. um
100 milljónir króna. Hlutafjár-
aukningin verður framkvæmd í
gegnum Framkvæmdasjóðs með
yfirtöku Akureyrarbæjar á
hluta af erlendu láni sem Akur-
eyrarbær er ábyrgur fyrir.
Eftirstöðvar lánsins, um 91
milljón króna, verður skuld-
breytt til 15 ára, afborgunar-
laust næstu tvö ár.
Sigurður J. Sigurðsson (D) sagði
fundi bæjarstjórnar í gær að
beiðni Úlfhildar Rögnvaldsdótt-
ur (B). Hún sagði að margir hafi
undrast hvernig að þessu máli
hafi verið staðið og taldi eðlilegt í
ljósi þess að Akureyrarbær eigi
meirihluta í Útgerðarfélagi
Akureyringa hf. að þetta mál
verði rætt frekar á næsta fundi
bæjarráðs.
Málefni K.Jónssonar voru
rædd vegna umræðu um slæmt
atvinnuástand á Akureyri um
þessar mundir, en aldrei áður
hafa jafn margir verið á atvinnu-
leysisskrá. Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir sagði ástandið hræðilegt og
undir það tók Heimir Ingimars-
son (G), formaður atvinnumála-
nefndar. Hann sagði atvinnu-
málanefnd standa ráðþrota gagn-
vart þessu hrikalega ástandi og
því miður væru engin teikn á lofti
um bjartari tíð alveg á næstunni.
Heimir nefndi að lítið væri um
að vandi Krossanesverksmiðj-
unnar væri af margvíslegum toga.
Hann sagði að ekki hafi tekist að
selja tæki í eigu fyrirtækisins að
upphæð 90 milljónir króna. Þar á
meðal er þurrkari sem reynt er að
selja úti í Noregi. Sigurður sagði
að það kostaði verksmiðjuna 4
milljónir á ári að eiga þurrkarann.
Hann sagði einnig að kostnaður
við uppbyggingu verksmiðjunnar
hafi verið um 26 milljónum króna
meiri en gert hafi verið ráð fyrir.
Fram kom í máli Sigurðar að á
síðasta ári hafi Krossanesverk-
verkefni hjá tveim stærstu járn-
iðnarfyrirtækjum bæjarins og í
Slippstöðinni-Odda hf. væru
starfsmenn að hluta til á atvinnu-
leysisbótum. óþh
Til greina kemur að stofna
upplýsingaskrifstofu fyrir
ferðafólk á Akureyri og hefur
verið rætt um að hún hefji
starfsemi í haust.
Að undanförnu hafa komið á
borð bæjaryfirvalda á Akureyri
erindi frá nokkrum aðilum sem
lúta að ferðamálum og stefnu-
mótun á því sviði. Þetta eru
erindi frá Bifreiðastöð Norður-
lands, Ljósmyndavörum hf.,
smiðjan skilað á milli 10 og 20
milljónum króna í bæjarsjóð og
til stofnana bæjarins.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir (B)
sagði að saga Krossanesverk-
smiðjunnar hafi verið ein sam-
felld erfiðleikasaga, en ekki væri
um annað að ræða en að Akur-
eyrarbær tæki á þessu máli. í
sama streng tóku bæði Gísli
Bragi Hjartarson (A) og Björn
Jósef Arnviðarson (D). Björn
Jósef sagði að Akureyrarbær væri
ábyrgur fyrir skuldum verksmiðj-
unnar og því yrði að fara þessa
leið. óþh
Á atvinnuleysisskrá á Sauðár-
króki og fímm hreppum í
Skagafírði eru nú 56 manns.
Að sögn Matthíasar Viktors-
sonar, félagsmálastjóra á
Sauðárkróki, hefur fækkað á
skránni frá því í janúar.
Atvinnuástandið á Sauðár-
króki hefur ekki versnað og er
jafnvel ívið skárra en verið hefur.
Það fækkaði á skránni um mán-
aðarmót jan.-feb. og hefur hald-
ist svipað síðan. Þar kemur ýmis-
legt til, m.a. fjölgun starfsfólks í
Fiskiðjunni og Skildi. Að sögn
skýrsla um stefnumótun í ferða-
málurn unnin á vegum atvinnu-
málanefndar, skýrsla og niður-
stöður starfshóps um ferðamál
unnin af starfsmönnum Akureyr-
arbæjar, erindi frá Ráðstefnu-
skrifstofunni um hlutdeild Ak-
ureyrarbæjar í henni og hug-
myndir Reynis Adolfssonar um
ferðaskrifstofu.
Bæjarráð Akureyrar ræddi um
þessi mál á fundi sínum 25.
febrúar sl. og samþykkti að
atvinnumálanefnd tæki þátt í
mótun nýs verkefnis á sviði
ferðamála. Verkefnið verði að fá
fleiri ferðamenn til að heimsækja
þennan landshluta og til að
dvelja lengur í senn og á fleiri
árstíðum. Það verði unnið í sam-
vinnu við Iðnþróunarfélag
Eyjafjarðar, héraðsnefnd Eyja-
fjarðar og hagsmunaaðila.
Á fundi atvinnumálanefndar
Akureyrar 2. mars sl. urðu mikl-
ar umræður um þessi mál og var
samþykkt að fela Heimi Ingim-
arssyni, formanni nefndarinnar,
og Jóni Gauta Jónssyni, atvinnu-
málafulltrúa, að vinna áfram að
málinu á grundvelli umræðna á
fundinum.
Meðal annars kom fram að
nauðsynlegt væri að koma upp
einni öflugri óháðri upplýsinga-
þjónustu fyrir ferðafólk. Þar geti
ferðafólk fengið sem bestar upp-
lýsingar um allt sem því stendur
Matthíasar er þó lítið um að fólk
fari í hópum af skránni, fremur
einn og einn.
Nú eru 56 manns á skrá og eru
vörubílstjórar fjölmennasti hóp-
urinn, að sögn Matthíasar. Hlut-
fallið milli kynja er svipað. Af
atvinnulausum körlum eru flestir
á aldrinum 50-59 ára, en konur
langflestar á aldrinum 60-69
ára. Að sögn Matthíasar hefur
starfsemin hjá Saumastofunni
Vöku gengið upp og ofan og því
hafa konur sem þar starfa ýmist
verið úti eða inni á skránni. sþ
til boða á Akureyri og Eyjafjarð-
arsvæðinu. Meginmarkmiðið
með slíkri upplýsingaþjónustu
væri að lengja dvöl ferðafólks á
svæðinu. óþh
Endurprmögnunin hjá
Svarthamri á Húsavík:
Niðurstaða
ekki fengiii
Framhaldsaðalfundur fískeld-
isfyrirtækisins Svarthamars var
haldinn sl. mánudag. Einar
Njálsson, stjórnarformaður,
gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. í stað hans var Guð-
mundur A. Jónsson kjörinn í
stjórnina en Tryggvi Finnsson
kjörinn stjórnarformaður. Sig-
urgeir Aðalgeirsson var einnig
kjörinn í aðalstjórn. Vigfús
Sigurðsson var kjörinn í vara-
stjórn og Jón Gestsson endur-
kjörinn.
Þorvaldur Vestmann Magnús-
son, framkvæmdastjóri Svart-
hamars, sagði að niðurstaða lægi
ekki enn fyrir varðandi endur-
fjármögnun fyrirtækisins. Óskað
hefur verið eftir niðurfellingu
kröfuhafa á 90% af skuldum.
Þorvaldur á að sögn von á niður-
stöðunni mjög fljótlega, eða á
næstu dögum. IM
Bæjarstjórn Akureyrar:
Hlutafé í Krossanesi hf.
aukið um 100 milljónir
Akureyri:
Upplýsingaskrifstofa fyrir ferdamenn