Dagur - 17.03.1993, Page 3
Miðvikudagur 17. mars 1993 - DAGUR - 3
Fréttir
Hjá Hagkaup á Akureyri hefur verið
tekin upp sú nýbreytni að bjóða við-
skipavinuni með ungbörn upp á sér-
merkt bflastæði nálægt aðalinngangin-
um í verslunina og segir Sigurður
Markússon, verslunarstjóri, að versl-
unin á Akureyri sé fyrst til að sér-
merkja bílastæði þannig. Þá hefur
einnig verið komið fyrir barnastólum
ofan á kerrurnar inni í versiuninni, þar
sem hægt er að binda börnin föst. Á
myndinni sést hvernig bflastæðin eru
merkt og á innfelldu myndinni er móð-
ir með barn sitt í barnastól að versla.
Myndir: KK
Bæjarráð Akureyrar um erindi frá Úrvinnslunni hf.:
Hluti húsnæðis við Réttarhvanun
verði lagður fram sem hlutafé
Bæjarráð Akureyrar samþykkti
á fundi sínum sl. fimmtudag að
leggja tii við bæjarstjórn að
Akureyrarbær verði þátttak-
andi í fyrirtækinu Úrvinnslan
hf. með því að leggja fram
hluta af húseign bæjarins við
Réttarhvamm, þar sem Tré-
smiðjan Tak er nú til húsa og
svínabú var áður, sem hlutafé í
fyrirtækið.
Halldóri Jónssyni, bæjarstjóra,
var falið á fundinum að taka upp
viðræður við málsaðila á grund-
velli hugmynda sem hann lagði
fram á fundinum. Jafnframt var
bæjarstjóra falið að taka upp við-
ræður við forsvarsmenn Endur-
vinnslunnar hf. um hugsanleg
afnot hennar af hluta húsnæðis-
ins. Til greina kemur að
Úrvinnslan hf. taki yfir allt húsið,
kaupi hluta þess og endurleigi
síðan Endurvinnslunni hf.
„Meginmálið er það að við vilj-
um sjá bæði starfsemi Úrvinnsl-
unnar hf. og Endurvinnslunnar
hf. á sama stað og var bæjarstjóra
falið að móta tillögur og ganga
frá samningum þar að lútandi,"
sagði Sigurður J. Sigurðsson, for-
maður bæjarráðs.
Ekki liggur fyrir mat á húsinu
við Réttarhvamm og því sagði
Sigurður ekki hægt að segja til
um hversu mikla fjármuni menn
væru í raun að tala um.
Eins og fram hefur komið hafa
Úrbótamenn hf., þeir Hólm-
steinn Hólmsteinsson, Sveinn
Heiðar Jónsson og Þórarinn
Kristjánsson, unnið að undirbún-
ingi að stofnun Úrvinnslunnar hf.
ásamt Valdimari Gunnarssyni,
umbúðatæknifræðingi. Áætlanir
miðast við að starfsemi fyrir-
tækisins hefjist í júní nk. og er í
fyrstu fyrirhugað að vinna úr
plastefnum og pappír. Ætlunin er
að safna úrgangsefnum saman
sem víðast, jafnvel af öllu land-
inu, og horfa aðstandendur fyrir-
tækisins ekki síst til heyrúllu-
umbúða í því sambandi. Stofn-
kostnaður Úrvinnslunnar hf. er
áætlaður 22 milljónir króna, þar
af er áætlað að kaupverð vélbún-
aðar frá Þýskalandi verði 18
milljónir króna. óþh
Sauðárkrókur:
Míkil gróska í félagsM skólanna
- leiksýningar í Gaggó og Fjölbraut
Mikil gróska er í félagslífi skól-
anna á Sauðárkróki um þessar
mundir. í lok febrúar var opin
vika í Fjölbrautaskólanum og
var m.a. boðið upp á viða-
mikla leiksýningu. Gagnfræða-
skólinn lætur ekki sitt eftir
liggja og sl. miðvikudag stóðu
krakkar í 6. og 7. bekk fyrir
sýningu í félagsheimilinu
Bifröst, sem þau kalla árs-
hátíð. Svipuð hátíð verður
haldin á vegum 8., 9. og 10.
bekkjar 24. mars nk. og í báð-
um tilfellum er um fjáröflun
vegna ferðalaga að ræða. Á
mánudag heimsótti Þorgrímur
Þráinsson Gagnfræðaskólann í
tengslum við lestrarátakið.
Áður hefur verið greint frá
opnum dögum Fjölbrautaskól-
ans. Kenndi þar margra grasa.
M.a. var leikritið Saumastofan
eftir Kjartan Ragnarsson sýnd í
leikstjórn Jóns Ormars Ormsson-
ar. í sýningunni komu fram níu
leikarar, þar af sex stúlkur, auk
þeirra sem stóðu að tónlistar-
flutningi. Byrjað var að æfa um
20. janúar og æft stíft fram að
sýningum. Gerðu áhorfendur
góðan róm að frammistöðu
leikaranna.
Krakkarnir í bekkjadeildum 6.
og 7. bekkjar Gagnfræðaskólans
fluttu stutta leikþætti, brandara,
dansatriði o.fl. Margt af því var
bæði frumlegt og skemmtilegt og
ekki síst fyrir þá sök að allir voru
með. Að sögn skólastjórans,
Björns Sigurbjörnssonar, er um
að ræða fjáröflun vegna vorferð-
ar 7. bekkjar. 24. mars standa 8.,
9. og 10. bekkur fyrir svipaðri
sýningu, en þar mun söngurinn
skipa öndvegi, að sögn Björns.
Þar er einnig um að ræða fjár-
öflun, vegna ferðalags 10. bekkj-
ar til Vestmannaeyja.
Nú stendur jafnframt yfir lestr-
arátak í skólanum, eins og víðar
á landinu og á mánudag kom
Þorgrímur Þráinsson rithöfundur
í skólann og spjallaði við krakk-
ana, en bækur hans njóta mikilla
vinsælda hjá unglingum. sþ
Akureyri:
Parakeppni
nk. mánudag
Næstkomandi mánudag verður
haldin parakeppni í bridds í sal
KEA í Sunnuhlíð á Akureyri.
Þeir sem hafa áhuga eru beðnir
að hafa samband við Jónínu í síma
25974 eða Unu í síma 24744 því
skráð verður fyrirfram. Næst-
komandi laugardagur verður síð-
asti skráningadagur. Pör verða
dregin saman á mótsstað.
Briddsáhugafólk er hvatt til að
mæta. Takmarkið er að fólk hafi
ánægju af spilamennskunni.
Hótel KEA:
Meira umleikis í
skemmtaiiahaldi en
á sama tíma í fyrra
- bókanir svipaðar en gott útlit næstu vikur
Töluverð ásókn er í gistingu á
Hótel KEA um þessar mundir
og einnig í mat og þá stendur
árshátíðavertíðin sem hæst.
Að sögn Gunnars Karlssonar,
hótelstjóra, eru salir ágætlega
bókaðir fyrir skemmtanahald
og einnig hefur verið nokkuð
um fundi og smærri ráðstefn-
ur. Þá sagði Gunnar að dans-
leikir á laugardagskvöldum
væru vel sóttir og iðulega
margir matargestir.
„Sunnudagstilboðin okkar á
Súlnabergi hafa fengið góðan
hljómgrunn en þau hljóða upp á
súpu og salatbar, góðan aðalrétt
og fjölbreytt deserthlaðborð.
Fjölskyldufólk kann vel að meta
þetta, enda verðið sanngjarnt,“
sagði Gunnar.
Súlnaberg fékk andlitslyftingu
í upphafi ársins og þar fara fram
listkynningar í samvinnu við
Menningarsamtök Norðlend-
inga. Staðurinn hefur verið ágæt-
ur mælikvarði á umferð ferða-
manna á Akureyri og í ljósi þess
sagði Gunnar að það hefði ekki
verið mikið um viðkomur ferða-
manna í bænum á síðustu vikum
en margt benti til þess að það ætti
eftir að breytast.
„Það er mikið um fyrirspurnir
og bókanir á hótelinu frá því í lok
mars og fram í maí og það er
greinilegt að þessar bókanir
tengjast margar væntanlegum
sýningum Leikfélags Akureyrar á
Leðurblökunni. Margir hópar
Rafmagnsveitur ríkisins
á Norðurlandi eystra:
Tryggvi Þór Har-
aldsson ráðinn
umdæmisstjóri
Tryggvi Þór
Haraldsson,
rafmagnsverk-
fræðingur, hef-
ur verið ráðinn
umdæmisstjóri
Rafmagns-
veitna ríkisins
á Norðurlandi
eystra. Tryggvi lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum við
Tjörnina 1976 og verkfræði-
prófí frá Háskóla Islands 1980.
Tryggvi hóf störf á áætlana-
deild Rafmagnsveitna ríksins
1980 og sem deildarstjóri fram-
kvæmdaáætlanadeildar 1984.
Hann tók síðan við starfi deildar-
stjóra rafeindadeildar 1985 og
hefur starfað sem yfirverkfræð-
ingur rafeinda- og mæladeildar
síðan 1990.
Tryggvi tekur við af núverandi
umdæmisstjóra, Ingólfi Árna-
syni, þann 1. júlí nk. en Ingólfur
er fyrsti umdæmisstjóri þessa
svæðis og hefur starfað sem slík-
ur undanfarin 39 ár og áður sem
tæknifræðingur hjá Rafmagns-
veitunum. Ingólfur mun starfa
áfram hjá Rafmagnsveitum ríks-
ins til næstu áramóta.
Tryggvi Þór Haraldsson er
kvæntur Guðrúnu S. Jónsdóttur
og eiga þau þrjár dætur.
ætla að koma í bæinn, til dæmis
mjög margir Húsvíkingar. Síðan
er Akureyrarátakið í gangi og
það skilar sér í helgarferðunum,“
sagði Gunnar.
Þegar á heildina er litið sagði
Gunnar að það sem af væri árinu
hefðu bókanir á hótelinu verið
svipaðar og í fyrra en meira
umleikis í skemmtana- og ráð-
stefnuhaldi og útlitið gott. SS
Nýtt lyfjafrumvarp:
Dreifing
dýralyfla
tekin úr
höndum
dýralækna
- getur þýtt að
þjónustan versni
Veröi frumvarp til lyfjalaga
sem heilbrigöisráðuneytið hef-
ur kynnt að lögum verður
dreifíng dýralyfja tekin úr
höndum dýralækna og fengin
apótekum í hendur. Með þess-
ari breytingu óttast dýralæknar
að þjónusta við bændur - eink-
um þá sem fjær þéttbýli búa
muni versna. „Eins og þetta
liggur fyrir núna þá óttumst við
í stjórn Dýralæknafélags
íslands að dreifíng dýralyfja
verði erfíðari, sérstaklega í
dreifbýlinu,“ sagði Rögnvald-
ur Ingólfsson, formaður Dýra-
læknafélags Islands í samtali
við Dag um hið nýja frumvarp.
Rögnvaldur sagði að sam-
kvæmt lögum um dýralækna bæri
þeim að sjá um dreifingu á dýra-
lyfjum. Lyfjadreifingin hafi því
víða verið bein og milliliðalaus á
milli dýralækna og bænda. Það
form hafi tryggt þjónustu í hinum
dreifðu byggðum hvað dýralyf
varðar. Dreifing dýralyfja fari
fram með nokuð öðrum hætti en
dreifing á mannalyfjum. Notkun
þeirra er í mörgum tilfellum
mjög árstíðabundin auk þess sem
þörf fyrir sum bætiefni sé ólík eft-
ir hinum ýmsu stöðum. Til þess
að geta haft lyfjadreifinguna í
lagi - til dæmis á sauðburði þá
byrji dýralæknar oft að gera áætl-
anir um innkaup sín á lyfjum og
tala við innflutningsaðila í mars
og apríl til þess hreinlega að
tryggja að nægjanlegt magn af
þessum efnum sé til í landinu.
Þessi dreifing geti því orðið erfið-
ari ef dýralyfin fara að öllu leyti
inn í apótekin.
Rögnvaldur kvaðst hinsvegar
vera hissa á hvað farið sé að ræða
þetta frumvarp mikið þar sem
það hafi ekki enn verið lagt fram
á Alþingi heldur aðeins kynnt og
formaður þingflokks annars
stjórnarflokksins þegar lýst því
yfir að það verði ekki samþykkt
óbreytt. Hann sagði að stjórn
Dýralæknafélags Islands muni
koma saman þegar frumvarpið
hafi verið lagt fram, fjalla um
innihald þess og móta ákveðna
stefnu í málinu. ÞI