Dagur - 17.03.1993, Page 5
Miðvikudagur 17. mars 1993 - DAGUR - 5
Tónlist______________________
Rökkurkórinn í Skagafirði
Laugardaginn 13. mars efndi
Rökkurkórinn í Skagafirði til
söngskemmtunar í Miðgarði.
Söngstjóri kórsins er Sveinn
Árnason en undirleikari á píanó
er Thomas Higgerson. í tveim
lögum lék Metta Kari Worum
með kórnum á saxafón.
Söngskrá Rökkurkórsins var
fjölbreytt. Á henni voru sextán
lög. Að flutningi þeirra loknum
flutti kórinn tvö aukalög. Leikið
var undir í þeim öllum, nema í
síðara aukalaginu, sem var Nú
lifnar yfir lundunum eftir Jón
Björnsson. Þetta lag söng kórinn
best alls þess, sem hann flutti á
þessum tónleikum. í túlkun þess
kom fram næmleiki og ljúfleiki,
sem iðulega skorti í öðrum
lögum.
Byrjanir laga og innkomur
radda voru að jafnaði í góðu lagi.
Hljómur var einnig hreinn í flest-
um tilfellum. Út af þessu hvoru
tveggja brá þó í nokkur skipti.
Einnig voru lokahljómar nokkuð
oft ekki hreinir einkum í kvenna-
röddum og þá sérlega sópran. Þá
henti, að einstakar raddir skáru
sig úr einkum á háum tónum og í
lokahljómum. Þetta var líka mest
áberandi í kvennaröddum en
kom einnig einstaka sinnum fyrir
í karlaröddum.
Kvennaraddir áttu nokkra
góða hluta einkum á miðju radd-
sviði raddanna. Þar var tónninn
yfirleitt allþéttur og áferðargóð-
ur. Hins vegar vildi hann þynnast
veruiega, þegar til átakakafla
kom og á hærra raddsviði. Karla-
raddir voru verulegu þéttari og
jafnari í áferð. Þó brá út af til
dæmis í sólóhluta tenórs í Brostu
vinan, lagasyrpu úr Kátu ekkj-
unni eftir F. Lehar við texta Egils
Bjarnasonar. Tenórinn átti hins
vegar góðan sólóhluta í Shubert-
syrpu úr söngleiknum Meyja-
skemmunni.
Kórinn sýndi iðulega, að hann
hefur tök á jafnt ljúfum söng sem
styrkum. Hann var til dæmis góð-
ur í bakröddum með einsöng og
gat einnig náð umtalsverðum
styrk. Hins vegar var túlkun hans
heldur áherslulítil og og því ekki
svo blæbrigðarík, sem tilefni áttu
að gefast til. Af þessu leiddi
nokkrum sinnum, að fjörleg lög,
svo sem Wunderbar eftir Cole
Porter við texta eftir Egil Bjarna-
son, náðu ekki því flugi, sem við
hæfi hefði verið.
Einsöngvarar með Rökkur-
kórnum voru Sigurlaug Marons-
dóttir, sem söng Átthagaljóð
Inga T. Lárussonar við ljóð
Sigurðar Arngrímssonar, Drífa
Árnadóttir og Lára Angantýs-
dóttir, sem sungu Tvísöng í lag-
inu Kvæðið til konunnar minnar
eftir Björgvin Þ. Valdimarsson
við ljóð Jóns frá Ljárskógum,
Hjalti Jóhannsson sem söng lagið
Um sumardag eftir Franz Abt við
texta Benedikts Gröndals, og Val-
geir Þorvaldsson, sem söng í rökk-
ursölum sefur eftir F. Möhring
við texta í þýðingu Guðmundar
Guðmundssonar.
Undirleikur Thomasar Higgins
var öruggur og ætíð við hæfi.
Saxafónleikur Mette Kari
Worums skapaði skemmtileg
hrif, en enn betra hefði verið
hefði hún tekið sjálfstæðar stróf-
ur í stað þess að leika laglínu
með öðrum flytjendum.
Rökkurkórinn sýndi það í
nokkur skipti, að hann er í eðli
sínu gott hljóðfæri og fær um
það, að flytja kóratónlist vel.
Hann er greinilega skipaður góðu
söngfólki, en hann skortir nokk-
uð á pússun og ögun. í þessu felst
meðal annars natin hlustun kór-
félaga hver á annan jafnt hvað
snertir tón, styrk eða blæ. Kórinn
hefur efnið til þess að ná lengra
en hann nú er kominn. Vonandi
tekst honum það bæði kórfélag-
anna sjálfra vegna og ekki síður
þeirra, sem hafa unun af góðum,
blönduðum kórsöng.
Haukur Ágústsson.
Leiklist
I sal hans hátígnar“
55
Föstudaginn 5. mars frumsýndi
Leikfélag Þórshafnar uppsetn-
ingu sína á samsettri dagskrá úr
verkum Jónasar Árnasonar.
Tónlist í uppsetningunni er eftir
Jón Múla Árnason og fleiri.
Leikstjóri er Sigurgeir Scheving.
Undirritaður sá uppsetninguna í
félagsheimilinu á Raufarhöfn 12.
mars.
Leikfélag Þórshafnar hefur því
miður ekki verið ýkja athafna-
mikið síðari árin. Það setti síðast
upp sýningu fyrir um það bil sjö
árum, en þá var á fjölunum á
Þórshöfn „Saumastofan“ eftir
Kjartan Ragnarsson.
Víst er það mikið átak í ekki
margmennri byggð að setja upp
leiksýningu af hvaða tagi sem
hún er, en þá ekki minna, þegar
ráðist er í sýningu jafn viðamikla
og fjölmenna og „í sal hans há-
tignar“. Samkvæmt leikskrá eru
flytjendur tuttugu og þrír að tölu,
en auk þeirra tveir hljóðfæra-
leikarar og kynnir. Enn bætast
við fleiri, sem koma við sögu í
ýmsum þáttum undirbúnings og
baksviðsverka. Leikfélag, sem
ræðst í slíkt fyrirtæki, getur ekki
talist dautt úr öllum æðum, svo
að vonandi er þessi uppsetning
einungis upphitun fyrir blómlegt
starf á komandi árum.
Það yrði miklu of langt mál að
ætla sér að rekja hlut einstakra
flytjenda í uppsetningu Leikfé-
lags Þórshafnar á dagskránni „í
sal hans hátignar“. í heild tekið
stóðu þeir sig vel langflestir. Vit-
anlega var nokkur byrjendabrag-
ur á sviðsframkomu ýmissa, en
við slíku má búast, þegar af stað
er farið eftir langt hlé. Reynslan
sýnir líka, að sviðsframkoma og
leikur er nokkuð, sem lærist af
því að hafa þessi atriði um hönd
og njóta leiðsagnar góðra manna.
í þessari uppsetningu er reynd-
ar ljóst, að góður maður hefur
verið í verki tilsegjandans, þar
sem er Sigurgeir Scheving leik-
stjóri. Honum hefur víða tekist
vel að skapa lipurlega framrás,
svo sem í „Átökum Kadettsins
við demóninn“ og í atriðinu „í sal
hans hátignar“ úr „Þið munið
hann Jörund". Ekki síst eru það
þó hópatriðin, sem takast vel.
Þar á kórinn stóran hlut, en
sviðsframkoma hans var að jafn-
aði lífleg og við hæfi. Sérstaka
athygli vöktu til dæmis uppsetn-
ing flutningsins á Bíum, bíum,
bambaló úr „Þið munið hann
Jörund“, Lögreglusöngur úr
„Rjúkandi ráð“ og líflegur flutn-
ingur á Við heimtum aukavinnu
úr „Járnhausnum“.
Tónlistarflutningur er kapítuli
fyrir sig í uppsetningu sem þeirri,
sem „I sal hans hátignar" er.
Hann tókst yfirleitt vel þolanlega
og upp í vel. Einnig hér er vert að
minnast sérstaklega á kórinn.
Hann söng almennt af miklu fjöri
og áheyrilega. í þessu sambandi
er vert að geta undirleikaranna,
sem gættu þess ævinlega að láta
ekki undirleikinn verða of hávær-
an fyrir ómagnaðan flutning
þeirra, sem á sviði voru hverju
sinni.
Þegar á heild er litið er upp-
setning Leikfélags Þórshafnar
góð skemmtun. Vissulega mætti
ýmislegt til tína í aðfinnslutón,
en verður látið ógert. Hitt skiptir
miklu meira máli, að leikfélagið á
Þórshöfn er tekið til starfa á ný
og vonandi til einhverrar fram-
tíðar.
Haukur Ágústsson.
Samkomum Billy Graham
sjónvarpað til íslands
- verða sýndar í Glerárkirkju frá 17. til 21. mars
Hinn þekkti bandaríski prédikari,
Billy Graham, talar á samkomum
sem haldnar verða í Essen í
Þýskalandi í þessari viku og verð-
ur samkomumum sjónvarpað um
gervihnött til margra landa.
Samkomunum verður þar á með-
al varpað til íslands og verða þær
sýndar í beinni útsendingu í
Glerárkirkju.
Móttaka þessara sjónvarps-
sendinga hingað til lands er sam-
kirkjulegt verkefni og hefjast
útsendingar klukkan 20.00 á
hverju kvöldi að íslenskum tíma.
Fyrsta samkoman verður mið-
vikudagskvöldið 16. mars en hin
síðasta sunnudagskvöldið 21.
mars.
Það er íslenska þjóðkirkjan,
Hvítasunnusöfnuðurinn, Hjálp-
ræðisherinn, Sjónarhæðarsöfn-
uðurinn og KFUM og KFUK á
Akureyri sem standa að móttöku
sjónvarpssendinganna í Glerár-
kirkju frá 17. til 21. þessa mánað-
ar og segir í fréttatilkynningu frá
aðstendendum að fólki gefist
þarna einstakt tækifæri til þess að
hlýða á fagnaðarerindið.
Auk sýninganna í Glerárkirkju
verða prédikanir Billy Grahams
sýndar á fjórum stöðum í
Reykjavík auk fjögurra staða á
landsbyggðinni. Fréttatilkynning
„Diet-ís“ á markaðinn
- frá Emmess-ísgerðinni
Nýlega hóf Emmess ísgerðin
framleiðslu á Léttum Djass - diet
ís sem framleiddur er án viðbætts
sykurs. Þess í stað er notað sætu-
efnið aspartam (Nutra Sweet).
Það efni er notað í margar teg-
undir matvara t.a.m. diet gos-
drykki og ættu þeir sem geta
neytt þeirra vara einnig að geta
notið Létts Djass.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
sykurlaus ís kemur á borð ís-
lenskra neytenda og ekki er að
efa að fjölmargir munu taka þess-
ari nýjung opnum örmum,“ segir
m.a. í frétt frá framleiðanda.
Léttur Djass er ekki einvörð-
ungu án viðbætts sykurs, heldur
einnig með færri hitaeiningum.
Fituinnihald er einungis 3% - en
11% fita er ekki óalgeng í venju-
legum ís.
„Léttur Djass er fáanlegur í
hentugum heimilisumbúðum.
Hann kemur í fallegum plastbik-
urum sem fara vel á borði. Fjórir
bikarar eru í hverjum pakka og
vegur hver um sig 65 grömm. Nú
þegar er búið að dreifa Léttum
Djass um allt land og er hann því
fáanlegur í öllum helstu verslun-
um,“ segir ennfremur í fréttatil-
kynningu frá Emmess-ísgerðinni.
Aðalfundur
Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni,
veröur haldinn að Bjargi (félagssal), miövikudaginn
24. mars, kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Mætum vel.
Stjórnin.
íT
"X
Aðalsafnaðar-
fundur
Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður
haldinn í Safnaöarheimili Akureyrarkirkju eftir guös-
þjónustu sunnudaginn 21. mars nk.
Fundurinn hefst kl. 15.15.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sóknarnefnd.
V
J)
Munið námskeið
Náttúrulækningafélags Akureyrar
fimmtudaginn 18. mars kl. 20.00
í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Ingvar Teitsson
og Kristín Aðalsteinsdóttir:
MATARÆÐI
Tengsl sjúkdóma og mataræðis. Einhæft fæði
og næringarskortur. Mikilvægi trefjaefna.
Þátttökugjald er kr. 300,-
s4ttOi velÁ&UMOi