Dagur - 17.03.1993, Page 12
Eyj afj ar ð arfeijumálið:
Sæfari fór á söluskrá
vegna misskilrmigs
Byggingu nýs íþróttahúss í Ólafsfírði miðar vel en iðnaðarmenn vinna nú að frágangi innanhúss en nýlokið er við
að renna í gólf. AUar áætlanir varðandi verklok í apríl 1994 standa svo kannski verður hægt að berja stórviðburði
á íþróttasviðinu augum í Ólafsfírði að ári. Mynd: GG
Atvinnuástand í Húnaþingi:
Svipað og áður en ekki bjart framundan
- telja formenn verkalýðsfélaganna
Gert var ráð fyrir að fulltrúar
Hríseyjarhrepps hittu í gær
forsvarsmenn Vegagerðar
ríkisins og kynntu fyrir þeim
gögn varðandi sjóflutninga á
Eyjafirði, en eins og kunnugt
er hefur verið mikil óánægja
meðal margra í Hrísey og
Grímsey að ganga til samninga
við Eystein Þ. Yngvason um
þessa flutninga, en hann
hyggst nota skip sitt Arnes
(gamla Breiðafjarðarferjan
Baldur).
Björn Ólafsson, yfirmaður
þjónustudeildar Vegagerðarinn-
ar, sagði að forsvarsmenn Vega-
gerðarinnar myndu að sjálfsögðu
skoða allar hliðar þessa máls.
„Við bíðum eftir að sjá þessi
gögn og munum að sjálfsögðu
skoða þau,“ sagði Björn.
Þingmenn Norðurlandskjör-
dæmis eystra áttu í fyrradag lang-
an fund í Reykjavík með fulltrú-
um Hríseyjarhrepps og Gríms-
eyjarhrepps þar sem farið var yfir
þetta mál. Þann fund sátu einnig
Helgi Hallgrímsson, vegamála-
í fjárhagsáætlun Eyjafjarðar-
sveitar, sem lögð var fram til
fyrri umræðu í sveitarstjóm í
síðustu viku, er gert ráð fyrir
að skatttekjur sveitarfélagsins
verði um 98 milljónir, sem er
heldur Iægri tala en í fyrra.
Ljóst er að fjárhagsáætlunin
mun taka miklum breytingum
miili umræðna, einkum er lýt-
ur að framkvæmdahliðinni.
Síðari umræða er áætluð 1.
aprfl nk.
Pétur Þór Jónasson, sveitar-
stjóri í Eyjafjarðarsveit, segir
tvær ástæður fyrir því að skatt-
tekjur séu áætlaðar lægri í ár en í
fyrra. Önnur sé afnám aðstöðu-
gjaldsins og hin almennur sam-
dráttur í þjóðfélaginu, sem menn
búist við að komi niður á tekjum
sveitarfélagsins.
Skipting fjármuna í einstakar
framkvæmdir á vegum sveitar-
félagsins verður ekki ákveðin fyrr
en við síðari umræðu, en Pétur
Þór sagði þó ljóst að nokkrar
framkvæmdir yrðu útgjaldafrek-
ari en aðrar. Þannig rynnu tölu-
verðir fjármunir til frágangs
kjallara íþróttahússins á Hrafna-
gili, en þar voru innréttaðar
© VEÐRIÐ
Búist er við stormi á djúpmið-
um fyrir norðan land í nótt og
á morgun og éljagangi síð-
degis. Á Norðurlandi vestra
mun verða vaxandi noröan og
norðvestan átt með éljagangi
er líður á daginn og allhvasst
á annesjum. Á Norðaustur-
landi verður vaxandi norðvest-
anátt er líður tekur á daginn
en úrkomulítið.
stjóri, og Björn Ólafsson.
Samkvæmt upplýsingum Dags
kom fram á fundinum að menn
væru á eitt sáttir um að um þetta
mál yrði að nást friður og sam-
staða. í máli bæði fulltrúa Hrís-
eyinga og Grímseyinga á fundin-
um kom fram að eyjaskeggjar
myndu sjá mikið eftir Sæfara.
Fulltrúar Hríseyinga töldu að
ekki yrði sátt um málið ef Vega-
gerðin ætlaði að halda fast við þá
ákvörðun að taka tilboði Ey-
steins Þ. Yngvasonar, sem gerði
ráð fyrir að nota Árnesið í sjó-
flutninga á Eyjafirði.
Helgi Hallgrímsson, vegamála-
stjóri, sagði að misskilningur hafi
orðið til þess að Sæfari var settur
á söluskrá í Noregi. Vegagerð
ríkisins hafi aldrei óskað eftir að
skipið væri sett á söluskrá.
„Þarna virðist hafa verið einhver
misskilningur á ferðinni. Á ein-
hverju stigi var athugað verðmæti
skipsins, en sú athugun hefur
endað þannig að það fór á sölu-
skrá. Það var aldrei ætlun Vega-
gerðarinnar og þetta hefur þegar
verið leiðrétt," sagði Helgi. óþh
kennslustofur í fyrrasumar. Með-
al annars verður gengið frá loft-
ræstingu og frárennsli í sumar. Þá
sagði Pétur að umtalsverðir fjár-
munir færu í viðhald félags-
heimilanna í sveitarfélaginu,
Laugarborgar, Freyvangs og
Sólgarðs. Af öðrum fjárfrekum
framkvæmdum nefndi Pétur frá-
gang holræsikerfis í Hrafnagils-
hverfinu. óþh
Vorhugur er kominn í for-
svarsmenn Húsgulls og þeir
blása til stórfundar á Hótel
Húsavík þriðjudaginn 23. mars
kl. 20.30. Fundurinn er hald-
inn í samvinnu við Skógrækt
ríkisins, Landgræðslu ríkisins
og Húsavíkurbæ. Þrjár stórar
ráðstefnur hafa verið haldnar
um landvernd og uppgræðslu-
mál á Húsavík á síðustu árum,
sú fyrsta vorið 1989 þegar
Húsgull var stofnað.
Húsgull eru húsvísk samtök
um gróðurvernd, umhverfi, land-
græðslu og landvernd. Samtökin
eru ekta grasrótarhreyfing án
stjórnar, en hefur á að skipa
áhugasömum forsvarsmönnum.
Má í þeim flokki nefna: Sigurjón
Benediktsson, tannlækni, Árna
Sigurbjamarson, skólastjóra
Tónlistarskólans og Sigurjón
Atvinnuástandið í Húnavatns-
sýslum er svipað og verið
hefur, eða ekki gott. Á
atvinnuleysisskrá hjá Verka-
lýðsfélagi A-Hún. eru 50-60
manns á skrá, sem er svipuð
tala og undanfarið. Hjá Verka-
lýðsfélaginu Hvöt á Hvamms-
tanga eru heldur færri á skrá
en verið hefur. Formönnum
verkalýðsfélaganna þykir
ástandið þó ekki gefa tilefni til
bjartsýni.
Að sögn Valdimars Guð-
mannssonar formanns Verka-
lýðsfélags A-Hún. er útlitið ekk-
ert of gott. „Þetta virðist vera fast
hjá okkur 50-60 manns, það
Jóhannesson, fyrrverandi skóla-
stjóra.
Húsgull hefur m.a. séð um
átak landgræðsluskóga og komið
á samstarfi félaga, áhugahópa,
vinnustaða, fyrirtækja og bæjar-
yfirvalda um framgang verkefna
á sviði landgræðslu og skógrækt-
ar. Um 500 þúsund trjáplöntur
hafa verið gróðursettar í Húsa-
víkurlandi á síðustu fjórum árum
og stór hluti landsins friðaður fyr-
ir beit. Melar og auðnir hafa ver-
ið grædd upp í nánu samstarfi við
Landgræðslu og Skógrækt ríkis-
ins. Verksvið félagsins takmark-
ast ekki við Húsavík heldur
áhuga þess fólks sem mætir til
leiks.
Sex erindi verða flutt á fundin-
um á þriðjudagskvöldið: Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra
fjallar um stofnun útibús Land-
græðslu og Skógræktar á
rokkar reyndar aðeins til“, sagði
Valdimar. Hann segir t.d. ekkert
framundan í byggingariðnaði svo
vitað sé. Bygging brimvarnar-
garðar er ekki mannfrek fram-
kvæmd að sögn Valdimars, þótt
það taki eitthvað af skránni.
Hann segir skiptinguna nokkuð
jafna milli kynja, en meira sé af
yngra fólki en áður. Atvinnulaus-
ir eru hlutfalislega flestir úr bygg-
ingariðnaðinum. Félagið tekur til
allrar austursýslunnar nema
Skagastrandar.
Hólmfríður Bjarnadóttir for-
maður Verkalýðsfélagsins Hvat-
ar sagði atvinnuleysisdögum hafa
fækkað um þriðjung frá janúar til
febrúar. í febrúar voru 986 dagar
Norðurlandi. Jón Loftson skóg-
ræktarstjóri um framtíð skóg-
ræktar og rannsókna. Sveinn
Runólfsson landgræðslustjóri um
verkefnin framundan. Þröstur
Eysteinsson skógfræðingur um
hlutverk héraðsmiðstöðvar Skóg-
ræktar og Landgræðslu. Atli Vig-
fússon bóndi á Laxamýri ræðir
um tengsl þéttbýlis og dreifbýlis í
landgræðslu og skógrækt og Ein-
ar Njálsson bæjarstjóri um þátt
bæjarfélaga í endurheimt land-
gæða. í lok fundarins verður
opinn blaðamannafundur, þár
sem fréttamönnum gefst kostur á
að spyrja frummælendur og Hús-
gullsmenn um allt milli himins og
jarðar. Fundurinn er öllum opinn
og allir boðnir velkomnir til þátt-
töku, því eins og Húsgullsmenn
segja: „Húsgull er ekkert annað
en við sjálf. Styrkjum okkur og
verum með.“ IM
skráðir, eða um 50 störf, en
skráðir dagar voru 1502 í janúar.
Nálægt 70 manns voru á skránni í
febrúar, en einhverjir munu
komnir í vinnu, að sögn Hólm-
fríðar. M.a. hefur Meleyri hf.
verið að taka inn fólk. Verst
sé að fólk afneiti ástandinu
og hafi mönnum brugðið í brún á
fundi með atvinnurekendum
nýverið, þegar hún fór í gegnum
atvinnuleysistölur. Menn telji
atvinnuleysið árstíðabundið, en í
ljós hafi komið að svo var ekki á
síðasta ári. „Við erum að horfa á
viðvarandi atvinnuleysi, 15-20
störf á síðasta ári, svo stórversn-
aði þetta í nóvember. Ég veit
ekki hvort sú sveifla heldur
áfram, ég þori bara ekki að hugsa
um það“, sagði Hólmfríður.
Hólmfríður segir það fyrst og
fremst fólk „á góðum vinnualdri“
sem sé án atvinnu, en ekki ungl-
ingar og eldra fólk eins og margir
telji. Af ungu fólki eru fleiri karl-
menn atvinnulausir en konur og
útskýrir Hólmfríður það m.a.
með hefðbundinni verkaskiptingu
í fiskiðnaði. Hún segist ekki
bjartsýn á sumarið, þá komi
skólafólkið heim og fái líklega
enga vinnu. sþ
Seppi laus úr prísundinni:
Er úr Hofshreppi
Colly-hundurinn sem sagt frá í
gær og sagður hafa gist „hótel“
lögreglunnar á Dalvík var
raunar vistaður hjá lögreglunni
í Ólafsflrði. í gær hafði eig-
andinn, sem býr að Háleggs-
stöðum skammt frá Hofsósi,
samband við Ólafsfjarðarlög-
regluna og tilkynnti henni
eignarrétt sinn á seppagreyinu.
Seppa var búið að verða vart í
Ólafsfirði um hálfs mánaðar
skeið og þar áður í Fljótum þann-
ig að hann hefur komið um Lág-
heiði. Frá Háleggsstöðum til
Ólafsfjarðar eru um 70 km. GG
Fjárhagsáætlun EyjaQarðarsveitar:
Gert ráð fyrir tekjusamdrætti
Húsgull á Húsavík:
Hálf milljón tijáplantna gróður-
settar á flórum sumrum
- uppgræðslu- og umhverfismál til umræðu á opnum fundi