Dagur - 19.03.1993, Blaðsíða 3
Föstudagur 19. mars 1993 - DAGUR - 3
Fréttir
Sjávarútvegsráðherra sambands-
sflórnar Þýskalands til Akureyrar
Dr. Feiter, sjávarútvegsráð-
herra þýsku sambandsstjórnar-
innar, ásamt fríðu föruneyti, er
væntanlegur í heimsókn til
Akureyrar í dag í boði sjávar-
útvegsráðuneytisins.
í för með sjávarútvegsráðherr-
anum verða væntanlega Martin
Brick, landbúnaðarráðherra
Mecklenburg Vorpommern, dr.
Wendish, ráðuneytisstjóri í
Bonn, herr Roeloffs, aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra
Mecklenburg Vorpommern, dr.
Von Geldern, þingmaður í
Bonn, Werner, borgarfulltrúi í
Rostock, Wolter, einn aðalsamn-
ingamaður vegna kaupa ÚA og
þriggja aðila í Þýskalandi á
útgerðarfyrirtækinu Mecklen-
burger Hochseefisherei, Secand-
er, hafnarstjóri í Rostock, Piper,
framkvæmdastjóri Mecklenburger
Hochseefisherei, og dr. Gustavs,
túlkur.
Hinir þýsku gestir eru væntan-
legir til Akureyrar um kl. 12.30,
en af flugvellinum halda þeir rak-
leitt út í húsakynni ÚA, þar sem
snæddur verður hádegisverður.
Að honum loknum verður gest-
unum kynnt starfsemi og fram-
leiðsla ÚA. Því næst, eða um kl.
16, verður skoðunarferð um
Akureyri þar sem m.a. er ætlunin
að koma við í húsakynnum Hita-
veitu Akureyrar og Verkmennta-
skólanum. Klukkan 19.30 verður
síðan boðið til kvöldverðar á
Hótel KEA í boði sjávarútvegs-
ráðuneytisins.
Klukkan 9 í fyrramálið er áætl-
uð skoðunarferð í Fiskeldi
Eyjafjarðar á Hjalteyri og síðan
verður hádegisverður á Hótel
KEA í boði bæjarstjórnar Akur-
ieyrar. Heimsókninni lýkur kl.
13.30 á morgun þegar gestirnir
stíga upp í flugvél sem flytur þá
til Vestmannaeyja.
Þessi heimsókn til Akureyrar
tengist ekki síst kaupum Útgerð-
arfélags Akureyringa á 60% í
útgerðarfélaginu Mecklenburger
Hochseefisherei, sem endanlega
var gengið frá í Þýskalandi sl.
miðvikudagskvöld. Samkvæmt
kaupsamningnum taka hinir nýju
eignaraðilar við félaginu þann 1.
apríl nk. óþh
Vanskil vegna virðisaukaskatts og staðgreiðslu aukast:
Sýslumaimsembættið veitir
greiðslufrest til 26. mars nk.
Allflestir þeirra 123 aðila sem
fengu bréflega aðvörun í lok
febrúarmánaðar frá Sýslu-
mannsembættinu á Akureyri
um lokun vegna vanskila á
virðisaukaskatti hafa gert skil
en alls voru kröfurnar að upp-
hæð 45 milljónir króna. Af
þessum fjölda voru um 40
fyrirtæki og hafa nokkur þeirra
fengið úrslitafrest fram til nk.
mánudags og verða þá innsigl-
uð hafí greiðsla ekki borist fyr-
ir lok skrifstofutíma í dag.
Björn Rögnvaldsson fulltrúi
taldi líkur á að rekstur a.m.k.
tveggja fyrirtækja mundi þá
stöðvast vegna lokunaraðgerð-
anna.
Embættið hefur fengið nýja
áætlun um virðisaukaskatt og
staðgreiðslu opinberra gjalda og
verður því farið af stað fljótlega
með nýjan lokunarlista, en í vik-
unni fóru út bréf til þeirra sem
ekki höfðu gert skil á virðisauka-
Jónas Stefánsson, kennari í málmiðnaðardeild VMA leiðbeinir nemendum
sínum við rennibekkinn. Mynd: Robyn
Opið hús í VMA:
Starfsemin kynnt
og kaffi veitt
Á laugardaginn kl. 13-16 verð-
ur opið hús í Verkmennta-
skólanum á Akureyri. Kynntar
verða málsmíðadeild, raf-
magnsdeild og vélstjórnardeild
svo og aðstaða til bóklegs
náms í dagskóla og öldunga-
deild í húsakynnum skólans á
Eyrarlandsholti og einnig
Hússtjórnarsvið við Þórunnar-
stræti.
Að sögn Bernharðs Haralds-
sonar, skólameistara, verða
nemendur við störf í deildunum
og gefst almenningi kostur á að
kynnast starfseminni og fræðast
um námsbrautirnar. Þá er gestum
er boðið í kaffi. Kynningardagar
sem þessi hafa áður verið haldnir
í VMA og hafa líkað vel.
Leikklúbbur VMA, LOCOS,
frumsýndi nýverið leikritið Fyrir
austan mána og var gerður góður
rómur að sýningunni. Næstu sýn-
ingar verða í Gryfjunni á sunnu-
dag, mánudag og .þriðjudag. SS
skatti og fá þeir aðilar greiðslu-
frest til 26. mars nk. og í næstu
viku fara út bréf vegna vanskila á
staðgreiðslu opinberra gjalda
vegna janúar og febrúarmánaða.
Fjöldi þeirra sem nú fá aðvarnir
um lokun vegna vanskila er tölu-
vert meiri því mikið er áætlað á
þá sem eru með reiknuð laun í
staðgreiðslu en færri sem hafa
fengið áætlun í virðisaukaskattin-
um en þó fleiri en oftast áður en
þar er um að ræða desembermán-
uð 1992 sem standa átti skil á 5.
febrúar sl. GG
Frumsýnum
um helgina
kl. 14.00-18.00
laugardag og sunnudag
NISSAN
MICRA
BILL ARSINS
1993
16 ventla Twin Cam med aflstýri.
Upphituð sæti.
Einnig fáanlegir með sjálfskiptingu.
Verð frá kr. 799 þúsundum.
★
Einnig verður sýndur
Nissan Sunny og Subaru.
BSV
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri
ÚR KJÖTBORÐI
HRISALUNDUR
ÚR ÁVAXTABORÐI ÚR BRAUÐBORÐI
Blandað hakk
599 kr. kg
Nautagúllas
Nautasnitsel
2. fl. 998 kr. kg
Nautaframfillet
1630 kr. kg
Stór rauð epli
89 kr. kg
Kiwi
98 kr. kg
Rauð og græn
paprika
399 kr. kg
Ný brauð daglega
Fjallabrauð
59 kr.
Nýtts
Hvítlauksbrauð
frosin
138 kr.
Lambakótilettur 549 kr. kg
á meðan blrgðir endast
rkað sve rð i
■■■■■
VISA
Miiii