Dagur - 19.03.1993, Side 8
8 - DAGUR - Föstudagur 19. mars 1993
Dillidagar Framhaldsskólans á Húsavík:
„Það var rosalega gaman“
- segir Bergþóra Höskuldsdóttir, formaður NEF
- Birkir Bárðarson greinilega hæfasti nemandinn
Dillidagar eru orðnir hefð við
Framhaldsskólann á Húsavík
og voru haldnir í þriðja sinn á
dögunum, en þetta er sjötta
starfsár skólans. Á dillidögum
fá nemendur tilbreytingu frá
hinu hefðbundna skólastarfi,
en ýmislegt er þó gert bæði til
fróðleiks og skemmtunar. For-
maður Nemendaráðs Fram-
haldsskólans, skammstafað
NEF, er Bergþóra Höskulds-
dóttir, tvítugur nemandi á
hagfræðibraut sem hyggst
ljúka stúdentsprófinu í vor.
Dagur ræddi við Bergþóru um
dagskrá dillidaganna, hvernig
til hefði tekist, og um félagslíf-
ið í skólanum almennt.
- Dillidagarnir hófust með því
að nemendur fengu ekki þá kyn-
lífsfræðslu sem til stóð.
„Við áttum von á fyrirlesara að
sunnan, en kvöldið áður hringdi
hún og sagðist ekki komast þar
sem flugið hentaði henni ekki, þó
var flogið hingað bæði um morg-
uninn og kvöldið. Okkur fannst
of skammur fyrirvari til að fá
staðgengil."
- Eru nemendur þá mjög illa
upplýstir um kynferðismál?
Bergþóra Höskuldsdóttir, formaður
NEF. Myndir: IM
„Nei, það eru svo góðir for-
eldrar hér á Húsavík. Eg held að
þeir ræði þessi mál við börnin
sín.
En KK-band mætti og það var
rosalegt fjör fyrsta kvöldið á tón-
leikum, það komu 150-160
manns í Samkomuhúsið sem var
alveg stútfullt. Það hefði verið
hægt að halda aðra tónleika
nema vegna þess að hljómsveitin
var bókuð á Akureyri.
Það kom mér á óvart hvað
margir sóttu fyrirlestur hjá Veg-
inum næsta dag. Ég reiknaði með
að það yrðu fordómar í gangi
gagnvart þessu, fólk áliti að
þarna væri í gangi einhver heila-
þvottur þó það hefði ekki hug-
mynd um hvað Vegurinn stæði
fyrir eða stefnuna hjá þessu fólki.
Þarna var ágæt þátttaka og erind-
ið vakti skemmtilegar umræður
um trúmál, en slíkar umræður
eru yfirleitt ekki í gangi hjá ungl-
ingum. Ég held að það hafi kom-
ið fólki á óvart hvað þetta er líkt
þjóðkirkjunni okkar, nema hvað
fólkið er virkara og tjáir sig
meira.
Við vorum með bíósýningu,
sýndum myndina Nafn rósarinn-
ar.
Briddsmenn rótburstuðu
kennarana
- Er það satt að nemendur hafi
sigrað kennara í briddskeppni?
„Já, þeir rótburstuðu kennar-
ana alveg hreint. Við erum með
mjög gott lið og það er starfandi
briddsklúbbur í skólanum."
- Síðan var á dagskrá hjá ykk-
ur „Aðeins eitt líf“, fyrirlestur og
opnar umræður frá samstarfshópi
gegn sjálfsvígum ungmenna.
„Já, Soroptimistar á Húsavík
höfðu samband við okkur í
febrúar og ætluðu að fá sam-
starfshópinn á almennan fund.
Þær spurðu hvort við vildum ekki
nýta okkur tækifærið til að fá
fund með forvarnarhópnum.
Fyrirlesturinn var mjög vel sóttur
og allir mjög ánægðir með hann.
Þetta eru hlutir sem ekki er svo
mikið talað um, en svona hugsun
er kannski algengari en við
höldum. Mér fannst mjög gott að
fá þetta fólk hingað, og er á þeirri
skoðun að það þyrfti að vera sál-
fræðingur við skólann. Þó að sál-
fræðingur kæmi ekki nema einu
sinni í mánuði og talaði jafnvel
við krakkana í hóp, en þetta þarf
að vera sjálfsagt mál að geta leit-
að til sálfræðings.
Ásta Ólafsdóttir flutti einnig
fyrirlestur um fíkla og aðstand-
endur þeirra.
Það var haldin ræðukeppni
kennara og nemenda. Kennarar
unnu og Þórir Aðalsteinsson var
valinn ræðumaður dagsins. Það
var erfitt að fá lið í ræðukeppnina
og ekki langur fyrirvari sem þau
höfðu til undirbúnings. Nemend-
ur eru ákaflega lítið fyrir að
standa upp og segja sína skoðun
á málunum og ekkert málfunda-
félag er starfandi.
Bæjarstjórinn sagði
draugasögur
Það var haldin kvöldvaka með
húsvískum skemmtiatriðum.
Einar Njálsson bæjarstjóri las
fyrir okkur draugasögur, Val-
gerður Gunnarsdóttir og Ingi-
mundur Jónsson lásu uppáhalds
ljóðin sín, leikklúbbur skólans
var með atriði og söngkvartett
skemmti. Þetta var vel lukkað
kvöld.
Það er greinilegt að Birkir
Bárðarson er hæfasti nemandi
skólans, því hann vann dillibikar-
inn bæði í ár og í fyrra. Það er
keppt í hinum ýmsu námsgrein-
um og hárgreiðslu, íþróttum,
kappáti, kappdrykkju, blöðrur
eru sprengdar og nemendur
þurfa að sýna sínar bestu hliðar.
Keppt var í reiptogi yfir sund-
Björgvin Leifsson tekur við bikar fyrir hönd kennara.
Keppt um dillidagsbikarinn með kókdrykkju, sippi og kappáti.
Kennarar og nemendur keppa í blaki.
Áhorfendur skemmtu sér hið besta.
Ræðulið kennara: Þórir Aðalsteinsson, Vilhjálmur Pálsson, Björgvin Leifs-
son liðsstjóri og Guðrún Kristinsdóttir.
Ræðulið nemenda: Heimir Harðarson, Jónas Pálsson, Heimir Týr Svavars-
son liðsstjóri og Ásta Eir Eymundsdóttir.
laugina og síðan fórum við í fata-
sund og fengum að hafa laugina
nánast eins lengi og við vildum.
Það var rosalega gaman og farið
að nálgast miðnætti þegar síðasta
fólkið fór heim.
Það var keppt við kennara í
blaki og handbolta og að lokum
var árshátíð. Krakkarnir sem
komu fram stóðu sig mjög vel,
þátttaka var góð og ég held að
þetta hafi gengið mjög vel. Á eft-
ir var þrusuball með Sálinni og ég
held það hafi heppnast ágætlega.
Gerist ekkert nema við
höfum frumkvæði
- Er líflegt félagsstarf við
skólann?
„Það er að aukast. Leiklistar-
félagið starfar af miklum krafti
og svo er briddsklúbbur, íþrótta-
klúbbur og ljósmyndaklúbbur.
Útvarpsklúbbur starfrækir
útvarpsstöð, það er útvarpað
fastri dagskrá fimm sinnum í
viku. Ég held að hún sé nokkuð
vinsæl en hef heyrt á sumum að
þeim finnist tónlistin dálítið í
þyngri kantinum. Ég held að
þetta geti orðið mjög skemmti-
legt og haft góð áhrif á félags-
starfið.“
- Hvernig er með afþreyingar-
mál nemenda Framhaldsskólans?
„Það byggist allt á að krakk-
arnir geri eitthvað sjálfir. Það er
náttúrlega ekki eins mikið af til-
búinni afþreyingu og á Akureyri
eða í Reykjavík. Það gerist ekk-
ert nema við gerum eitthvað í því
sjálf að hafa gaman og hafa
eitthvað að gera. Mér finnst gott
að vera hérna, því ef þú vilt
eitthvað gera þá eru nóg tækifæri
til þess. Það er hægt að starfa í
klúbbunum og stunda íþróttir af
ýmsum toga. Félagslífið hefur í
raun mikið byggst upp á þátttöku
í íþróttum. Það er öllum frjálst
að stofna sína klúbba við
skólann, það þarf ekkert nema
hafa samband við Nemendaráð
og fá styrk til að gera eitthvað.
Mér finnst krakkarnir ekki nógu
duglegir við það, það vantar
framtakssemi en aðstaða er fyrir
hendi.“
- Hvernig líkar ungum
Húsvíkingum lífið og hvað hygg-
ist þið fyrir í framtíðinni?
„Mér líkar lífið ágætlega,
svona flestar stundir. Framtíðin
er ekki mjög skipulögð og ég lifi
svolítið fyrir daginn í dag. Við
verðum vör við að það er orðið
offramboð af háskólamenntuðu
fólki. Það er mikið talað um tak-
markanir inn í skóla og okkur
finnst við þurfa að vera mjög klár
og að vita vel hvað við viljum í
sambandi við framhaldsnám. Ég
er að verða 21 árs og veit ekki
enn hvað ég vil gera í framtíð-
inni.“
- Hver eru lokaorðin, Berg-
þóra?
„Ég vil þakka öllum sem
aðstoðuðu okkur við dagskrá
dillidaganna. Ég er ánægð með
þátttökuna og vona að nemendur
séu ánægðir.“ 1M