Dagur - 20.05.1993, Qupperneq 5
Fimmtudagur 20. maí 1993 - DAGUR - 5
Svar til Péturs Jósefssonar frá Jóni Björnssyni,
félagsmálastjóra:
Dagvistin teiknuð en aldrei byggð
- vegna ágreinings í bæjarstjórn Akureyrar
Á þcssari lóð, vestan Þórunnarstrætis, stóð til að rcisa dagvistina Hamarkot.
Mannvirkið var hannað og teiknað en framkvæmdir hófust hins vegar
aldrci, vegna ágreinings í bæjarstjórn, að því er kcmur fram í svari Jóns
Björnssonar félagsmálastjóra til Péturs Jósefssonar. Á Ióðinni hafa nú verið
reistir stúdentagarðar. Mynd: Robyn
Of lengi hefur dregist aó svara
fyrirspurn sem þú barst fram í
Degi að ég held snemma í apríl,
og bið ég afsökunar á því. Þar
spyrð þú: „Er það rétt að í fórum
dagvistarstofnana bæjarins sé til
fullhönnuð dagvist með öllum
teikningum aö núvirði 5-7 millj-
ónir króna?“
í júlí árið 1980 samþykkti fé-
lagsmálaráð Akureyrarbæjar að
sækja um lóð vestan Þórunnar-
strætis gegnt Lögreglustöóinni,
þar sem nú hafa risið stúdenta-
garðar. Þar sem bygging á þessum
staó er áberandi í bæjarmyndinni
ákvað félagsmálaráð að vandað
skyldi til hennar. I júlí 1981 sam-
þykkti félagsmálaráð aó leita til
Valdísar Bjarnadóttur, arkitekts,
um hönnun en hún hafói vakið at-
hygli ráósins og fleiri fyrir snjallar
hugmyndir á þessu sviói. Valdís
vann næsta ár að hönnun hússins,
sem í daglegu tali var nefnt Ham-
arkot, og það var að ég held mat
allra sem kynntu sér, að hún heföi
hannað afburðahúsakynni fyrir
þessa starfsemi. Það var hins veg-
ar álitið að byggingin yrði dýrari
heldur en ef byggt hefði verið
með sama lagi og Síðusel er og
Flúðir enda íburðarmeiri. Mig
minnir að því hafi vcrið spáð að
þessi munur næmi 12% á rými. Eg
álít að þetta hafi verió megin-
ástæðan fyrir því, að þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir tókst aldrei
samstaða um að hefja bygginguna,
allavega voru þetta þau rök sem
oftast voru nefnd. Félagsmálaráó
lagði ítrekað til, að hafist yrði
handa við bygginguna, síðast á ár-
inu 1987, en allt kom fyrir ekki.
Samstaða náðist aldrei um það í
bæjarstjórn og að lokum gafst fé-
lagsmálaráð upp við að leggja
þetta til og fór aðrar leiðir.
Það er því rétt til getið hjá þér,
„Það er því rétí til getið hjá
þér, Pétur, að í fórum dagvistar-
deildar eru byggingarteikningar,
burðarþols- og frárennslisteikn-
ingar að Hamarkoti, fjögurra
deilda dagvist, eins og slík hús
voru kölluð í þá daga, eftir Valdísi
Bjarnadóttur arkitekt og Gunnar
Inga Ragnarsson, verkfrœðing,
dagsettar 1982, sem aldrei vargert
annað með en deila um það hvort
byggt skyldi eftir þeim. Það var
synd, þvíþessi teikning var að
mínu mati afbragð og langt á
undan sinni samtíð
Pétur, að í fórum dagvistardeildar
eru byggingarteikningar, burðar-
þols- og frárennslisteikningar að
Hamarkoti, fjögurra deilda dag-
vist, eins og slík hús voru kölluð í
þá daga, eftir Valdísi Bjamadóttur
arkitckt og Gunnar Inga Ragnars-
son, verkfræðing, dagsettar 1982,
sem aldrei var gert annað með en
deila um það hvort byggt skyldi
eftir þeim. Það var synd, því þessi
teikning var að mínu mati afbragð
og langt á undan sinni samtíð. í
reikningum Akureyrarbæjar fyrir
árið 1982 er eignin í þessum
teikningum metin á kr. 717.216
kr. Sé sú upphæð hækkuð til sam-
ræmis vió byggingarvísitölu und-
anfarin tíu ár fær maður út verð-
mæti á bilinu 5-6 milljónir. Það
þarf mér fróðari menn til að meta
hvort sú reikniaðferð á við í þessu
tilviki.
Jón Björnsson,
félagsmálastjóri.
Fyrirsögn er blaösins.
Tónlist_____________________
Galgopar og glatt fólk
Laugardaginn 15. maí efndu
Galgoparnir, kvintettinn, sem
framan af kallaði sig kvartett, til
árlegrar „jólaskemmtunar“ sinnar.
Tíminn er vissulega undarlegur,
þcgar um er að ræða samkomu
með þessu nafni, en, cins og
kynnir viðburðarins, Birgir Svein-
björnsson, útskýrði lipurlega og
kímilega fyrir hinum fjölmörgu
áheyrendum, scm bókstaflega
troðfylltu félagsheimilið Frey-
vang, leit hann svo á að ekki ein-
ungis þessir tónleikar væru undar-
legir, heldur líka llest annað í
sambandi við söngflokkinn Gal-
gopa.
Galgopar hafa notið mikilla
vinsælda og þeirra sívaxandi þau
ár, sem þeir hafa starfað. Fjölhliða
geta þeirra í söng og lífleg cn hóg-
leg sviðsframkoma eru án efa
stórir þættir í þessu efni.
Efnisskrá flokksins á tónleik-
unum í Freyvangi hófst á nokkr-
um lögum, sem flokkurinn flutti
meó yfirveguðum konsertblæ.
Þcirra á meðal má nefna Oh,
When the Saints, A vegamótum
og Sól rís. Raddsetningar voru
góðar og nutu sín vel í meðferð
flokksins, þar sem hver söngmað-
ur gætti þess svo vel, að varla bar
á skugga, að samfella raddanna
væri við hæfi og hver nyti sín. Fé-
lagarnir sýndu einnig eftirtcktar-
veróa og góöa getu í söng án und-
irleiks, þegar þeir til dæmis fluttu
lagið Tveir þrestir og gerðu sann-
arlega fallega.
Seinni hluti söngskrár Galgop-
anna var léttari og einkenndist af
glensi, þar sem þeir gerðu mest af
því að gera kostulegt grín að sjálf-
um sér. Slíkt grín er gott til vin-
sælda. Það særir yfirleitt ekki, en
vekur jafnan hlátur, eins og Iíka
að er stefnt. Því markmiði náði
flokkurinn sannarlega og átti
Birgir Sveinbjömsson sinn góða
þátt í því. I þessu sambandi gam-
anmála má ekki láta ógetið
kcrsknisvísna Atla Guðlaugsson-
ar, sem hann flutti á milli laga við
góðar undirtektir.
Gestur á tónleikum Galgop-
anna var Þorvaldur Halldórsson.
Hann söng nokkur lög með Gal-
gopunum en auk þess flutti hann
nokkur einsöngslög vió lipran
undirleik Gunnars Gunnarssonar á
píanó. Lögin voru Go Down,
Moses, Summertime og 01’ Man
River. Rödd Þorvaldar hefur
óskertan hinn breiða, mjúka og
fulla blæ, sem gerir hana aðlað-
andi og seióandi. Hins vegar var á
rödd hans að þessu sinni eitthvert
ryk og nokkur óstyrkur í stuðn-
ingi. Framlag hans var vel þegió
af áheyrendum, eins og viö átti,
enda hans hlutur í tónleikunum al-
mennt góður.
Galgopar eru góður og metnað-
arfullur söngflokkur, sem hefur
greinilega sett sér það markmið,
að geta jafnt flutt tónlist á listræn-
an hátt sem með skoplegum
skemmtibrag. Þessum markmið-
um hefur flokkurinn náð að miklu
leyti. A sviði hins listræna flutn-
ings var eitt það besta, sem flokk-
urinn flutti á tónleikunum, fínleg
túlkun hans á laginu Mood Indigo.
Lagið er viókvæmt og krefst veru-
legrar næmni og nákvæmni. I
þessu lagi og mörgum öðrum átti
undirleikari Galgopanna, Guöjón
Pálsson, stóran þátt með hóflegum
og viðeigandi undirleik, sem lyfti
flutningi hvarvetna, skreytti og
gafbrag.
Birgir Sveinbjömsson spáði
því, að jólatónleikar Galgopanna á
næsta ári (1994) yrðu líklega í júlí
ef marka mætti þróun síðastlið-
inna ára og þessa. Hinir fjölmörgu
aðdáendur söngflokksins geta ekki
betur gert en hlakka til og vona,
að tónleikarnir mjatlist ekki hrcin-
lega út af árinu.
Haukur Ágústsson.
Sumarnámskeið
Golfklúbbs Akureyrar
/ sumar mun Golfklúbbur Akureyrar bjóða upp á
golfnámskeið fyrir börn fcedd 1980-1985 og verður
hvert námskeið í 2 eða 4 vikur í senn og byrjar pað
fyrsta 1. júní. Alls verða námskeiðin 6 í sumar og
eru pau 4 tíma á dag frá kl. 10.00-14.00 alla virka
daga.
Aðalmarkmið námskeiðanna verður að börn læri öll
helstu grundvallaratriði golfsins svo sem golfgripið,
golfsveifluna, golfstöðuna, púttin, golfreglurnar og
umgengni um golfsettið og golfvöllinn. Aðalkennari
verður David Barnwell sem er hámenntaður golf-
kennari frá Englandi (talar góða íslensku) og honum
til aðstoðar eru tveir af efnilegustu og bestu
golfspilurum landsins peir Siggi Palli og Öddi.
Þátttökugjald er kr. 3000 fyrir 2 vikur en kr. 5000
fyrir 4 vikur.
Innifalið í verðinu eru öll golfáhöld til æfinga.
Boðið verður upp á léttan kaffitíma svo að börnin
þurfi ekki að taka með sér nesti og í lok hvers
námskeiðs verður haldin pylsuveisla og allir fá
viðurkenningarskjal frá golfskólanum.
Innritun og allar nánari upplýsingar eru veitar hjá
GA í síma 22974.
í dAq kl. 1 5.00
FjöLskylduskEMMTUN
STÓRubÖRNÍN oq
FösTiidAquR
S j /V LIA k RÁ Í N
TodMobiU
LAuqARdAquR
KjaILarínn
GuðMUNdlJR RÚNAR
TRÚbAdOR STjÓRNAR fjöldASÖNq
fÍMMTud, fÖSTud. oq ÍAUqARd.