Dagur - 20.05.1993, Síða 8

Dagur - 20.05.1993, Síða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 20. maí 1993 Þorvaldur Örlygsson, knattspymumaður frá Akureyri, hefur leikið sem atvinnumaður með enska liðinu Notting- ham Forest síðastliðin ár. Hann gerði samning við félagið þann 15. desember árið 1989 og hefur átt bæði góða daga og slæma hjá Forest á þessum tíma. Félagið stendur nú á tímamótum og sjálfsagt vilja flestir stuðningsmanna liðsins, gleyma nýafstöðnu keppnistímabili sem fyrst. Forest féll í 1. deild í vor og þá var hinum litríka framkvæmdastjóra félagsins, Brian Clough, sagt upp störfum eftir áratuga starf. Við starfi hans er tekinn Frank Clark, sem á ámm áður lék með liðinu. Clark hefur undanfarin ár stjómað Lundúnaliðinu Leyton Orient en gerði nýlega tveggja ár samning við Forest. Dagur hitti Þorvald að máli á heimili hans í Nottingham fyrir skömmu og spjallaði við hann um tíma sinn hjá Forest, íslenska landsliðið og fleira. Hann var fyrst spurður að því hvort það hafi alltaf verið stefnan að gerast atvinnumaður í fótbolta. í atvinnumennsku eru bæði góðar stundir og slæmar og maður reynir að nýta þær góðu - segir Þorvaldur Örlygsson, knattspyrnumaður á Englandi í viðtali við Dag „Ég held aó það sé stefnan hjá hvaða strák sem spilar fótbolta að komast í atvinnumennsku. Heima á Islandi er það fjarlægur draum- ur og möguleikarnir á því að komast í atvinnumennsku eru ekki miklir.“ Góðar stundir og slæmar í atvinnumennskunni - En er raunveruleikinn sá sami og draumurinn? „Það er langt því frá og allt miklu tilkomumeira í fjarlægð og manni finnst allt miklu betra ann- ars staðar. I atvinnumennsku eru bæði góðar stundir og slæmar og maður reynir að nýta þær góðu.“ - Hvemig finnst þér að ganga inn á völlinn þar sem þúsundir af öskrandi stuóningsmönnum eru til staðar? „Ég held að það sé eitt af því sem gefur lífinu gildi í atvinnu- mennskunni. Þegar maður er að spila, er maður eins og hver annar leikari, maður fer inn á völlinn til að sýna sig og sjá aðra. Maður fær „kick“ útúrþví." - Þorvaldur hefur verið at- vinnumaóur hjá Forest í tæp fjög- ur ár og því er ekki úr vegi að spyrja hann að því hvernig þessi tími hafi verið. „Fyrsta tímabilió var mjög skemmtilegt, ég komst strax í lið- ið og mér gekk nokkuð vel. Síðan lenti ég upp á kant við bæði þjálf- ara og stjóm og í fyrra var ég ekkert með aðalliðinu. Það var geysilega erfiður tími og reyndi mikið á taugarnar, bæði hjá mér og fjölskyldu minni. Það var erf- iðasti tíminn hjá félaginu og í raun mjög lærdómsríkur en ég mundi ekki vilja ganga í gegnum hann aftur.“ Aðstaðan hjá Forest með því besta semgerist - Hvað er þú búinn að spila marga heila leiki með aðalliði Forest? „Já þar kom að því,“ segir Þor- valdur og brosir. „Eg get nú ekki svarað því nákvæmlega en ætli þeir séu ekki um 50-60.“ Þorvaldur segir að aðstaðan hjá Forest sé með því besta sem ger- ist á Englandi og jafnvel þó víðar væri leitað. „Forest er stór klúbb- ur og fjárhagslega vel stæóur og hann er vel rekinn.“ - Hvemig er æfingum háttað fyrir mót og á meðan keppnis- tímabilió stendur yfir? „Við mætum til æfinga mánuði fyrir mót. Þá er mikið um hlaup og m.a. langhlaup í skóginum hér við Nottingham. Þá er farið í ferðalög út í heim og spilaðir æf- ingaleikir. Erfiðast tíminn er á undirbúningstímabilinu og í upp- hafi móts. Eftir að deildarkeppnin er komin vel af stað, eru æfingar komnar í fastar skorður og þá ekki eins erfiðar." Er undirbúningur atvinnu- manna hjá Forest fyrir keppnis- tímabilið og síðan fyrir leiki, eitt- hvað öðruvísi en t.d. hjá KA, er þú spilaðir á Islandi? „Undirbúningur fyrir keppnis- tímabilió heima á íslandi er tölu- vert erfiður, ekki síst þar sem vet- urnir eru bæði harðir og langir og aðstaðan léleg. Aðstaðan á Akur- eyri er sérstaklega slæm og það er til skammar að knattspymumönn- um þar skuli ekki boðið upp á betri aðstöðu. Undirbúningur fyrir leikina sjálfa er mjög ólíkur hjá t.d. Forest og KA. Leikmenn á Is- landi undirbúa sig geysilega vel fyrir leiki og gefa sér langan tíma í það. Þar koma menn saman 2-3 tímum fyrir leik og ræða málin. Hjá Forest mæta leikmenn klukkutíma fyrir leik og sjá þá á töflu upp á vegg hvort þeir eru í liðinu þann daginn eða ekki.“ Brian Clough er skrýtin persóna - Brian Clough, fráfarandi fram- kvæmdastjóri Forest, þykir litrík- ur persónuleiki, hvemig hafa sam- skipti ykkar verið þann tíma sem þú hefur verið hjá liðinu? Þorvaldur Örlygsson framan við húseign sína í Nottingham, ásamt fréttaritara Dags, Kristel Kristjánsdóttur. Mynd: Svafa Björg. ◄ „Samskipti okkar hafa verið bæði upp og ofan. Hann er sú skrýtnasta persóna sem ég hef nokkurn tíma fyrir hitt á ævinni. Ég mun sennilega aldrei hitta jafn sérstakan og skrýtinn náunga aftur á ævinni. Hann hefur í rauninni ekki haft nein samskipti við leik- menn sína allan sinn fram- kvæmdastjóraferil. Hann hefur samt átt það til að vera skemmti- legur og einnig leiðinlegur líka. Hann fer sínar eigin leiðir og mun gera það áfram. Ég hef þó lært ýmislegt af honum og kem til með að notfæra mér það í framtíð- inni.“ - Það hlýtur að hafa verið mik- ið áfall fyrir Forest að falla í 1. deild? „Já, það var geysilegt áfall fyrir svona stóran klúbb eins og Forest aó þurfa að horfa á eftir úrvals- deildarsætinu og eins er þetta áfall fyrir enska knattspymu. Forest er með góðan mannskap og hefur spilað góðan fótbolta en svo eru önnur lið enn í úrvalsdeildinni, sem bæði hafa spilað illa og hafa ekki á að skipa eins góðum leik- mönnum. En svona gengur þetta í knattspyrnunni." Þorvaldur segir ljóst að í fram- haldinu komi til með að verða breytingar á leikmannahópi fé- lagsins, bæði vegna þess að liðið féll og eins vegna þess að búið er að skipta um framkvæmdastjóra. „Hvort þessar breytingar komi til með að eiga sér stað strax í sumar eöa á næsta ári veit ég ekki en ég á von á að stjömumar fari en kjaminn haldi áfram.“ Þorvaldur hættir hjá Forest Þovaldur átti allt eins von á því að halda áfram aó leika með Forest og þegar viðtalið var tekið í síð- ustu viku, var hann á leið í samn- ingaviðræður um allt 2-3 ára

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.