Dagur - 20.05.1993, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 20. maí 1993
Hvað er að gerast?
Uppboð
Uppboð munu byrja
á skrifstofu embættisins að
Útgarði 1, Húsavík,
þriðjudaginn 25. maí 1993 ki. 10.00,
á eftlrfarandi eignum:
Austurvegur 6, Þórshöfn, efri hæð,
þingl. eig. Hjalti Jóhannesson,
gerðabeiðendur Húsnæðisstofnun
ríkisins, lögfr.deild og Sýslumaður-
inn á Húsavík.
Baldursbrekka 9, Húsavík n.h.,
þingl. eig. Hermann Jóhannsson,
gerðarbeiðandi Samvinnulífeyris-
sjóðurinn.
Baughóll 19, þingl. eig. Aðalsteinn
S. Isfjörð, gerðarbeiðandi Kaup-
félag Þingeyinga.
Brúnagerði 1, Húsavík, þingl. eig.
Árni Logi Sigurbjörnsson, gerða-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins
og Mikligarður hf.
Garðarsbraut 13, e.h. og ris, Húsa-
vík, þingl. eig. Svavar C. Krist-
mundsson, gerðarbeiðandi Ríkis-
sjóður.
Hallgilsstaðir 1, Sauðaneshreppi,
þingl. eig. Jónas Lárusson, gerðar-
beiðandi Húsnæðisstofnun ríkisins,
lögfr.deild.
Hamrar Reykjadal, íbúðarhús
ásamt lóðarréttindum, þingl. eig.
Jón Fr. Benónýsson, gerðarbeið-
andi innheimtumaður ríkissjóðs.
Höfðavegur 20 n.h., Húsavík, þingl.
eig. Grétar Jónasson, gerðarbeið-
andi Tryggingastofnun ríkisins.
Langanesvegur 19, Þórshöfn, þingl.
eig. Magnús Jónsson, gerðarbeið-
andi Tryggingastofnun ríkisins.
Langanesvegur 28, Þórshöfn, þingl.
eig. Kaupfélag Langnesinga, gerð-
arbeiðandi Iðnþróunarsjóður.
Litlagerði 4, Húsavík hluti, þingl.
eig. Gestur Halldórsson, gerðar-
beiðandi Húsnæðisstofnun ríkisins,
lögfr.deild.
Mýlaugsstaðir, Aðaldælahreppi,
þingl. eig. Arnar Andrésson, gerða-
beiðendur Stofnlánadeild landbún-
aðarins og Sýslumaðurinn á Húsa-
vík.
Pálmholt 3, Þórshöfn, þingl. eig.
Fjóla Þorsteinsdóttir, gerðarbeið-
andi Sjóvá-Almennar hf.
Sandvík Öxarfjarðarhreppi, íbúðar-
hús, þingl. eig. Hans Alfreð Kristjáns-
son, gerðarbeiðandi innheimtumað-
ur ríkissjóðs.
Skútahraun 2a, Reykjahlíð, þingl.
eig. Sæþór Kristjánsson, gerðar-
beiðandi Húsnæðisstofnun ríkisins,
lögfr.deild.
Sumarbústaður í landi Reykja II
Hálshreppi, þingl. eig. Ármann
Sverrisson, gerðarbeiðandi fslands-
banki hf. Akureyri.
Þór Pétursson ÞH-50, þingl. eig.
Njörður hf., gerðabeiðendur Friðrik
Sigurðsson, Höfnin Keflavík-
Njarðvík, Landsbanki (slands
Reykjavík og Lífeyrissjóður sjó-
manna.
Sýslumaðurinn Húsavík
18. maí 1993.
Hringur, Eiríkur
og Kjartan í
Listhúsinu Þingi
Næstkomandi laugardag kl. 15
opna þrír landskunnir listmálarar,
Hringur Jóhannesson, Kjartan
Guðjónsson og Eiríkur Smith, sýn-
ingu í Listhúsinu Þingi á Akureyri.
Á sýningunni eru 30 olíumálverk
og vatnslitamyndir. Verkin eru öll
til sölu og fást með góðum kjör-
um. Oli G. Jóhannsson og Lilja
Sigurðardóttir, er fyrrum stóðu að
rekstri Gallerý Háhóls, standa að
sýningunni og er fólk hvatt til að
láta ekki góöa sýningu framhjá sér
fara. Sýningin verður opin um
helgar frá kl. 15 til 22 og virka
daga frá kl. 18 til 21. Sýningin
stendur til 1. júní nk.
Danski jasskvintettinn, Ja/.ztalk".
„Jazztalk“ í
Gagnfræða-
skólanum
Danski djasskvintettinn „Jazztalk“
heldur tónleika í Gagnfræðaskól-
anum á Akureyri nk. sunnudags-
kvöld, 23. maí, kl. 20.30. Kvintett-
inn leikur sveiflutónlist, einkum
frá 3. og 4. áratugnum, en bossa-
og blústónlist hefur einnig bæst á
dagskrána. í kvintettinum eru
Jörgen Kruse, píanó, Peter Bartels,
bassi, Hanne Marie Lorenzen,
söngur, og Morten Brink, tromm-
ur. Frá Akureyri liggur leió fjór-
menninganna til Reykjavíkur þar
sem „Jazztalk" heldur tónleika á
RÚREK jasshátíðinni. Frá íslandi
fer hópurinn til Grænlands, þar
sem hann heldur þrenna tónleika.
Kredit á Dropanum
Hin sívinsæla rokkhljómsveit
Kredit spilar fyrir gesti Dropans í
kvöld, annað kvöld og laugardags-
kvöld. Hljómsveitin hefur tekið
stakkaskiptum að undanfömu og
mun frumflytja nýtt efni á Dropan-
um. Kredit skipa Ágúst, bassi og
raddir, Halli, raddir og gítar,
Haukur, trommur, hljómtrommur
og raddir og Ingvar Arinbjöm, gít-
ar og raddir.
Pláhnetan í ’ 29
Hljómsveitin Pláhnetan með Stef-
án Hilmarsson í broddi fylkingar
leikur fyrir dansi á skemmtistaðn-
um 1929 á Akureyri annaó kvöld,
föstudag. Þetta er fyrsti dansleikur
hljómsveitarinnar, en á næstunni
er væntanleg fyrsta hljómplata
hennar. Þjóðlagarokksveitin Papar
tekur lagið á efri hæð Café ’ 29 í
kvöld, uppstigningardag.
Andrea Gylfadóttir og blúsmenn
hennar verða á Sjallakránni í kvöld.
Blúsmenn Andreu
Todmobile og
Skriðjöklar
í Sjallanum
í kvöld verða Blúsmenn Andreu á
Sjallakránni og annað kvöld leika
svo Todmobile og er aðgangur
ókeypis bæði kvöldin. Skriðjöklar
sjá síóan um fjörið í Sjallanum á
laugardagskvöldió, en ný hljóm-
plata er væntanleg frá hljómsveit-
inni og er útgáfudagur áætlaður 3.
júní. Guðmundur Rúnar Lúðvíks-
son, trúbador, listamaður og veiði-
maður stjómar fjöldasöng í Kjall-
aranum í kvöld, annað kvöld og
laugardagskvöld.
Sönghátíð í
Dalvíkurkirkju
Annað kvöld, föstudag, kl. 21,
verður sönghátíð í Dalvíkurkirkju
til styrktar orgelsjóöi kirkjunnar.
Fram koma Kór Dalvíkurkirkju,
Kirkjukór Svarfdæla, Karlakór
Dalvíkur, kvennakór og karlakvar-
tett og einnig verður dúett og ein-
söngur. Stjómendur eru Hlín
Torfadóttir og Jóhann Ólafsson.
Gestir kvöldsins verða Óskar Pét-
ursson, tenór, og Guðrún A. Krist-
insdóttir, píanóleikari. Aðgangs-
eyrir er kr. 1000 fyrir fullorðna.
Kristján Krist-
jánsson.
Heimspekifyrir-
lestrar á Húsavík
Næstkomandi mánudagskvöld kl.
20.30 flytja heimspekingamir dr.
Guðmundur Heiðar Frímannsson
og dr. Kristján Kristjánsson, sem
báðir starfa við Háskólann á Akur-
eyri, fyrirlestra í Félagsheimili
Húsavíkur um efni er þeir nefna „á
mörkum lífs og dauða“. Kristján
fjallar fyrst um hugtakið líknar-
dráp og hvort slíkt dráp sé sió-
ferðilega réttlætanlegt í einhverj-
um tilvikum. Guðmundur Heióar
ræóir um spuminguna hvenær lífi
manns sé lokið og hvort nýleg
lagabreyting á skilgreiningu
dauðahugtaksins veki upp einhver
siðferðileg álitamál. Á eftir fyrir-
lestrunum verður gefinn kostur á
fyrirspumum og umræðum. Til
fyrirlestranna er boóað í tilefni 75
ára afmælis Læknafélags Islands.
Roar Kvam er stjórnandi Karla-
kórs Akureyrar- Geysis.0
Vortónleikar
Karlakórs Akur-
eyrar-Geysis
Karlakór Akureyrar-Geysir undir
stjóm Roars Kvam heldur vortón-
leika í Skemmunni á Akureyri í
kvöld, uppstigningardag, kl. 20.30
og nk. sunnudag á sama tíma. Ein-
söngvarar með kómum verða þeir
Jón Þorsteinsson, tenór, og Micha-
el Jón Clarke, baritón. Blásarasveit
æskunnar Ieikur undir í tveim lög-
um; Landkjenning eftir Grieg og
Hermannakómum úr Faust. Á efn-
isskránni eru lög eftir innlenda og
erlenda höfunda. Þeir innlendu eru
Ámi Thorsteinsson, Björgvin
Guðmundsson, Jóhann Ó. Haralds-
son, Karl Ó. Runólfsson, Jón
Bjömsson, Sigvaldi Kaldalóns og
Sigfús Einarsson.
Lokadans-
leikur „nikkara“
Félag harmonikuunnenda við
Eyjafjörð heldur spilavist og loka-
dansleik í Lóni við Hrísalund nk.
laugardag. Spilavistin hefst kl.
20.30 og dansleikur kl. 23.
Dagur aldraðra í
Akureyrarkirkju
Undanfarin ár hefur uppstigningar-
dagur verið dagur aldraðra í kirkj-
um landsins. Þetta hefur mælst vel
fyrir og kirkjurnar verið þétt setn-
ar. Aldraðir hafa tekið virkan þátt í
helgistundum og leikmenn stigið í
stólinn. í ár mun Sverrir Pálsson,
fyrrverandi skólastjóri, prédika við
guðsþjónustuna, sem hefst kl. 14.
Kór aldraðra á Akureyri mun leiða
sönginn og organisti verður Sig-
ríóur Schiöth. Aó messu lokinni
verður kaffisamsæti í Safnaðar-
heimili í boði sóknamefndar.
Handavinnusýn-
ing og kaffisala
Hin árlega handavinnusýning og
kaffisala heimilis- og dagvistar-
fólks á Dvalarheimilinu Hlíð verð-
ur nk. sunnudag, 23. maí, kl. 14 til
17. Söluhom verður meó handa-
vinnu auk kaffisölu í borðstofu.
Uppskeruhátíð
Skákfélagsins
Uppskeruhátíð Skákfélags Akur-
eyrar verður kl. 14 á sunnudag í
húsnæði Skákfélagsins við Þing-
vallastræti. Afhent verða verólaun
fyrir mót sem haldin hafa verið
eftir áramót. Boðið verður upp á
kaffi og að því búnu verður teflt.
Allir eru velkomnir.
Bólumarkaður
í miðbænum
Næstkomandi laugardag kl. 11 til
15 verður fyrsti Bólumarkaður
sumarsins í göngugötunni á Akur-
eyri. Þar verður á boðstólum fjöl-
breytt úrval fallegra muna á sann-
kölluóu markaðsverði. Mikið
verður um að vera þennan dag og
má búast við fjölmenni í miðbæn-
um. Þeir sem óska eftir að nýta sér
þjónustu þá sem Bólumarkaðurinn
hefur upp á að bjóða (þaó er að
leigja sér borð) er bent á snúa sér
til Asthildar í síma 26869 á kvöld-
in.
Leðurblakan í
Samkomuhúsinu
Leikfélagar Akureyrar verður með
tvær sýningar á Leðurblökunni eft-
ir Johann Strauss um helgina.
Fyrri sýningin verður annað kvöld
kl. 20.30 og sú síðari á sama tíma
á laugardagskvöldið.
Elskhuginn
í Borgarbíói
Um helgina kl. 21 sýnir Borgarbíó
á Akureyri myndimar Elskhuginn
og Chaplin. Klukkan 23 verða
sýndar myndimar No^ money og
Night and the City. Á bamasýn-
ingum á sunnudag verða sýndar
myndimar Hakon Hakonsen og
Burknagil. Okeypis verður á
bamasýningarnar.
Sænskur gestur í
Púlsinum
Sænski dansarinn Jazmine veröur
gestur í Púlsinum í KA-heimilinu
á Akureyri um helgina. Hún mun
halda námskeið bæði á laugardag
og sunnudag.
MEN0R fréttir
Laugardagur 22. maí, kl. 17:00
Skólaslit í Akureyrarkirkju.
Mánudagur 31. maí. Karlakór-
inn Heimir, Skagafirði, syngur í
Dalvíkurkirkju kl. 15.30. Söng-
stjóri Sólveig S. Einarsdóttir, und-
irleikari Thomas Higgerson.
Mánudagur 31. maí. Karlakór-
inn Heimir, Tjamarborg í Ólafs-
firði kl. 21.
]jj ENGIN HÚS ÁN HITA ]f1
Vortilboð
Hreinlætistæki ★ Blöndunartæki
Sturtuklefar ★ Sturtuhorn.
Sýnum einnig flísar á gólf og veggi og
Nomaco baðinnréttingar.
mm
Verslið við
fagmann.
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
HREINLÆTISTÆKI
STURTUKLEFAR 0G HURÐIR
BLÖNDUNARTÆKI
ALLT EFNI TIL PÍPULAGNA
JAFNAN FYRIRLIGGJANDI
Nauðungaruppboð
Bifreiðamar GL-365 og IN-534 verða boðnar upp við
lögreglustöðina á Raufarhöfn, fimmtudaginn 27. maí
1993 kl. 14.00.
Ennfremur verða bifreiðarnar Þ-2539, LF-694 og
LA-301 boðnar upp við lögreglustöðina á Þórshöfn
sama dag kl. 16.00.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Sýslumaðurinn Húsavík.