Dagur - 20.05.1993, Qupperneq 11
Fimmtudagur 20. maí 1993 - DAGUR - 11
Mannlíf
Eik á Akureyri, íþróttafélag
þroskaheftra, varð 15 ára sl.
föstudag, þ.e. þann 16. maí.
Veglegt samsæti var haldið að
Víðilundi 22 á Akureyri þar
sem mættu um 120 gestir og fé-
lagar. Formaður Eikar, Margrét
Rögnvaldsdóttir, bauð gesti
velkomna og rakti sögu félags-
ins. Veislustjóri var Ilaukur
Þorsteinsson.
Stofnendur Eikar voru 86 og
félagið var stofnað að áeggjan
Sigurðar Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra ISI, fyrst íþróttafé-
laga fyrir þroskahefta. Fyrstu
stjórn skipuðu Margrét Rögn-
valdsdóttir, formaður, Guðríður
Bergsveinsdóttir, gjaldkeri, Svan-
Nokkrir Eikarfélagar að syngja afmælissönginn.
Krakkar 7-10 ára
Enn eru laus pláss í Sumarbúðum kirkj
unnar við Vestmannsvatn
í 1. flokki 8.-15. júní og 3. flokki 28. júní - 5. júlí.
Innritun í síma 96-27540
og í símum 96-26179, 96-61685, 96-43545.
Akureyri:
íþróttafélagið Eik 15 ára
fríður Larsen, ritari, og meðstjóm-
endurnir Aðalheiður Pálmadóttir
og Pétur Pétursson. Félagar hafa
æft körfubolta, boccia, frjálsar
íþróttir, utan húss sem innan, og
sund. Félagar hafa keppt á mótum
innan- sem utanlands, nú síðast
átti félagið keppendur á Olympíu-
leikum þroskaheftra á Spáni.
Keppendur frá Eik hafa jafnan
staðið sig með prýði,“ segir for-
maðurinn Margrét Rögnvaldsdóttir.
Til hófsins mættu Siguröur
Magnússon, framkvæmdastjóri
ÍSI, og Ólafur Jensson, formaður
Iþróttasambands fatlaðra, auk
fjölda merkra gesta frá íþrótta-
hreyfingunni og félaga sem stutt
Margrét Rögnvaldsdóttir, formaður Eikar, ávarpar veislugesti.
hafa starf Eikar. Fjöldi blóma og
gjafa bárust og tveir félagar hlutu
silfurmerki ÍSI, þ.e. Stefán Pálma-
son fv. formaður og Helga Gunn-
arsdóttir, sem hefur stutt félaga í
Eik með ráðum og dáð frá upphafi
vegar. Myndir þær sem hér birtast
tók ljósmyndari Dags, Robyn, í
afmælisveislunni. ój
Veisluborðið svignaði af krásum og
í forgrunni er afmælistertan góða.
Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð
heldur spilavist og lokadansleik í Lóni
v/Hrísalund, laugardaginn 22. maí.
Spilavist hefst kl. 20.30 og dansleikur kl.
23.00.
Mætiö vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Félag verslunar- og skrifstofufólks,
Skipagötu 14, Akureyri.
Félag Verslunar og skrifstofufólks á
Akureyri óskar að ráða starfsmann í hálft
starf á skrifstofu.
Vinnutími frá kl. 12.30 til 16.00.
Umsækjendur þurfa aö hafa reynslu í félagsstörfum,
almennum skrifstofustörfum, tölvuvinnslu og eiga
auövelt með að umgangast fólk.
Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf sendist til Félags verslunar og skrif-
stofufólks, Skipagötu 14, 600 Akureyri fyrir 1.
júní 1993.
—
AKUREYRARB/tR
Akureyringar
Lóðahreinsun og fegrunarvika
Eigendur og umráðamenn lóöa á Akureyri eru
áminntir um aö hreinsa af lóöum sínum allt sem
er til óþrifnaðar og óprýöi og hafa lokið því fyrir
29. maí nk.
Hin árlega fegrunarvika á Akureyri er ákveðin
24.-28. maí nk. Starfsmenn Akureyrarbæjar
munu fjarlægja rusl sem hreinsað hefur veriö af
íbúðarhúsalóöum og sett er í hrúgur á götukanta
framan viö lóðir eftirgreinda daga.
Mánudag 24. maí: Innbærogsuðurbrekkasunnan Þing-
vallastrætis og austan Mýrarvegar.
Þriðjud. 25. maí: Lundarhverfi og Gerðahverfi.
Miðvikud. 26. maí: Miðbær og ytribrekka norðan Þingvalla-
strætis og austan Mýrarvegar.
Fimmtud. 27. maí: Oddeyri og Holtahverfi.
Föstud. 28. maí: Hlíðahverfi, Síðuhverfi og Giljahverfi.
Nánari upplýsingar varðandi hreinsunina veröa
gefnar á skrifstofu heilbrigöiseftirlitsins, Gránufé-
lagsgötu 6, sími 24431.
Gámar fyrir rusl (ekki taö) verða staðsettir í hest-
húsahverfunum í Breiöholti og við Lögmannshlíð
þessa viku. Hestamenn eru hvattir til aö nýta sér
þessa þjónustu.
Athygli er vakin á því að heilbrigðisnefnd er heim-
ilt að fjarlægja númerslausar bifreiðar og bílflök
að undangenginni viðvörun með álímingarmiða.
Heilbrigðisfulltrúi.
Fyrsta keppni ársins um ísl. meistaratitilinn
í torfæruakstri haldin ofan Akureyrar
laugardaginn 22. maí nk. kl. 14.00.
Allir toppbílarnir mæta.
Hver hlýtur nafnbótina
Greifinn ’93?
Hvernig spjarar
Mrs. Piggy sig?
Hvaö getur ísl. meistari
í vélsleðaakstri á bíl?
Kemur jaxlinn með nógu
marga öxla?
Verð aðgöngumiða 750 kr.,
sem fást að fullu endurgreiddir
við matarúttekt á Greifanum.
Veitingahúsið Greifinn
Glerárgötu 20.
Bílaklúbbur Akureyrar.
-■n