Dagur - 20.05.1993, Qupperneq 16
Skagaströnd:
Hastarlegt að orkugjafi frá
Arabalöndum sé ódýrari en
raforka framleidd í héraði“
- segir Magnús B. Jónsson sveitarstjóri
Sprenging á botni Húsavíkurhafnar fór úr böndunum síðastlðinn mánudag. Stálþil með steyptum kanti gekk inn að
ofanverðu um 16 cm. Mynd: im
Hafnarframkvæmdirnar á Húsavík:
Stálþil gekk inn undan sprengingu
- verktakinn endurbætir garðinn.
Sveitarstjórn Höfðahrepps
(Skagaströnd) lagði nýlega til
að sótt yrði um styrk til Orku-
sjóðs til að kanna frekari
möguleika á jarðhitaleit í ná-
grenni kauptúnsins en horfið
var frá því þar sem Orkusjóður
er févana um þessar mundir.
Magnús B. Jónsson sveitar-
stjóri segir að með nýrri og
betri tækni sé vilji til þess að
kanna til þrautar hvort um
heitt vatn sé að ræða á svæðinu;
en kannanir sem framkvæmdar
voru fyrir aldarfjórðungi síðan
bentu til hins gagnstæða.
Gerð hefur verið könnun á
hugsanlegum kostnaði vió breyt-
Siglufiörður:
Erfitt að fá
fólk í sumar-
afleysingar
Að undanförnu hafa allt að því
daglega verið fluttar fréttir af
því að erfiðlega gangi að útvega
mörgum framhaldsskólanem-
endum sumarafleysingar. Þetta
á þó ekki við um Siglufjörð.
Guðný Helgadóttir, hjúkrunar-
forstjóri á sjúkrahúsinu á Siglu-
firði, segir að heldur treglega hafi
gengið að fá fólk til sumarafleys-
inga. Staðreyndin sé sú að launa-
lega standi sjúkrahúsið höllum
fæti í samkeppninni við fisk-
vinnsluna á staðnum og því hafi
framhaldsskólanemendur frekar
leitað eftir vinnu þar. Að lokum
tókst þó að manna í sumarafleys-
ingastöður á sjúkrahúsinu.
Eftir því sem Dagur kemst næst
stóðu forsvarsmenn fleiri fyrir-
tækja og stofnana á Siglufirði í
sömu sporum síðla vetrar. Þannig
átti útibú Kaupfélags Eyfiróinga á
Siglufirði í töluveröum erfiðleik-
um með aó fá fólk í sumarafleys-
ingar.
Eins og fram hefur komið er at-
vinnuástand á Siglufirói sérlega
gott um þessar mundir og um síð-
ustu mánaðamót voru þar einungis
37 á atvinnuleysisskrá. óþh
O VEÐRIÐ
í dag verður austan kaldi
um allt Norðurland, skúrir
með ströndinni en úrkomu-
lítió til landsins. Undir kvöld
gengur vindur niður og
hægt fer hlýnandi.
ingar á húsum ef um húshitun yrði
að ræða frá hitaveitu og niður-
staöa þeirrar könnunar bendir til
þess að heildarkostnaður vegna
dreifikerfis um staðinn og breyt-
ingar á húsum mundi kosta allt að
150 milljónir króna og er þá ótalið
kostnaður vegna lagnar frá hugs-
anlegu virkjunarsvæði og á stað-
inn. Til þess aö borga niður
dreifikerfið þarf að sparast raf-
orka um 5 til 6.000 krónur á
hverja íbúð á mánuði. Magnús
segir að nokkrir hafi verið svo
skynsamir að kynda með olíu og
sparað sér umtalsverðan kostnað
vegna húshitunar en rafhitun var
sett í flest hús á tímum olíukrepp-
unnar. I dag er innflutti orkugjaf-
inn frá Arabalöndunum töluvert
ódýrari heldur en rafmagnið sem
framleitt er m.a. í héraði þ.e. í
Blönduvirkjun.
„Það er hastarlegt að vera með
innlendan orkugjafa í formi raf-
orku vió bæjardymar en aó það
skuli vera hagstæðara að sækja
olíu í þess staða til Arabaríkj-
anna. Það var gerð athugun á skól-
anum hér en í honum er bæöi ol-
íu- og rafmagnskynding og niður-
staðan varð sú að það margborgar
sig að kynda með olíu og að sjálf-
sögðu nýtum við því gamla olíu-
ketilinn. GG
Aðalfundur Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar hf. var haldinn sl.
þriðjudag. Taprekstur varð á
fyrirtækinu á sl. ári að upphæð
32 milljónir króna; en á árinu
1991 var tap á rekstri að upp-
hæð 76 milljónir króna. A ár-
inu 1992 hafði Verðjöfnunar-
sjóður áhrif á afkomuna en á
árinu 1991 varð fyrirtækið hins
vegar fyrir nokkrum skakka-
föllum vegna gjaldþrots ístess
hf.
„Helmingur af þessu tapi
myndast vegna gengisfellingar í
nóvember þar sem tekjumar komu
ekki á móti þar sem gengisfelling-
in átti sér stað svo seint á árinu.
Fiskvinnslan hefur heldur ekki
skilað nógu, afurðaverðið hefur
farið lækkandi á móti hækkandi
gjöldum,“ sagði Jóhann A. Jóns-
son framkvæmdastjóri. „Fjár-
munamyndun frá rekstri var .84
milljónir króna en eiginfjárstaðan
er neikvæð. Þess ber að gæta að
við erum með togarann Stakfell
metinn á 135 milljónir í reikning-
unum; en matið á skipinu er 360
milljónir króna og það mundi
gjörbreyta eiginfjárstöðunni ef
matið yrði fært til núvirðis."
Skuldir fyrirtækisins eru 572
milljónir króna; en eignimar eru
loðnuverksmiðja með 600 tonna
Sprenging á botni Húsavíkur-
hafnar fór eitthvað úr böndun-
um sl. mánudag og gekk stálþil-
ið með steypta kantinum inn að
ofanverðu um 16 cm á kafla.
Illykkur á kantinum er vel sjá-
anlegur, eins og fram kemur á
myndinni. Steypti kanturinn á
þilinu er töluvert sprunginn og
fylling innan við þilið er sigin.
afköst, togari sem hefur alla
möguleika á vinnslu og frystingu,
gott frystihús, en þar var nýlega
sett upp flæðilína. Tekjuaukning
varð milli ára. Tekjurnar voru
750 milljónir 1991 en fóru í 890
milljónir 1992, sem fyrst og
fremst má rekja til verulegrar
veltuaukningar hjá loðnuverk-
smiðjunni.
Starfsmannafjöldi hefur heldur
aukist milli ára en að meðaltali
voru 87 starfsmenn hjá Hrað-
frystistöð Þórshafnar hf. og
launagreiðslur námu 215 milljón-
um króna, sem eru 2,4 milljónir
aö jafnaði á hvem starfsmann.
Hæstu meðaltekjur voru hjá
áhöfn togarans Stakfells ÞH.
A síðasta ári var hráefnisöflun
viðunandi, um 2.000 tonn af bol-
fiski, en auk þess var unnið við
síldarflökun og frystingu auk
frystingar á loðnuhrognum og á
þessu ári hefur verið unnið alla
virka daga en það hefur ekki gerst
í mörg ár. Þar veldur mestu kaup
á svokölluðum „Rússafiski“, en
keypt hafa verið nær 300 tonn af
þorski úr Barentshafi frá því á
miðju síðasta ári til dagsins í dag.
Að undanfömu hafa netabátamir
auk þess verið að afla vel á Þistil-
firðinum og hefur það verið á
mörkunum að frystihúsið hafi haft
Stálþilið var rekió niður við
Norðurgarðinn í fyrrasumar. Und-
anfamar vikur hefur Hagvirki
Klettur unnið viö að losa um hafn-
arbotninn út frá garóinum með
borunum og sprengingum, en
jarðefnin í botninum reyndust
ógræf.
Verktakinn hélt í gær fund meó
yfirmönnum Vita- og hafnamála-
undan að vinna allan þann afla.
„Auk þess lítum við með bjart-
sýni til komandi loðnuvertíðar; en
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð-
ingur hefur sagt að loðnustofninn
sé um 2 milljónir tonna og af því
verði leyft að veiða 1,5 milljónir
tonna, en á síðustu vertíð varð
heildaraflinn 960 þúsund tonn.
Við reiknum því með því að geta
hafið bræðslu í júlímánuði ef
loðnan finnst í veiðanlegu standi.
Til að ná sem mestri nýtingu úr
skrifstofunnar og sagði Jón Leví
Hilmarsson, forstöðumaður tækni-
deildar, að verktakinn kæmi til
með að gera þær endurbætur á
garðinum að mannvirkið nýttist
fullkomlega og skemmdir yrðu
ekki sjáanlegar. Sagði hann verk-
takann tilbúinn að taka á málinu,
sem væri á hans ábyrgð, og skila
garóinum í viðunandi ástandi. IM
loðnunni á að hefja bræðslu sem
fyrst vegna lýsisins og skapa
þannig sem hæstar útflutnings-
tekjur úr hverju tonni,“ sagði Jó-
hann A. Jónsson.
Stærsti hluthafi í Hraðfrystistöð
Þórshafnar hf. er Hlutafjársjóður
með 49% og síðan sveitarsjóður-
inn, en Hlutafjársjóður kom inn í
fyrirtækið þegar Utgerðarfélag
Norður-Þingeyinga var gert upp
og það sameinað Hraófrystistöð-
inni. GG
Ólátasegg brá í brún:
Lenti á Mmgatrölli
Olvaður maður var með leið-
indi og ólæti í fjölbýlishúsi í
Glerárhverfi aðfaranótt
sunnudags. Ilann skemmdi
tvær geymsluhurðir í sam-
eign og sparkaði upp hurð
að íbúð en þá brá honum í
brún.
íbúinn í umræddri íbúð cr
kunnur kraftlyftinga- og afl-
raunamaður, einn sá stærsti og
hrikalegasti sem tekið hefur á
lóðum hér um slóðir. Tók hann
ólátabelginn föstum tökum og
hringdi á lögrcgluna.
„Já, hann sparkaði upp
hurðinni en komst ekki lengra.
Hann hefur sennilcga strax gert
sér grein fyrir að við ofúrefli
var að etja. Hann gerir þetta
ekki aftur,“ sagði Gunnar Jó-
hannsson, rannsóknarlögreglu-
fulltrúi, er fréttin var borin
undir hann. Ekki náðist í
kraftajötuninn í gær.
Gunnar sagði aö maðurinn
hefði verið færður í fanga-
geymslu og að hann hefði eng-
ar haldbærar skýringar getaó
gcfið á þessu athæfi sínu. SS
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. rekin með 32 milljóna króna tapi:
Veltuaukning loðnubræðslunnar mikíl-
vægust í 18% telguaukningu miili ára