Dagur - 03.07.1993, Síða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 3. júlí 1993
Um VÍÐAN VÖLL
Umsjón: Stefán Sæmundsson
Krafan er...
Krá í Kaupang. Það er með
öllu ófært að Brekkusniglar
skuli sitja þurrbrjósta meöan
Þorparar, Innbæingar og
Eyrarpúkar geta þjórað að
vild á næstu krá, svo ekki sé
minnst á þá sem eru svo
heppnir að búa í Miöbæn-
um. Fyrst Þorparar eru að fá
krá eóa einhvers konar veit-
ingastaó í Sunnuhlíð er það
höfuðkrafa þeirra sem
Brekkuna byggja að fá sam-
bærilega þjónustu í Kaup-
angi. Eins og staðan er í dag
þurfa menn aó fara langar
leiðir ofan af Brekku niður í
bæ til að fá sér í glas og
njóta kráarstemmningar og
þetta útheimtir mikinn
leigubílakostnað eða kallar í
versta falli á ölvunarakstur.
Brekkusniglar eru ekki síður
þyrstir og þeir eiga rétt á aó
sitja viö sama borð og aðrir
bæjarbúar. Verði ekki orðiö
við þessari sjálfsögðu kröfu
á næstu vikum munu þrýsti-
hópar fara af stað með und-
irskriftalista, kröfugöngur
verða famar og bílflautur
þeyttar. Og það er bara byrj-
unin.
Alfræði
Goggunarröð: Stigskipt félagskerfi
hjá dýrum sem lifa í hópum, eink-
um algeng hjá fuglum. I hverjum
hópi ríkir eitt dýr, þ.e. er efst í
goggunarröðinni, og sýnir öllum
öðrum í hópnum ýgi og yfirgang.
Önnur dýr hópsins raðast á mishá
þrep í goggunarröðinni og lúta þeim
er ofar standa en kúga þau sem
skipa neðri þrepin. Norski félags- og
dýrasálfræðingurinn Thorleif Schjel-
derup-Ebbe (1894-1976) lýsti fyrir-
bærinu fyrstur.
Dagskrá fjölmiðla
Furður
Fyrirtæki í New York sem
framleiddi billjarðskúlur
bauð árið 1860 10 þúsund
dollara verólaun hverjum
þeim sem gæti fundið upp
efni sem komið gæti í staö
fílabeins, sem þá var notað
í kúlumar. Maóur nokkur
aö nafni John Wesley Hyatt
vann til verðlaunanna meö
efni sem hann kallaði
celluloid. Það var fyrsta
plastefnið. Fyrsta plastió
sem eingöngu var unnið úr
gerviefnum var framleitt
1907 af Belganum Leo
Baekeland og fékk nafniö
Bakelit.
„Hvernig er nýi kennarinn?"
„Ekkert sérstakur. Hann skilur
varla það sem ég skrifa.“
Bandarískur rithöfundur lýsti
því yfir á góðri stundu aö þegar
hann hefði tíma myndi hann taka
saman bók sem ætti að heita:
Hvað vita karlmenn um konur?
- Bókin á vera 500 blaðsíður og
þær munu allar verða auðar.
Skipstjóri á stóru farþegaskipi
hafði lagt sig til svefns en varð
fyrir ónæði af hjónum í lúkarn-
um við hliðina og festi ekki
blund. Hjónin voru að rífast og
leið alllöng stund áður en þau
höfðu sig til koju. En þá tók
ekki betra við. Frúna tók að iðra
allt hið illa sem hún hafði sagt
um manninn sinn. Bað hún hann
að lokum að kyssa sig en maður-
inn var líklega enn reiður.
Varð nú kyrrt um stund en
síðan hrópaði konan í angist:
„Kysstu mig, Anton, kysstu
mig.“
Ennþá varð alllöng kyrrð áður
en konan hrópaði á ný:
„Þú verður að kyssa mig,
Anton. Þú verður að kyssa mig
góða nótt.“
Enn varð kyrrð í næstum
hálfa klukkustund og skipstjór-
inn var næstum sofnaður þegar
konan fór aftur aö hrópa:
„Kysstu mig, Anton. Ég get
ekki sofnað fyrr en þú hefur
kysst mig...“
Nú var skipstjóra nóg boðið
svo hann bankaði þéttingsfast í
vegginn og kallaði skipandi:
„Flýttu þér að kyssa hana,
Anton, annars get ég ekki sofn-
að heldur.“
Orðahókin
vakka, -aði S reika, vappa, vera á
vakki: v. kringum e-n; v. yfir e-u
gæta e-s, líta eftir e-u, láta [skip]
v. v/ð láta skip lóna áöur en þaó
er sett á fulla ferð.
Málshættir
Dregst margur með djúpa
und, þó dult fari.
Margar eru óhaglegar unn-
ustur.
Sjónvarpið
Laugardagur 3. júlí
09.00 Morgunsjonvarp barn-
anna.
Sómi kafteinn (8).
Sigga og skessan (4).
Litli ikorninn Brúskur (20).
Nasreddin (14).
Galdrakarlinn í Oz (4).
10.30 Hlé.
16.30 Mótorsport.
17.00 íþróttaþátturinn.
í þættinum verður meðal
annars fjallað um íslands-
mótið í knattspymu.
18.00 Bangsibestaskinn(21).
18.25 Spíran.
18.50 Táknmálsfréttir.
19.00 Strandverðir (21).
20.00 Fréttir.
20.30 Veður.
20.35 Lottó.
20.40 Hljómsveitin (8).
21.30 Uppkoma svik um síðir.
Bandarísk sjónvarpsmynd
frá 1991.
Atta ára drengur missir
móður sína í bilslysi. Þegar
grennslast er fyrir um föður
hans kemur margt óvænt á
daginn.
Aðalhlutverk: Steven
Weber, Katherine Helmond
og Robert Gorman.
23.10 Vígaslóð.
Bandarísk spennumynd frá
1987.
Lögreglumaður, sem er á
lejð að taka við nýju starfi i
smábæ í Kaliforníu, er
myrtur. Árásarmaðurinn vill-
ir á sér heimildir og gengur
inn í hlutverk hins látna.
Kvikmyndaeftirlit ríkisins
telur myndina ekki við
hæfi áhorfenda yngri en 16
ára.
00.40 Útvarpsfréttir i
dagskrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 4. júlí
09.00 Morgunsjónvarp barn-
anna.
Heiða (27).
Leikíöng á ferðalagi.
Gosi (2).
Hlöðver grís (20).
Felix köttur (25).
10.30 Hlé.
16.45 Svanur.
Ný, íslensk kvikmynd þar
sem segir frá rosknum
manni sem kemur til Reykja-
víkur í fyrsta skipti til að
leita sér lækninga.
17.35 Síldarréttir.
Síðasti þáttur.
17.50 Sunnudagshugvekja.
Séra Torfi Hjaltalín Stefáns-
son flytur.
18.00 Gull og grænir skógar
(1).
(Guld og grönne skove.)
Fyrsti þáttur af þremur um
fátæka fjölskyldu í Kosta
Ríka sem bregður á það ráð
að leita að gulli til að bæta
hag sinn.
18.25 Fjölskyldan í vitanum
(10).
(Round the Twist.)
18.50 Táknmálsfréttir.
19.00 Roseanne (10).
19.30 Auðlegð og ástríður
(125).
20.00 Fréttir og íþróttir.
20.35 Veður.
20.40 Húsið í Kristjánshöfn
(23).
21.10 Ásdís Jenna.
Mynd um Ásdísi Jennu
Ástráðsdóttur ljóðskáld.
Ásdís Jenna á við alvarlega
fötlun að stríða en mætir
amstri dagsins með bros á
vör staðráðin í að lifa lífinu
eins og henni sjálfri hentar.
21.45 Herragarðseigandinn.
(Master of the Manor.)
Bandarísk verðlaunastutt-
mynd frá 1987.
Þetta er. saga um græðgi,
morð og hefnd og segir frá
samskiptum herragarðseig-
anda og þjónustustúlku
hans.
Aðalhlutverk: Charles
Keating og Naomi Riseman.
22.15 Töfratónar.
(Magic of the Musicals.)
Marti Webb og Mark Rattray
syngja lög úr þekktum söng-
leikjum, meðal annars úr
Vesalingunum, Köttum,
Evítu og Ungfú Saigon.
23.10 Sænska mafían.
Þáttur um sænsk áhrif í
íslensku þjóðfélagi fyrr og
nú.
23.45 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok.
Sjónvarpið
Mánudagur 5. júlí
18.50 Táknmálsfréttir.
19.00 Töfraglugginn.
20.00 Fréttir og íþróttir.
20.35 Veður.
20.40 Simpsonfjölskyldan
(20).
(The Simpsons.)
21.10 Fólkið í landinu.
Þú veist ég er álfadrottn-
ing.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson
ræðir við Unni Eyfells um
æskuár hennar við Tjörnina í
Reykjavík og námsferil í
Bandaríkjunum. Unnur ræðir
einnig um tilurð Þjóðdansa-
félags Reykjavíkur en hún
var einn af stofnendum þess
og auk þess syngur hún tvö
lög í þættinum.
21.30 Úr ríki náttúrunnar.
Lífið við ána.
(Wildlife on One: Red River
Safari)
22.05 Frjáls Frakki (2).
(The Free Frenchman)
Bresk/franskur myndaflokk-
ur byggður á sögu eftir Piers
Paul Read. í myndaflokknum
segir frá Bertrand de Roujay,
frönskum aðalsmanni sem
hætti lífi sínu í baráttu
frönsku andspyrnuhreyfing-
arinnar gegn herliði Þjóð-
verja í síðari heimsstyrjöld-
inni.
Aðalhlutverk: Derek de Lint,
Corinne Dacle, Barry Foster,
Jean Pierre Aumont og
Beatie Edney.
23.00 Ellefufréttir og dag-
skrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 3. júlí
09.00 Út um græna grundu.
10.00 Lísa í Undralandi.
10.30 Skot og mark.
10.50 Krakkavísa.
11.15 Ævintýri Villa og
Tedda.
11.35 Furðudýrið snýr aftur.
(The Return of the
Psammead.)
12.00 Úr ríki náttúrunnar.
(World of Audubon.)
12.55 Sigrún Ástrós.
(Shirley Valentine.)
Það er breska leikkonan
Pauline Collins sem fer með
hlutverk Sigrúnar Ástrósar í
þessari mynd.
Með önnur hlutverk fara þau
Tom Conti og Alison
Steadman.
14.40 Paradís á jörð.
(Lost Horizon.)
Ævintýraleg og ljúf kvik-
mynd með Peter Finch,
Michael York og Liv Ullman í
aðalhlutverkum.
Peter leikur Richard
Conway, heimsfrægan
sendifulltrúa Bretlands, sem
er rænt ásamt bróður sínum
(Michael York) og fluttur til
Shangri-La.
17.00 Leyndarmál.
17.50 Falleg húð og frískleg.
18.00 Á hljómleikum.
í þessum þætti kynnurhst
við tónlistarmönnunum
John Mellancamp og Van
Morrisson og einnig kemur
fram ný hljómsveit sem
nefnist Merchants of Venus
18.45 Menning og listir
Barcelona.
(Made in Barcelona.)
Fróðleg þáttaröð þar sem
fjallað er um list og menn-
ingu í Barcelona á þessari
öld.
I þættinum er sjónum áhorf-
enda beint að arkitektúr. (1)
19.19 19:19.
20.00 Fyndnar fjölskyldu-
myndir.
20.30 Morðgáta.
(Murder, She Wrote.)
21.20 Tónlistarverðlaunin
1993.
(The 1993 World Music
Awards.)
Næstu tvær klukkustundirn-
ar fylgjumst við með þegar
margt af þekktasta popp-
tónlistarfólki heims tekur á
móti viðurkenningum fyrir
framlag sitt.
23.20 Blekkingar tvíbura-
bræðranna.
Rachel Marks er eftirsótt
sýningarstúlka í Bandaríkj-
unum sem gerir það gott.
Það líf veitir henni þó ekki þá
fyllingu og ánægju sem
henni finnst hún eiga skilið
og því leitar hún til sálfræð-
ingsins Jonathans McEwan.
Aðalhlutverk: Aidan Quinn
og Isabella Rossellini.
Bönnuð börnum.
00.50 Afturgöngur geta ekki
gert það.
(Ghosts Can't Do It.)
Myndin fjallar um ástfangin
hjón, Scott og Kate, í þessari
skemmtilegu og erótísku
kvikmynd. Scott fellur frá
fyrir aldur fram en snýr aftur
til þess að njóta samvista
með Kate. Andar geta ekki
notið ásta og með aðstoð
eiginkonu sinnar reynir
Scott að yfirtaka líkama
ungs manns til þess að geta
risið upp og gagnast henni á
ný...
Aðalhlutverk: Anthony
Quinn, Bo Derek og Don
Murray.
02.20 Náttfarar.
(Nightfighters.)
Stranglega bönnuð
börnum.
03.45 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 4. júlí
09.00 Skógarálfarnir.
09.20 Sesam opnist þú.
09.50 Umhverfis jörðina í 80
draumum.
10.15 Kristófer Kólumbus.
10.35 Ferðir Gúllivers.
11.00 Kýrhausinn.
11.40 Stormsveipur.
(Eye of the Storm.)
Ævintýralegur og spenn-
andi, leikinn myndaflokkur
um feðgin sem komast í
kynni við gömul og dul-
mögnuð öfl þegar þau reyna
að fletta ofan af samsæri.
12.00 Evrópski vinsældalist-
inn.
13.00 íþróttir á sunnudegi.
15.00 Framlag til framfara.
íslensk þáttaröð sem hefur
það að markmiði að draga
fram jákvæðari sýn á mögu-
leika og frámtíð þjóðarinnar.
15.30 Saga MGM-kvikmynda-
versins.
16.30 Imbakassinn.
17.00 Húsið á sléttunni.
18.00 Úr innsta hring: Leigu-
morðinginn.
Við fyrstu kynni virðist
Michael Townley ósköp
venjulegur maður en þegar
farið er að kanna fortíð hans
kemur annað í ljós.
19.19 19:19.
20.00 Handlaginn heimilis-
faðir.
20.30 Heima er best.
(Homefront.)
21.20 Leiðin heim.
(The Road Home.)
Á yfirborðinu er unglingur-
inn Tim Dolin harður náungi,
kaldur strákur sem veit hvað
hann vill. Á bak við grímuna
býr hins vegar óöruggur,
ungur maður sem á erfitt
með að horfast í augu við
vandamál sín og takast á við
lífið eins og það er.
Aðalhlutverk: Adam
Horovitz, Donald
Sutherland, Amy Locane og
Don Bloomfield.
23.10 Charlie Rose.
00.00 Saklaust fórnarlamb.
(Victim of Innocence.)
Myndin segir frá hjónunum
Barry og Lauru sem eiga lítið
barn, fallegt heimili og eru
hamingjusöm í hjónabandi
en atvik úr fortíð Barrys
reyna mikið á samband
þeirra.
Aðalhlutverk: Cheryl Ladd
og Anthony John Denison.
01.35 Dagskrárlok.
Stöð 2
Mánudagur 5. júlí
16.45 Nágrannar.
17.30 Regnboga-Birta.
17.50 Skjaldbökurnar.
18.10 Á hijómleikum.
19.19 19:19.
20.15 Grillmeistarinn.
20.45 Covington kastali.
(Covington Cross.)
Fjórði þáttur.
21.40 Vegir ástarinnar.
(Love Hurts.)
22.30 Blaðasnápur.
(Urban Angel.)
23.20 Trúnaðarmál.
(Hidden City.)
Þessi spennumynd segir frá
rithöfundinum James
Richards og ungri konu,
Sharon Newton, sem kemur
honum algerlega í opna
skjöldu með opinskárri fram-
komu sinni.
Aðalhlutverk: James
Richards, Cassie Stuart og
Bill Paterson.
Bönnuð börnum.
01.05 Dagskrárlok.
Rás 1
Laugardagur 3. júlí
HELGARÚTVARPIÐ
06.45 Veðurfregnir.
06.55 Bæn.
07.00 Fréttir.
Söngvaþing.
07.30 Veðurfregnir.
- Söngvaþing heldur áfram.
08.00 Fréttir.
08.07 Músík að morgni dags.
09.00 Fréttir.
09.03 Funi.
10.00 Fréttir.
10.03 Lönd og lýðir - Pólland
s.hl.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 í vikulokin.
12.00 Útvarpsdagbókin og
dagskrá laugardagsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Auglýs-
ingar.
13.00 Fréttaauki á laugardegi.
14.00 Hljóðneminn.
16.00 Fréttir.
16.05 í þá gömlu góðu.
16.15 Rabb um Ríkisútvarpið.
16.30 Veðurfregnir.
16.35 Málgleði.
17.00 Tónmenntir.
18.00 „Hjá sumum slotar
óveðrinu aldrei."
Þáttur um Björn Gíslason
fjármálamanna, útvegs-
mann og stórkaupmann.
Höfundurinn, Steingrímur
St. Th. Sigurðsson les.
18.48 Dánarfregnir • Auglýs-
ingar.
19.00 Kvöldfrettir.
19.30 Auglýsingar • Veður-
fregnir.
19.35 Djassþáttur.
20.20 Laufskálinn.
Umsjón: Finnbogi Her-
mannsson. (Frá ísafirði.)
21.00 Saumastofugleði.
22.00 Fréttir • Dagskrá morg-
undagsins.
22.07 Tónlist.
22.27 Orð kvöldsins.