Dagur - 03.07.1993, Qupperneq 18
18 - DAGUR - Laugardagur 3. júlí 1993
Kvikmyndir
Kennedy;
höggvið í sama
knérunn
Hollywood virðist aldrei ætla aó
fá leiða á Kennedyum. Ég held
svei mér þá að hver einasti með-
limur þessarar umtöluðu ættar hafi
fengið gerða um sig bíómynd eða
sjónvarpsþætti. Og enn eru
Kennedyar viðfangsefni kvik-
myndagerðarmanna meó þeirri
breytingu að silkihanskarnir hafa
verið lagðir til hliðar. Bobby fékk
að kenna á því í Hoffa og nú er
verið að vinna að gerð myndar um
Marilyn Monroe og samband
hennar viö bæði John F. og Bobby
bróður hans. Hver sem útkoman
vcrður þá er hitt víst að hún fæst
ekki ódýrt. Tæpir þrír milljarðar
fara í að fullkomna verkið en hvað
er það á milli Dino De Laurentiis
framleiöanda myndarinnar og UIi
Edel leikstjóra, hins sama og
leikstýrði Madonnu í Body of
Evidence. Sagt er að Edel vilji
ekki minni stjörnu en Sharon
Stone til að vera Marilyn Monroe.
Schwarzenegger
í banastuði
Arnaldi hefur alltaf fallið sú
hugmynd vel að vera eitthvað
annað og meira en bara harði
naglinn cr drepur mann og annan
- og hefur tekist það með miklum
ágætum bæði sem litli bróöir
Danny Devitos og sem barnfóstra.
I nýjustu mynd sinni, The Last
Action Hero, fer minna fyrir
þcssum „mjúku“ eiginleikum en
Arnaldur hefði kosið. Hann hefur
því samþykkt að taka að sér
hlutvcrk álfs í Sweet Toth en þar á
cftir mun hann taka upp dráps-
þráðinn aftur í Sgt. Rock. Hinn
magnaói Paul Verhoeven leik-
stýrir en handritið er ekki aðeins
eftir John Milius (skrilaöi Conan)
hcldur einnig David Peoples
(Unforgiven).
Rambo allur?
Hver getur fylgt í fótspor Arnalds
Schwarzcneggers nema Stallone?
Það dregst þó enn að Rambó
gangi í endurnýjun lífdaganna.
Stallonc hefur haft öðrum
hnöppum að hneppa og
fyrirsjáanlegt að þetta ár er
gjörsamlega frátekió fyrir aðrar
persónur. I Demolition Man leikur
Stallonc mcð Wesley Snipes og í
bígeró er önnur mynd í umsjá hins
síðhæröa Finna, Renny Harlin
sem gerði CliffTianger. The
Chinese Bandit heitir sú. Þessi
vcrkefni munu vafalaust endast
Sly út árið. Rambó veróur því enn
að bíða um sinn.
Stone og Gere
í Intcrsection deila Sharon Stone
og Lolita Davidovich sjarmörnum
Richard Gere. Þetta er þriðja
myndin scm Gere leikur í á
skömmum tíma sem á rætur aö
rekja til franskrar frummyndar. I
Brcathless fcr hann í skóför Bel-
mondo og í Sommcrspy er það
Depardicu cr hefur kannað slóðina
á undan. Intcrsection byggir á
gamalli franskri mynd er Michale
Piccoli lék í. Hlutverk Stone er
sagt frábrugðió öðrum er hún
hefur leikið en ég fæ ekki betur
séð á stuttri cfnislýsingu cn aö í
því séu sömu áhcrslur á kynferðis-
atriði og Stone hefur orðið hvaó
frægust fyrir. Það er ekki þar með
sagt að hún geymi ísfork undir
rúrninu sínu. I ágúst mun Stone
leika í myndinni Pin Cushion sem
ég veit ekkert frekar um.
Strcisand fékk töluvert minna fyrir að sjá um The Prince of Tides en Whoopi fyrir Sister Act tvö; þar munaði
hundruðum milljóna íslenskra króna.
Sharon Stone.
Flintstone
Jabba dabba dei, hrópaói Flint-
stone hér áður (eða þannig glymur
það í minningu minni að minnsta
kosti). Nú mun John Goodman, sá
góði faðir og eiginmaður Rós-
önnu, æfa sig af kappi að reka upp
þctta óhljóó. Spiclberg ætlar
nefnilega að filma Flintstone og
Goodman mun túlka kappann en
Rick Moranis verður nágranninn,
Barney. Jim Belushi var lengi ætl-
að hlutverk Flintstones en varó
um síðir af með það. Bctty og
Vilma eru eftir því sem ég best
veit á lausu enn og gárungarnir
gantast með að líklega hreppi
Sharon flint-Stone hlutverk ann-
arrar en að Julia Robcrts eigi ekki
mögulcika, þrátt fyrir að hafa eitt
sinn verið í miklu uppáhaldi hjá
Spielbcrg. Nú og þaö er rétt að
minnast á þaö að tveir íslenskir
strákar leika mikilvæg hlutverk í
myndinni eins og margoft hefur
komið fram í fjölmiðlum að und-
anförnu.
Clancyfúll
Tom Clancy var langt frá því að
vcra ánægður með Patriot Games
og vill að leikstjórinn Phil Noyce
komi ekki nálægt næstu mynd um
Jack Ryan, að öðrum kosti muni
hann ekki skipta frekar við Para-
mount. Og lesendur hans eru
sammála, að minnsta kosti sá sem
þetta skrifar. Hvorki Alec Bald-
win, hvað þá Harrison Ford, hafa
náð að skapa þann Ryan sem
Clancy vill sjá. Það má líka segja
að Paramount-stjórarnir hafi gjör-
samlega misskilió persónu Ryans.
A meðan þcir standa í þeirri trú að
hann sé 007 er Ryan í raun
George Smiley í blóma lífsins.
Sly hefur engan tíma á þessu ári til að endurvekja Rambó.
Nicholson hcfur áhyggjur af vaxandi ofbeldi í kvikmyndum.
Arnaldur fer bráðum úr hlutverki dráparans og breytist í álf.
Clancy var á sínum tíma líkt
við Frederick Forsythe en hefur á
skömmum tíma umturnast yfir í
flokk með John Le Carre. Og
hann vill la Allen Drury í næstu
mynd er snýst aó miklum hluta
um Hvíta húsið. En þaó má meó
sanni scgja að bækur Clancys
verði að minnsta kosti stærri (og
sumir segja sífellt betri). Sú nýj-
asta, The Sum of all Fears, er
1.047 blaösíður (eitthvað fyrir
íslenska bókagagnrýnendur sem
eru sífellt að skammast yfir því að
íslenskir höfundar skril'i of stuttar
sögur). I The Sum er Ryan oróinn
yfirmaöur í CIA cr þarl' aó kljást
vió hryðjuvcrkamenn er eiga í
fórum sínum kjarnorkusprengju.
Whoopi milli
Whoopi Goldberg cr nú hæst
launaðasti kvenlcikarinn í Holly-
wood. Fyrir Sister Act tvö fær hún
litlar 840 milljónir íslenskra króna
(12 milljónir dollara). Þetta cr
töluvert meira en Barbara Strei-
sand Ickk fyrir að framleiða, leik-
stýra og leika aóalhlutverkið í The
Prince of Tides.
Bette Midlcr á hins vegar ekki
sjö dagana sæla eftir að hafa hafn-
að Sister Act. Disney er að refsa
henni og helur gefió Midler hlut-
verk galdranornar að leika í
myndinni Hocus Pocus.
Er Hannibal
Lecter dauður?
I Hollywod cru menn ákaflega
áhyggjufullir þcssa dagana.
Astæðan er sú að Sir Anthony
Hopkins er mjög cfins um hvort
það væri rétt af honum að vekja
Hannibal Lecter aftur til lífsins.
Það er ofbcldið sem fælir Hopkins
frá hlutvcrkinu. I staðinn er hann
að vinna með öðrum sör, Richard
Attenborough, að myndini
Shadowland mcð Debru Wingcr.
Hann cr einnig með í takinu
myndina Mario and the Magician
er byggir á bók cftir Thomas
Mann. Mótleikari hans er Klaus-
Maria Brandauer.
Nicholson þreyttur
á ofbeldinu
Þrátt fyrir að Jack Nicholson hafi
vissulcga leikið aragrúa vondra
manna og gert mörg fólskuverk á
hvíta tjaldinu þá hefur hann vax-
andi áhyggjur af olbcldi í kvik-
myndum.
„Þetta cr cin ástæða þcss að ég
skammast mín fyrir að vera hluti
af þessum iönaði“, útskýrir hann,
„þessi ofbeldisdýrkun cr hömlu-
laus. Morð eru ekki Icngur alvar-
legur hlutur. Þau cru umvafin Iétt-
úð og menning okkar er aó verða
ónæm l'yrir þessu. Við höfum ekki
lengur réttar tilfinningar til aö
skynja hvcrsu alvarlegt þctta er.
Dauðinn er ckkert til að gantast
með. Við förum jalnvel að jarðar-
för meó öóru hugarfari, þykjumst
léttlyndari, veróum full og af-
skræmum þá kvcóju sem jarðar-
förin í raun er. Aður fannst mér
kvikmyndaframlciðendur ckki
nógu hreinskilnir þegar kom að
ofbeldi, og kynlífi svo að vikið sé
að því. En núna cr ég á því skciði
að mér finnst rétt að draga mig út
úr þessu ofbcldi scm ræður ríkjum
í bíóinu. Og svo verður það
auðvitað að vióurkcnnast að
kvikmyndir í dag cru gerðar eftir
föstu tímaplani, rétt cins og aug-
lýsingar í útvarpinu, á átta mín-
útna frcsti á maður annað hvort að
drepa cinhvcrn eða ríöa cinhverri.
Sem leikara finnst rnér þetta ansi
heftandi.“