Dagur - 03.07.1993, Blaðsíða 22
22 - DAGUR - Laugardagur 3. júlí 1993
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Frumtilraun til frægðar og frama?
- Miklar vonirbundnar við nýju plötu Bjarkar Guðmundsdóttur
Hér í Poppi og víða annars
staðar hefur að undanförnu
mátt lesa og heyra mikið um
Björk Guómundsdóttur Sykur-
molasöngkonu og hennar
fyrstu einherjaplötu fyrir alþjóð-
legan markað Debut. Er nú
platan komin út hér á landi, en
alþjóólegi útgáfudagurinn er á
mánudaginn kemur 5. júlí. í
þessum umfjöllunum, sem og í
fréttum, hefur verió sagt frá
þeirri miklu og góðu athygli
sem Björk hefur fengið áður en
þlatan hefur litið dagsins Ijós í
Bretlandi, en það hefur alltaf
þótt góð viðurkenning fyrir við-
komandi tónlistarfólk. Var þar
m.a. um að ræða ýtarlegt viðtal
í hinu virta vikutímariti Melody
Maker þar sem Björk prýddi
forsíðuna að auki á því tölu-
blaði (15. maí).
Þá náöi fyrsta smáskífan af
plötunni meó laginu Human
Behaviour inn á Topp 40, sem
telja verður viðunandi árangur,
þótt reyndar hafi vonir verið
bundnar við að hún næði enn
hærra, eða m.o.ö. seldist bet-
ur. Hins vegar er búist við að
næsta smáskífa með laginu
Venus As A Boy sem út á að
koma í ágúst, nái örugglega
hærra, jafnvel inn á Topp tíu,
því það sé á flestan máta mun
aðgengilegra en Human Be-
haviour. Er þar á ferð hugljúft
og seiðmagnað lag hjá Björk
þar sem hún notast meðal ann-
ars við strengjahljómsveit frá
Indlandi. Er indverska strengja-
sveitin einmitt dæmi um vissan
fjölbreytileika sem er hjá Björk
á plötunni, en þar er t.d. einnig
að finna lag þar sem hún not-
ast aðeins við rödd sína með
slaghörpuundirleik. Meirihluti
laganna telst þó vart til annars
en hús/danspopps, sem alla
jafna er ekki sérstaklega aðlað-
andi til langtímahlustunar, en
Björk glæðir lífi meó sinni sér-
stæóu og í raun einstöku rödd.
Eru öll lögin á Debut eftir Björk
sjálfa, en upptökustjórinn
Nellee Hooper hefur aó
einhverju leyti líka lagt eitthvaó
til þeirra.
Nellee Hooper er annars
þekktur sem forsprakki dans-
hljómsveitarinnar Soul II Soul,
sem mjög var vinsæl fyrir ekki
löngu síðan. Fór upptakan að
mestu fram í heimahljóðveri
Hoopers, en verkinu síðan lok-
ió í stóru hljóóveri í London.
Hefur Björk einmitt verió búsett
þar í borg síóasta hálfa árið.
Er það útgáfufyrirtækið One
Little Indian sem gefur Debut
út, en sem kunnugt er gáfu þeir
einnig út plötur Sykurmolanna í
Bretlandi. Munu forráðamenn
One Little Indian vera mjög
bjartsýnir fyrir hönd Bjarkar og
vona þeir, líkt og með næstu
smáskífuna Venus As A Boy,
aö Debut nái inn á Toþþ tíu,
jafnvel Topp þrjú, strax í fyrstu
viku. Er vonandi að það takist
hjá stúlkunni, því hún væri vel
að því komin að ná svo langt
meó sína sérstæðu hæfileika.
Björk fær lof og prís fyrir nýju plötuna Debut, en gagnrýnendur í
Bretlandi hafa haft hana til umfjöllunar nú skömmu áður en hún
kemur út þar.
Það verður þó að teljast víst að
hún nái ekki toppsætinu, að
minnsta kosti ekki í fyrstu atr-
enu, því á mánudaginn kemur
einnig út hin nýja og umtalaóa
plata U2 Zooropa, þannig að
toppsætió er fyrirfram frátekið
eins og gefur að skilja þegar
ein vinsælasta hljómsveit
heims á seinni árum á í hlut.
Reyndar er það líka rétt að
vera ekki með of mikla bjart-
sýni fyrir hönd Bjarkar, því þótt
byrjunin lofi góóu þá er ekki
víst að velgengni fylgi sjálfkrafa
í kjölfarið. Eru Sykurmolarnir
einmitt dæmi um þaó, en þeir
náðu eins og vió vitum aldrei
þeirri alheimsfrægó sem menn
héldu oftar en einu sinni aó biói
þeirra handan við hornió eftir
góó fyrirheit. Samt sem áður
veróur það spennandi aó sjá
hvernig Debut gengur og er
ekki að efa að þjóóarstoltió
mun rísa í landanum ef bjart-
sýnisspárnar rætast. Það veró-
ur þó örugglega ein manneskja
sem ekki mun kippa sér upp
við gengi plötunnar, á hvorn
veginn sem þaó verður, en þaó
er Björk sjálf. Mun hún áreió-
anlega halda ótrauð áfram
hvort sem hún selur 30 eða
300.000 eintök af Debut.
Að lokum má geta þess að
Debut er þriója plata Bjarkar
undir eigin nafni. Sú fyrsta kall-
aóist einfaldlega Björk, en inn
á hana söng hún aóeins tólf
ára gömul. Þar á meðal var
lagið um Jóhannes Kjarval list-
málara sem vakti mikla athygli
á stúlkunni ungu. Önnur platan
var svo Gling Gló, sem Björk
gerði með jasstríói Guómundar
heitins Ingólfssonar píanóleik-
ara með meiru. Kom hún út ár-
ið 1990 og varó mörgum aó
óvörum mjög vinsæl. Mun hún
hafa selst í um sjö þúsund ein-
tökum.
Rífandi drífandi
- GCD-rokkið enn á ferð
Gott er rokkið hjá GCD á nýju plötunni Svefnvana.
Það vakti undrun margra fyrir
rúmum tveimur árum og það
mikla undrun er helsta popp-
goð landsins þá og nú Bubbi
Morthens, tók upþ samstarf við
„garnla" poppgaurinn Rúnar
Júlíusson og gerói með honum
plötuna GCD. Hrifning varð þó
fljótlega undruninni yfirsterkari
og uróu þeir Bubbi og Rúnar
ásamt þeim Bergþóri Morthens
og Gunnlaugi Briem, sem
hljómsveitin GCD, gríóarlega
vinsælir um allt land sumarið
1991. Hópaóist fólk hvarvetna
á böll hljómsveitarinnar og tón-
leika og platan seldist í þús-
undum eintaka. Það kom því
ekki á óvart eftir velheppnaða
sumarvertíð að þeir Bubbi og
Rúnar lýstu því yfir að leikurinn
yrði endurtekinn í náinni fram-
tíð, svo vel hefði tekist til og
verió gaman. Eins og menn
vita svo þá hafa þeir staðið við
orð sín í sumar og sent frá sér
aóra plötu sem kom út í mai.
Er þar sami mannskapur á
ferðinni, en í þetta skipti ekki
merktur þeim Rúnari og Bubba
sérstaklega, heldur sem hljóm-
sveitin GCD með plötuna
Svefnvana. Geymir platan
samtals tólf lög sem eins og
lög gera ráð fyrir eru öll í hinum
hefðbundna og margkveðna
rokk og ról stíl. Það hefur
reyndar orðið sumum tilefni til
gagnrýni aó ekki séu breyting-
arnar miklar milli platnanna.
Hin nýja sé aóeins stæling á
þeirri fyrri með sömu gítarfrös-
unum í anda Creedence Clear-
water Revival, Rolling Stones
o.fl.
Er það vissulega rétt aó ým-
islegt hjá GCD minnir á þessar
hljómsveitir m.a. og mun ég
koma frekar inn á það á eftir,
en það er bara ekkert meira en
gengur og gerist í tónlistar-
sköpun svo margra annarra nú
um stundir og gildir það bæói
um íslenska tónlistarmenn og
erlenda. Þá voru Rolling
Stones, Creedence o.s.frv.
sjálfir að skapa sín verk undir
áhrifum frá fyrri tíð, frumherjum
rokksins á borð vió Chuck
Berry og blúshetjum eins og
Muddy Waters, Willie Dixon
o.fl. Það er þess vegna ekki
sanngjarnt eóa réttlætanlegt aó
gagnrýna þá félaga í GCD á
þeim forsendum aó mínu mati.
Þeir eru aóeins aó bera fram
einfalt þriggja hljóma gítarrokk
af því að þá langar til þess. Á
öðrum vettvangi geti þeir sinnt
tónlistarlegum metnaði meira,
en sá sé einfaldlega ekki aðal
tilgangurinn nú.
Það er þó ekki þar með sagt
að engin séu sérkennin, því
þau eru vissulega fyrir hendi.
Er þar helst tvísöngur þeirra
Bubba og Rúnars og svo ekki
hvað síst gítarleikur Bergþórs.
Hann veróur reyndar seint tal-
inn til ofursnilli eða mikilla til-
þrifa, en hljómur hans og ein-
faldleiki sem og kraftur, er
þannig að eftir er tekið. Gítar-
leikur Bergþórs á svo jafnframt
einna stærsta þáttinn í hversu
platan er í senn rífandi, drífandi
og jú líka hrífandi á köflum.
En svo nánar sé vikið að
einstökum lögum, þá er ekki úr
vegi til gamans að taka nokkur
dæmi um blæbrigói annarra í
þeim, sem óneitanlega eru fyrir
hendi og eru bara skemmtilega
fjölskrúðug aó því er mér
finnst. Það skal skýrt tekió fram
að auðvitaó er hér bara um
mínar vangaveltur að ræða,
þannig að ekki ber að taka þær
sem einhvern allsherjar sann-
leik. Fyrst má nefna annaó lag-
ið á plötunni Litli Prinsinn, sem
ekki er laust vió að minni mann
á Bítlana, en líka á Egó, þar
sem þeir Bubbi og Bergþór
voru líka saman eins og menn
vita. í næsta lagi á eftir, Sumir
fá allt, og svo ekki síður í Nú-
tímamanninum, eru það amer-
ísku sveitarokksáhrifin sem
svífa yfir vötnum, samanber
Creedence og fleiri. Slæmt
karma og Dragðu út naglann
draga hins vegar dám af
Stones í nokkrum mæli, en þó
enn frekar af gömlu góðu Stat-
us Quo, sem hafa verið viö sitt
sama rokkheygarðshorn í yfir
þrjátíu ár. Á samanburðurinn
við Quo sérstaklega við um
Slæmt karma, sem myndi
sóma sér ágætlega á plötu
meó þeim. Síóast en ekki síst
má svo nefna Svörtu Söru,
sem er kraftmesta og þyngsta
lag plötunnar. Það minnir
mann á margt sem hljómsveit-
irnar bresku Slade og Nazareth
voru aó gera á sinni gullaldar-
tíð fyrir um tuttugu árum síóan.
Komu þær m.a. báðar hingaó
til lands á sínum tíma og héldu
tónleika við gríðargóðar undir-
tektir. Man ég meira aó segja
ekki betur en að liðsmenn ann-
arrar hvorrar hljómsveitarinnar
hafi komió hingaó noróur í
skoðunarferó, en þaö er nú
önnur saga.
Þaó er ekki neina sérstaka
gallla að finna vió Svefnvana,
nema ef vera skyldi varóandi
umbúnað hennar, þ.e. myndina
á geislaplötunni, sem er ekki
sú smekklegasta sem maóur
hefur séð. En hvað sem því líð-
ur, þá er Svefnvana hin ágæt-
asta rokkplata, sem fyllilega er
verðugur arftaki GCD plötunn-
ar. Þaö má svo sem deila um
hvor sé betri, en víst er að sú
nýja er öllu vandaóari og meira
í hana lagt. Hins vegar er þaö
svo annaó mál hvort tíðarand-
inn er jafn hagstæóur þeim
GCD félögum nú og fyrir tveim-
ur árum, hvort þeir selji jafn vel
og þá o.s.frv. Um það dæmi ég
ekki en segi þó að ekki eru þeir
síðri nú en þá og ef eitthvaó er
betri.
Verslunarhúsnæði óskast
Rótgróið fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir
verslunarhúsnæði ca. 100-200 m2 til
afhendingar nú þegar.
Lysthafendur sendi tilboð merkt
„MÓ“, pósthólf 606, 101 Reykjavík,
eða fax 91-625303.