Dagur - 03.07.1993, Page 23
Laugardagur 3. júlí 1993 - DAGUR - 23
í UPPÁHALDI
99
Spila af mér rassgatið
- Jóhann, Skriðjökull, Ingvason
66
Jóhann Ingvason er Akur-
eyringum að góðu kunn-
ur fyrir þátttöku sína í
gleóisveitinni Skriðjökl-
um. Þar hamrar hann á hljóm-
borð eins og hann eigi lífió að
leysa og þykir nokkuð snjall.
Hann hefur síðustu vetur verið
í námi við upptökustjóm og
píanóleik í Bandaríkjunum en
kemur heini á Frónið milli
missera. Jóhann hefur um ára-
bil verið einn uppáhalds
hljómborðsleikari undirritaðs í
Skriðjöklum. Því þótti tilvalið
að heyra hvað helst er „í
uppáhaldi" hjá honum.
Hvað gerirðu helst ífrístundum?
„Ég hlusta mikið á tónlist og
horfi mikið á kvikmyndir.
Ætli frítíma mínurn sé ckki
lýst þannig í hnotskum.“
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
„Við skulum segja að þaó sé
kjöt og fiskur en ef þú vilt fá
það nákvæmara þá get ég sagt
fiskur og lamb.“
Vppáhaldsdrykkur?
„Engin spurning, íslenska
vatnið.“
Ertu hamhleypa til allra verka á
heimiUnu?
„Þegar ég kenist á skrið fær
ekkert stoppað mig. Sérstak-
lega þyki ég laginn við upp-
vask og eldamcnnsku.“
Spáirðu mikið í heilsusamlegt líf-
crni?
„Já, ég geri það. Hollur og
Jóhann Ingvason.
góður matur og hæfilcg hreyf-
ing er mín blanda. Ég reyni að
sleppi fitunni úr fæðunni."
Hvaða blöð og tímarit kaupirðu?
„Ég kaupi fagtímarit hljóm-
borðsleikara scm heitir Key-
bord.“
Hvaða bók erá náttborðinu hjá
þér?
„Bíddu aðeins ég ætla rétt að
gá að því___vildi bara vera viss
um að segja þér satt. Það er
lítið kver sem heitir Vináttan,
einhvers konar spakmæla-
bók.“
Hvaða hljómsveitltónlistarmaður
er í uppáhaldi lijá þér?
„Tónlistarmaðurinn heitir Pat
Metheny og er gítarleikari.
Ætli uppáhaldshljómsveitin sé
ekki bara hljómsvcitin hans.“
Vppáhaldsíþróttamaður?
„Það er Þorvaldur Örlygsson,
atvinnumaóur hjá Stoke City,
engin spuming."
A hvað horfirðu helst í sjónvarpi?
„Um þessar mundir horfi ég
mest á Simpson fjölskylduna á
mánudögum.“
Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mestálit?
„Djö... maður, þcir eru svo
rosalegir“
Hvar á landinu vildirðu helst búa
fyrir utan heimaliagana?
„Núna bý ég á Akurcyri og
heimahagamir eru því væntan-
lega hér. Við hjónin vorum
búin að finna einhvern stað en
ég bara man ekki hvar hann
er. Ætli ég vildi nokkuð fara
úr heimahögunum.“
Hvaða hlut eða fasteign langar þig
mest til að eignast um þessar mundir?
(Dreymandi) „Vá! Mikið væri
gott að hafa bíl til eigin af-
nota.“
Hvernig langar þig til að verja
sumarleyfinu?
(Enn meira dreymandi) „A
sundlaugarbamii á
Edduhóteli."
Hvað œtlarðu að gera um helgina?
„Spila af mér rassgatið. Fyrir
Vinbæinga á Siglufirói og á
Breiðabliki á Snæfellsnesi.
Síðan verður Reykvíkingum
kitlað á sunnudag og mánu-
dag.
Aukaspurning:
Af hverju „spila af sér rassgatið“?
„Ég veit þaö ekki. Líklega af
því að þaó er svo mikið um
rassaköst í þcssum feróum
okkar.“
w
VÁTRYGGINGAFÉLAG
ÍSLANDS HF
Vátryggingafélag íslands hf., Akureyri, ósk-
ar eftir tilboöum í eftirtaldar bifreiöar, sem
skemmst hafa í umferðaróhöppum.
Suzuki Swift 4x4...........árgerð 1992
MMC Galant GL ............árgerð 1990
Toyota Corolia Sedan ....árgerð 1987
Volvo 340 ................árgerð 1985
MMC L300 4x4 .............árgerð 1985
Mazda 626 ................árgerð 1984
Isuzu Trooper DLX..........árgerð 1986
Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunar-
stöð VÍS að Furuvöllum 11, Akureyri,
mánudaginn 5. júlí nk. frá kl. 9.00 til 16.00.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl.
16.00 sama dag.
Kjörbúðarstjóri
Kaupfélag Eyfirðinga auglýsir eftir verslunarstjóra í
eina af kjörbúðum félagsins á Akureyri.
Leitað er eftir starfsmanni, sem hefur reynslu af
smásöluverslun og æskilegt að viðkomandi hafi
menntun á sviði verslunar og reksturs.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um starfiö gefur Hannes Karlsson,
deildarstjóri Matvörudeildar KEA, sími 96-30300.
Umsóknir er tilgreini aldur og menntun ásamt
starfsreynslu, þurfa að berast aðalfulltrúa fé-
lagsins, Sigurði Jóhannessyni, fyrir 20. júlí
næstkomandi.
Kaupfélag Eyfirðinga,
EFST í HUGA Jóhann Ólafur Halldórsson
Að loka augum og lifa
áfram f draumaheimi
Þá er þessi vika senn á enda runnin og
þjóðin getur haldið áfram að njóta lífs-
ins, fara í teygjustökk fyrir stórfé, kaupa
milljónabíla með innifalinni gistingu á
ferðaþjónustubæjum út um allt land eða
bara kaupa sér flugmióa til útlanda í fríið
enda hlýtur aó vera allt annaö líf aó
ferðast eftir að veröið hækkaði á flug-
miðunum. Þetta er bara smávægilegt
brot af andstæöunum í þjóðfélaginu
þessa dagana. Við látum okkur greini-
lega í léttu rúmi liggja þótt fyrirsjáanlega
verði verulegur tekjusamdráttur á næst-
unni hjá þjóðinni og atvinnuleysistölur
geti rokið upp í óþekktar stærðir. Enn
skal eytt en við förum að spara eyrinn;
nei fjandakornið.
Mér fannst ærió merkilegt aó fylgjast
meó umræðunni í byrjun vikunnar þegar
Ijóst var hvert stefndi í fiskveiðum þjóð-
arinnar. Upphrópanir stjórnmálamanna
voru sem endranær úr takti, stjórnar-
andstaóan var sem fyrr á móti til að vera
á móti og ráðherrar og stjórnarliðar í
meginatriðum með til aö vera með.
Skynsamlegar virðist þó farið í umræó-
una meðal þeirra sem hvað gleggst
þekkja til auðlindarinnar, nefnilega sjó-
manna og útgerðarmanna því þeir vita
vel aó það fæst varla bein úr sjó þessa
dagana og hefur svo verió lengi. En þaó
fer í taugarnar á mér þegar reynt er að
slá ryki í augun á fólki meö yfirborðslegri
umræðu eins og gerðist strax á fyrsta
degi eftir að kvótaskerðingin var ákveð-
in. í aðalfréttatíma Ríkisútvarpsins kom
skyndilega viðtal við sjómann sem lýsti
yfir að allar tillögur fiskifræðinga væru
rugl, það ætti bara að veiða nógu mikið,
helst nokkur hundruð þúsund tonn.
Þannig yrðu fiskistofnarnir byggðir upp.
Þarna var enn komin eyðsluröddin, enn
var komin til sögunnar rödd sem vildi
ekki horfast í augu við þá staðreynd að
hvað sem iíður öllu kvótatali þá fæst
nær enginn fiskur úr sjó. Eða halda
menn eins og hann að það sé fyrir aum-
ingjaskap aó þrautreyndir sjómenn á
stöóum eins og Grímsey gefast upp á
miðjum degi úti á sjó og halda til lands
vegna þess að það er enginn afli. Taka
þeir undir tal um að margfalda þorsk-
veiðarnar frá því sem nú er? Ég held
varla enda er allt tal á þessum nótum
dæmi um að menn vilja lifa í drauma-
heiminum áfram, bruóla og sóa og neita
aö horfast í augu við staðreyndir og taka
á vandamálunum.
Og nú er aó bíða og sjá hvað stjórn-
málamennirnir ætla aó gera. Veróur
skorið nióur hjá ríkinu eins og þarf eóa á
sem fyrr að göslast áfram og bjóða okkur
upp á yfirlýsingar eins ég sá einhvers
staðar frá einum ráðherranum á dögun-
um að í sínu ráðuneyti ætti núna að fara
varlega í sakirnar af því að svo vel hafi
verið skorið niður áður. Ef þetta er al-
mennt viðhorf hjá ráðherrum landsins
þá getur hæglega farið fyrir okkur eins
og frændum vorum í Færeyjum.
FgR Læknastöður
\/ á Siglufirði
Auglýstar eru stöður tveggja heilsugæslulækna við heilsu-
gæslustöð og sjúkrahús Siglufjarðar. Önnur staðan er laus
frá 1. september 1993 eða um áramót. Hin staðan losnar
sumarið 1994.
Æskilegt er að umsækjandi hafi sérfræðimenntun í heim-
ilislækningum. Vegna starfa við sjúkrahúsið er reynsla
annars læknisins í svæfingum (6 mán.) æskileg.
Umsóknir berist til stjórnar fyrir 1. ágúst 1993.
Nánari upplýsingar veita framkvæmdastjóri eða yfirlæknar
í síma 96-71166.
Stjórn heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss Siglufjarðar.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Staða yfirlæknis við Barnadeild F.S.A. er
laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. ianúar
1994.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 1993.
Meðal verkefna yfirlæknis verður undirbúningur að
flutningi deildarinnar í nýtt húsnæði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf,
sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins.
Nánari upplýsingar veitir Baldur Jónsson yfirtæknir.
70% staða sérfræðings í háls-, nef- og eyrna-
lækningum við HNE-deild F.S.A. er laus til
umsoknar.
Staðan veitist frá 1. október 1993 eða eftir sam-
komulagi.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 1993.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Sveinsson yfirlæknir.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sími 96-30100.