Dagur - 03.03.1994, Side 4

Dagur - 03.03.1994, Side 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 3. mars 1994 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREVRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, (ax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: - HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Óæðri þjóðfélagsþegnar? Atvinnuleysi er vaxandi vandamál hér á landi og sú spurning er áleitin hvort við séum að sigla inn í sama far- ið í atvinnumálunum og lönd Evrópubandalagsins. Margt bendir því miður til þess að svo sé. í fyrsta sinn í sögunni hafa fjölmargir íslendingar fengið að kynnast því af eigin raun hvað það er að vera án atvinnu mánuðum saman. Sumir hafa jafnvel verið án atvinnu í allt að tvö ár. Þetta er hrikalegt ástand, sem enginn getur þó skynjað fylli- lega nema þeir sem reynt hafa. í fyrradag birtist hér í blaðinu grein eftir Hildigunni Ólafsdóttur, atvinnulausa konu á Akureyri. Grein hennar hefur vakið verðskuldaða athygli enda er þar fjallað tæpi- tungulaust um ýmsa fylgikvilla þess að vera atvinnulaus og viðhorf almennings til þeirra sem svo er ástatt fyrir. Hildigunnur segir í grein sinni að atvinnulausir þurfi að þola mikla niðurlægingu. Þeir séu fangar laga og reglna og fordómafullra viðhorfa og í raun sé búið að svipta þá frelsinu. Hún bendir á að sá sem missir atvinn- una, missi um leið þær tekjur sem afkoma hans byggðist á. „Atvinnuleysisbætur eru ekki laun, heldur trygginga- greiðslur, sem þú átt rétt á að fá af því að þú hefur greitt iðgjöldin! Upphæð bótanna er að sjálfsögðu til skamm- ar,“ segir hún og telur réttlætismál að bæturnar séu tekjutengdar, þannig að von sé til þess að fólk, sem skyndilega missir atvinnuna, geti staðið við skuldbind- ingar sínar. í annan stað fjallar Hildigunnur um þær reglur sem gilda um atvinnuleysisskráningu. Um þær segir hún m.a. „Nú, og hver er réttur þinn, fyrir utan það að fá þessar tryggingagreiðslur sem þú hefur keypt þér rétt til að fá? Hann er enginn. Það eina sem fylgir þessum peningum eru kvaðir. Fullt af reglum sem þú mátt ekki brjóta. Þú verður að mæta til skráningar einu sinni í viku og alltaf á sama degi. Ef þér verður það á að gleyma þér, þá miss- irðu viku laun! Ér svona refsingu að finna einhvers stað- ar á vinnumarkaðinum?11 Hún bendir einnig á að enginn geti notið atvinnuleysisbóta lengur en í níu mánuði sam- fellt. Sá sem er án atvinnu í heilt ár eða lengur sé því skikkaður í launalaust „orlof" í þrjá mánuði! í grein sinni fjallar Hildigunnur einnig um það sem hún kallar „ánauð atvinnuátaksins". Hún fullyrðir að tímabundið atvinnuátak sveitarfélaga sé engin lausn á vanda atvinnulausra og hafi fjölmarga galla. Fólk sé skikkað í vinnu sem það hefur aldrei sinnt og sé síðan „kastað út í kuldann aftur" þegar það sé rétt að ná tök- um á henni. Launin séu auk þess litlu hærri en atvinnu- leysisbæturnar og mismunurinn nægi ekki til að mæta kostnaðarauka á borð við barnagæslu og fleira. Hún full- yrðir einnig að fyrirtæki séu í auknum mæli farin að not- færa sér ástandið með því að ráða til sín fólk af atvinnu- leysisskrá, tímabundið, borga því lágmarkslaun og fá at- vinnuátaksstyrk frá ríkinu á móti. Meginboðskapurinn í grein Hildigunnar Ólafsdóttur er sá að stjórnvöld hafa ekkert gert til að laga lög um rétt atvinnulausra að núverandi ástandi. Gildandi lög geri einfaldlega ekki ráð fyrir langtímaatvinnuleysi. í lok greinar sinnar varpar Hildigunnur fram nokkrum áleitnum spurningum: Hún spyr hvort bætur eigi að vera hærri; hvort forsvaranlegt sé að gefa atvinnulausum „sumarfrí" frá vikulegri skráningarskyldu; hvort átaks- vinna eigi rétt á sér og hvort réttlátt sé að fyrirtæki geti keypt kunnáttu okkar atvinnulausra á útsöluverði. Þess- um spurningum m.a. þurfa forsvarsmenn ríkis og sveitar- félaga að svara. Sannleikurinn er sá að það er löngu tímabært að taka lög um réttindi atvinnulausra til gagn- gerrar endurskoðunar. Eins og málum er nú háttað eru atvinnulausir annars flokks þjóðfélagsþegnar, í það minnsta í augum hins opinbera. BB. FRÍMERKI SlóURÐUR H. ÞORSTEINSSON Reynsluprentanir Það fara alltaf fram reynsluprent- anir af öllum nýjum frímerkjum, sem gefin eru út, hvort sem þau eru fyrir Island eða einhver önnur lönd. Við Islendingar höfum hins- vegar verió einstaklega heppnir hvaö þaó varóar, að allar svona reynsluprentanir hafa verið eyði- lagðar, að lokinni prentun frí- merkjanna og því ekki komist í umferð á almennan markað. Þekktastar reynsluprentanir ís- lenskra frímerkja eru ótökkuóu frí- merkin með verðgildi skildinga og aura, sem komu út fyrir aldamót og voru prentuð hjá Thiele prent- smiójunni. Þessar reynsluprentanir eru bæði til í réttum og endanleg- unr litum frímerkjanna, sem og öll verógildin í einum og sama lit. Sama máli gildir um Geysisfrí- merkin, sem prentuð voru hjá Thomas de la Rue & Co. Ltd. Þá hafa alltaf öðru hvoru verið á ferðinni reynsluprentanir frímerkja sem aldrei komu út, eða sem voru svo endanlega gefin út allt öóru vísi en þessar reynsluprentanir gefa hugmyndir um. Þessar reynslu- prentanir virðast hafa farió út í nokkru upplagi frá Prentsmiðju Thomas de la Rue. Það eru nokkur ár síðan mér bárust þessi merki í reynsluprentun frá Englandi. Það voru 10 aurar, slate carmine, eins og segir í lýsingu. 20 aurar dark- brown, slate. 35 aurar darkbrown, violet. Loks var svo 1 króna, gray, carmine. Nýlega hafa svo enn eintök af þessum merkjum borist til landsins frá Suður-Þýskalandi. Þar er um að ræöa öll þessi sömu merki, nema hvað þau nú eru í tveim litum. Rauð-bleikum lit og fjólubláum. Þá er gröftur merkjanna tvenns- konar. Annars vegar eru öll orð og tölustafir mjög grannir og hins vegar eru stafimir feitari. Þá er annars vegar öll samstæöa þessara fjögurra merkja í rauð-bleika litn- um og hins vegar í fjólubláa litn- um. Auk þessa er svo sá munur á þessum tveim útgáfum reynslu- merkjanna, að í fyrra tilfellinu voru þau tökkuö hvert fyrir sig, en í seinna tilfellinu eru þau ótökkuð. Snúum okkur næst að myndefni þessara reynsluprentana, ef þær þá eru yfirleitt reynsluprentanir, en ekki aðeins hreinn tilbúningur. Merkið sem ber verðgildið 10, Sömu mcrki, tökkuð. er með mynd af styttu Leifs Eiríks- sonar hins heppna á Skólavörðu- holti. Sama myndefni er notað á einu frímerkjanna í Leifsblokkinni. Þar er frímerkið með tölunni 30 og er þaö eina myndefni þessara reynsluprentana sem náð hefir aö komast á frímerki lítið breytt. Næst komum við svo að merki með myndefninu Geysir og er þar um að ræða margfræga mynd af Geysisgosi, en aðra en síðar var notuð á frímerkjum og þá með fjölda áhorfenda. Það voru raunar einmitt 20 aurar Geysisfrímerkj- anna, sem voru gefnir út sem „prufa“ í öllum litunum sem frí- merkin voru síðan prentuð í. Ingólfur Arnarson er svo mynd- efni merkisins með tölunni 35. Hann var þekktur sem myndefni á krónu frímerkinu úr flugsamstæðu Alþingishátíöarinnar, en þar með flugvél í baksýn. Að öóru leyti hef- ir frímerki þessu líkt, aldrei verið gefiö út hér. Loks komum við svo að merk- inu meó tölunni einn, sem gæti átt að þýða 1 króna. Myndefni þcss er Þjóðlcikhúsið, sem aldrei hefir ver- iö myndefni íslensks frímerkis. Þess heióurs hafa hins vegar, Landsbankinn, Landspítalinn, Iþróttahús og mannvirki í Laugar- dal, Viðeyjarstofa, Norræna húsió og fjöldi annarra og nýrri bygginga notið, meðal annars mörg hús í innbæ Akureyrar. Þá hafa margir spurt mig hvert sé álit mitt á reynsluprentunum af Alþingishátíðarfrímerkjunum. Það er einfalt, aó þar eru engar opin- berar reynsluprentanir til. Því nefna til dæmis Bandaríkjamenn þær veggloður. Rúllumar séu hins- vegar svo litlar aó það borgi sig ekki að nota þetta veggfóður. Að vísu hafa minnabækur, sem meðal annars voru sendar alþingismönn- um þess tíma fengið á sig þaó álit að vcra opinberar reynsluprentanir, en eru það aldeilis ekki. Póstur og sími heimilaði aldrci útgáfu þeirra og öll framleiðsla merkjanna um- fram opinbera beiðni er í raun föls- un, en ekki reynsluprentun einu sinni. Það að alþingismenn og ráð- herrar þáðu þessar bækur, gefur þeim engan löglegan staðal sem frímerkjum. Gaman væri að heyra nú frá les- endum um álit þeirra á svona merkjum. Því það er víst, aö safn- arar láta aldrei segja sér fyrir um það hverju þeir safna. Vissulega er líka hverjum og einum frjálst að safna hverju sem þeir vilja og borga fyrir það eins hátt veró og þeir hafa efni á. En nefnum hlutina réttum nöfnum. Mcrkin scm nú eru að koma á markaðinn frá S.-Þýskalandi í nýjum litum, sem svokallaðar reynsluprentanir frí- mcrkja, scm aldrci komu út.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.