Dagur - 29.03.1994, Qupperneq 7
Þriðjudagur 29. mars 1994 - DAGUR - 7
Ótrúleg spenna í karlablakinu:
KA deMarmeistari 1994
- eftir tvo góða sigra um helgina
KA tryggði sér deildarmeistara-
bikarinn í blaki eftir að hafa
lagt HK og IS að velli um helg-
ina. Fyrst lék liðið við HK á
föstudagskvöld og vann 3:1 og
eftir að Stjarnan hafði unnið
Þrótt á laugardag var ljóst að
KA þurfti að vinna IS a.m.k. 3:1
til þess að næla í bikarinn og
það gekk eftir. ÍS hefði nægt að
sigra í tveimur lotum til þess að
hreppa bikarinn en KA-menn
voru einbeittir og börðust vel
fyrir sigrinum. Liðið mætir HK
í úrslitakeppninni. Fyrsti leikur-
inn er í KA-húsinu annað kvöld
kl. 20.00.
Leikurinn gegn HK á föstu-
dagskvöld var ekki sérlega vel
leikinn en sigur KA var þó nokk-
uö öruggur, 3:1. Liðiö tapaði
lyrstu lotunni 15:10 cn vann
næstu þrjár, 15:10, 15:8 og 15:10.
Þegar KA-strákarnir mættu til
leiks gcgn IS á laugardagskvöld
var ljóst oröið aö þcir áttu góóa
nröguleika á að vinna deildarbik-
arinn. Liðió þurfti aöcins að vinna
IS a.m.k. 3:1. Tækist ÍS-ingunr að
Dcildarmcistarar KA í blaki 1994. Efri röð f.v.: Hjörn Gíslason, Guðmundur I*. Guðniundsson, Hafstcinn
Jakobsson, Kristján Gunnarsson, Stcfán Magnússon, Aki Thoroddsen og Stefán Jóhannesson, þjálfari. Neðri röð
f.v.: Hjarni Þórhallsson, Haukur Valtýsson, Davíð Ilúi Halldórsson, Friðmundur Guðmundsson, I’ctur Ólason,
fyrirliði og Magnús Aðalstcinsson. Mynd: SV.
íslandsmót 15-17 ára og U-21 árs í júdó:
Glæsíleg uppskera hjá KA
Um helgina fór fram íslandsmót
15-17 ára og U-21 árs í júdó.
Uppskera júdódeildar KA var
fádæma glæsileg. Af 9 flokkum
sem félagið átti keppendur í
vann það 6 og silfurverðlaun í
hinum þremur. Af 14 möguleg-
um verðlaunum vann KA 12 og
aðeins 2 af 12 keppendum frá
KA unnu ekki til verðlauna.
I>eir töpuðu reyndar fyrir Akur-
eyringum. Júdódeild KA vann
til lang flestra verðlauna þeirra
félaga sem þátt tóku.
í 15-17 ára flokki tapaði Víðir
Guömundsson úrslitaglímu í -55
kg flokki, Sverrir Már Jónsson og
Atli Haukur Arnarsson sigruðu
báðir meó yfirburðum í -65 og
+65 kg flokki og Ólafur Magnús-
soni vann brons í +65 kg flokki.
í flokki U-21 árs tapaði Víðir
aftur naumlega í úrslitaglímu en
Sævar Sigursteinsson sigraði með
fádæma yfirburðum í -65 kg
flokki og sýndi aó hann er lang
sterkasti júdómaóur landsins í
þessum þyngdarflokki. Atli Hauk-
ur tapaði úrslitaglímu í -71 kg
flokki og Hinrik S. Jóhannesson
vann til bronsverðlauna. I -78 kg
flokki sigraði Friðrik Blöndal með
stæl og Bergþór Björnsson vann
brons. í -86 kg llokki vann síóan
Þorvaldur Blöndal gull og sania
gerói Gísli Jón Magnússon í +86
kg llokki.
Jón Óðinn Óðinsson, þjálfari
KA, kvaðst nijög ánægður með
árangurinn, ekki síst þar sem einn
sterkasti júdómaóur landsins,
Rúnar Snæland, tók ekki þátt.
Flestir þeir júdómenn sem hér
hafa verið nefndir eru á förum til
Skotalands þar sem þeir taka þátt í
móti um páskana.
Deildarkeppnin í blaki:
Loka-
staðan
l.deild karla:
KA 2013 7 49:34 1074:94849
Þróttur R 20 14 6 48:30 1001: 861 48
ÍS 2012 848:33 1027:92448
HK 20 11 943:35 976:89643
Stjarnan 2010 1039:44 991:1047 39
Þróttur N 20 020 9:60 610:1003 9
l.deild kvenna:
Víkingur 20 15 549:21943:71049
Þróttur N 20 15 5 47:24918:745 47
ÍS 2013 746:22908:67546
KA 2011 9 36:34 848:838 36
HK 20 61428:45761:90428
Sindri 20 0 20 0:60397:903 0
Deildarkeppnin í blaki:
sigra í tveintur lotum rnyndu þeir
hampa bikarnum og KA lenda í
öðru sæti. Tapaði KA hins vegar
yrói þriðja sætið hlutskipti þeirra.
Það var því ekki laust vió að tölu-
verðrar spcnnu gætti þegar leikur
liðanna hófst.
Strax í upphafi varð IS fyrir
áfalli þegar þjálfari þeirra og leik-
maður meiddist og varð að fara af
velli. IS missti dampinn, KA gekk
á lagið og vann öruggan sigur í
fyrstu hrinunni, 15:5. Onnur hrin-
an var spennandi framan af.
Heimamenn sýndu hvers þeir eru
megnugir og unnu 15:8.
Ekki leit vel út fyrir KA í
þriðju hrinunni; staðan oróin 7:1
fyrir heimamenn og þeir til alls
líklegir. Þá settu KA-strákarnir í
fluggírinn, jöfnuðu 8:8 og unnu
síðan hrinuna 15:10. Sagan endur-
tók sig síðan í fjórðu lotunni. ÍS
■komst í 9:1 og allt leit út fyrir að
bikarinn væri aö ganga KA úr
greipum. Allt kom þó fyrir ekki.
KA-liðið þjappaði sér saman,
baróist sem einn maöur og jafnaði
leikinn 10:10. Eftirleikurinn var
síðan auðveldur og deildarbikam-
um var hampað í leikslok. Þetta er
í annað skipti sem KA vinnur
þennan bikar. Aður geróist það
1989.
Mesta breiddin
„Við ætluðum okkur að vinna
bæði deild og bikar og þegar bik-
arinn gekk okkur úr greipunt vor-
um við ákveðnir að taka þennan.
Þetta var kaflaskipt hjá okkur í
dag. Það er erfitt að halda dampi
heilan blakleik en við lékum mjög
vel í l'yrstu og fjóróu lotunni og
þaö dugði. Við erum með lang-
mestu breiddina í deildinni og hún
á eftir að skila okkur langt þegar í
úrslitakeppnina kemur,“ sagði
Pétur Ólason, fyrirliði KA,
kampakátur eftir að hafa lyft
deildarbikarnum hátt í loft. SV
Knattspyrna:
Coca-Cola mótið
hefst á fímmtudaghm
Á flmmtudaginn (skírdag)
hefst á Sanavellinum fyrsta
utanhússmót ársins á Akur-
eyri. Er það Coca-Cola mótið.
Þáttökulið eru 4, Akureyrar-
liðin KA og Þór, Magni og
Þróttur Nes. og er leikin ein-
föld umferð.
Hver leikur verður spilaóur til
þrautar og ef staðan er jöfn eftir
2x45 mín. fcr fram vítaspymu-
keppni og síðan bráðabani cf úr-
slit fást ekki eftir 5 spymur á lið.
Leikjaniðurröðun er þcssi:
Fimmtudagur 31. mars:
Þór-KA kl. 11.00
Magni-Þróttur kl. 13.00
Föstudagur 1. apríl:
Þór-Þróttur kl. 11.00
KA-Magni kl. 13.00
Laugardagur 2. apríl:
KA-Þróttur kl. 11.00
Þór-Magni kl, 13.00
KA-stúlkur enduðu í ijórða sæti
- leika gegn Vilingi í úrslitakeppninni
KA-stúlkurnar léku tvo síðustu
leikina í deildarkcppninni í
blaki um helgina. Á föstudags-
kvöldið sigruðu þær HK 3:2 og
töpuðu svo 3:0 fyrir ÍS á laugar-
dag. Liðið hafði fyrir helgina
tryggt sér fjórða sæti deildar-
innar og leikur gegn Víkingi í
úrslitakeppninni. Fyrsti leikur
liðanna verður á fimmtudaginn
(skírdag) kl. 13.00 í KA-húsinu.
„Ég var þokkalega ánægð mcð
leik okkar gegn HK, loksins þegar
við fórunt í gang. Leikurinn á
laugardag var hins vegar slakur;
við höfðum ekki að neinu að
keppa og létum IS rúlla yfir okk-
ur. Mér líst vel á að mæta Víkingi
í úrslitakeppninna og við munum
gera hvað við getum til að vinna,“
sagði Hrefna Brynjólfsdóttir, fyr-
irliði KA.
Lcikurinn gcgn HK fór illa af
stað. HK vann fyrstu hrinuna,
15:13, aðra 15:6 og var yfir 12:5 í
þeirri þriðju þegar KA-stelpurnar
hrukku í gang. Þær náðu að jafna
og höfðu síðan sigur í hrinunni
15:13. Næstu tvær unnu þær síðan
nokkuð auóveldlega, 15:7 og
15:7, og þar með leikinn.
Allt annaó var síðan uppi á ten-
ingnum á laugardaginn. Þá hafói
IS sigur í þrernur lotum gegn
engri. Fyrsta hrinan var jöfn og
spennandi. KA hafði yfir 13:9 og
14:12 en náði ekki að reka enda-
hnútinn á hrinuna og tapaði 17:15.
I annarri hrinunni komst KA í 5:1
en aftur var IS sterkara þegar á
reyndi og hafði sigur 15:9. Órugg
forysta, 12:5, í þriðju lotunni
dugði KA síóan ekki til sigurs og
liðið varð að játa sig sigraó,
15:13, eftir talsverða baráttu.
KA lenti í fjórða sæti deildar-
innar og leikur gegn deildarmeist-
urum Víkings í úrslitakeppninni.
SV