Dagur - 29.03.1994, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 29. mars - DAGUR - 11
Draugagangur hiá L.A.
Mikill dagur var hjá Leikfé-
lagi Akureyarar föstudag-
inn 25. mars. Þá var frumsýníng
á gamanóperunni Óperudraugn-
um eftir Ken Hill. Leikstjóri upp-
setningarinnar er Þórhildur Þor-
leifsdóttir, en tónlistarstjóri Gerrít
Schuil.
Óperudraugurinn er byggöur
á skáldsögu eftír Fransmanninn
Gaston Leroux. Skáldsagan er
hryllingssaga um draugagang í
Parísarópemnni, sem er sér-
kennileg og stórfengleg bygging
á allan hátt. Gerð þessa mikla
húss er mikilvægt atriði í
jafnt bókinni sem gaman-
óperunni. Innan veggja
þess gerist verkið að
stærstum hluta. Stórfeng-
legar vistarverur og aörar
fullar óhugnaðar og
diunga rísa á sviði leík-
hússins og virðist fátt tíl sparaö.
Hönnun leikmyndar og bún-
inga er verk Sigurjóns Jóhanns-
sonar. Honum hefur tekist vel
aö skapa híö rétta andrúmsloft
og tíöum með snjöllum hætti.
Þar hefur hann notiö góöra
verka smiðanna, Hallmundar
Kristinssonar, Erlings Vilhjálms-
sonar og Þorleifs Jóhannssonar
og málaranna, þeirra Ólafar Sig-
urðardóttur og Laufeyjar Mar-
grétar Pálsdóttur. Þá hefur það
hæfa fólk, sem séð hefur um
saumaskap ekkí legiö á liði sínu;
þær Hildur Gunnarsdóttir, Ragna
Aðalsteinsdóttir og Sigrún Linda
Kvaran.
Leikhljóð eru sérlaga vel unn-
in, en þar á Gunnar Sigurbjörns-
son heiöur að. Hófsemi í þessu
efni er dyggö og kemur víða
fram, af hvílíkri natni hefur verið
unniö, svo sem í fínlegri blönd-
un hljóöa í senunni í stöðuvatns-
kjallara óperuhússins og hóf-
samlegri notkun þyts í miö-
stöðvarsenunni. í báðum þess-
um tilfellum sem og öðrum nýt-
ast hljóð sérlega vel til þess að
mynda þann anda, sem við hæfi
er.
Lýsing er aö vanda verk hins
fjölhæfa ljósameistara Leikfélags
Akureyrar, Ingvars Björnssonar.
Einnig hér er sérlaga fagmann-
lega og vel að verki staðið. Hver
senan af annarrí er Iýst svo sem
við á til þess aö undirstrika sem
best þann brag, sem fellur að
framgangi verksins.
Leikstjórinn, Þórhildur Þor-
Ieifsdóttir, hefur unniö verk sitt
af mikílli alúð. Helst er að sjá, að
sem næst ekkert atriði hafi
sloppið framhjá vökulum aug-
um hennar. ÖIl sviösferð er góð
og hnökralaus. Hæfilegur farsa-
bragur er á fasi Ieikenda og of-
gerir sem næst enginn, heldur
heldur hver maður þeim hætti,
sem fellur að túlkuninni, sem
eftir er Ieitað. Flutningur máls
jafnt í tali sem tónum er yfirleitt í
mjög góöu lagi, þó að reyndar
lítils háttar út af bregöi í þessu
efni í fáeinum tilfellum. Uppstill-
ingar hópatriöa ganga vel upp
og sú deyfð, sem víll koma yfir
leikendahópa, þegar flutt eru
sungin atriði, kemur sem næst
ekki fyrir.
Flutningur tónlistarinnar er
meö ágætum. Unníð hefur verið
af vandvirkni með söngvurum,
enda þar vanur og hæfur maður
víð verk, þar sem er Gerrit Schu-
il. í þessu efni var svo til feyru-
Iaust öryggi helsta einkennið á
allri framkvæmd. Innkomur
voru vissar jafnt í hljómsveit
sem á sviöi og þáttur hljómsveit-
arinnar góður og mjög við hæfi
jafnt hvað snertir styrk sem blæ.
Tónlistin í Óperudraugnum er
fengin aö lání úr ýmsum óper-
um Offenbachs, Gounouds,
Verdís, Boitos, Bizets, Webers,
Donizettis og Mozarts. Við
söngverkin hafa veriö settir nýir
textar, sem falla að verkinu.
Þýðing Óperudraugsins er
verk Böðvars Guðmundssonar.
Talaður texti er lipurlega þýddur
og fer vel í munni leikenda.
Hann er víða skemmtilega hnytt-
inn og vel í anda verksins. Að
jafnaði er eins um söngtexta. Þó
kemur fyrir, að ekki er með öllu
hnökralaus samfella viö iaglínur
og áherslur tónlistarinnar. Það er
lítílsháttar lýti á verkinu.
Draugurinn sjálfur er leikinn
Haukur Ágústsson
skrífar
og sunginn af Berþóri Pálssyni.
Hann kemst vel frá hlutverkí
sínu ekki síst í söngatriöum, sem
hann leysir fallega af hendi.
Flutningur hans á töluðu máli er
hins vegar nokkuö líflítill t.d. í
kapellunni meö Mörtu G. Hall-
dórsdóttur.
Marta G. Halldórsdóttir fer
með hlutverk Cristinu Daeé og
gerir víöast mjög vel jafnt í söng
sem leik. Hún virðist í lítilsháttar
vandræöum með aríuna Hátt
fyrir ofan eftir Verdi í seinni
hluta.
Þráinn Karlsson Ieikur leik-
hússtjórann, Richard, og fer víöa
á kostum. Honum tekst vel að
gæða persónuna flumbrugangi
hins alvalda en fávísa og nær
tíðum aö draga fram skoplega
þætti úr hinu smáa.
Aöstoðarmann leikhússtjór-
ans, Rémy, leíkur Dofri Her-
mannsson. Dofri kemst vel frá
þessu hlutverki og nær víða nán-
um samleik viö Þráinn í hóflegu
en skoplegu atferli.
Ragnar Davíösson fer meö
hlutverk Raouls, sonar Richards.
Þaö er hlutverk hins ástfangna,
sem af riddaralegri háttprýði leit-
ast við að bjarga ástinni sinni,
Christinu, úr klóm myrkranna.
Ragnar nær góðum tökum á
persónunni innan marka hennar
og gerði söngatriðum sínum góð
skil. Þó skorti nokkuð á þunga í
flutníngi aríunnar Hún dirfist eftir
Verdi í fyrri hluta verksins.
Madame Giry er leikin af
Ágústu Sigrúnu Ágústsdóttur.
Hún nær góðum tökum á þess-
ari köldu persónu, sem ekki
mildast fyrr en lítillega í lokin og
spáir alla tíö óhöppum og slys-
um. Ágústa Sigrún kemst nokk-
uð vel frá söngatriöum sínum,
en röddin er dálítið fyllingarlítil.
Sigurveig Jónsdóttir fer með
hlutverk Debienne, starfsmanns
í óperunni. Þetta er kómískt hlut-
verk, sem fellur vel að Sigur-
veigu. Hún kemst vel frá því og
nær víöa að draga fram skop-
lega þætti jafnt í fasi sem mæltu
máli.
Sunna Borg fer með hlutverk
hinnar hnígandi söngstjörnu, La
Charlotte. Sunna gerir mjög vel
og mótar skoplega ímynd
prímadonnunnar, sem ekki vill
viðurkenna, að ferill hennar er á
enda.
Már Magnússon fer með hlut-
verk óperusöngvarans, sem fer
með hlutverk Fausts, en það er
óperan, sem verið er að setja
upp í óperuhúsinu. Már nær
vföa góðum tökum í þessu hlut-
verki og hefur greinilega auga
fyrir því skoplega í kringumstæð-
um persónunnar. Hann kemst
allvel frá söngatriðum sínum,
sem hann flytur í anda verksins.
Aðalsteinn Bergdal fer með
þijú hlutverk í uppsetningu Leik-
félags Akureyrar á Óperudraugn-
um: Mefistofeles, hestasveíninn
og prestinn. Aðalsteinn gerði vel
í öllum þessum hlutverkum, en
þó best í hinum tveim síöar-
nefndu. Söngatriði flutti Aðal-
steinn af öryggi og víða meö
glæsibrag, svo sem í arfu hesta-
sveinsins Seint í gaerkvöld gekk
ég niöur, eftir Boito.
Rósa Guðný Þórsdóttir fer
meö hlutverk ballerínunnar,
Jammes. Hlutverkiö gerir ekki
kröfu til mikilla átaka í Ieik, en
persónan þarf aö fara vel á sviði.
Það gerir Rósa Guðný svo sann-
arlega og setur góðan
brag á uppfærsluna fyrír
sitt leyti.
Gestur Einar Jónasson
fer með hlutverk Persans
og gerir vel. Ingibjörg
Gréta Gísladóttir Ieikur
Dominique, Lisettu, kór-
stúlku og konu í stúku og Sig-
urþór Albert Heimisson fer með
hlutverk grafarans, gamals
manns og Mauclairs. Bæðí kom-
ast meö prýði frá túlkun sinni á
öllum þessum pesónum.
Það er ekki blöðum um það
aö fletta, að þessu Ieikári Leikfé-
lags Akureyrar lýkur með glæsi-
brag. Á fjölunum hjá leikfélaginu
em núna tvær vel heppnaöar
uppsetningar, Bar-par og Óperu-
draugurinn. Hin síöarnefnda á
reyndar eftir að sanna ágæti sitt
hvað aðsókn snertir, en á óvart
kemur, ef hún verður ekki sótt
og þaö vel.
Óperudraugurinn er sérlega
vel unnin sýning jafnt hvað
snertír umbúnað allan, tónlistar-
flutning og leik. Ljóst er, að
starfað hefur veriö af þeim
metnaði og þeirri natni, sem við
á í alvöru leikhúsi. Þar eiga
margír hlut að, því að leiksýning
er náin og natin samvinna
margra, þar sem einn vinnur
með öörum og styður hann og
gætir ekki síst þeirrar tillitssemi,
að ekki skyggí eitt á annaö og
spilli þannig þeirri samfellu, sem
góð uppsetning verður að vera.
Þetta hefur náðst á sem næst
öllum stigum í Óperudraugnum.
Hann er góð uppsetning og Leik-
félagi Akureyrar til sóma.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK-94005 132 kV útibúnaöur.
RARIK-94006 40 MVA, 132/66 kV aflspennir.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
þriðjudegi 29. mars 1994 og kosta kr. 2000.- hvert ein-
tak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118, fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 17. maí
1994. Verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóð-
endum sem þess óska.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Laugavegi 118,105 Reykjavík.
Hh
¥
þar sem geisladiskar eru gersemi
Hafnarstræti 98 • 600 Akureyri • Sími 12241
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1980-1 .fl. 15.04.94- 15.04.95 kr. 351.662,40
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, mars 1994.
SEÐLAB ANKIÍSLANDS