Dagur - 29.03.1994, Page 16

Dagur - 29.03.1994, Page 16
„Blönduósfestival“: Héraðshátíð í júlí - með heimafengnum skemmtiatriðum Á komandi sumri er fyrirhuguð mikil héraðshátíð á Blönduósi sem ýmis félög og félagasamtök í Austur-Húnavatnssýslu standa að. Hátíðarhöldin tengjast Ári fjölskyldunnar en einnig hefur verið rætt um það að tengja há- tíðarhöldin 50 ára afmæli lýð- veldisins en þeim hefur verið valin dagsetning, fyrstu helgi í júlí, og mundu hátíðarhöldin þá tengjast afmælidegi Blönduóss- bæjar, sem ber upp á 4. júlí. Rætt hefur veriö um að gefa hátíðinni ákveðið nafn, og að hún verði árlegur vióburður í Húna- þingi héöan í frá, nokkurs konar „Blönduósfestival'1. Einnig er vilji til þess að hátíðarhöldin verði ekki borin uppi af aðkeyptum skemmtikröftum heldur smærri uppákomum í umsjón heima- manna en með því væri kostnaðar- hliðinni haldið niðri. Hátíðin teng- ist einnig átaki samgör.guráðu- neytisins „Island, sækjum það heirn", en reynt hefur verið að glöggva sig á því hvað þaö væri sem hægt væri að bjóða upp á í Húnavatnssýslum. Stefnt er aó því að raóa á ákveðnar helgar ýmiss konar uppákomum víðs vegar um landið þannig aó hægt væri að aka frá Reykjavík hringinn í kringum landið og njóta þess sem boðið verður upp á án þess að tímasetn- ing þess stangaðist á, eða sem allra minnst. GG / Isinn hressir\ bœtir... og kœtir. Mynd; Robyn. Rannsóknarlögreglan: Kæra vegna Vörusöliumar I framhaldi af kæru hefur rannsóknarlögreglan á Ak- ureyri til rannsóknar rýrnun á vörum í versluninni Vöru- sölunni á Akureyri. Daníel Snorrason, rann- sóknarlögreglumaður, sagóist á þessu stigi ekki vilja tjá sig um þetta mál aö öðru leyti. Um- rædd rannsókn beinist að „ýmsum óvissuþáttum í rekstri fyrirtækisins," eins og Daníel orðaði það. JÓH 50. fulltrúaráðsfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga: Yfirtöku á rekstrí gnmnskólauna frestað? Samband íslenskra sveitarfélaga hélt sinn 50. fulltrúaráðsfund um liðna helgi. Óhætt er að taka út þrjú mál sem voru mest áber- andi á fundinum: Sameiningar- málin, yfirtöku sveitarfélaganna á rekstri grunnskólanna og at- vinnumálin. Á fundinum komu fram þau sjónarmið að skyn- samlegt væri að fresta yfírtöku á rekstri skólanna, a.m.k. um - margt enn óljóst varðandi kjaramál kennara eitt ár, þar eð mönnum þótti sýnt að málið krefðist meiri undirbúnings. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður sambandsins, sagói í setningarræðu að á ári fjölskyld- unnar væri ástæða fyrir sveitar- stjórnarmenn aó huga sérstaklega að velferó fjölskyldunnar. For- sendan fyrir því væri atvinna fyrir alla og góð félagsþjónusta. Stuðla Dalvík: Útilistaverk rís við Ráðhúsið - Qórir listamenn valdir til að gera frumdrög Á komandi hausti mun rísa úti- listaverk á græna svæðinu suð- austan við Ráðhúsið á Dalvík og verður það annað útilistaverkið sem reist verður í bænum. Eina útilistaverkið á Dalvík, enn sem komið er, er minnisvarði í Dal- víkurkirkjugarði um drukkn- aða sjómenn eftir Akureyring- inn Jónas S. Jakobsson. Verkið var gefíð af Slysavarnafélaginu. Auglýst var eftir gögnum frá þeim listamönnum sem áhuga hefðu á því að taka þátt í keppn- inni og í framhaldi af því voru valdir 4 listamenn til að gera frumdrög að listaverkinu og skulu þeir skila tillögum sínum fyrir 25. maí nk. Þeir eru Jóhanna Þórðardóttir, VEÐRIÐ Veðurstofa Islands boðar heldur kólnandi veður á landinu í dag þó áfram verði milt veðurlag eins og síðustu sólarhringa. A Norðurlandi verða sunnan- áttir ríkjandi og úrkoma um vestanverðan landshlutann en skýjað og hægviðri á austanverðu Norðurlandi. Reykjavík, Rúrí, Reykjavík, Sig- urður Guðmundsson í Hollandi og Sólveig Eggertsdóttir í Reykjavík. Dómnefndina skipa Steinunn Þór- arinsdóttir og Guðjón Ketilsson frá Sambandi ísl. myndlistar- manna (SÍM), Valdimar Bragason og Dóroþea Reimarsdóttir frá Dal- víkurbæ og Friðrik Friðriksson frá Sparisjóði Svarfdæla. Nefndinni til ráðgjafar verða þeir Karl Eric Rocksen, arkitekt ráðhússins, og Halldór Jóhannsson, landslags- arkitekt, varðandi skipulag lóðar Ráðhússins. Dómnefndin skal ljúka störfum fyrir 25. júní nk. og er hugmyndin að listaverkið verði komið upp um miðjan september. Listskreytingasjóður ríkisins verð- ur meö framlag til verksins en áætlað er að vcrkið kosti 4 millj- ónir króna. Listskreytingasjóður greiðir 50%, Dalvíkurbær 25% og Sparisjóður Svarfdæla 25%. GG yrði að aðgerðum í þeim tilgangi aö skapa fjölskyldunni sameigin- legan vettvang, aðstöðu og tilefni til að vera saman í leik og starfi. Eins og kunnugt er mun heilsu- gæsla, málefni fatlaóra og öldrun- arþjónusta færast frá ríki til sveit- arfélaga á næstu árum og stefnt er að því að sveitarfélögin taki aö fullu yfir rekstur grunnskólanna frá og með 1. ágúst 1995. Sýnist að vísu sitt hverjum í því sam- bandi og þau sjónarmió voru borin upp af nokkrum fundarmönnum að svo miklu væri ólokiö í undir- búningi málsins að réttast væri að fresta yfirtökunni a.m.k. um citt ár. Þótti mönnum sem ekki væru öll kurl til grafar komin varðandi kostnaóinn og nýja tckjustofna og ekki síður varðandi þau mál sem snúi að kjaramálum kennara, áunnin starfsréttindi, lífeyrismál o.fl. Höfðu menn á orói að hér væri um svo mikilvæg mál að ræða að ekki mætti flana að neinu. Atvinnuleysió í landinu var nokkuó til umræðu á fundinum og gerói Sigríður Stefánsdóttir, for- maður bæjarráðs Akureyrar, grein Samgönguráðherra samþykkir nýjar snjómokstursreglur: Mokstursdögum á leiðiimi Akur- eyri-Reykjavík íjölgar í fímm - eftirleiðis mokað fimm sinni í viku milli Akureyrar og Húsavikur Halldór Blöndal, samgönguráð- herra, ákvað í síðustu viku að setja nýjar reglur um snjóruðn- ing á þjóðvegum. Á flestum leið- um verður um að ræða tölu- verða fjölgun mokstursdaga frá þeim reglum sem gilt hafa til þessa. Á það bæði við um mokstur á landleiðum og innan atvinnusvæða. Auk þess verður bætt við nokkrum nýjum mokstursleiðum. Mikilsveröar breytingar taka gildi hvað Norðurland snertir. Sem dæmi um breytingar þá verð- ur leiðin frá Reykjavík til Akur- eyrar og til Húsavíkur mokuð fimm sinnum í viku í stað þriggja áður. Þá verður leióin frá Brú í Hrútafirði til Hólmavíkur mokuð fjórum sinnum í viku í staó þrisv- ar áður. Loks verður vegurinn milli Hofsóss og Siglufjarðar mokaður fímm sinnum í viku í stað þrisvar áöur. Nýju snjómokstursrcglurnar taka strax gildi en þær munu ekki hafa áhrif á sérstakar víðtækari reglur um snjómokstur scm í gildi vcrða um páskana. Vegagerð ríkisins mun sjá um allan snjómokstur á vcgum og greióir allan kostnað við mokstur nokkurra mikilvægra samgöngu- leiða. Vegagerðinni vcrður heimilt að fækka mokstursdögum cða lcggja niður mokstur um lengri eða skemmri tíma ef kostnaður við hann veróur óhóílegur. JOH lyrir útkomu átaksverkelnis sveit- arfélaganna og Atvinnuleysis- tryggingasjóðs sem miðaði að því að draga úr atvinnuleysi. Sigríður sagói verkcfnið ekki hafa tekist eins og vonir hcfóu staðið til. Nánar verður fjallað um full- trúaráðsfundinn í vikunni. SV Z-brautir Gluggakappar Rúllugardínur Komið með gömlu keflin og fáið nýjan dúk settan á Plast- og álrimlagardínur eftir máli SKAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565 Við tökum vel á móti ykkur alla daga til kl. 22.00 Byggðavegi 98

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.