Dagur - 31.03.1994, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 31. mars 1994
Bifreiðaverkstæðið Þórshamar hf. 50 ára
Stiklað á stóru í sögu Þórshamars:
Þegar gera þurfti við bflana eftir hveija Reykjavíkurferð
- rætt við Sigurð Jóhannesson, stjórnarformann
Bifreiðaverkstæðið Þórshamar
hf. á Akureyri er 50 ára um
þessar mundir, nánar tiltekið
28. mars sl. Það er sjálfsagt orð-
ið með rótgrónari verkstæðum
landsins því miklar sviptingar
hafa orðið í rekstri bifreiða-
verkstæða og mörg hafa horfið
af sjónarsviðinu en færri komið
í staðinn. Þórshamar er öflugt
nafn, enda vísar það til hamars
l>órs, þess fræga Mjölnis.
Reyndar er Þórshamar líka
tákn fyrir sérstakan galdrastaf
en varla hafa stofnendur fyrir-
tækisins verið með galdra í
huga í marsmánuði 1944. Þó má
segja að það sé göldrum líkast
hvernig bílarnir hafa breyst og
tækninni hefur fleygt fram á
þessum 50 árum sem Iiðin eru
frá stofnun Þórshamars hf. og
íslenska lýðveldisins.
Þaó voru 10 einstaklingar sem
stofnuðu Þórshamar í mars 1944
og meóal þcirra eru tveir enn á
lífl, þeir Gísli Olafsson, síóar yfir-
lögregluþjónn, og Guðntundur
Benediktsson. Hlutafé var 70 þús-
und krónur, sem voru miklir pen-
ingar á þeirn tíma. Fyrst var Þórs-
hamar til húsa vió Strandgötu en
um áramótin 1946-47 sameinaóist
þaó Mjölni, bifreiðaverkstæói á
Gleráreyrum og þar var fyrirtækið
síöan til húsa.
A ýmsu gekk fyrstu árin og
ekki voru allir hluthafarnir vióloó-
andi fyrirtækið í langan tíma. Eftir
stórbruna 1951 var framtíð Þórs-
hamars óráóin og hálfgert upp-
lausnarástand ríkti en í janúar
1953 kom Kaupfélag Eyfiróinga
inn í reksturinn sem stór hluthafi
og Samvinnutryggingar og Olíu-
félagió bættust við nokkru síðar,
þannig að fyrirtæki tengd sam-
vinnuhreyfingunni eignuóust
meirihluta í fyrirtækinu.
Næsta breyting varð sú aö Jó-
hann Kristinsson og Magnús Jóns-
son, sem voru meö bifreiðaverk-
stæöiö Víking og Volvo umboóið,
geröust hluthafar í Þórshamri hf.
og Jóhann varö framkvæmdastjóri
og Magnús aóalverkstjóri. Þórs-
hamar haföi áóur vcrió meö
Volkswagen umboöiö en áriö
1962 yfirgaf hópur starfsmanna
Þórshamar með Volkswagen um-
boöið í farteskinu og stofnaði
Baug. Nokkru síðar hætti Jóhann
Kristinsson og stofnaði Víking á
nýjan leik og byrjaói með Peugeot
umboðið.
Flutningurinn í nýja húsið
minnisstæðastur
Þaó var einmitt um þetta leyti,
1962, sem Siguröur Jóhannesson,
aöalfulltrúi Kaupfélags Eyfirðinga
og stjórnarformaóur Þórshamars,
kynntist bifreiöavcrkstæðinu af
eigin raun. Hann fór að fást við
bókhald fyrirtækisins samhliða
störfum sínum hjá KEA og 1968
varð hann framkvæmdastjóri
Þórshamars og gegndi því starfi til
1979. Frá þeim tíma hefur hann
verið stjórnarformaður fyrirtækis-
ins og má því segja að hann hafi
komió nálægt rekstri Þórshamarc
síðustu 30 árin.
„Mér er auðvitað minnisstæð-
ast þegar við fiuttum úr gamla
húsnæðinu á Gleráreyrum,
skammt austan við verksmiðju-
byggingar Sambandsins. Þetta er
mesta byltingin í sögu Þórs-
hamars. Hafist var handa um
byggingu hússins vió Tryggva-
braut árið 1969 og aðeins níu
mánuóum síöar, á fyrri hluta árs
1970, var fiutt inn í nýtt og fullbú-
ið verkstæði. Það gekk geysilega
vel að fiytja og aðstaðan varð allt
önnur og betri. Þama var mjög
gott athafnasvæði fyrir bifreiða-
verkstæðið og smurstöðina sem
kom síóar og á þessum tíma var
Þórshamar eitt best búna bifreióa-
verkstæðið á landinu, sérstaklega
fyrir stóra bíla,“ sagói Sigurður
þegar hann var beöinn að líta um
öxl.
Mun minna um bilanir og
viðgerðir
Siguróur sagði aó Þórshamar
heföi þjónustað vöru- og fiutn-
ingabíla Kaupfélagsins, Péturs og
Valdimars og fleiri stórra aðila og
umsvilln hcfðu verið mikil á þess-
um vettvangi.
Nýbyggingin við Tryggvabraut
kom í góðar þarfir cn húsnæðió
var síóan stækkaó 1980 upp í
samtals um 1900 fermetra. Eign-
Stórbruni varð á Þórshamri 1951 og þá var framtíð vcrkstæðisins í mikilli
óvissu um skeið, en ákvcðið var að cndurbyggja það og nýir hluthafar komu
inn.
Loftmynd af iðnaðarhvcrfinu á Gleráreyrum 1969 eða 1970. Þarna er grunnurinn að nýbyggingu Þórshamars kom-
inn og eins og sjá má hefur margf breyst á þessu svæði.
Gamli Þórshamar. Vcrkstæði, bcnsínafgreiðsla og smurstöð.
síðar verslunarstjóra, og ficiri.
Þarna hafa unnið margir traustir
starfsmenn og sumir lcngi, eða allt
frá fyrstu árum fyrirtækisins,“
sagði Sigurður.
Aðspurður sagði hann að rekst-
ur Þórshamars heföi verið erfiður
síðustu 10-15 árin og endurspegl-
aði það ástandið í greininni. Mörg
gamalgróin bifreiðaverkstæði og
bílaumboð hefðu orðió gjaldþrota
og slæm staða í járniðnaði al-
mennt kæmi líka fram á bifreiða-
verkstæðunum. Nú væri vcrkstæð-
ió ekki fullnýtt og starfsmönnum
hefði fækkað á síðustu árum.
„Það varð þó vcruleg brcyting
á rekstri Þórshamars 1. rnaí 1990
þcgar fyrirtækið var samcinað
Véladeild KEA. Við þctta jukust
umsvif Þórshamars um allt að
helming. Sameiningin gekk vel og
má segja aó góð reynsla hafi orðið
af henni. Aukning varð á vcrkefn-
um og nýtni á vcrkstæði batnaði.
Við sameininguna yfirtók Þórs-
hamar þau umboð sem áður til-
heyróu Véladeildinni,“ sagói Sig-
urður.
Hinn I. nóvembcr sama ár opn-
aði Þórshamar hf. bílasölu aó
Glerargötu 36 þar scm scldir cru
nýir og notaðir bílar.
Þórshamar var lcngi vcl með
þjónustuumboó fyrir bíla frá Gen-
cral Motors en svo cr ckki lcngur.
„Nei, við sjáum óncitanlega mikið
eftir General Motors umboöinu
því það hafði vcrið tengt KEA og
Þórshamri um nær hálfrar aldar
skeið,“ sagði Siguróur. „Þcgar
Sambandið hætti starfsemi á þessu
sviði lcnti umboðió í höndum ann-
arra. Þórshamar er þó með stcrk
umboð frá Brintborg, Volvo og
Daihatsu, einnig Honda og umboð
frá Bifreiðum og landbúnaðarvél-
um, Lada og Hyundai, svo og
MAN-vörubíla,“ sagði stjórnarfor-
maóurinn að lokum. SS
Sigurður Jóhanncsson hcfur verið stjórnarformaður Þórshamars hf. frá því
hann lét af starii framkvæindastjóra fyrirtækisins 1979. Mynd: Robyn.
araðildin hefur líka breyst. KEA,
Olíufélagió hf. og Samvinnu-
tryggingar áttu um 90% í fyrirtæk-
inu en Kaupfélagið keypti síðan
hlut Olíufélagsins og nokkurra
smærri hluthafa en Vátryggingafé-
lag íslands hélt hlut Samvinnu-
trygginga.
Þórshamar rak um tíma þrjár
bensínstöðvar, þ.e. Esso-stöðvarn-
ar Veganesti, Krókeyri og bensín-
stöðina við gamla Þórshamarshús-
ið á Gleráreyrum. En fyrirtækió
lét þennan rekstur frá sér, enda
nóg að gera á bifreiðaverkstæóinu.
„Já, þetta hefur breyst verulega
frá því sem áður var. Bílarnir end-
ast mun betur í dag, það er minna
unt bilanir og viðgerðir og algeng-
ara að skipt sé um varahluti í stað
þess að gera við þá gömlu. Malar-
vegirnir fóru mjög illa með bílana.
Ég man cftir því að það þurfti oft
að taka Kaupfélagsbílana inn á
verkstæði eftir eina ferð suður,
skipta um blað í fjöóur cða annað
slíkt, en nú cndist þettá árurn sam-
an. Endingin á höggdeyfum hefur
líka stóraukist mcð bættum veg-
um,“ sagöi Sigurður.
Reksturinn erfiður síðustu
10-15 árin
Hann rifjaði líka upp að í fyrstu
snjóum hefði alltaf komið heil-
mikil törn við að setja kcðjur und-
ir bílaflotann, en þetta hefur
breyst eins og svo margt annað.
„Ég á margar góðar endur-
minningar frá því ég vann á Þórs-
hamri og ég kynntist mætum
mönnum eins og Guðmundi Jóns-
syni, sem var stjórnarformaður
fyrirtækisins um langt skeið,
Magnúsi Jónssyni, verkstjóra og