Dagur - 06.04.1994, Page 9
IÞROTTIR
Mióvikudagur 6. apríl 1994 - DAGUR - 9
HALLDÓR ARINBJARNARSON
56. SKÍÐAMÓT ÍSLANDS A SIGLUFIRÐI 31. MARS - 3. APRÍL 1994
Skíðaganga:
Sigurgeir skákaði ÓL-fónmum
- æsispennandi boðgöngukeppni þar sem ísfirðingar sigruðu
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður fór I kvæmt áætlun. Óvæntustu úr-
keppni í skíðagöngu fram sam- | slit þessa Landsmóts urðu tví-
Stökk - norræn tvíkeppni:
Enn vinnur Ólafur
- Björn Þór lét sig ekki vanta frekar en vanalega
í norrænni tvíkeppni er reikn-
aður saman árangur í stökki og
10 km göngu en einnig er keppt
um íslandsmeistaratitil í stökki.
Ólafsfirðingar voru að venju
áberandi í þessum greinum en
nú brá svo við að einn keppandi
kom frá Akureyri. Var þar á
ferð skíðagöngumaðurinn
Haukur Eiríksson. Ekki reið
hann feitum hesti frá stökkinu
en stóð sig þeim mum betur í
göngunni.
Sigur Ólafs Bjömssonar í
stökkinu kom ekki á óvart en var
þó mjög tæpur. Hann háöi haröa
keppni vió Magnús Þorgeirsson
frá Ólafsfiröi en Ólafur náði að
sigra og mun það hafa verið í 6.
sinn. Magnús keppti ekki í nor-
rænni tvíkeppni, þ.e. tók ekki þátt
í göngukeppninni. Þar var fljótast-
ur Haukur Eiríksson frá Akureyri
og dugði sigurinn í göngunni hon-
um til að ná 4. sæti tvíkeppninnar.
Björn Þór Ólafsson, faðir Ólafs
og Kristins sem varð þrefaldur ís-
landsmeistari í alpagreinum, Iét
sig ekki vanta á Landsmót og
keppti í stökki og norrænni tví-
keppni, kominn í sextugsaldur.
Hann varó 3. í stökkinu og 4. í
göngunni og náði því silfri í tví-
keppninni. Stökkið og tvíkeppnin
fór fram á páskadag, sama dág og
svig og stórsvig karla og þeir
feðgar unnu því á einum og sama
deginum til 7 verðlauna, þar af 5
gullverðlauna.
Björn Þór tók fyrst þátt í Skíða-
móti íslands árið 1957 og á að
baki á 3ja tug íslandsmeistaratitla
í stökki og norrænni tvíkeppni.
Hann sagði veðrið að sjálfsögðu
hafa sett mark sitt á þetta Lands-
mót. „Veðrið fyrstu dagana, með-
an keppt var í göngunni, var af-
leitt. Þetta gekk allt upp í lokin en
ég man varla eftir að keppa hafi
þurft í svo mörgum greinum sama
daginn. En þetta var ágætis mót
þegar á heildina er litið,“ sagði
Björn Þór, sem svo sannarlega
man tímana tvenna í þes'sum efn-
um.
Ólafur Björnsson varði titla sína í
stökki og norrænni tvíkeppni.
mælalaust í 15 km hefðbundinni
skíðagöngu karla. Þar kom ÓI-
afsfirðingurinn Sigurgeir Svav-
arsson sterkur til leiks og skák-
aði Ólympíuförunum Rögnvaldi
Ingþórssyni og Daníel Jakobs-
syni, sem talinn hefur verið okk-
ar lang sterkasti skíðagöngu-
maður um þessar mundir. Há-
punktur göngukeppninnar var
tvímælalaust boðgangan sem
var jöfn og æsispennandi.
Á fimmtudag var gengið með
hefðbundinni aðferó og Sigurgeir
Svavarsson sló hvergi af í 15 km
gönguni. Eftir 10 km hafði hann
22 sek. forskot á Daníel og í lokin
munaði 48 sek. Haukur Eiríksson
tryggði sér 3. sætið og Rögnvald-
ur varð 4.
í llokki 17-19 ára börðust Gísli
Einar Ámason frá Isafirði og
Kristján Hauksson frá Ólafsftrði
og hafði Gísli Einar betur að lok-
um, en gengnir voru 10 km. Að-
eins 3 konur mættu til leiks og þar
sigraði Isfirðingurinn Auður Ebe-
nesardóttir örugglega líkt og und-
anfarin ár.
Boðgangan var næst á dagskrá
en hún fór fram á föstudaginn
langa. Gengnir eru 3 sprettir, tveir
þeir fyrri með hefðbundinni að-
ferð en sá síðasti með frjálsri.
Kristján Hauksson náði forystunni
fyrir Ólafsfirðinga eftir fyrsta
sprett og Akureyringar komu
næstir. Eftir 2. sprett, sem Ólafur
Björnsson gekk fyrir Ólafsfirð-
inga, höfðu þeir enn naumt for-
skot en Isfirðingar voru komnir í
2. sæti. Nú hófst barátta Sigur-
geirs Svavarssonar, sem gekk síó-
asta sprettinn fyrir Ólafsfjörð og
Daníels Jakobssonar, sem gekk
fyrir Isafjörð. Báðir gengu af
Sigurgeir Svavarsson varð Islandsmeistari í 15 km hefðbundinni skíðagöngu
og skákaði ólympíuförunum báðum. Mynd: Haiidór.
miklum krafti og á lokasprettinum
tryggði Daníel Isfirðingum sigur-
inn.
I 30 km göngu karla með
frjálsri aðferð urðu úrslit hefð-
bundin. Daníel sigraði, Rögnvald-
urr varð 2. og Sigurgeir 3., en
Árni Freyr Elíasson tryggði sér
gullið í flokki 17-19 ára sem
gengu 15 km. Þeir Gísli Einar
Árnason og Daníel Jakobsson
urðu báðir þrefaldir Islandsmeist-
arar því þeir voru í boðgöngu-
sveitinni, Daníel vann 30 km
gönguna, Gísli 10 km gönguna og
þeir urðu efstir, hvor í sínum
flokki, í tvíkeppninni.
Sigurgeir veltir fyrir sér að hætta
Sigur Sigurgeirs Svavarssonar í
15 km göngunni var honum afar
kærkominn. Hann barðist við að
ná lágmörkum fyrir ÓL í Lille-
hammer en missti naumlega af
þeim. Nú skaut hann báðum ÓL-
förunum aftur fyrir sig. „Með
þessu tel ég mig hafa sýnt að ég
átti fullt erindi til Lillehammer þó
Ólympíunefndin væri á öðru máli.
Mér tókst því allavega að stinga
upp í hana,“ sagði Sigurgeir. Hann
kvaðst aldrei hafa náð sér á strik í
30 km göngunni, verið þreyttur og
stílur eftir að hafa gengið mjög
vel í 15 km göngunni og
boðgöngunni.
„Eg hef í hyggju aó hætta eftir
þennan vetur. Þaó eru tvö ár síðan
ég ákvað þetta en er nú að velta
því fyrir mér hvort ég á að standa
við það. Maður er búinn aö vera
lengi að og kannski kominn tími
til að snúa sér að einhverju öðru.
Ég ætla þó tvímælalaust að halda
mér í formi og keppa hér innan-
lands en ekki setja markið jafn
hátt og áður,“ sagði hann einnig.
Sigurgeir hefur verið að þjálfa
yngri Ólafsfirðinga í skíóagöngu
og bjóst fastlega við aö halda því
áfram.
Þýska knattspyrnan:
Bayem að stínga af
Handbolti, Akureyrarmðt:
I kvöld fer farm síóari vióureign
KA og Þórs í meistaraflokki í
Akureyrarmótinu í handbolta.
KA vann fyrri leikinn 25:21 og
veróur Akureyrarmeistari, sigri
liðió í kvöld. Lcikið veröur í
KA-húsinu og hefst viðureignin
kl. 20.30. Kl. 19.15 mætast Old-
boys lið Þórs og KA og er sá
leikur ekki síóur athyglisveróur.
Þar mætast menn sem sumir
hafa eldað grátt silfur saman á
handboltavellinum í áratugi.
Bikarmeistarar SKÍ í unglingaflokkum:
Allir að norðan nema tveir
Þegar aðeins 6 umferðir eru eft-
ir af þýsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu hefur Bayern
Múnchen náð fjögurra stiga for-
skoti á Frankfurt í efsta sæti
Bayem-Köln 1:0
Freiburg-Schalke 2:3
Leverkusen-Karlsruhe 3:1
Dortmund-Werder 3:2
Leipzlg-Frankfurt 1:0
Duisburg-Gladbach 2:0
Wattenschcid-HSV 3:1
Dresden-Núrnberg 1:1
Stuttgart-Kaiserslautern 1:1
Frankfurt 2813 7 8 46:31 33
Leverkusen 28 12 8 8 51:39 32
Kaisersl. 28 12 7 9 45:34 31
Karlsruhe 2811 9 8 38:3131
HSV 28 13 5 10 44:41 31
Dortmund 28 12 7 9 41:41 31
Dulsburg 28 12 7 9 34:39 31
Stuttgart 28 10 10 8 43:37 30
KÖln 28 12 6 1038:37 30
Gladbach 2811 6 1153:50 28
Bremen 28 9 9 10 38:36 27
Schalke 28 10 7 1134:40 27
Dresden 28 7 13 8 29:39 27
Frciburg 28 7 8 13 44:5122
Núrnberg 28 7 7 14 33:45 21
Wattenscheid 28 4 1113 36:54 19
Leipzig 28 3 101526:57 16
deildarinnar. Á meðan Bayern
lagði Köln töpuðu helstu keppi-
nautar liðsins, HSV og Frank-
furt, leikjum sínum og bilið
breikkar því á toppnum. Barátt-
an um Evrópusætin 4 hefur hins
vegar aukist og segja má að 12
lið eigi þar möguleika.
Fátt viróist nú geta komió í veg
fyrir 13. meistaratitil Bayem eftir
að lióið lagði Köln að velli 1:0.
Þaö var þó enginn meistarabragur
á leik Bæjara og gestimir fengu
fjölmörg færi áður en Valencia
skoraði eina mark leiksins á 67.
mín.
Frankfurt varö fyrir enn einu
áfallinu er liðið tapaði fyrir Leipz-
ig á útivelli. Þar með jókst bilið
milli Frankfurt og Bayern en
Frankfurtarar fá þó tækifæri á að
minnka það um næstu helgi er
þeir fara í heimsókn til Munchen.
Stuttgart og Kaiserslautem
skildu jöfn í miklum baráttuleik,
1:1. Knup náói forystunni fyrir
heimamenn á 8. mín. eftir mistök
Reitmaier í marki gestanna. Á 21.
mín. jafnaði Kadlec leikinn fyrir
KA-konur hittast
KA-konur ætla framvegis að hitt-
ast á hverjum laugardegi kl. 14.00
upp í KA-húsi. Engin formleg
dagskrá er sett upp en þau mál
sem efst eru á baugi hverju sinni
verða rædd. Þess má geta að á
þessum tíma er yfirleitt bein út-
sending frá ensku knattspyrnunni.
Lautem með stórglæsilegu marki
beint úr aukaspymu. Eyjólfur
Sverrisson, sem aó sögn Kicker
hefur fengið tilboð um að leika
áfram með Stuttgart á næsta tíma-
bili, kom inn á fyrir Walter þegar
u.þ.b. 20 mín. voru til leiksloka.
Bernd Schuster var í aðalhlut-
verki í skemmtilegasta leik um-
ferðarinnar þegar lið hans, Bayer
Leverkusen, lagói Karlsruhe að
velli, 3:1. Sergio skoraði fyrsta
mark leiksins fyrir Leverkusen á
20. mín. Á 60. mín. jafnaði
Schmitt leikinn en þá var komió
að Schuster. Fyrst átti hann
draumasendingu sem Wöms skor-
aði úr og á 85. mín. innsiglaði
hann sigurinn með einstaklega
glæsilegu marki.
Eyjólfur Sverrisson kom inná í sín-
um fyrsta leik í nokkurn tíma um
helgina.
Að afloknu Unglingameistara-
móti íslands á ísafírði á dögun-
um voru bikarmeistarar SKÍ í
unglingafiokkum krýndir. Þetta
eru þeir sem staðið hafa sig best
á þeim bikamótum sem haldin
hafa verið í vetur. Af 7 bikar-
meisturum eru 5 af Norðurlandi
en 2 úr Reykjavík.
Þrír efstu í hverri grein voru
þessi:
Alpagreinar:
13-14 ára stúlkur:
1. Amrún Sveinsdóttir, Húsavík.
2. Eva Pétursdóttir, Isafirói.
3. Dagný Kristjánsdótir, Akureyri.
13-14 ára drengir:
1. Jóhann Haraldsson, Reykjavík.
2. Sturla Bjamason, Dalvík.
3. Jóhann Hafstein, Reykjavík.
15-16 ára stúlkur:
1. Brynja H. Þorsteinsdóttir, Akureyri.
2. Sigríóur Þorláksdóttir, Isafirði.
3. Ása Bergsdóttir, Reykjavík.
15-16 ára drengir:
1. Egill Birgisson, Reykjavík.
2. Sveinn Bjamason, Húsavík.
3. Elmar Hauksson, Reykjavík.
Ganga:
13-15 ára stúlkur:
1. Svava Jónsdóttir, Olafsfirði.
2. Lísebet Hauksdóttir, Ólafsfirói.
3. Sigríður Hafliðadóttir, Siglufirði.
13-14 ára drengir:
1. Garóar Guðmundsson, Ólafsfirói.
2. Jón G. Steingrímsson, Siglufirói.
3. Ingólfur Magnússon, Siglufirói.
15-16 ára drengir:
1. Þóroddur Ingvarsson, Akureyri.
2. Albert Arason, Ólafsftrói.
3. Gísli Harðarson, Akureyri.