Dagur - 06.04.1994, Blaðsíða 10

Dagur - 06.04.1994, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 6. apríl 1994 ENSKA KNATTSPYRNAN ÞORLEIFUR ANANÍASSON í vikunni Úrvalsdeild Aston Villa - Everton 0:0 Shefllcld Wcd - Chelsea 3:1 Ipswich - Manchestor City 2:2 Shef.Utd-WestHam 3:2 Wimbledon - Blackburn 4:1 Mauchcster Utd - Liverpoo 1 1:0 Newcastle - Norwich Southampton - Oldham 3:0 1:3 1. deild Barnsley - Sunderland 4:0 Bolton - Wolves 1:3 Grimsby - Middlcsbrough 1:1 Oxford - Birmingham 2:0 Peterborough - Cryst. Pal. 1:1 Tranmere - Derby 4:0 Leicester - Portsmouth 0:3 Millwall - Luton 2:2 Nottingham For - Watford 2:1 Southend - Notts County 1:0 Stoke City - Bristol City 3:0 WBA - Charlton 2:0 Á laugardag Úrvalsdeild Arsenal - Swindon 1:1 Blackburn - Manchester Utd 2:0 Chelsea - Southampton 2:0 Coventry - Wímbledon 1:2 Leeds Utd - Newcastle 1:1 Liverpool - Sheff. Utd 1:2 Mpn. City - Aston Villa 3:0 Norwich - Tottenham 1:2 Oldham-QPR 4:1 ShcfBeid Wed - Everton 5:1 West Ham - Ipswich 2:1 1. deild Birmingham - Stoke City 3:1 Bristol City - WBA 0:0 Charlton • Southcnd 4:3 Crystal Palace - Oxford 2:1 Derby - Barnsley 2:0 Luton - Petcrborough 2:0 Middlesb. - Nottingham For 2:2 Notts County - Grimsby 2:1 Portsmouth - Miiiwail 2:2 Sunderiand - Bolton 2:0 Watford - Leicester 1:1 Wolves - Tranmere 2:1 Á mánudag Úrvalsdeild Aston Villa - Norwich 0:0 Everton - Blackburn 0:3 Ipswich - Coventry 0:2 Manchester Utd - Oldham 3:2 Newcastlc - Chefsea 0:0 QPR - Lceds Utd 0:4 SheCfield Utd - Arsenal 1:1 Southampton - Man. City 0:1 Swindon - ShefBeld Wed 0:1 Tottenham - West Ham 1:4 Wimbledon - Liverpool 1:1 1. deild Barnsley - Notts County 0:3 Bolton - Portsmouth 1:1 Grimsby - Luton 2:0 Nott For - Bristoi City 0:0 Oxford - Wolves 4:0 Stoke City - Charlton 1:0 Tranraere - Middlcsbrough 4:0 WBA - Birmingham frestað Staðan Úrvalsdeild: Man. Utd 362310 3 72:36 79 Blackburn 36 23 7 6 57:29 76 Ncwcastlc 36 19 8 9 69:34 65 Arscnal 36 1615 5 48:2163 Lecds 36 1514 7 52:34 59 SheftWed 36 14 1210 64:4954 Liverpool 37 15 9 13 55:49 54 Wimbledon 36 14 lð 12 43:46 52 Aston VUIa 36 13 1211 39:36 51 QPR 34 14 8 13 53:50 50 Norwich 3711 151158:5348 Coventry 36 1111 14 37:42 44 West Ham 35 11 1113 38:49 44 Chelsea 35 11 915 39:44 42 lpswich 37 9 14 14 33:4941 Tottenham 36 9 121547:52 39 Manch. Cíty 37 8 1514 32:43 39 Everton 37 10 7 20 37:5637 Oldham 35 910 16 37:5637 ShefT.Utd 37 61714 35:44 35 Southampton 36 9 6 21 34:52 33 Swíndon 37 4 14 19 41:87 26 Frábær leikur og góður sigur Blackbum á Man. Utd. Liverpool liðsins og Jostein Flo skoraði tvívegis með skalla fyrir Sheff.Utd. og tryggði liði sínu þrjú mikilvæg stig. ■ Swindon situr eitt á botninum þrátt fyrir jafntefli á útivelli gegn Arsenal þar sem Alan Smith kom heimamönnum yfir strax í upp- hafi. Paul Bodin jafnaði úr víta- spymu fyrir Swindon og þrátt fyr- ir nokkra yfirburði náði Arsenal ekki aö komast yfir að nýju. ■ Manchester City náöi loks að vinna leik er nýbakaðir Deildabik- armeistarar Aston Villa komu í heimsókn. Peter Beagrie skoraði fyrst fyrir City úr aukaspymu á 14. mín. og á eftir fylgdu mörk frá Paul Walsh og Uwe Rösler án þess leikmenn Villa næðu aó svara fyrir sig. ■ Mörk Chelsea í 2-0 sigri liðsins á Southampton skoruðu þeir John Spencer og Erland Johnsen. ■ Wimbledon vinnur nú hvern leikinn af öörum, nú síóast gegn Coventry á útivelli. Peter Ndlovu skoraði mark heimamanna, en þeir Stewart Castledine og Dean Holdsworth tryggðu sigur Wim- bledon með tveim mörkum. ■ Tottenham hefur nú endurheimt Teddy Sheringham eftir meiösli og hann náói forystu fyrir liðið á útivelli gegn Norwich. Chris Sut- ton jafnaði síðan fyrir Norwich, en sjálfsmark Colin Woodthorpe varð síðan til þess að Tottenham fór heim meö öll stigin og veitti ekki af. ■ Oldham vann góðan sigur gegn Q.P.R. þar sem Richard Jobson, Darren Beckford, Sean McCarthy og sjálfsmark Alan McCarthy tryggðu Oldham 4-1 sigur. Eina mark Q.P.R. skoraði Les Ferdi- nand. ■ Sheffield Wed. tók leikmenn Everton til bæna og burstaði þá 5- 1. Tony Cottee skoraði eina mark Everton, en fyrir Sheff. Wed. gerði Mark Bright tvö mörk og þeir Ryan Jones, Chris Bart-Willi- ams og Nigel Worthington sitt markið hver. Þ.L.A. Nú þegar dregur að lokum deildakeppninnar á Englandi æsist leikurinn og ekki vantaði spennuna og fjörið í leiki laug- ardagsins. Liðin í fallbaráttunni berjast nú uppá líf og dauða fyrir hverju stigi og barátta Man. Utd. og Blackburn á toppi deildarinnar verður sífellt harð- ari. En þá eru það leikir laugar- dagsins. ■ Stórleikur dagsins var sýndur í sjónvarpinu, en þar mættust Blackbum og Man. Utd. Fyrir leikinn hafði Man. Utd. sex stiga forskot á Blackbum liðið og allt annað en sigur heimamanna í leiknum hefði farið langt með að tryggja Man. Utd. titilinn. Fyrri hálfleikurinn var frekar bragð- daufur þrátt fyrir mikla baráttu, en strax í fyrstu sókn síðari hálfleiks náði Blackbum forystunni með glæsilegum skalla Alan Shearer eftir góða sendingu Tim Sher- wood. Við markið færðist mikið fjör í leikinn sem hafði uppá allt að bjóða sem menn sækjast eftir í einum knattspymuleik. Góðan samleik, mikla baráttu og hæfi- lega hörku, eitthvað annaó en spaghettifótboltann á Stöð 2 á sunnudögum. Paul Ince átti skot í stöng tyrir Utd. og Tim Flowers í marki Blackbum varði mjög vel. En er 15 mín. voru til leiksloka gerði Shearer útum leikinn með öðru marki sínu er hann slapp inn- fyrir Gary Pallister eftir frábæra sendingu Stuart Ripley og skoraði með þrumuskoti, óverjandi fyrir Peter Schmeichel í marki Man. Utd. ■ Leeds Utd. og Newcastle skildu jöfn á Elland Road þar sem Andy Cole náði forystu fyrir Newcastle strax á 3. mín. eftir að John Lukic | hafói hálfvarið skot frá Scott Sell- ars. En leikmenn Leeds Utd. áttu ! bókstaflega leikinn, en gekk bölv- j anlega að skora þar sem klaufa- skapur og óheppni réð ríkjum hjá þeim. Það var ekki fyrr en á síó- ustu mín. leiksins að Chris Fa- irclough náði að jafna fyrir Leeds Utd. með skalla eftir homspymu. ■ Matthew Rush og Trevor Morl- ey náðu tveggja marka forystu fyrir West Ham í leiknum gegn Ipswich. Það dugði liöinu til sig- urs því eina mark Ipswich í leikn- um skoraði Paul Mason með skalla er 3 mín. voru til leiksloka. ■ Sheffield Utd. vann frækinn sigur á útivelli gegn Liverpool þrátt fyrir að Ian Rush næði for: ystu fyrir Liverpool á 4. mín. I síðari hálfleiknum hrundi leikur Alan Shearer skoraði bæði mörk Blackburn í lciknum gegn Manchester United. Allt vitlaust er Man. Utd. sigraði Oldham Það var leikin heii umferð í Úr- valsdeildinni á öðrum degi páska þar sem Manchester liðin bæði unnu mjög mikilvæga sigra. City nánast tryggði áframhaldandi veru sína í deild- inni með góðum útisigri, en Utd. heldur þriggja stiga forskoti á toppnum eftir nauman og um- deildan sigur á heimavclli gegn Oldham. En lítum þá á leiki mánudagsins. ■ Ekki er langt síðan Man. Utd. átti sigurinn vísan í Úrvalsdeild- inni, en nú er annað uppá teningn- um og Blackbum liðið er til alls líklegt. Eftir að hafa sigrað Man. Utd. á Iaugardag fóru leikmenn Blackbum Iétt með Everton á úti- velli og sigruðu 3-0. Fyrrum Ever- ton leikmaður Mike Newell skor- aði tvívegis fyrir Blackbum og Ja- son Wilcox gerði þriöja markið. Everton er að komast í alvarlega stöðu í deildinni og ljóst að liðið mun berjast fyrir lífi sínu þar í síö- ustu umferðunum. ■ Man. Utd. og Oldham mættust í sögulegum leik á Old Trafford, en þessi sömu lið munu leika undan- úrslitaleik í FA-bikamum á sunnudaginn. Ryan Giggs náði forystu fyrir Man. Utd. með skalla á 18. mín., en Sean McCarthy jafnaói fyrir Oldham í upphafi síð- ari hálfleiks. Dion Dublin náði að nýju forystu fyrir Utd. aðeins 3 mín. eftir að hann kom inná sem varamaður og tæpri mín. síðar bætti Paul Ince við þriðja marki Utd. eftir sendingu Giggs. Leik- menn Oldham mótmæltu kröftug- lega þar sem þeir töldu Giggs hafa verið kolrangstæöan og það þurfti lögreglu til að koma Joe Royle stjóra Oldham í sæti sitt að nýju. Graeme Sharp náði að skora ann- að mark Oldham og liðið sótti mjög undir lokin, en heimamenn héldu út og náðu að innbyrða þennan mikilvæga sigur og halda því enn þriggja stiga forskoti í deildinni. ■ Þjóðverjinn Stefan Karl tryggði Man. City mjög mikilvægan sigur á útivelli gegn Southampton meö eina marki leiksins er 2 mín. voru til leiksloka. Möguleikar Sout- hampton aó halda sæti sínu í deildinni minnkuóu verulega við ósigurinn. ■ Tottenham steinlá fyrir West Ham á heimavelli sínum þrátt fyr- ir að Teddy Sheringham skoraði Steve McMahon og félagar í Man. City björguðu sér væntanlcga frá falli með sigrinum á Southampton. fyrir lióið, nú úr vítaspymu. Tre- vor Morley skoraði tvívegis fyrir West Ham þar af annað úr víti og þeir Steve Jones og Mike Marsh skoruóu sitt markið hvor fyrir lið- ið. ■ Sheffield Utd. er einnig í bráðri fallhættu, en lióið gerði jafntefli við Arsenal. Paul Rodgers skoraði markið fyrir Sheffield lióið, en Kevin Campbell svaraði fyrir Ar- senal. ■ Newcastle varó að láta marka- laust jafntefli duga á heimavelli gegn Chelsea, en Newcastle berst fyrir sæti í Evrópukeppni og hefói ekki veitt af öllum stigunum. ■ Það varð einnig markalaust jafntefli í leik Aston Villa og Nor- wich, en þessi lið sigla lygnan sjó í deildinni. ■ Leeds Utd. vann óvæntan stór- sigur á útivelli gegn Q.P.R. þar sem David White skoraði tvívegis fyrir Leeds Utd. Rodney Wallace og „töframaðurinn“ Brian Deane gerðu hvor sitt markió fyrir Leeds Utd. Deane hefur fengið viður- nefnið fyrir að sjást ekki heilu leikina sem er vel af sér vikið af svo stórum manni. ■ Sean Flynn og Peter Ndlovu skoruðu mörk Coventry í góðum útisigri liðsins gegn Ipswich. ■ Wimbledon og Liverpool gerðu 1-1 jafntefli í leik sínum þar sem Gary Elkins skoraði fyrir Wim- bledon, en Jamie Redknapp svar- aói fyrir Liverpool. ■ Nú er fátt sem komið getur Swindon til bjargar eftir 1 -0 tap á heimavelli gegn Sheff. Wed. Það var Gordon Watson sem skoraði sigurmark Sheffield liðsins og möguleikar Swindon á að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni eru nán- ast engir. Þ.L.A.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.