Dagur - 06.04.1994, Qupperneq 11
HER OC ÞAR
Miðvikudagur 6. apríl 1994 - DAGUR -11
Wiliam Hurt:
Nýorðinn
pabbi en deilir
gleðinni með
annarri konu
en barnsmóð-
nrínni
Á ýmsu gengur hjá kvikmynda-
fólkinu í Ameríku eins og fyrri
daginn. Hollywoodstjaman
William Hurt er nýlega orðinn
faðir. En á sama tíma er hann
einnig ástfanginn af annarri konu
en bamsmóður sinni. Barnsmóð-
ir hans, Sandrine Bonnaire, eign-
aðist fyrir skömmu eðlilegt og
vel skapað barn þótt það fæddist
nokkru fyrir tímann. Fæðingin
gekk að óskum og William hefur
síðan orðið að annast ýmsa hluti
er fylgja því að eiga ungbarn -
meðal annars að kaupa pela og
bleiur. En hann virðist einnig
hafa tíma til fleiri hluta. Hann
hefur gefið sér góðan tíma til að
flytja og sækja stórstjörnuna
Glenn Close til og frá sýningum
á „Sunset Boulevard“, þar sem
hún hefur unnið einn af stærstu
leiksigrum í lífi sínu í Shubert
William Hurt með nýfætt barn
sitt. Á neðri innfelidu myndinni er
barnsmóðir hans, Sandrine
Bonnaire, en á efri myndinni má
sjá nýjustu ástkonuna, stórstjörn-
una Glenn Close.
Teatret í LA. Þau hafa sést leið-
ast hönd í hönd og Hurt hefur
borið „beuatyboxið“ fyrir hana.
Þau hafa einnig sést á veitinga-
húsum þar sem þau hafa meóal
annars snætt saman miðdegis-
verð við rómantískar aðstæður.
Það er mikið ánægjuefni fyrir
Sandrine Bonnaire að hafa nú
tekist að uppfylla áragamlan
draum um að eignast bam. En
hún gæti engu að síður hugsaö
sér að bamsfaðirinn tæki meiri
þátt í þessari gleði hennar.
Verður belgísk greifa-
dóttir drottning Dana?
Vel fór á með krónprinsinum og greifadótturinni á Brussel.
Verður belgísk greifadóttir drottn-
ing Dana? Það er spurning sem
Danir velta fyrir sér þessa dagana
því samband Friðriks krónprins og
hinnar belgískættuðu Astrid Ul-
lens de Schooten bendir meira og
meira til þess að þar sé verðandi
krónprinsessa á ferð. Fyrir
skömmu hélt Astrid vinum sínum
herlegt boð á Brussel, en hún býr í
París um þessar mundir, og af
myndum sem teknar voru í boðinu
má dæma að parinu, Frióriki krón-
prins og greifadóttirinni Astrid
Ullens de Schooten, hafi ekki lík-
að illa að gefa viðstöddum til
kynna að meira en venjuleg vin-
átta væri á milli þeirra.
Astrid hefur allt það til að bera
sem þarf til að verða krónprins-
essa. Hún er með blátt blóð í æð-
um, 22 ára gömul og ólofuð.
Móðir hennar heitir Madeleine
Bemadotte, dóttir sænska prinsins
Carl Bernadotte, sem þýðir að hún
er í ætt við Noregskonung. Faðir
Friðrik krónprins vék tæpast frá
Astrid Ullcns de Schootcn á meðan
fjölskyldan dvaldi í leyfi í Noregi.
hennar er belgískur greifi aó nafni
Ullens de Schooten.
Astrid er heldur ekki lengur
neitt barn. Hún er fullvaxin kona
sem leitar sér að mannsefni. Og
nú hefur hún ef til vill fundið þann
rétta. En þrátt fyrir augsýnilega
nána vináttu á milli hennar og
Frióriks krónprins vill hún ekki
tala opinskátt um samband þeirra.
Spurningunni um hvort þau séu
par svarar hún einfaldlega ekki.
Haft er eftir Per Thornit,
kammerherra og ritara greifadótt-
urinnar, að samband hennar og
danska krónprinsins sé ekkert sem
staðfesta verði opinberlega. Því er
ekkert hægt að segja til um á
þessu stigi málsins hvort þama sé
verðandi drottning Dana á ferð-
inni eða aðeins ein af tímabundn-
um vinkonum krónprinsins.
Astrid Ullens de Schooten er
ekki ókunnug kóngafólki eða um-
gengni við það. Á síðastliðnu
sumri var hún í silfurbrúðkaupi
Haraldar Noregskonungs og Sonju
drottningar. I fjallaferð í Noregi
reyndi Friðrik krónprins ekki að
leyna áhuga sínum á því að kynn-
ast greifadótturinni betur. Astrid
ólst upp í Belgíu og hefur ferðast
vítt og breitt um heiminn. Eins og
fyrr segir býr hún nú í París og
nemur listasögu við ameríska há-
skólann þar. Hún hefur einnig
starfað sem blaðamaður í eitt ár í
Lundúnum. I París hefur hún mik-
ið að gera og lifir lífinu lifandi
eins og sagt er. I viðtali við
franska blaðið Point de Vue lét
hún hafa cftir sér að hún vildi búa
í borg rithöfunda og listamanna og
hún ætti ekki eitt einasta rólegt
augnablik. Hún kvaðst stúdera
gríska myndhöggvara í Louvre
safninu, fara í langa göngutúra í
listigörðum Parísar, vera við veð-
hlaupabrautina á laugardögum og
fara nokkrum sinnum á diskótek.
BSA M.
Sölu- og þjónustuumboð fyrir:
®Bílaverkstæbi
Bílaréttingar
Mercedes-Benz
Bílasprautun
llia^Da Bílavarahlutir
Laufásgötu 9 • Akureyri
Símar 96-26300 & 96-23809
Utvegsmannafélag
Noröurlands
Útvegsmannafélag Norðurlands boðar til
fundar föstudaginn 8. apríl nk. að Hótel
KEA kl. 13.30. “
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
AKUREYRARB/íR
ÚTBOÐ
Lóðaframkvæmdir við Sundlaug Akur-
eyrar, útboð 1
Byggingadeild Akureyrarbæjar óskar eftir tilboö-
um í lóðarframkvæmdir viö Sundlaug Akureyrar.
Lóðin er u.þ.b. 1200 rri2 og framkvæmdir felast m.a. í
því að byggja eimbað, setja upp vatnsrennibrautir
meö tilheyrandi lengingarlaugum, gera barnalaug,
steypa stoð- og skjólveggi, reisa geymsluskúr og
endurnýja núverandi heita potta, helluleggja og
leggja lagnir og snjóbræðslukerfi í stéttar og gróður-
setja tré og runna.
Gögn veróa seld hjá Byggingadeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 600 Akureyri, 5. - 8. apríl n.k. Verð á
útboðsgögnum er kr. 12.450.-.
Tilboð verða opnuð hjá Byggingadeild Akureyrar
föstudaginn 15. apríl kl. 11.00.
Byggingadeild Akureyrarbæjar.
Kjötiðnaðarmaður
eða maður vanur kjötskurði óskast sem fyrst.
Umsóknir berist á afgreiðslu Dags merkt: „Kjötiðnað-
armaður“.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Sjúkraþjálfarar
Við sjúkraþjálfun Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
eru lausar til umsóknar 2 stöður deildarsjúkraþjálfara,
við bráðadeildir FSA og endurhæfingadeildina, Krist-
nesi.
Æskilegt starfshlutfall er 75-100%.
Umsóknarfrestur ertil 15. apríl 1994.
Umsóknir sendist yfirsjúkraþjálfara, Lucienne ten Hoe-
ve, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar í sima 96-
30844 og í heimasíma 96-31113.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.