Dagur - 06.04.1994, Síða 14

Dagur - 06.04.1994, Síða 14
14 - DAGUR - Miðvikudagur 6. apríl 1994 Forseta- heimsóknin Þjóðkirkjan og sveitarfélögin að Melum, Hörgárdal Leikstjóri: Aðalsteinn Bergdal. Lokasýning fimmtudagskvöldið 7. apríl kl. 20.30. Mibapantanir í síma 11688 og 22891 Þeir hljóta að vera illa haldnir, sem ekki skemmta sér. (Dagur 8. mars H. Ág.) Leikdeild Ungmennafélags Skribuhrepps. Já... en ég nota nú yfirleitt beltið! Ekki er fjarri lagi aó séu samferða aó aldri í Islandssögunni þær stofn- anir tvær sem fastast er sótt að til breytinga ellegar niðurrifs nú sam- tímis í þjóðfélaginu, homsteinar eða grundvöllur þjóðlífs á margan hátt um aldir. Þjóókirkjan og skipulag hreppa og sveitarfélaga landsins. „Helsta myndum hreppa frá þjóðveldisöld var framfærslu- mál og fjallskil“ segir hér um í al- fræðiorðabókinni. Einnig segir þar um: „Þjóðkirkjan, samband ríkis og kirkju þeirrar, sem telur flesta íbúa landsins. Ríkið skuldbindur sig til að vemda og styrkja þjóð- kirkjuna,“ segir þar einnig um. Nú þarf ekki um að efast og varla að valda deilum að hvort tveggja umræðuefnið hefur gerst hræðilega brotlegt í umgengni sinni og meðferð á sínu fólki um aldaraðir. Vill nú enginn þurfa að vita um séra Pál í Selárdal þó mælti máski tíu tungumál eða þá félaga hans Kortsson og raunar marga fleiri sem settu varanlegan blett á íslenskt mannlíf og 'sögu í máski ekki ijúfri samfylgd drep- sótta og hallæra, þegar orö urðu til eins og Líkatjöm hjá Staóarstað. Manni verður þungt í huga. Hvers konar guódómur var það sem sat uppi með slíka þjóð og þvílíka kirkju að skila fram og kunna ekki orðió sem svo mjög bjargar í dag, fortíðarvandi? Um 500 ár með eftirlíkingu Skarphéðins og fótskriðuna á Markarfljóti til að vega mann sem batt skóþveng sinn. Ellegar óþrifa- legasta vorverk Njálu er þaó lang- tilsótt þrátt fyrir kjamyrði í frásögn þá heyrist enn sem ómur orða Höskuldar: „Guð hjálpi mér en fyr- irgefi yður“ og hin mannlega nió- urlæging nægir ekki enn. Löngu Eíningarfélagar athugið Utleiga orlofshúsa félagsins sumariö 1994 Sækja þarf skriflega um á þar til gerðum eyóublöðum, sem eru fáanleg hjá trúnaóarmönnum félagsins og einnig á skrifstofum þess á Akureyri, Skipagötu 14, s(mi 23503, á Dalvík, Ráðhúsinu, sími 61340, í Ólafsfirði, Múlavegi 1, sími 62318, í Hrísey, hjá Matthildi Sigurjónsdóttur, Hólabraut 21, sími 61757, á Grenivík, hjá Ólöfu Guðmundsdóttur, Hvammi, sími 33204. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00. 20. apríl 1994 og ber að skila umsókn til skrifstofa félagsins. Þau orlofshús sem í boði eru, eru á eftirtöldum stöðum: lllugastöðum, Fnjóskadal 3. júní til 16. sept. Ölfusborgum við Hveragerði 3. júní til 16. sept. Vatnsfirði, Barðaströnd 10. júní til 16. sept. Einarsstöðum á Héraði 3. júní til 2. sept. 2 íbúðir í Reykjavík 1. júní til 28. sept. íbúðarhús að Dölum II, Hjaltastaðaþinghá 10. júní til 26. ágúst. Flúðum, Hrunamannahreppi 1. júlí til 12. ágúst. Bifröst, Borgarfirói 17. júní til 26. ágúst. Hjólhýsi, Ærlæk Öxarfirói 17. júní til 26. ágúst. Tjarnargerði, Eyjafirði önnur hvor vika frá 17. júní til 16. sept. Hrísey, 16. júlí til 13 ágúst. Vík í Mýrdal, 15. júlí til 26. ágúst. íbúö á Egilsstöðum 3. júní til 2. sept. Eitt orlofshúsið á lllugastöðum er ætlað fyrir fatlaða. Vikuleiga í orlofshúsi er kr. 8000, kr. 9000 í íbúðunum í Reykjavík og Egilsstöðum og kr. 7000 í hjólhýsinu. Gleðilegt sumar Orlofsnefnd Einingar. síðar kveður Kolbeinn Tumason í eymd og smán Sturlungaaldar: „Kom mjúk til mín miskunnin þín“ fullur iðrunar í ofboði Sturlunga. Enn var ekki nóg að gert þar sem greindi á „Guðslög og landslög" og Guðslög skyldu ráóa; Jóni Ara- syni og sonum hans misþyrmt og þeir vegnir og siðbót hét sú trúar- lega aðferð og heitir máski enn þá þó aflátssalan væri tæplega aflögð með öllu þrátt fyrir allt. Yið eigum ennþá ríka kennd Þrátt fyrir allt, við eigum enn þá bjargálna hreppa hvað við köllum heilbrigóan metnað og stolt. Við eigum enn þá ríka kennd hvar „Sveit er sáómanns kirkja, sáning bænagjörð" eins og Bjami Ás- geirsson kvað og við syngjum enn. Mest er um vert, við eigum ungt fólk „meö mjög sterka réttlætis- kennd,“ sem Tryggvi Gíslason skólameistari sagði okkur um síð- astliðinn nóvember „að ekki bregð- ist“. Það er þetta fólk sem greiðir atkvæðin um verkin okkar gamalla og hvaö umbæta þarf og endur- gera. Jafnvel um skipan hreppa og skipan prestakalla svo ambögulega sem biskupavöldum hefir tekist þar í verki að mér finnst. Kannski erum við báðir í vanda staddir, ég með tímann og lífið sem enginn getir skilgreint hvar byrjaði, hvort það endar, ellegar hann forlaga og lögmáls, Guð minn, hvenær menn uppfundu hann með blómin, dýrin og stein- ana og fuglana, sem færa Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu ný fræ sem hún sáir í fleiðrin eftir búskap- arsöguna mína. Og leikknöttur himnanna hefir þegar oltið um sjálfan sig í 60 milljónir ára. Hvað er Þjóðkirkja? Islenska þjóðkirkjan, hvaó skyldi það nú vera? Bamaleg spuming frá uppgjafa meðhjálpara með kölkun víðar en þar sem lióagigtin opnar leið fyrir kraftaverkamenn sjúkra, þar sem næst er komist í verki af hönd og huga hinni fáorðu Fjall- ræðu. Einustu sem ferðaskrifstofu- fólk getur ekki endurbætt í yfirferð sinni. Enda fæst af því komist á toppinn þar sem Herðubreið gefur rýmst sjónarsvið, og samanburöur verður hégómi, flest form verða smá, jafnvel Möðrudalur í austur en Klukkufjallió í vestri, þar sem Steinþór Sigurðsson hinn fágæti var að kortleggja landið 1930 en hvarf á Mýri út úr tjaldi lautinants Jensens í danska herforingjaráðinu en endaði líf sitt vió geró hinnar frægu Heklumyndar. Er þjóðkirkjan máski hiö prúð- búna hús með pípuorgel á lofti en prestana niðri viö altarið með þrenns konar orófæri sitt þegar þeir strá fósturjarðar moldbrúnum komum á kistur dáins fólks? Er hún máski sú milda móðir sem heldur saman vexti og viðgangi líkama og sál? „Ef eitthvað verður okkur að falli verður það agaleys- ið,“ sagði Tryggvi Gíslason í áður- nefndu viðtali, „og aó efast ekki um réttlæti orða sinna.“ Hver efast ekki um réttlæti sinna orða? spyr ég- Það er viss þáttur í eðli manns- ins, óttinn við þaó óþekkta. Viss tegund ótta varð spilltum mönnum eóa sjúkum að galdrabrennum þeirrar tíðar sem var. Var hún máski Þjóðkirkja Islendinga allar götur gengnar í snertingu vió þó verstu óhöpp sögunnar? Lífsvígður guðsótti Óttinn um kirkju sína hvað þá sé hún raunveruleg þjóðkirkja á yfir- standandi tíma er dyggð og trú- mennska og fastheldni með lífs- vígðan arf sinn. Jafnvel þó trú vor Jón Jónsson. sé með nokkrum hætti „blettaskin“ eins og bændur orða þaö á þurrk- degi þegar sífellt dregur fyrir sól. Það var slíkur lífsvígður Guös- ótti og sagnfræðilegt vitsmunamat sem var að verki þegar hjónin í Fremstafelli, Rósa Guðlaugsdóttir og Kristján Jónsson, bjargálna hjón á búsældarjörð sinni um langa ævi starfandi fyrir sóknarkirkju sína, þó lengi hafi nú hvílt í kistum sín- um í Ljósavatnskirkjugarði. Fyrir nokkrum áratugum stofnuðu þau dálítinn sjóð í því skyni að byggja á Ljósavatni nýja kirkju sem helg- uð skyldi minningu kristnitökunnar og Þorgeirs Ljósvetningagoða, sem svo farsællega leysti deilur manna á Alþingi og innleiddi hinn nýja sió. Ætlunin var að hin nýja kirkja skyldi standa albúin á 1000 ára af- mæli kristnitökunnar árið 2000 og sú ætlan stendur enn. Reisum Þorgeirskirkju á Ljósavatni „Árið 2000 munu Islendingar fagna því aö liðin eru 1000 ár frá því að kristni var lögtekin á Al- þingi. Kristnitakan var einn hinn merkasti viðburöur í sögu íslensku þjóðarinnar. Þá tók hún við fagn- aðarerindi Jesú Krists ásamt þeirri menningu sem fylgir kristinni trú. I heiðnum sið voru Islendingar bók- lausir menn en með hinum nýja sið barst hingað bókmenning sem smá saman bar ríkulegan ávöxt í sög- um, ljóðum og margs konar fræð- um. Trúarskipti gerast oft meó mikl- um harmkvælum og eru mörg dæmi þpss frá nágrannalöndum okkar. Á Alþingi uróu í fyrstu harðar deilur milli heióinna manna og kristinna, svo sem Ari fróöi lýs- ir í íslendingabók. Þá var lögsögu- maður Þorgeir goði Þorkelsson á Ljósavatni og flutti hann frá Lög- bergi áhrifamestu ræðu sem nokkru sinni hefur verið haldin á Islandi. Sagði hann að honum þótti þá komið hag manna í ónýtt efni ef menn skyldu eigi hafa allir lög cin á landi hér. En hann lauk svo máli sínu að hvor tveggju játtu því að allir skyldu ein lög hafa. Þorgeir Lögsögumaður hefir vafalaust reist kirkju á bæ sínum Ljósavatni og síðan hefir þar verið kirkjustaður alla tíð.“ Hér hefur verið vitnað til orða doktors Jónasar Kristjánssonar, forstöðumanns Ámagarðs, þar sem hann mælir fyrir kirkjubyggingu á Ljósavatni. Og enn heldur Jónas áfram: „Nú stendur þar litil sveita- kirkja sem bóndinn á Ljósavatni, hagleiksmaóurinn Bjöm Jóhanns- son, byggði fyrir meira en hundrað árum og þarf endurbyggingar vió. Bygging Þorgeirskirkju hefur verið undirbúin á ýmsan hátt. Hrafnkell Thorlacíus arkitekt hefur gert teikningu af, sem er nálega fullbú- in, hún er hófsamleg að stærð, gert ráö fyrir 120 manns í sætum og að auki safnaðarheimili. Kirkjunni hefur verið valinn staður með fögru útsýni til þriggja sveita: „Inni við Ljósavatnsskarð, fram í Bárðardal og út til Köldukinnar. Þama mun kirkjan blasa vió sjón- um ferðamanna á hraunkambinum skammt sunnan við hina fjölfömu þjóðleið til Goðafoss og Mývatns- sveitar.“ Þannig greinargerð og rök- stuðning lét Jónas Kristjánsson þessu þjóðarmálefni í té og þó miklu nánar varðandi framkvæmd- aratriói, en að lokaoróum þar: „Viö undirrituð leyfum okkur hér með að beina þeim tilmælum til háttvirtrar Kristnihátíóamefndar að hún leggi til að reist verði Þor- geirskirkja að Ljósavatni meó þeim hætti er að ofan greinir til minningar um Þorgeir Ljósvetn- ingagoða og 1000 ára afmæli kristnitökunnar á íslandi." Undir þennan og svona merki- legan málsflutning hafa ritað fjöl- margir þjóðkunnir menn: Biskup- ar, alþingismenn, háskólaborgarar, bankastjórar að svo ekki gleymd- um okkur hinum sem einnig getum verió merkilegt fólk, sem ber þunga framkvæmdanna í huga og verki eins og; sóknamefnd Ljósa- vatnssóknar, Kirkjuþing, sem hefur oftar og mikiö fjallað um þetta mál; Kirkjuráð, Orkustofnun og þá saman að verki Þingeyjarsýslu- og Eyjafjarðarprófastdæmi. Kostnaðar- og verkáætlun Og enn segir Jónas: „Gerð hefur verið lausleg kostnaðar- og verk- áætlun um kirkjubygginguna og nemur hún tæpum 60 milljónum króna. Æskilegt er að dreifa fram- kvæmdum viö bygginguna yfir þau ár sem til stefnu eru fram undir aldamótin. I Þorgeirskirkjusjóöi eru 1.500 þúsund krónur og álíka upphæó hefur verið veitt.til bygg- ingarinnar úr Jöfnunarsjóði kirkna, þannig að nú em í byggingarreikn- ingi rúmar 3 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að söfnuðurinn ásamt Þorgeirskirkjusjóði geti lagt fram alls tíu milljónir króna og að Jöfn- unarsjóður kirkna leggi fram 12 milljónir króna. Þá vantar hér um bil 35 milljónir, sem veita þarf til viðbótar af opinberu fé. Heppilegt viröist að dreifa þessum fjárveit- ingum á árin 1993-1999. Þannig að vcittar verði 5 milljónir króna á ári hverju“. Reyndar hittist svo á að kirkju- garöurinn gamli rúmar aðeins kist- ur nokkurra sem deyja munu. Til áhersluauka má benda á hvað fag- urlega má hér sameina að verki þetta þjóðarátak, sem ég lít vera, þeirri náttúrulegu undrasköpun sem Ljósavatnsskaróið er þama í gegnum fjallgarðinn þar sem hringvegurinn einsog rennur í gegn, allt frá Þvottá í Álftarfirði hvar Síðu-Hallur bjó, málvinur Þorgeirs goða, á leið til endur- reistra Hóla í Hjaltadal, biskupsstól Norðlcndinga, sem Sigurður Guð- mundsson frá Grenjaðastað vann svo ötullega að. Nærri miðsvæðis þessarar leiðar, snertispöl frá Ljósavatnskirkju, rís úðinn frá Goðafossi óaflátanlega til himins og sameinast orónu og óorónu, sem fellur í nýju regni til jarðar. Ekki á að skyggja á þetta mál þótt maður, kunnur, hafi fundiö kvöð hjá sér aó semja og setja á svið „spottlega" kvikmynd um hugsaða kritnitökuna, handa sjón- varpi Islendinga aö sýna hvar síst vantar þó niðurlægjandi minjar og minningaádrepur handa vorri tíð. Eg vænti góðs í verki frá kirkju- málaráðherra Þorsteini Pálssyni, sem svo ljóst hefur sýnt hug sinn í verki til hinnar íslensku þjóðkirkju frá ráðherrastóli sínum. Jón Jónsson. Höfundurer bóndi í Fremstafelli í Kinn.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.