Dagur - 21.04.1994, Side 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 21. apríl 1994
Þökkum frábæra verslun í
vetur og óskum ykkur öllum
glcðilegs sumars
Blómabúðin Laufás
Hafnarstrœti 96, sími 24250
Sunnuhlíð 12, sími 26250
Skipagata 16 - 600 Akureyri ■ Sími 96 - 23520
Æ
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
Skóverslun
M.H. Lyngdal
Hafnarstrœti 103, sími 23399
J> HVAÐ ERAÐCERAST
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
|ÉjÉL GPeátGmyndif?
3
Skátamessa í
Akureyrarkirkju
Að venju veróur skátamessa á Ak-
ureyri í dag, sumardaginn fyrsta,
og veróur hún að þessu sinni í Ak-
ureyrarkirkju. Skrúðganga verður
frá ráðhúsi bæjarins við Geisla-
götu og gengið í gegnum miðbæ-
inn, upp Gilið og til kirkju. Lagt
veröur af stað í skrúðgönguna kl.
10.30 og guósþjónustan hefst kl.
11. Allir eru velkomnir. Boðió
verður upp á léttan hádegisverð
l'yrir cldri skáta í Safnaöarheimili
Akureyrarkirkju að guðsþjónustu
lokinni.
Söngskemmtun
Mánakórsins
Mánakórinn heldur söngskemmt-
un í Hlíóarbæ sunnudaginn 24.
apríl kl. 21 og í hliðarsal Glerár-
kirkju þriðjudaginn 26. apríl kl.
21. Fjölbreytt efnisskrá. Stjórn-
andi er Michael Jón Clarke en um
undirleik sér Guðný E. Guð-
mundsdóttir.
Galgopar og Diddú í
Samkomuhúsinu
Fjörkálfarnir í sönghópnum Gal-
gopum ásamt Sigrúnu Hjálmtýs-
dóttur, Diddú, efna til tónleika og
prófkjörs í Samkomuhúsinu á Ak-
ureyri í kvöld, sumardaginn
fyrsta, kl. 21.
Fyrirlestur um heilabilun
FAASAN - félag áhugafólks og
aðstandenda sjúklinga með Alz-
heimersjúkdóm og skylda sjúk-
dóma á Akureyri og nágrenni,
heldur fræðslufund í dvalarheimil-
inu Hlíö laugardaginn 23. apríl kl.
13. Gunnar Þór Gunnarsson,
læknir, heldur erindi um heilabil-
un. Talið er að um 60% af þeim
sem þjást af heilabilun séu haldnir
Alzheimersjúkdómi. Nýlega kom
fram aó nýtt lyf, „Cognex'", sé
væntanlegt á markaðinn, sem gæti
hjálpað takmörkuðum hluta Alz-
heimersjúklinga. Allir þeir sem
áhuga hafa að fræðast nánar um
þennan sjúkdóm eru hjartanlega
velkomnir.
Aukasýningar á
Stútungasögu
Leikfélagið Búkolla í S-Þing.
veróur með tvær aukasýningar á
leikritinu Stútungasögu að Ydöl-
um í Aðaldal í kvöld, sumardag-
inn fyrsta, og nk. sunnudagskvöld
kl. 20.30. Miðapantanir eru í síma
43592. Hætta varð sýningum fyrr
í vetur l’yrir fullu húsi áhorfenda
vegna óviðráöanlegra aðstæðna. I
tilefni af 50 ára afmæli lýðveldis-
ins og sumarkomunni fá allir sem
rnæta á þessar sýningar í íslensk-
um þjóðbúningi ókeypis aðgang.
Leikfélagið Búkolla vill með
þessu taka undir orð þeirra sem
hvatt hafa til aukinnar notkunar á
íslenska þjóóbúningnum.
J
HITA- OG VATNSVEITA
AKUREYRAR
Utboö
Hita- og Vatnsveita Akureyrar óskar eftir tilboðum í
lagningu aðveituæðar frá dælustöð á Laugalandi á
Þelamörk í dælustöð við Austursíðu á Akureyri.
Lögnin er rúmlega 10.000 metrar af 175 mm. stálröri í
315 mm. plastkápu. Á lögnina koma nokkur úttök, af-
loftanir og tæmingar. Reiknað er með að verkið geti
hafist fyrir miðjan maí og skal því lokið 30. sept. 1994.
Útboðsgögn fást hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen Glerárgötu 30, Akureyri, gegn 10.000,- kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu HVA við Rangárvelli,
Akureyri þriójudaginn 3. maí 1994 kl. 11.00 aó við-
stöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Vortónleikar söngdeíld-
ar Tónlistarskólans
Fyrstu vortónleikar söngdeildar
Tónlistarskólans á Akureyri verða
á sal skólans í dag, sumardaginn
lyrsta, kl. 17. Þar koma fram
söngkonurnar Elma Atladóttir,
sópran, Jóna Fanney Svavarsdótt-
ir, sópran, Ragnheiður Ólafsdóttir,
mezzosópran, og Þuríður Vil-
hjálmsdóttir, mezzosópran. Píanó-
leikarar eru Guðrún A. Kristins-
dóttir og Gerrit Schuil. Flutt verða
verk eltir Brahms, Donizetti,
Mozart, Scarlatti, Hjálmar H.
Ragnarsson, Þorkel Sigurbjörns-
son o.fl.
Þórey Magnúsdóttir.
Listakona frá Akureyri
sýnir í Reykjavík
Akureyrska listakonan Æja, eða
Þórey Magnúsdóttir réttu nafni,
opnar sýningu á verkum sínum í
Galleríi Sævars Karls, Banka-
stræti 9 í Reykjavík, á morgun,
föstudag. Þetta er fyrsta einkasýn-
ing Æju og ber hún heitió „Hrif“.
Þar sýnir Æja skúlptúra unna í
leir, járn, stein, rekavið og gips,
sem ntálaðir eru með jarpikment-
litum. Öll verkin voru unnin á ár-
unum 1993-1994. Um er að ræða
sölusýningu sem stendur yfir frá
22. apríl til 20. rnaí og verður hún
opin á verslunartíma á virkum
dögum og laugardögum milli kl.
10 og 14.
Fyrirlestur um
dulvitund mannsins
Annað kvöld, föstudag, heldur
Sigurður B. Stefánsson, læknir,
crindi á vegum Guðspekifélagsins
á Akureyri. Erindið tjallar um dul-
vitund ntannsins og nefnist Óvætt-
urinn Balrog. Allir eru velkomnir
á fundinn sem er ókeypis og fer
frant í húsnæði lélagsins aó Gler-
árgötu 32, 4. hæð. Tónlist, kaffi-
vcitingar og umræóur.
Hvað ætlarðu að gera á sumardaginn fyrsta?
Spurníng viktmnar — spurt á Akureyrí
Marvín Haukdal Einarsson:
„Ég ætla að keppa á Andrésar
andar leikunum á Akureyri."
Páll Indriðason:
„Ég fer austur í sveit því
mamma og pabbi ætla að
keppa á blakmóti á Húsavík."
Sigurður Heiðar Davíösson:
„Ég ætla að slappa af í veður-
blíðunní - ætli verði annars
ekkí gott veður?"
Ellen Sæmundsdóttir:
„Ég ætla að sofa út og hafa
það reglulega gott."
Karl Guðni Hreinsson:
„Ég ætla að fermast í Sval-
barðskirkju á sumardaginn
fyrsta."