Dagur - 20.05.1994, Blaðsíða 2

Dagur - 20.05.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 20. maí 1994 FRÉTTIR Atvinnuleysið er að hluta pólitískt vandamál - sagði Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ, á fundi á Akureyri Ingibjörg Gréta Gísladóttir og Sunna Borg taka þátt í óperuskaupinu. Ljósmynd: Páll A. Pálsson. Leikfélag Akureyrar: Síðustu sýningar á Óperudraugnum „Við verðum að koma heilsteypt fram gagnvart stjórnvöldum í haust, hver sem þau verða og knýja frjáshyggjuna burt. Hún er ekki nýtanleg fyrir okkur,“ sagði Benedikt Dayíðsson, forseti Alþýðusambands íslands á fundi um atvinnumál sem verkalýðsfé- lögin á Akureyri og við Eyjafjörð efndu til nýverið. Hann vitnaði til nýlegrar skýrslu OECD þar sem efnahagsstefnu á Islandi er lýst sem ómarkvissri. „Skýrslan lýsir ástandinu eins og það er, ómark- viss efnahagsstjórn í nafni frjáls- hyggjunnar, þessa Thatcherisma sem ráðið hefur ríkjum hér að undanfórnu.“ Nýbygging viö Borgarhólsskóla: Gengið til samninga við Fjalar hf. Sjö tilboð bárust í byggingu kjallara undir II áfanga í ný- byggingu við Borgarhólsskóla á Húsavík. Lægsta tilboðið var frá Trésmiðjunni Fjalar og eftir að tilboðin höfðu verið yfirfarin nam það 11,9 milljónum, eða 79% af kostnaðaráætlun hönn- uða, en hún var 15,1 milljón. Bygginganefnd grunnskóla hefur samþykkt að ganga til samn- inga við lægstbjóðanda. Bygg- inganefnd' óskaði eftir tilboói í byggingu þriggja metra hárrar girðingar umhverfis vinnusvæðið, þannig að verktími gæti verið óháður starfsemi skólans. IM íþróttakeppni á Ráðhústorgi Félag ungra jafnaðarmanna gengst í dag kl. 16.00 fyrir sér- stæðri íþróttakeppni á Ráðhús- torgi þar sem keppnisgreinar verða með hefðbundnu og óhefðbundnu sniði. Tilgangur keppninnar er að lífga upp á miðbæinn og gera kosningabar- áttuna skemmtilegri. Um kvöldið verður dansleikur í 1929 á vegum FUJ. Þar leika fyrir dansi hljómsveitirnar Bong og Bubbleflies og með þeim eru Þossi og Grétar. GG Benedikt ræddi almennt um efnahagsástandið og atvinnumálin og sagði að auk þess sem breyta þyrfti um stefnu í efnahagsmáíun þá yrði einnig að skapa fleiri störf hér á landi og vinna einkum að efl- ingu þeirra atvinnugreina þar sem hvert starf aflaói meiri verðmæta í þjóðarbúið. Ari Skúlason, hagfræðingur Al- þýðusambandsins, hélt einnig er- indi á fundinum. Hann sagði meðal annars að atvinnuleysi væri nú skráð um 6% á landsvísu en sú skráning segði ekki alla söguna. Ætla mætti að nokkuð væri um dul- ið atvinnuleysi að ræða; fólk sem ekki ætti rétt á bótum, skólafólk er kæmi á vinnumarkaðinn og ein- staklinga sem stunduðu eigin rekst- ur í einhverju formi en hefóu vegna samdráttar ekki eins mikið að gera og þeir vildu og gætu. Ari Skúlason tók í sama streng og Benedikt Davíðsson hvað efna- hagsstefnuna varðar. Hann sagði að stjómað væri eftir erlendum kenni- setningum, svonefndri frjálshyggju, þar sem atvinnuleysi væri eitt af hagstjómartækjum. Ari ræddi einnig um Háskóla íslands og hvað hart aö þurfa að hlusta á þær kenn- ingar koma þaðan að verkalýðs- hreyfingin hafi verólagt fólk út af vinnumarkaðinum eins og sést hafi Félagsmálaráð Húsavíkur hefur tekið jákvætt í erindi frá Nor- man Dennis og mælir með því við bæjarstjórn að Húsavíkur- bær greiði stofnkostnað við neyðarlínu, sem Norman hefur áhuga á að starfrækja. Hjónin Norman og Janice Dennis hafa boðist til aó annast sólarhringsvakt við neyóarsíma og væri þar um sjálfboðaliðastarf að ræða. Norman óskaði eftir aó bær- inn greiddi stofnkostnaó við sím- ann og var málinu vísaö til félags- málaráðs. Frarn hefur komió í Degi að Norman telur brýnasta þörf fyrir neyóarlínu vera að næturlagi, sér- staklega þegar eitthvaó bjátar á hjá unglingunum og fáir eru á ferli í grein eftir einn af prófessorum skólans fyrir nokkru. Ari kvað at- vinnuleysið að hluta til pólitískt vandamál og viðbrögð hins opin- bera í garð verkalýðshreyfingarinn- ar bæru þess glögg merki. Hann sagði þær skoðanir hafa borist úr fjármálaráðuneytinu að atvinnu- leysisbætur væm of háar og drægju úr áhuga og framtaki fólks við að leita sér vinnu, að uppsagnarfrestur væri of langur og sveigjanlegur vinnutími of algengur sem ekki væri unnt að túlka á annan veg en þann að greiða ætti dagvinnukaup fyrir vinnu hvenær á sólarhringnum sem hún væri unnin. Halldór Bjömsson, varaformað- ur Dagsbrúnar, var einn ræðu- manna á fundinum. Hann kvaðst telja að íslensk fiskiskip ættu að landa öllum fiski hér á landi og að einnig yrði að gera landið að þjón- ustustöð fyrir erlend fiskveiðiskip. Með því móti væri unnt að draga verulega úr atvinnuleysinu. Halldór ræddi einnig um fjárfestingar í samgöngumálum og kvað nauðsyn- legt að flýta framkvæmdum af því tagi á meðan atvinnu skorti. Þessar framkvæmdir væru í mörgum til- fellum mjög aróbærar en sköpuðu þenslu á þeim tímum þegar um mikla atvinnu væri að ræða. ÞI til aö ræða við. Einnig tclur hann að eldri borgarar sem þarfnast að- stoðar geti nýtt sér að hringja í símann og fengið sjálfboóaliöa til sendiferóa og aðstoðar á daginn. IM í dag og næstu þrjá daga, gefst Akureyringum tækifæri á að leigja smækkaða útgáfu og Qar- stýrða af skipum og sigla þeim á Pollinum. Róbert Ragnarsson, módelsmiður, er mættur aftur með 7 módel sem hann hefur smíðað og leigir þau fólki á öll- um aldri næstu daga. Róbert var á ferð á Akureyri í fyrrasumar og vegna þess hversu viótökurnar voru góðar þá, er hann Nú eru aðeins tvær sýningar eft- ir á stórsýningu vetrarins hjá Leikfélagi Akureyrar, gaman- óperunni Óperudraugnum eftir Ken Hill með söngperlum margra þekktustu óperutón- skálda heims. Síðustu sýningar verða laugardagskvöldið 21. maí og föstudagskvöldið 27. maí. Að sögn Viðars Eggertssonar, leikhússtjóra, hefur sýningin hlot- ið góðar viðtökur en aðsókn hefur þó verið minni en bjartsýnustu menn vonuðu. Óperudraugurinn er síðasta og viðamesta sýning leikársins og að sögn Viðars glæsilegur endapunktur við Ijöl- skrúðugt leikár Leikfélags Akur- eyrar. Leikurinn gerist í Parísaróper- unni um aldamótin og segir frá dularfullum atburóum sem tengj- ast dauðsföllum innan ópcrunnar. Óperudraugurinn hrellir listamcnn og starfsfólk óperunnar meðan á sýningum óperunnar Faust stend- mættur aftur. Eftir helgina hcldur hann til Danmerkur, þar sem hann veróur með skipaleigu í Randers og Silkeborg í sumar. Skipamódelin eru af svipaóri stærð, um tveir metrar að lengd og allt að 60 kg. Hingað kemur Ró- bert frá Reykjavík, þar sem hann leigði skipin á Tjöminni og Rauða- vatni. Leiguverð er það sama og í fyrra, kr. 250.- fyrir 15 mín. og kr. 450,-fyrir hálftímann. KK ur. Draugsi verður m.a. ástfanginn af kórstúlkunni Christine. Tónlist- in cr fengin að láni hjá tónskáld- um á boró við Bizet, Donizetti, Gounod, Mozart, Offenbach, Verdi og Wcber. Bergþór Pálsson leikur titilhlut- verkið og ung sópransöngkona, Marta G. Halldórsdóttir, þreytir frumraun sína á sviði í hlutverki Christine. Ragnar Davíósson, Agústa Sigrún Ágústsdóttir og Már Magnússon lara einnig meó veigamikil sönghlutverk og fjöldi kunnra leikara kémur fram í sýn- ingunni. SS Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Á lundi bæjarráðs í gær var samþykkt að heimila útboó á leikfimihúsi við Oddeyrarskóia og verður þaó auglýst mjög fljótlega. ■ Með bréfi dags. 3. maí til- kynnir húsnæðismálastjórn út- hlutun Iramkvæmdalána úr Byggingarsjóði verkamanna til Akureyrarbæjar. Veitt voru lán til byggingar/kaupa á samtals 22 íbúðum, 10 félagslegunt kaupleiguíbúðum, 5 félagsleg- um eignaríbúðum og 7 félags- legum leiguíbúöum. ■ Lagt var fram bréf dags. 2. maí sl. frá menningarfulltrúa. í bréfinu greindi hann frá við- ræðum sem fram hafa farið um hugsanleg kaup á húseigninni Aðalstræti 14, viðhaldi og varóveislu þcss og rckstri. Fyr- ir liggur uppkast að kaupsamn- ingi um húsið milli Akureyrar- bæjar og eiganda þess Eiðs Baldvinssonar. Einnig liggur fyrir að stjóm FSA kynni aó leggja fram nokkra íjárupphæð sem styrk til endurbóta á hús- inu og Læknafélag Akureyrar og Félag íslenskra hjúkrunar- lræðinga - Norðurlandsdeild, væru tilbúin að ganga til samn- inga um rekstur hússins. Bæj- artáð samþykkti kaup á húsinu Aðalstræti 14 með fyrirvara um að samningar takist við Læknafélag Akureyrar og Fé- lag íslenskra hjúkrunarfræð- inga - Norðurlandsdcild, urn rckstur hússins. Bæjaráð tclur eölilegt aó húsió verói í eigu Húsfriðunarsjóós. Æ fmm fíL kureyjri A-listinn Akureyri Kratakaffi í göngugötunni í dag. Kjósendur komið og ræðið málin. Kratakonur. i ....... Róbert Ragnarsson er mættur með 7 skipamódel til Akureyrar og þau verða til leigu á Pollinum í dag og næstu þrjá daga. Neyðarlína Normans Dennis: Félagsmálaráö jákvætt um greiðslu stofnkostnaöar Akureyri: Skipamódel til leigu á Pollinum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.