Dagur - 20.05.1994, Side 4
4 - DAGUR - Föstudagur 20. maí 1994
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN:
HALLDÓR ARINBJARNARSON (Iþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
GEIR A. GUÐSTEINSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
LEIÐARI------------------------
Ekki vonlaus barátta
Óhugnanlega margii gieinast á ári hveiju með krabbamein.
Nærri lætur að á ári greinist um 850 manns hér á landi með
þennan illvíga sjúkdóm og er ekki teljandi munur á kynjum.
Um helmingur krabbameinssjúklinga er kominn um eða yfir
sjötugt.
Samkvæmt tölum frá Krabbameinsfélagi íslands fá um
eitt hundrað konur á ári brjóstakrabbamein og svipaður
fjöldi karla fær krabbamein i blöðruhálskirtil. Níutíu manns
á ári fá lungnakrabbamein, um sextíu manns magakrabba-
mein og tæplega sextíu ristilkrabbamein.
Umræðan um krabbamein hefur löngum verið á þeim
nótum að lífslíkur þeirra sem fá þennan sjúkdóm séu nánast
engar. Þetta er vitaskuld ekki rétt. Lífshorfur hafa batnað
stórlega og til marks um það læknast nú 73% þeirra sem fá
krabbamein innan við tvítugt samanborið við 20% um og
eftir 1960. Læknavísindunum hefur fleygt fram á þessu sviði
sem öðrum. Rétt er að hafa í huga að nú eru á lifi meira en
fimm þúsund íslendingar sem hafa fengið krabbamein og
rúmlega helmingur þessa hóps hefur lifað í fimm ár eða
lengur.
í athyglisverðri grein í nýjasta tölublaði Heilbrigðismála
segir Jónas Ragnarsson að í baráttunni við krabbamein og
útbreiðslu þess sé kynningarstarfið mikilvægt. Fræðslan um
skaðsemi reykinga vegi þyngst og einnig skipti máli að
benda á hvaða fæðutegundir séu hollari en aðrar.
Jónas bendir réttilega á að margir vilji ekki tala um
þennan erfiða sjúkdóm. Orðrétt segir hann: „Það er rétt að
krabbamein er erfitt viðureignar en við verðum þó að þora
að tala um það eins og hvern annan sjúkdóm og halda á
lofti þeim sigrum sem unnist hafa. Krabbameinssjúklingar
sem læknast verða að láta vita betur af þeim árangri sem
hægt er að ná, til þess að breyta viðhorfi almennings til
krabbameins og ekki síður til að gefa von þeim sem berjast
við þennan sjúkdóra sem eitt sinn var mjög illvígur en þarf
ekki alltaf að vera það."
Þessi ábending Jónasar er hárrétt. Mun meira er talað
um hinar neikvóeðu hliðar krabbameinsins. Hinu mega
menn ekki gleyma að læknavisindin hafa náð undraverðum
árangri í baráttunni við krabbameinið og lífshorfur fólks
með krabbamein batnar ár frá ári. Það er mikilsverð stað-
reynd.
Nokkur orð í tíma töluð
Nú þegar fara í hönd bæjar- og
sveitarstjórnarkosningar og al-
þingiskosningar á næsta ári, þykir
mér tími til kominn aö láta í ljós
mína skoóun á „fjölskyldumála-
pakka" flokkanna.
A yngri árum gekk ég hefó-
bundinn menntaveg og bætti svo
viö mig einum 2-3 prófskírteinum
jafnfranrt senr ég stundaði at-
vinnulífið meó og milli skóla.
Eg þóttist aö vonum nokkuö
góó með þetta en þó var þaó svo
er ég fékk í hendur fyrsta barnið
mitt aö þaó fór í gegnunr huga
rninn aö auðvitaó var aóaltilgang-
ur minn aó vernda og næra þenn-
an litla einstakling. Síöan hef ég
eignast tvö börn og verið heima-
vinnandi í sex og hálft ár. Eg verö
aó segja að þaö fer ósegjanlega í
taugarnar á mér hvernig þetta
þjóöfélag berst um á hæl og
hnakka til aö ná yfirráðum yfir
þeirn einstaklingum sem guó fól
okkur foreldrunum.
Fóstrur, svo ágætar sem þær nú
annars eru, telja sig eiga oróiö aó
hafa hönd í bagga með uppeldinu
og hafa nú gefiö út sérstaka upp-
cldisáætlun leikskólabarna. Eins
og þróunin hefur veriö þá verður
þaö brátt skylda okkar forcldra aö
láta börnin okkar í leikskóla svo
að þau liljóti eitthvert uppeldi
blessuð skinnin. Því þó þaö sé nú
ekki orðió aö lögum ennþá, er
ekki laust vió aö þess tóns sé farið
að gæta hjá ýmsum stofnunum
sem hafa meö börn aö gera og
nefni ég þar t.d. Ungbarnaeftirlit-
ió.
Nýjasta nýtt er svo einsetinn
skóli. Þaö er sko toppurinn á til-
verunni aö mati pólitíkusanna. En
einsetinn skóli er ekkert annaó en
framtíðar „fangelsi“ fyrir börnin
okkar. Ef þaó væri tryggt aö börn-
in þyrftu bara aö vera í skólanum
4-5 tíma á dag, þá væri þaö nú
hlutur sem væri í lagi. En mér er
sem ég sjái kennara láta sér lynda
svo stuttan vinnudag nema aö fá
greitt fyrir hann allan. Og mér er
sem ég sjái ríkið eða sveitarfélög-
in gera þaö. Nei, afleióingin veró-
ur óhjákvæmilega sú aó þegar
litlu börnin okkar byrja í skólan-
um eftir nokkur ár, þá vcrða þau
þar í 6-7 klukkustundir á hverjum
degi frá ágúst til júní. Og hver á
íslandi þekkir ekki til þess vanda-
máls aó fara í skólann á góöum
vordögum þegar bömin vilja vera
úti að leika sér? Er þaö þetta sem
við foreldrar viljum? Erum vió
svo þreytt á börnunum okkar aó
viö viljum sem minnst af þeim
vita? Hvers vegna vorum viö þá
að eignast þau? Er til of mikils
mælst að viö fómum einhverju af
„Nýjasta nýtt er
svo einsetinn
skóli. Það er sko
toppurinn á til-
verunni að mati
pólitíkusanna. En
einsetinn skóli er
ekkert annað en
framtíðar „fang-
elsi fyrir börnin
okkar.“
tíma okkar fyrir börnin?
Væri ekki nær fyrir pólitíkus-
ana aó gera sér grein fyrir því aó
fengju fjölskyldurnar kaup sem
þær gætu lifaö af, þá yrói atvinnu-
leysið úr sögunni? Væri ekki nær
aö forcldrar gætu átt þess kost aö
skipta meö sér vinnudeginum svo
þeir báöir ættu þess kost aö vera
heima og þá þyrfti heldur ekki
hafa skólann svo langan? Væri
ekki nær að létta skattpíningunni
af fjölskyldunni svo hún ætti þess
einhvern kost að búa sér bctri
hag? Er ekki korninn tími til
stefnubreytingar og að fjölskyldan
og þá sérstaklega börn séu virt?
Fól ckki guó okkur þessi börn til
þess aö annast þau?
Eru þetta kannski allt einhver
„líkamsfræðileg slys“ scm bara
eru til óþurftar og þvælast fyrir
okkur? Er tilgangurinn meö upp-
eldinu aó gera börnin öll eins
þannig að þau segi öll „já“ og
„nei“ á réttum stöðum þegar mi-
svitrir nrcnn krefjast þess? Eöa
hvcrnig fer meó þann scm hefur
aöra skoöun cn kennarinn eöa
fóstran og öskrar „nei“ þegar hann
á að segja „já“? Haldiö þið aö sú
skoðun sé virt?
Kæru pólitíkusar! Gefið okkur
foreldrunum færi á að njóta þcss
aö ala upp okkar börn. Gefiö okk-
ur tíma til þess aó elska og viröa
börnin okkar. Það cr hagur allra í
þjóöfélaginu.
Dýrleif Skjóldal.
Höfundur cr húsmóðir ú Akurcyri.
Eru litlu málin staerri
en okkur grunar?
Löngum hefur þaö veriö svo, að
ekki þyki nógu mcrkilegt að hafa
lítil mál á sinni könnu. Afhroð
stórfyrirtækja eöa sjálfskipaðir
bjargvættir byggðarlaga eru nógu
stórir bitar fyrir flesta að smjatta
á. En litlu málin snerta okkur öll á
sinn hógværa hátt. Vió sem stönd-
um að D-Iistanum á Húsavík höf-
urn leitast viö að finna lausnir á
aóskiljanlegustu málum og þá líka
í litlu málunum.
Trjáflísunarvél
Nokkur slík mál eru mér sérstak-
lega hugleikin. Fyrst vil ég nefna
þar til litla vél sem bæjarfélagió
þarfnast. Trjáflísunarvél heitir
gripurinn og er nýttur til aó flísa
niður timbur. Fáir gera sér grein
fyrir, aö til fellur timbur í tonnavís
á hverju ári, sem er annaóhvort
brennt eða urðað meö ærnum til-
kostnaói. Þessi litla vél, sem kost-
ar um þaö bil átta hundruð þúsund
krónur, gæti gert þetta úrkasttimb-
ur að verómætum. Flísar og fiögur
úr slíkri vél eru nýttar í göngu- og
reiðstíga sem og í beð, og slær
öllu vió til slíkra nota. Vinna viö
trjáflísunarvél er hentug og göfg-
andi fyrir vinnuskóla og verkefnin
eru ærin. Við verðum aö skilja aó
vinnuskóli verður að standa undir
nafni og mesta vandamál vinnu-
skólans hér er aö finna verkefni
við hæfi.
Hljóðkerfi í samkomuhús
Nýtt hljóðkerfi í samkomuhúsið er
„Svo virðist sem við-
skiptasiðferði og
stjórnun fyrirtækja fari
þannig eftir öðrum lög-
málum á Húsavík en
um heimsbyggðina alla.
Er það miður og okkur
til vansa og þar gæti
verið skýringu að finna
á hrakandi gengi fyrir-
tækja okkar og efna-
hag“.
annað lítið mál sem snertir ótrú-
lega marga bæjarbúa. Hljóókerfi
bíósins er komið aö fótum fram
og endurnýjun þess þjónar einnig
leikfélaginu. Hreyfimyndir eiga
vaxandi vinsældum aó fagna og
aó horfa og hlusta á góöa kvik-
mynd er menningarneysla svo að
ég minnist nú ekki á leikfélagiö
okkar og þess afuröir. Rúmlega
sex þúsund manns koma árlega í
samkomuhúsið okkar og ef bæjar-
félagið ætlar að reka þaö hús skul-
um við gera þaö með sóma.
Hljóðvarp af bæjarstjórnar-
fundum
Löngum kvarta bæjarbúar yfir litl-
um tengslum viö fulltrúa sína í
bæjarstjórn. Engir mæta á fundi
bæjarstjórnar nema tilneyddir og
Sigurjón Benediktsson.
fundargeröir af fundum þessum
segja harla lítiö um málefni og
umræður. Því er það þjóöráö aó
láta útvarp framhaldsskólanema
útvarpa af fundum bæjarstjórnar.
Von væri þá til þess aö bæjarfull-
trúar vönduðu mál sitt og styttu.
Væri þaö mesta kjarabót sem hægt
væri aö veita þcim aumu þjónurn
samfélagsins.
Skiltin við Laxamýri
Eitt lítió mál verö ég aö minnast á,
sem viö verðum að leysa. Þaó eru
endemis skiltin viö Laxamýri. Þar
eiga að heita upplýsingaskilti frá
Vegageróinni til aóstoðar villtum
og vcgmóóum feröalöngum. Á
þessum skiltum er Húsavík cins
og hangandi hor út í horni á ööru
skiltanna, cn auóvitað ckkcrt sagt
af þjónustu á þcim aunra staö.
Þarna vantar eitt skilti scm tckur
yfir svæöiö frá Laxamýri austur
aö Ásbyrgi. Þaö vcröur sctt upp
eftir sex vikur, cf ég fæ nokkru
um það ráöið.
Önnur „smámál“
Vart tckur því aó vcra aö minnast
á smámál cins og vanhæfi og
hagsmunatengsl og þvílíkt scm
skcrðir vit manna til réttlátrar
ákvarðanatöku. Slíkir þverbrcstir
breyta cngu um framgang mála á
Húsavík norður. Svo viröist sem
viöskiptasiöferöi og stjórnun fyr-
irtækja fari þannig el'tir öórum
lögmálum á Húsavík cn um
hcimsbyggöina alla. Er það miður
og okkur til vansa og þar gæti ver-
iö skýringu að finna á hrakandi
gcngi fyrirtækja okkar og cfnahag.
Að lokum
Viö á D-listanum erum vissulega
tilbúin aö takast á viö stóru niálin
cn litlu nrálin mega ekki glcymast
í sjálfumglöóu tali stjórnmála-
manna fyrir og eftir kosningar.
Sigurjón Benediktsson.
Höfundur skipar efsta sætió á lista Sjálfstæóis-
flokksins á Húsavík vió kosningarnar 28. maí nk.