Dagur - 14.06.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 14. júní 1994
FRÉTTIR
Verktryggingarmál Akureyrarbæjar gegn VÍS:
Þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur
öðru hvoru megin við réttarhlé
Öðru hvoru megin við réttarhlé
verður þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur mál sem Akureyr-
arbær hefur höfðað gegn Vá-
tryggingafélagi íslands til
greiðslu verktryggingar vegna
Helgamagrastrætis 53 á Akur-
eyri (grænu blokkarinnar).
Kristján Þorbergsson mun flytja
málið fyrir hönd Akureyrarbæj-
ar en Hákon Árnason fyrir hönd
VÍS. Forsaga þessa máls er sú að
11. mars 1993 var kveðinn upp
dómur í Hæstarétti í máli þrota-
bús Híbýla hf., verktakans við
Helgamagrastræti 53, sem varð
gjaldþrota í október 1989, gegn
bæjarsjóði Akureyrar. Með
hæstaréttardómnum var viður-
kenndur eignarréttur Akureyr-
arbæjar á íbúðum í „grænu
blokkinni“. Að þessarri dóms-
niðurstöðu fenginni hófust við-
ræður Akureyrarbæjar og VÍS
um greiðslu verktryggingar
vegna hússins, en það hafði ver-
ið sameiginleg ákvörðum máls-
aðilja að fresta verktryggingar-
málinu þar til búið væri að
kveða upp dóm í Hæstarétti.
^ Noröurland:
Urslit sveitarstjórnar-
kosninganna sl. laugardag
Síðari hluti sveitarstjórnarkosn-
inganna var sl. laugardag og var
gengið að kjörborði í átta sveit-
arfélögum á Norðurlandi. Úrslit
kosninganna urðu sem hér segir:
Staðarhreppur (V-Hún.)
A kjörskrá: 71
Alkvæói greiddu: 55 (77.5%)
Auðir og ógildir: 7
Hreppsnefnd: Iwarinn Þorvaldsson (41),
Magnús Gíslason (29) og Bjami Aóal-
steinsson (26).
Fremri-Torfustaðahreppur (V-Hún.)
A kjörskrá: 45
Atkvæði greiddu: 31 (69%)
Auóir og ógildir: 2
Hreppsnefnd: Sólrún Þorvaröardóttir
(28). I>orsteinn Hclgason (26) og Eggert
Pálsson (24).
Ytri-Torfustaðahreppur (V-Hún.)
Á kjörskrá: 157
Atkvæói greiddu: 119 (76%)
Hreppsnefnd: Jóhanna Sveinsdóttir (53),
Stefán Böóvarsson (48). Jóhannes
Bjömsson (43), Flosi Eiríksson (42) og
Rafn Benediktsson (41).
Kirkjuhvanunshreppur (V-Hún.)
Á kjörskrá: 82
Atkvæói greiddu: 35 (43%)
Auöir og ógildir: 1
Hreppsnefnd: Heimir Ágústsson (31).
Indriói Karlsson (29),_Loftur Guðjónsson
(28), Tryggvi Eggertsson (28) og Ingólf-
ur Sveinsson (21).
I»orkelshólshreppur (V-Hún.)
Á kjörskrá: 106
Atkvæói greiddu: 85 (80%)
Auóirog ógildir: 1
Hreppsnefnd: Ólafur B. Óskarsson (66),
Ragnar Gunnlaugsson (54). Sigrún Ól-
afsdóttir (44). Steinbjöm Tryggvason
(40) og Elías Guómundsson (28).
Skagahreppur (A-Hún.)
Á kjörskrá: 47
Atkvæói greiddu: 27 (57%)
Hreppsnefnd: Sveinn Sveinsson (27),
Rafn Sigurbjömsson (25), Finnur Karls-
son (22), Siguróur Ingimarsson (19) og
Guójón Ingimarsson (15).
Skarðshreppur (Skagaf.)
Á kjörskrá: 80
Atkvæói greiddu: 80
H-listi Úlfar Sveinsson og fleiri: 42 at-
kvæði og þrjá menn kjöma - Úlfar
Sveinsson, Jón Eiríksson og Siguróur
Guójónsson.
L-listi Andrés Helgason og fleiri: 37 at-
kvæði og tvo menn kjöma - Andrés
Helgason og Sigrún Aadnegaard.
Hálshreppur (S-Þing)
Á kjörskrá: 137
Atkvæói greiddu: 107
Auóir og ógildir: 1
Hreppsnefnd: Jón Óskarsson (85). Sig-
urður Stefánsson (79), Þórhallur Her-
mannsson (36), Ingvar Jónsson (32) og
Amór Erlingsson (31).
Aðalfundur Menor:
Samstarf við Gilfélagið
verði kannað rækilega
- stjórn samtakanna endurkjörin
Aðalfundur Menningarsamtaka
Norðlendinga var haldinn á
Siglufirði síðastliðinn laugardag.
Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa voru umræður um
framtíð félagsins og íjárhags-
grundvöll. Stjórn Menor var
endurkjörin og er Ólafur Þ.
Hallgrímsson, Mælifelli, því
áfram formaður samtakanna.
Með Ólafi í stjórn eru Rut Han-
sen, Akureyri, varaformaður, Kári
Sigurðsson, Húsavík, ritari, Hlín
Torfadóttir, Dalvík, gjaldkeri og
Guðrún Helga Bjarnadóttir,
Hvammstanga, mcðstjórnandi.
Ein breyting varð á varastjórn.
Margrét Jónsdóttir, Löngumýri,
kom inn í stað Sólveigar Arnórs-
dóttur, Útvík. Aðrir í varastjórn
cru Guðmundur Ármann, Akur-
eyri, Skarphéðinn Einarsson,
Blönduósi, Emclía Baldursdóttir,
Eyjafjarðarsveit og Anna Helga-
dóttir, Kópaskcri.
Að sögn Ólafs Þ. Hallgríms-
sonar voru talsveróar umræður um
framtíð Menor og traustari fjár-
hagsgrundvöll og voru tillögur
mótaöar í Ijósi umræðna. Sam-
þykkt var tillaga um aö Menor
íeiti eftir nánara samstarfi við Gil-
félagið á Akureyri um hugsanlcg
afnot af skrifstofu með sameigin-
legan starfsmann í huga. Nánari
útfærsla á að liggja fyrir er hausta
tekur. Ólafur sagði aó þetta mál
hefði reyndar verió í umræóunni
býsna lengi en nú ætti að kanna
samstarfsgrundvöllinn rækilega.
Fundarmenn nutu gestrisni
Siglfirðinga. Þeim var boðið á
myndasýningu Örlygs Kristfinns-
sonar um sögu og mcnningu stað-
arins og síðan var kvöldvaka í
Siglufjarðarkirkju þar scm heima-
menn lluttu dagskrá í tali og tón-
um. SS
Ólafur Þ. Hallgrímsson
HÁSKÓLINN
Á AKUREYRI
HÁSKÓLINN
ÁAKUHEYRI
Háskólinn á Akureyri boðar til starfs-
mannafundar fimmtudaginn 16. júní kl.
16.00. í stofu 16 í húsnæði skólans við
Þingvallastræti.
Á fundinn eru boöaðir stundakennarar og
starfsmenn, aðrir en fastráðnir kennarar.
Bæjarráð 16. des. 1993
Þetta mál var tekið fyrir á fundi
bæjarráós Akureyrar 16. desember
sl. Þar var lagt fram bréf frá
Brunabótafélagi Islands/Vátrygg-
ingafélagi Islands hf. hvar óskaó
var eftir að ágreiningur vegna
verktrygginganna um Helga-
magrastræti 53 verði lagður fyrir
gerðardóm. Þessi ágreiningur
snérist um greiðsluskyldu og fjár-
hæö. I bréfinu er greint frá efni
bréfs frá forsvarsmönnum Híbýla
hf. til Akureyrarbæjar dags. 11.
október 1989, sama dag og óskað
var eftir gjaldþrotameðferð Híbýla
hf„ þar sem þess er farió á leit að
Híbýli verði leyst undan verk-
framkvæmd samkvæmt verk-
samningi, en erindió samþykkt
f.h. bæjarsjóðs af Sigfúsi Jóns-
syni, þáverandi bæjarstjóra.
Einnig kom fram í þessu bréfi frá
Brunabótafélaginu/VÍS að í bréfi
frá lögmanni fyrrverandi eigenda
Híbýla hf„ Benedikt Ólafssyni,
hafi komið frarn sú skoðun að
meó samþykki fyrrnefnds bréfs
hafi Híbýli hf. verið leyst undan
öllum skyldum sínum samkvæmt
verksamningi og þar með hafi
verkábyrgóirnar fallið úr gildi.
Einnig var greint frá efni bréfs
frá fyrrverandi bæjarlögmanni,
Hreini Pálssyni, dags. 19. nóvem-
ber 1993, þar sem hann skýrir til-
urð bréfsins frá 11. október 1989
og lýsir þeirri skoðun sinni að
ekki hafi verið ætlun bæjarsjóðs
Akureyrar að falla frá kröfum í
verktryggingarnar vegna hugsan-
legra galla á vcrkum sem unnió
hefðu verið. Loks var grcint frá
el'ni símbréfs frá Sigfúsi Jónssyni,
fyrrverandi bæjarstjóra, þar sem
hann telur að nefnt bréf hafi verið
ritað í tilefni af gjaldþroti Híbýla
hf.
Bæjarstjórn hafnaði VÍS um
gerðardóm
Bæjarráð samþykkti á þessum
l'undi 16. desember sl. að það gæti
ekki oróið við beióni Brunabóta-
félags Islands/Vátryggingafélags
Islands hf. um að leggja málið fyr-
ir gerðardóm og bæjarráð ítrckaði
þá skoðun sína að verktrygging-
arnar væru í fullu gildi.
Á fundi bæjarstjórnar Akureyr-
ar 11. janúar sl. var þessi bókun
tekin fyrir og samþykkt með 10
samhljóða atkvæðum. Gísli Bragi
Hjartarson (A), einn eigenda Hí-
býla, vék af fundi og tók ekki þátt
í atkvæðagreiðslunni. Á þessum
bæjarstjórnarfundi kom fram að
afrit af nefndu bréfi forsvars-
manna Híbýla til bæjarsjóðs Ak-
ureyrar hafi ekki fundist í skjala-
geymslum Akureyrarbæjar og
ekki sé að finna stafkrók fyrir því
í gögnum bæjarins.
Tekist á um verktryggingu
og gildi bréfs
Eins og áóur segir veróur þetta
mál dómtekið . Ágreiningur í mál-
inu tekur annars vegar til þess
hvort VIS beri að greiöa Akureyr-
arbæ verktrygginguna og jafn-
framt gildi umrædds bréfs frá 11.
október 1989. Hins vegar tekur
málið til upphæðar verktrygging-
arinnar.
Ætla má aö dómur falli í Hér-
aðsdómi. Veröi málinu áfrýjað til
Hæstaréttar, sem verður að teljast
fremur líklegt hvernig sem dómur
Héraðsdóms verður, er langt í aö
endanleg niðurstaða málsins liggi
fyrir. óþh
Á föstudag varð harður árckstur á mótum Glerárgötu og Gránufélagsgötu.
Ökumaður bifreiðarinnar sem valt er grunaður um ölvun við akstur.
Mynd: Brynjólfur.
Akureyri:
Fjórir árekstrar
sl. föstudag
Á fóstudag hafði lögreglan á
Akureyri afskipti af fjórum
árekstrum, þar af tveimur alvar-
legum. Annar árekstranna varð
á mótum Glerárgötu og Gránu-
félagsgötu, með þeim afleiðing-
um að önnur bifreiðanna valt og
Ienti á mannlausri bifreið. Ann-
ar ökumannanna er grunaður
um ölvun við akstur en engin
slys urðu á mönnum.
Hinn áreksturinn átti sér stað á
mótum Hlíðarbrautar og Hörgár-
brautar og var annar ökumann-
anna fluttur á slysadeild. Báðar
bifreiðarnar reyndust mikiö
skemmdar og þurfti aðstoð krana-
bíls til að flytja þær brott.
Á laugardagskvöld var ekið á
stúlku fyrir utan Sjallann, hún
slapp þó með skrekkinn, þar sem
meiðsl hennar reyndust lítil sem
engin.
Eitt umlerðarslysið enn átti sér
síðan stað á áttunda tímanum í
gærmorgun, er ekið var á unga
stúlku á reiðhjóli á mótum Teigar-
síðu og Bugóusíðu. Stúlkan var
llutt á slysadeild með minniháttar
áverka á höföi. ÞÞ