Dagur - 14.06.1994, Blaðsíða 11
[
Þriðjudagur 14. júní 1994 - DAGUR - 11
Gömlu góðu lögin
Kór Hafnarfjarðarkirkju hefur
verið á söngferð um landið.
Hann hafði viðkomu á Ak-
ureyri og efndi til tónleika í Akur-
eyrarkirkju föstudaginn 10. júní.
Kórstjóri er Helgi Bragason. Kór-
inn flutti alla efnisskrá sína án und-
irleiks.
Kórinn er skipaður tuttugu og
fjórum röddum, sem skiptast nokk-
uð ójafnt, þar sem karlar eru ekki
nema fimm, tveir í tenór og þrír í
bassa. Uppröðun kórsins hefur lík-
ast til átt að bæta upp það, hve fá-
liðaðar karlaraddimar eru og þá
sérlega tenórinn. Honum var komið
fyrir í fremstu röð á milli sópran-
radda og altradda. Þetta kom ekki
nógu vel út. Rödd í tenór skar sig
úr í sem næst hverju einasta lagi,
sem kórinn flutti, og spillti flutn-
ingi óþægilega mikið. Hugsanlegt
er, að minna hefði á þessu borið,
hefði uppröðun verið hefðbundnari,
en æskiiegast hefði að sjálfsögðu
vcrió, að heldur minni styrkur hefði
verið notaður við sönginn.
Þetta var sem næst eini gallinn í
flutningi kórsins. Sópran hans er
sérlega áheyrilegur. Hann tekur háa
tóna af öryggi og án þess að grípa
til þeirrar þunnu pípuraddar, sem
getur vissuíega átt við á stundum,
en hefði farið illa í þeim lögum,
sem Kór Hafnarfjarðarkirkju flutti.
Altraddir voru þéttar og fylltu
skemmtilega í hljóminn. Styrkhlut-
fallið milli þcirra og annarra radda
var í góóu lagi svo að hann naut sín
til fullnustu. Bassaraddir, stóðu sig
með prýði og gáfu góöan botn auk
þess, sem þær sýndu víða, að þær
gátu vel gefið þéttan og hæfilcga
styrkan tón í sérinnkomum sínum
og þeim hlutum, þar sem þær voru
dregnar fram.
Kórinn söng í lotu í liðlega
klukkuslund án hlés. Þess gætti
óneitanlega lítils háttar í flutningi.
Heldur depraðist tónn í ýmsum lög-
um, þegar leið vel fram yfir hálf-
tímann, og fyrir kom, að innkomur
sem og afslættir voru ekki alveg í
lagi. Einnig brá rétt aóeins fyrir
ekki alveg hrcinum hljómi og smá-
falli. Þetta allt var þó furðu lítið
miðaö vió það stranga áframhald,
sem var á tónleikum kórsins.
A efnisskrá kórsins voru lög
eins og í Hlíðarendakoti, Blítt er
undir björkunum, Yfir voru ættar-
landi, Land míns föður, Hver á sér
fegra föóurland, Island ögrum skor-
TÓNLIST
HAUKUR Á6ÚSTSSON
SKRIFAR
ið, Undir bláum sólarsali og mörg
önnur alls ráðandi. Þau fóru fagur-
lega í natinni meðferð kórsins, þar
sem ýmiss smá tilbrigði voru nýtt
af smekkvísi til þess að lyfta lag-
línu og auka hrif. Þegar á var hlýtt
varö ekki varist þeirri hugsun, að
vissulega væru þetta góðu lögin,
sem miklu of sjaldan heyrast og um
of hafa fallið í þagnargildi. Hugur-
inn reikaði til þess andrúmslofts.
sem ríkti hér á landi, þegar þessi
lög voru samin og sungin um land
Heimildarmyndin „14 ár í Kína“
er komin út á myndbandi._ Myndin
er um ævi og starf Olafs Olafsson-
ar, sem ungur sveitadrcngur fékk
köllun til kristniboðs í Kína.
Þangað komst hann að endingu
og dvaldi þar á miklum umbrota-
tímum, herir kommúnista, þjóð-
crnissinna og herfursta bárust á
banaspjótum, Japanir huguðu að
innrás og almenningur leið miklar
hörmungar. Þetta cr því sagan af
einstaklingi í umróti válegra
allt; þegar vongleði ríkti, þegar
sjálfstæðisþrá og frelsishugur fun-
aði í brjóstum karla og kvenna,
þegar þjóðin barðist fyrir lausn
sinni undan utanaðkomandi send-
ingum lagabálka og reglugerða og
vildi vera sín eigin, en ekki undir
beinni boöunarstjóm erlendra yfir-
valda. Mikið vatn er runnið til sjáv-
ar frá þeirri tíð og sannarlega hefur
margt breyst - og að því er virðist
líka þessi hugur í sálum manna.
Hann vakti þó í flutningi Kórs
Hafnarfjaróarkirkju í Akureyrar-
kirkju föstudaginn 10. júní, en því
miður nutu of fáir. Aheyrendur
voru um það bil jafnmargir kórfé-
lögum, sem cr sannarlega heldur
leitt til afspurnar, þegar svo vel er
boðið, sem hér var.
Kórinn hefur gefið út
geislaplötu með söng sínum. Þar
eru ekki þeir gallar á, sem hér á
undan var á drepið. Þessi diskur er
eigulegur í besta lagi og ætti að
vera kærkomin eign hverjum þeim
Islendingi, sem vill njóta arfs þjóð-
arinnar í tónlist í því formi, sem
best getur fengist. Kórinn ætti
einnig að koma sem víðast. Inni-
legur Hutningur hans á íslenskum
ættjarðarlögum og lofsöngvum er
þarft innlegg á þeim tímum, sem
við lifum.
heimsatburða. Ólafur var einhver
víðförlasti Islendingur á sínum
tíma og ritaði blaðagrcinar og
bækur um ferðalög sín.
Myndin er að miklu leyti
byggð á kvikmyndum sem Ólafur
tók sjálfur í Kína á tjórða áratug
aldarinnar. Höfundur handrits er
Egill Helgason en leikstjóri mynd-
arinnar cr Guðbergur Davíösson.
Myndin er um það bil 40 mín. að
lengd og var frumsýnd í Ríkis-
sjónvarpinu veturinn 1993.
(Fréttatilkynning)
„14 ár í Kína“
á myndband
BJORN SIGURÐSSON
W HÚSAVÍK
SUMARAÆTLUN1994
HÚSAVÍK - AKUREYRI - HÚSAVÍK
15/6 - 31/8 1994 Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös. Lau.
Húsavík-Akureyri 6:15 6:15 6:15 6:15 6:15
8:15 8:15 8:15 8:15 8:15
19:00 18:00 18:00 18:00 18:00 18:00 18:00
Akurcyri-Húsavík 8:15 8:15 8:15 8:15 8:15 8:15
15:30 15:30 15:30 15:30 15:30
HÚSAVÍK - ÁSBYRGI - HÚSAVÍK
15/6 - 31/8 1994 Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös. Lau.
Húsavík-Asbyrgi 14:30 10:00 10:00 10:00 10:00 10:00 10:00
17:00* 17:00*
Asbyrgi- Húsavík ♦Ekið til 26/8 15:30 17:00 17:00 17:00 17:00 17:00 11:00
ASBYRGI - KOPASKER - RAUFARHÖFN -
ÞÓRSHÖFN - VOPNAFJÖRÐUR - EGILSSTAÐIR
15/6 - 31/8 1994 Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös.
Egilsst.-Vopnafj. 11:00 11.00
Vopnafj.-Ásbyrgi 13:00 13:00
Ásbyrgi- Vopnafj. 17:50 17:50
Vopnafj.-Egilsst. 21:30 21:30
HÚSAVÍK - ÁSBYRGI - HÚSAVÍK
1/6 - 31/8 1994 Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös.
Húsavík-Mývatn 9:15 9:15 9:15 9:15 9:15
20:30* 20:30* 21:10* 21:10*
Mývatn- Húsavík 10:45 10:45 10:45 10:45 10:45
20:30* 20:00* 20:30* 20:30*
Ekið um vcgi nr. 85, nr. 845 og nr. 1
*Ekið um Húsavíkurflugvöll samkvæmt áætlun Fluglciða.
Lau.
Lau.
10:45
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í 4. flokki 1992
Innlausnardagur 15. júní 1994.
4. flokkur 1992:
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
5.645.368 kr.
1.129.074 kr.
112.907 kr.
11.291 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
ATH. Útdregin óinnleyst húsbréf bera hvorki vexti
né verðbætur frá innlausnardegi.
cSg húsnæðisstofnun ríkisins
I I HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 69 69 00
Atvinna - Framtíðarstarf
Starfskraftur óskast í sérvöruverslun með dömufatnað.
Umsókn sem tilgreinir aldur og fyrri störf leggist inn á
afgreiðslu Dags fyrir 15. júní, merkt: „Framtíð".
Starfsmaður
óskast til sumarafleysinga (frá 20. júní til 1. sept.) við
afgreiðslu í verslun sem selur sportvörur.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf óskast sendar
fyrir 17. júní merkt „Atvinna, box 450, 602 Akur-
eyri“.
Atvinna
Starfskraftur óskast til starfa við afgreiðslu til lengri tíma.
Um vaktavinnu er að ræða.
Upplýsingar á staðnum milli kl. 17.00-18.00.
Einars bakarí.
Frá fræðsluskrifstofu
Norðurlandsumdæmis eystra
Furuvöllum 13 - sími 96-24655- Akureyri
Kennarastöður
við eftirtalda skóla eru lausar
til umsóknar
Umsóknarfrestur er til 24. júní 1994.
Grunnskólinn í Grímsey - Almenn kennsla
Grunnskólinn í Hrísey - Almenn kennsla, stærðfræði,
danska
Árskógarskóli - Yngri barna kennsla
Barnaskóli Akureyrar - Sérkennsla
Gagnfræðaskóli Akureyrar - Smíðar, myndmennt
Glerárskóli - Heimilisfræði, tónmennt, smíóar, kennsla
yngri barna
Síðuskóli - Smíðar, heimilisfræði
Bröttuhlíðarskóli - Sérkennsla
Hvammshlíðarskóli - Sérkennsla
Hrafnagilsskóli - Raungreinar, heimilisfræði, tónmennt
Valsárskóli - Hannyrðir, smíðar, tónmennt
Grenivíkurskóli - Almenn kennsla, stærðfræói
Stórutjarnaskóli - Yngri barna kennsla, íþróttir
Hafralækjarskóli - Hannyrði, smíðar
Borgarhólsskóli - Almenn kennsla í 9. og 10. bekk, ís-
lenska, samfélagsfræðí, raungreinar, enska, danska, sér-
kennsla
Grunnskólinn í Lundi - Almenn kennsla, myndmennt,
tónmennt
Grunnskólinn á Kópaskeri - Almenn kennsla, tónmennt
Grunnskólinn á Raufarhöfn - Almenn kennsla, íþróttir,
heimilistræði, hand- og myndmennt
Grunnskólinn á Þórshöfn - Almenn kennsla, heimilis-
fræði, íþróttir, tónmennt, handmennt.