Dagur - 09.08.1994, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriójudagur 9.
Ráðhústorgi 5, 2. hæð
Gengiö inn frá Skipagötu
Sími11500
Nýtt á söluskrá
Stapasíða:
4-5 herb. efri hæð ásamt bílskúr -
ástand mjög gott - laus strax. Einnig I
sama húsi 2ja herb. um 85 fm. Laus
fyrir mánaðamót.
Byggðavegur:
3 herb. neðri hæð í tvíbýli um 85 fm.
Laus fljótlega.
Brekkugata:
4 herb. hæð I tvfbýli um 90 fm. Laus í
haust.
Arnarsíða:
3-4 herb. raðhús ásamt bílskúr samtals
um 134 fm. Laust strax.
Steinahlíð:
Glæsilegt 5 herb. raðhús á tveimur
hæðum ásamt bílskúr, samtals um 183
fm. 40 ára húsn. lán um 3.5 millj. Skipti
á minni eign á Akureyri eða Reykjavik-
ursvæðinu.
Kringlumýri:
5 herb. einbýlishús á tveimur hæðum
um 160 fm. Endurnýjað að mestu, -
skipti á minni eign.
Furulundur:
5 herb. endaraðhús á tveimur hæðum
um 122 fm. Laust eftir samkomulagi.
FASTEIGNA & M
skipasalaS&I
NORÐURLANDSO
Ráðhústorgi 5, 2. hæð
gengið inn frá Skipagötu
Opið virka daga
frá kl. 9.30-11.30 og 13.15-17.
Sölustjóri:
Pétur Jósefsson
Lögmaður:
Benedikt Ólafsson hdl.
ágúst 1994
MANNLÍF
Víð opnun hjá Jóni
Síðastliðinn laugardag var opnuð
myndlistarsýning Jóns Laxdal
Halldórssonar í Listasafninu á Ak-
ureyri. Jón Laxdal var bæjarlistar-
maður á Akureyri síðasta árið og
má á sýningunni sjá verk sem
unnin voru á þeim tíma.
Margt gesta var vió opnun sýn-
ingarinnar á laugardag og tók Jón
Haukur Brynjólfsson meöfylgj-
andi myndir við þetta tækifæri.
Sýning Jóns Laxdal mun standa til
31. ágúst og veróur opið alla daga
nema mánudaga milli kl. 14 og
18.
Jón Laxdal Halldórsson við hluta verka sinn á sýningunni.
Margir lögðu lcið sína í Listasatnið á laugardaginn. Hér tekur Jón Laxdal á
móti Valtý Sigurbjarnarsyni, forstiiðumanni Byggðastofnunar á Akureyri.
KVIKMYNDIR
Listamaðurinn á tali við sr. Birgi Snæbjörnsson, sóknarprest á Akureyri.
Haraldur Ingi Haraldsson, forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri, og Al-
freð Gíslason, íórmaður menningarmálanefndar Akureyrarbæjar, ræða hér
eflaust um verk Jóns Laxdal.
Fjögur brúðkaup og jarðarför:
Rómantísk gamanmynd
af bestu gerð
Vinningstölur laugardaginn 06.08.1994
"T22Y35)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 0 8.965.573
Z. 4af5* 8? 10 74.216
3. 4al5 172 7.443
4. 3af5 5.719 522
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 13.973.247
£ Æ & Ar 1
' upplýsingah:SImsv*ri91-681511lukkuúna991002
Borgarbíó hefur tekiö til sýningar
bresku myndina ;,Fjögur brúökaup
og jarðarför“. I aðalhlutverkum
eru Hugh Grant (Bitter Moon),
Andi MacDowell (Sex, Lies and
Videotape) og Rowan Atkinson
(Mr. Bean).
Höfundur handrits er Richard
Curtis, sá hinn sami og skrifaði
handritið aó Black Adder seríunni
og þáttunum um Mr. Bean. Leik-
stjóri er Mike Newell.
Þaö kemur blaóamanni ckki á
óvart aö í Bretlandi skuli vera tal-
aó um „Fjögur brúökaup og jarö-
arför“ sem mynd ársins, en hún er
sett í hóp metaðsóknarmynda fyrri
ára eins og „A Fish Called
Wanda“ og „The Crying Game“.
Strax fyrstu sýningarvikuna fór
myndin í fyrsta sæti yfir tekju-
hæstu myndirnar, sem segir sitt
um vinsældir hennar. Myndin hef-
ur einnig notið óhemju vinsælda í
Bandaríkjunum, og í kjölfariö
hlotió mikla umfjöllun í blöðum
erlendis.
Hugh Grant sem vakti athygli
fyrir leik sinn 5 myndinni Bitter
Moon hefur nú hlotió veröskuld-
aða athygli fjölmiðla erlendis og
er honum spáö miklum frama. I
„Fjögur brúökaup og jarðarför"
leikur Charles, lánlausan pipar-
svein, sem á ótal misheppnuð ást-
arsambönd aó baki, en eins og
nafn myndarinnar gefur til kynna
er hann í endalausum brúðkaupum
vina sinna og kunningja. I fyrsta
brúökaupinu hittir hann konu
drauma sinna (Andie MacDo-
well), sem er þó ekki alveg á
lausu, en þau eiga eftir að hittast í
fleiri brúökaupum og einni jarðar-
för. Myndin kemur manni eilíft á
óvart og ómögulegt er að segja til
um hvar Charles endar, en þar til
maður fær vitneskju um það nýtur
maður þess að horfa á aódragand-
ann. Margir skemmtilegir karakt-
erar krydda myndina og eru þeir
hver öórum betri en mcst mæðir á
Hugh Grant í hlutverki Charles og
er hann í einu orói sagt frábær.
Hér er á ferðinni rómantísk
gamanmynd, uppfull af frábærum
atrióum, mynd sem fer aldrei yfir
strikió meö aulalyndni eóa væmni
eins og oft vill verða, mynd sem
hittir beint í rnark, bæöi hvað
varðar gamansemina og rómantík-
ina. Þegar maður kemur út úr bíó-
inu er maður einfaldlega brosandi,
sæll og glaóur og er mest svekktur
yfir því aö brúðkaupin hafi ekki
verió fleiri og rnyndin lengri.
Þessa mynd má enginn sem vill
vera glaður láta fram hjá sér fara.
ÞÞ
Hestamenn
í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum
Sýning kynbótahrossa verður haldin á Melgerðismel-
um sunnudaginn 14. ágúst.
Hrossin verða dæmd laugardaginn 13. ágúst og hefj-
ast dómar kl. 10 f.h.
Skráning kynbótahrossa fer fram að Búgarði, Óseyri 2
frá og með mánudeginum 8. ágúst til 12. ágúst.
Hrossaræktarsambandið.