Dagur - 09.08.1994, Blaðsíða 10
10- DAGUR - Þriðjudagur 9. ágúst 1994
MANNLÍF
Svissnesku gestirnir
nutu veitinganna á
Hótel Húsavík þar sem
var hlaðborð með
svissneskum
skreytingum fyrir þá
og aðra gesti hótelsins.
Hótel Húsavík:
Þjóðhátíðardags Sviss mínnst
með brennu og flugeldum
Það voru 45 ferðamenn frá
Sviss sem héldu þjóðhátíðardag
sinn hátíðlegan á Húsavík 1.
ágúst. Kvöldverður var snæddur
á Hótel Húsavík, þar var hlað-
borð með svissneskum skreyt-
ingum, bæði fyrir hótelgesti og
hóp svissneskra ferðamanna.
Að loknum kvöldverði hélt fólk-
ið í skrúðgöngu niður í fjöru þar
sem tendraður var bálköstur og
kveikt á flugeldum.
Svisslendingarnir voru afar
ánægðir með þjóðhátíðardaginn
á íslandi, að sögn Páls Þórs
Jónssonar, hótelstjóra, sem stóð
fyrir þessari uppákomu
Páll sagði það sið að vera með
brennu á þjóðhátíðardaginn í
Sviss. Hann sagðist mjög þakk-
látur öllum sem aðstoðað hefðu
við að gera gestum sínum þessa
tilbreytingu, en starfsmenn
Húsavíkurbæjar hefðu hlaðið
bálköstinn að beiðni bæjarstjóra
og Sveinbjörn Lund, slökkviliðs-
stjóri hefði tekið að sér að
slökkva í honum á eftir. Sagði
Páll að gestunum hefði þótt
mikið til koma að slökkviliðið
gerði sér það ómak að drepa í
brennunni sem gerð var þeim til
gamans.
IM
Svisslendingarnir sungu ættjarðarlög í tilef'ni dagsins.
Tendraður var bálköstur í fjörunni enda mun það siður í Sviss að kveikja í
brennu á þjóðhátíðardaginn.
Að sjálfsögðu var bökuð terta í tilefni dagsins, prýdd svissneska fánanum.
Hér sker einn Svisslendinganna tertuna með bros á vör.