Dagur - 09.08.1994, Síða 9
H ESTAI ÞROTTI R
Þriðjudagur 9. ágúst 1994 - DAGUR - 9
Bikarmót Norðurlands:
Keppnissveit íþróttadeildar
Léttis stigahæst
Bikarmót Norðurlands í hesta-
íþróttum fór fram á Einarsstöð-
um í Reykjadal um helgina.
Einstök veðurblíða einkenndi
mótið og segja má að um tíma
hafi hitinn verió í það mesta, bæói
fyrir menn og hesta.
Þaó var sveit Hestamannafé-
lagsins Léttis á Akureyri sem bar
sigur úr bítum eftir tvísýna keppni
en þegar aðeins einni grein var
ólokið, gæðingaskeiði, skildi brot
úr stigi sveit Léttis og sveit HÍDS
að. I þessari lokagrein mótsins
tóks knöpum Léttis öörum betur
að leggja á skeið, þar með var sig-
urinn í höfn og Eyfiróingar héldu
heim með Dagsbikarinn eftirsótta
í farteskinu. I öðru sæti varó
Hestaíþróttadeild Skagafjarðar,
Hestaíþróttadeild héraðssambands
Suður-Þingeyinga varð í þriðja
sæti og Ungmennasamband Eyja-
fjarðar í fjóróa sæti.
Úrslit á Bikarmóti Norður-
lands í hestaíþróttum
Hlýðni
1. Elísabeth Jansen Sveðja HÍDS
2. Magnús Lárusson Brana HÍDS
3. Erlingur Guðmundsson Nátthrafn HSÞ
Hindrunarstökk
1. Magnús Lárusson Brana HÍDS
2. Birgir Ámason Viskí ÍDL
3. Ingólfur Helgason Jaðar HÍDS
Fjórgangur fullorðinna
1. Höskuldur Jónsson Þytur ÍDL
2. Sigrún Brynjarsdóttir Darri ÍDL
3. Anna Sif Ingimarsdóttir Glói HÍDS
4. Magnús Lárusson Eiríkur rauði HÍDS
5. Guðmundur Hannesson Gasella ÍDL
Tölt fullorðinna
1. Höskuldur Jónsson Þytur ÍDL
2. Jóhannes Ottósson Von ÍDL
3. Guómundur Hannesson Gasella ÍDL
4. Anna Sif Ingimarsdóttir Glói HÍDS
5. Hilmar Símonarson Gjafar HÍDS
Fimmgangur fullorðinna
1. Baldvin Ari Guðlaugsson Álmur ÍDL
2. Þór Jónsteinsson Börkur UMSE
3. Hilmar Símonarson Gjafar HÍDS
4. Jarþrúður Þórarinsd. Birta ÍDL
5. Þórarinn Amarson Kelda ÍDL
Gæðingaskeið
1. Baldvin Ari Guðlaugsson Álmur ÍDL
2. Bjami Páll Vilhjálms. Börkur HSÞ
3. Höskuldur Jónsson Krummi ÍDL
4. Þór Jónsteinsson Börkur UMSE
5. Þórarinn Illugason Fífill HSÞ
Fjórgangur unglinga
1. Líney Hjálmarsdóttir Öðlingur HÍDS
2. Þórir Rafn Hólmgeirsson Feldur ÍDL
3. Elvar Jónsteinsson Hlíóar ÍDL
4. Friögeir Jóhannsson Kolbrún HÍDS
5. Valgeróur Ámadóttir Jóakim HSÞ
Tölt unglinga
1. Líney Hjálmarsdóttir Öðlingur HÍDS
2. Þórir Rafn Hólmgeirsson Feldur ÍDL
3. Friðgeir Jóhannsson Kolbrún HÍDS
4. Valgerður Ámadóttir Jóakim HSÞ
5. Elvar Jónsteinsson Hlíðar ÍDL
Stigahæsti knapi mótsins var
Þór Jónsteinsson UMSE sem hlaut
228,97 stig. Sigurvegari í skeió-
tvíkeppni var Baldvin Ari Guð:
laugsson ÍDL með 169,20 stig. í
íslenskri tvíkeppni sigraði Hösk-
uldur Jónsson á Þyt, hann hlaut
135,80 stig en í ólympískri tví-
keppni varð Magnús Lárusson
HÍDS hlutskarpastur á Brönu, þau
hlutu 70,25 stig. Stigahæst ung-
linga var Líney Hjálmarsdóttir
HÍDS með 113,73.
Mótið fór fram á nýlögðum
keppnisvelli á félagssvæði hesta-
mannafélagsins Þjálfá á Einars-
stöðum. Keppendur og gestir voru
hinir kátustu með mótssvæðið og
völlinn og ekki spillti grillveisla í
boði Kaupfélags Þingeyinga á
laugardagskvöldinu fyrir. Þegar
húmaðið aó ómuðu tónar harm-
ónikunnar í dalnum og mótsgestir
tóku lagið. Næsta Bikarmót Norð-
urlands í hestaíþróttum verður í
höndum UMSE.
KLJ/Gunnar Frímannsson.
Sigurlið ÍDL, Baldvin Ari Guðlaugsson fyrirliði hanipar Dagsbikarnum.
Á fljúgandi skeiði, Baldvin Ari Guðlaugsson og Álmur í fararbroddi, Þór Jónsteinsson fylgir fast á eftir. Baldvin rcið
Álmi til sigurs bæði í fimmgangi Og gæðingaskeiði. Myndir: Gunnar Frímannsson.
Stigahæsti knapi mótsins, Þór Jón-
steinsson UMSE.
Ný stjarna í heimi hestaíþróttanna
sem vænta má mikils af í framtið-
inni, Líney Hjálmarsdóttir á Öðl-
ingi, þau kcpptu fyrir HÍDS.
'LP QQ *Q» □«
□ □ □
ilMMMlii8§lg
B®ioigun4l
Wsmfcm .
■ im ■ * J -"1 ■ B,
AbeinsKr. 270
Sólbabsstofan Hamri
sími 12080.