Dagur - 26.08.1994, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 26. ágúst 1994
FRÉTTI R
Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður:
„Getum fagnaö því
að ekki var samið
við Norðmenn í upphafi"
Steingrímur J. Sigfússon, al-
þingismaður Alþýðubandalags-
ins, hefur verið mjög gagnrýninn
á það sem hann telur vera linku-
leg viðbrögð og seinagang í deil-
unni við Norðmenn. Hann telur
afstöðu utanríkisráðherra hafa
verið að herðast að undanförnu
og því megi merkja vissa fram-
for í viðhorfum ríkisstjórnarinn-
ar og hún sé komin nær því að
standa við bakið á útvegsmönn-
um og sjómönnum en verið hef-
ur.
„Umræðan var gagnleg og þaö
voru ýmis sjónarmið reifúð sem
næstu skref í málinu, sérstaklega
hjá utanríkisráðherra, og vcrður aó
teljast óvenjulegt að ég mæli hon-
um bót. Eg tel ráðherrana hafa
haft mjög gott af því að heyra
sjónarmið útgerðarmanna og ég
tel að málinu verði haldið áfram
af fcstu og áræðni. En útgerðar-
menn verða hcr eftir sem hingað
til að treysta fyrst og fremst á
sjálla sig.
Ef Norðmenn taka íslenskan
togara þarna noröur frá eigum við
að mótmæla því mjög harkalega
sem broti á Svalbarðasamningnum
og eins á að grípa til aðgerða
stjórnmálalegs eólis gagnvart Nor-
egi. Ef Norðmenn taekju skip
vegna ágrcinings við Islcndinga
yrði það dropinn sem fyllti mæl-
inn og þá yrði málinu stefnt fyrir
alþjóðlegan dómstól. Þaó yróu þá
Norðmenn sem yróu þess vald-
andi að niálið færi fyrir alþjóðleg-
an dónrstól, en ekki Islendingar aó
fyrra bragði. Ég
held að ef málið
færi fyrir norsk-
an dóm mundu
þeir teygja sig
rnjög langt til
samkomulags til
þess að forðast
það að dómur
félli.
Norðmenn eiga mciri hags-
muna að gæta en Islendingar að
samningar takist fljótt því tíminn
og árangursríkar veióar í Barents-
Tómas Ingi 01-
rich, alþingis-
maður, sat
fundinn í Al-
þýðuhúsinu á
Akureyri sl.
miðvikudag
ásamt nokkrum
öðrum þing-
mönnum og tel-
ur fundinn hafa verið nokkuð ár-
angursríkan og menn staðið nær
samstöðu en áður. Tilgangur
fundarins hafi verið að skýra af-
hafi vinna með okkur. Því erum
vió ekkert að falla á tíma, en þær
staóreyndir hafa Norómönnum
ekki verió ljósar enn. Ég er ekki í
vafa um að hugsandi menn í
norskum sjávarútvegi sjá í hvílíkt
óefni þetta mál cr aó stefna fyrir
Norðmenn og því best aó semja
sem fyrst. Vió getum fagnað því
að ekki var samið í upphafi því þá
hefóu Islendingar fallist á mun
minni kvóta en rætt er um í dag,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon.
stöðu ríkisstjórnarinnar til þessa
deilumáls norður í höfum og það
hafi tekist ágætlega.
„Þaó skiptir miklu máli að þaó
sé leitað eins mikillar samstöðu
milli útgerðarinnar og ríkisstjórnar-
innar og nokkur kostur er og einnig
aö lcitaó sé eftir samstööu við
stjómmálaflokkana urn sameigin-
lega afstööu og vióbrögð í málinu.
Þessi fundur þokaði slíkri sam-
stöðu nær,“ sagði Tómas Ingi
Olrich, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins á Noróurlandi eystra. GG
Slippstööin Oddí hf:
Grænlensk-
ur togari
tekinn í
gegn
Þessa dagana stendur yfir
vinna við grænlenskan
rækjutogara hjá Slippstöð-
inni Odda hf. á Akureyri.
Nataarnaq, en svo nefnist
skipið, er í venjubundnu eft-
irliti og viðhaldi. Um þó
nokkuð stórt verkefni er að
ræða sem Marteinn Há-
mundarson vekefnisstjóri
sagðist reikna með að tæki
um 4 vikur. Meðal annars á
að taka upp aðalvél og Ijósa-
vél auk þess sem skipið verð-
ur málað hátt og lágt eða al-
menn „skvering“ eins og
Marteinn orðaði það.
Erlend skip eru ekki í slipp
á Akureyri á hverjum degi en
Slippstöðin Oddi varð hlut-
skörust í útboði sem fram fór
um þetta verkefhi. „Viö buö-
um I annað skip fyrir nokkru
og vorum alveg samkeppnis-
færir í verði en það fór til
Svendborg. Að þessu sinni
voram við á réttum stað,“
sagði Marteinn.
Hann sagði að útboð sem
þessi væru alltaf í gangi og ailt
eins mætti búast við fleiri slík-
um verkefnum svo ffamarlega
sem fyrirtækió sé á réttum staó
hvaö verð áhrærir. „Viö von-
um í þaó minnsta aó þetta
verði eitthvaó meira.“
Varðandi verkefni í vetur
sagði Mateinn aó of snemmt
væri að fullyróa nokkuð. „Það
eru ýmsar þreifingar í gangi en
ekkert sem er frágengið. Yfir-
leitt sjáum við frekar skammt
fram í tímann í þcssum efn-
um,“ sagði Martcinn. HA
GG
Tómas Ingi Olrich, alþingismaður:
„Útskýring á afstöðu
ríkisstjórnarinnar
tókst vel“
Punktar frá
aðalfundi
Landssamtaka
sauðfjárbænda
■ Aóalfundur Landssamtaka
sauðfjárbænda, sem lauk á
Reykjum í Hrútafirði sl. þriðju-
dag, samþykkti að sauðfjár-
bændur segi sig úr forfallaþjón-
ustu í sveitum
■ Aðalfundurinn samþykkti
ályktun um væntanlega samein-
ingu Stéttarsambands bænda og
Búnaóarfélags Islands þar sem
litið er svo á aó búgreinafélögin
hafi forustu um stefnumörkun í
viókomandi búgrein og fái aó-
stöðu til að sinna hagsmuna-
málum bænda í greininni, eink-
um sölumálum afuróa, rekstrar-
skilyrðum og hagræóingu.
Fram kemur í ályktuninni aö
búgreinafélögin eigi að krefjast
þess að „fá um það bil helming
fulltrúa á aðalfundi bændasam-
takanna og eðlilega hlutdeild í
stjóm þeirra."
■ Samþykkt var samhljóða
ályktun þar sem þess er krafist
að Landssamband sláturleyfis-
hafa, Landssamtök sauðfjár-
bænda og Stéttarsamband
bænda vinni að því að full fjár-
mögnun meö afuróalánum fáist
til staðgreiðslu sauðfjárafurða.
Fáist bankakerfið ekki til fyrir-
greiðslu, verói krafist ríkis-
ábyrgðar og leitað til erlendra
banka um fyrirgreióslu.
■ Aðalfundurinn samþykkti
ályktun þar sem lýst er ánægju
meó aukið samstarf Land-
græóslunnar og bænda. Jafn-
framt harmaði fundurinn endur-
tekinn niðurskurð ríkisvaldsins
á fjármagni til landgræðslu.
■ Um ullarmál var samþykkt
ályktun þar sem skorað er á
stjóm LS að beita sér fyrir því
að nú þegar verði endurskoðuð
verölagning til bænda á dökku
sauóalitunum í ull, þar sem
þetta sé orðið eftirsótt vara.
■ Fundurinn samþykkti aó
hann teldi eðlilegt, miðað við
birgóastöðu og horfur í sölu-
málum sauðfjárafurða, að
greiðslumark til framleiðenda
fyrir verðlagsárið 1995-1996
verói 7.400 tonn.
■ Þá samþykkti fundurinn að
mæla meö því að „kjöt úr slátr-
un utan hefóbundinnar slátur-
tíóar sem selst ferskt, sé undan-
þegiö verðskerðingargjaldi.“
■ Samþykkt var samhljóða til-
laga um að endurskoðaöar
verði reglur um kjötmat þannig
aó aukið tillit veröi tekió til
vöðvabyggingar.
■ Aðalfundur sauðfjárbænda
samþykkti aó mótmæla hug-
mynd um vaxtahækkun hjá
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Ahersla er lögó á að Stofnlána-
deild neiti sauófjárbændum
ekki um lán til fjárhúsbygg-
inga, geti þeir sýnt fram á
nauðsyn þess að endumýja fjár-
hús til hagræðingar á búurn sín-
um.
■ Samþykkt var tillaga þar sem
lagt er til að stjóm LS „skoði
alla möguleika á aö bændur
öólist rétt til atvinnuleysisbóta
á þcim búum sem ekki ná
grundvallar bústærð. Einnig
verði tryggt að bændur sem
hætta búskap fái bætur hafi þeir
rétt til þeirra".