Dagur - 26.08.1994, Blaðsíða 3

Dagur - 26.08.1994, Blaðsíða 3
FRETTIR Föstudagur 26. ágúst 1994 - DAGUR - 3 Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra, á aðalfundi Stéttarsambands bænda: ískyggileg tekjulækkun sauðfjárbænda „Framvindan í sauðflárræktinni er ekki í samræmi við þær vonir sem menn gerðu sér þegar bú- vörusamningurinn var undirrit- aður og nægir að nefna tekju- markið eins og það er skilgreint í búvörulögum í því sambandi. Heildartekjur greinarinnar hafa minnkað verulega og það sem verra er; tekjur einstakra bænda Loðnumiðin hafa færst að miðlínu Heiidarloðnuaflinn var í gær kominn upp í 169.317 tonn, sem er 27% af úthlutuðum kvóta sem er alls 636.500 tonn. Veiðisvæðið er við miðlínu milli íslands og Grænlands, norður af Djúpál, og þar fengust alls 5.395 tonn í gær. Mestur afli íslensku bát- anna var hjá ísleifi VE, 1.090 tonn, en hann landaði í Krossa- nesi. Höfrungur AK fór með 854 tonn til hcimahafnar, Akraness; Sunnuberg SU með 792 tonn til Grindavíkur en þangað voru væntanleg Víkurberg GK og Há- berg GK nteð 1.200 tonn; Þórður Jónasson EA með 684 tonn til verksmiöju SR-mjöl á Siglufirði; færeyski báturinn Christian í Grjótinum með 1.101 tonn og Guðmundur VE með 913 tonn til Seyóisfjarðar auk þess scm norski báturinn Talbot var væntanlegur þangaó með 800 tonn, og Jón Kjartansson SU með 1.062 tonn og grænlenski báturinn Ammasat með 604 tonn til Eskifjarðar. Landanir úr erlendum skipum eru nú komnar í 25.106 tonn, en Færeyingar og Norðmcnn hafa hvor þjóð urn 70 þúsund tonna loðnukvóta svo alls hefur verió landaó 194.423 tonnum hjá 15 loðnuverksmiðjunum, en alls cru þær 20 talsins. GG Vera Moda verslun opnuð á Akureyri Næstkomandi flmmtudag, 1. september, verður opnuð fata- verslunin Vera Moda að Brekkugötu 3 á Akureyri, þar sem verslunin Parið var áður. Að opnuninni stendur samnefnd verslun í Reykjavík. Margrét Jónsdóttir, eigandi Vera Moda, segir aó verslunin hafi ávallt lagt áherslu á lágt vöru- verð og svo verði einnig á Akur- eyri. Boöið vcrði upp á sömu vör- ur í verslunni á Akureyri og í Reykjavík og verólagið verði það sama. Margrét segir að allar vörur séu sérpantaðar og komi sending- ar vikulega beint frá framleiðand- anum til Akureyrar á hverjum flmmtudegi. Vera Moda er þekkt nafn í heimi fataverslananna. Vera Moda verslanirnar eru nú orðnar hátt á fjórða hundrað út um allan heim auk þess að reka eigin fataverk- smiðjur, einkum á Ítalíu. Verslunin á Akureyri verður rekin sem sjálfstæð eining undir stjórn Ingunnar Sigurgeirsdóttur og Jónasínu Arnbjömsdóttur. óþh hafa minnkað ískyggilega,“ sagði Halldór Blöndal, landbún- aðarráðherra, í ræðu sinni á að- alfundi Stéttarsambands bænda, sem hófst á Flúðum í Hruna- mannahreppi í gær. Halldór varöi verulegum hluta ræóutímans í umtjöllun um sauð- fjárræktina og kvað heildartekjur greinarinnar hafa minnkað um 47% mióað við meðaltal áranna 1985 til 1991, á sania tíma og sjötti hver sauðfjárbóndi hefur hætt búskap. Halldór sagði að nú lægi fyrir ákvöröun um heildar- grciðslumark sauðfjárbænda fyrir næsta verðlagsár. Greiðslumarkið vcrður 7820 tonn aó þessu sinni og eykst þaó því um 150 tonn milli ára. Þessi aukning stafar af meiri sölu á árinu 1993 en árinu á undan en heildarsala hefur orðió Vilhjálmur Ingi Árnason, for- maður Neytendafélags Akureyr- ar og nágrennis, lætur ekki stað- ar numið í þeirri viðleitni sinni að rétta hag neytenda gagnvart bönkunum. Skemmst er að minnast úrskurðar sem ríkis- skattstjóri felldi í framhaldi af erindi Vilhjálms Inga, þar sem bönkum var tjáð að þeim væri skylt að gefa út fullgilda reikn- inga vegna þjónustugjalda. Nú hefur Vilhjálmur Ingi sent ríki- skattstjóra annað erindi og emb- ættið beðið að úrskurða hvort Landsbanki íslands brjóti skattalaga- eða samkeppnislög. Um er að ræða vörur sem bankastofnanir selja en jafnframt er hægt að fá keyptar í almennum búðum, s.s. pcningaveski og buddur ýmiskonar. M.ö.o. vörur sem bankar selja í samkeppni við almennar verslanir. Vilhjálmur Ingi hefur í fjögur skipti með mánaðar millibili farið í báðar af- greiðslur Landsbankans á Akur- cyri og keypt slíkar vörur en ekki fengið löglega reikninga, kassa- kvittanir eða annað slíkt, þrátt fyr- um 8080 tonn. Landbúnaóarráð- herra sagði því hins vegar ckki að neita að söluhorfur kindakjöts á yfirstandandi ári væru talsvert lak- ari, því nýjustu tölur bcndi til þess að birgðir kindakjöts séu nú um 1600 tonn og hafi því aukist frá sama tíma í fyrra. Halldór Blöndal sagðist í cng- um vafa um nauðsyn þess að nýr búvörusamningur verði gerður og línurnar skýrðar til þess að bænd- ur geti bctur áttað sig á hvað fram- undan sé. Slíkt sé forsenda þess að viðskipti með greiðslumark geti gengið grciðlega fyrir sig. Hann kvað bændur þurfa aó þekkja rekstrarumhverfi sitt nokkur ár fram í tímann til þess að þeir geti tekið ákvarðanir um fjárhagslegar skuldbindingar er leitt geti til hag- ræðingar og endurskipulagningar í ir ítrekaða beiðni. Almennum verslunum er hins vegar skylt að gefa út slíka reikninga og skila virðisaukaskatti af sinni sölu. Peningaskápar og -flutningabílar „Þaö er alvcg ljóst að í þessu til- fclli selur bankinn þessar vörur án þess að gefa út löglegan reikning og skilar engum virðisaukaskatti. Nú er það svo að bankastarfsemi er ekki virðisaukaskattsskyld cn ég get ekki séð að þctta geti flokkast undir almcnna bankastarfsemi. Jafnvel þó þctta tengist starfsemi bankans þá gætu þeir allt cins farið að stunda húsgagnasölu, selt skápa sem heita peningaskápar og einnig stundaó bílasölu meö því að selja bíla og kalla þá peningafiutninga- bíla. Spurningin er hvar mörkin eru,“ sagði Vilhjálmur Ingi. Hann sagði cngan vafa í sínum huga að um væri að ræða sam- keppnisverslun og væri þ.a.l. virð- isaukaskattsskyld. Hann benti einnig á annan þátt í bankastarf- semi, þjónustu vió félög ýmiskon- búrekstrinum. Slíkt fyrirkomulag eigi aó geta skapað forsendur fyrir hægfara þróun upp á viö. Halldór Blöndal ræddi nokkuó um hvort æskilegt sé að binda bcingrciðslur við framleiðslumagn á þann liátt sem nú sé gcrt eða hvort réttara væri að auka sveigj- anleika þar um og minnti á skýrslu OECD um íslcnskt cfna- hagslíf í því sambandi, þar sem lagt væri til að rjúfa þessi tengsl að nokkru. Hann nefndi einnig það sem hann kvaóst hafa gert að umtalsefni áður, aó bændur ættu að geta selt afurðir heima á búum sínum. Halldór tók fram að með því væri hann ekki mæla með ólöglcgri heimaslátrun. Landbúnaðarráðherra vék einn- ig að hagræðingu í mjólkuriðnað- ar. Þessa þjónustu getur hver og einn vcitt og hún ætti því að vera virðisaukaskattsskykl. „Ef svona starfscmi fcr fram úr 190 þús. kr. á ári þá cr hún virðis- aukaskattsskyld. Máliö cr aó cng- inn hcl'ur haft fyrir því aö kæra bankana fyrr en ég kæri Lands- bankann með formlegum hætti. Ríkisskattstjóri verður þá að svara því með formlcgum hætti hvort þctta sé virðisaukaskattsskylt," sagði Vilhjálmur Ingi. Hann kvaðst einnig hafa scnt Vcrslunarráði Islands upplýsingar um málið, því í sínum huga væri ljóst aó aðilum innan þeirra vé- banda væri mismunað, þ.c. versl- anir þurll að standa skil á virðis- aukaskatti af sömu starfsemi og bankarnir sleppa við. „I raun er um að ræða sama grundvallaratriði og mcö þjónustu- gjöldin fyrr á árinu. Bönkunum ber að gcfa út reikninga fyrir þjón- ustu, sem þeir vilja krefjast grciðslu fyrir. Mitt cr aö gcfast ckki upp í þessu niáli og ég mun halda áfram,“ sagði Vilhjálmur Ingi að lokum. inum og tók undir áhyggjur Landssambands kúabænda í því efni. Tímaskeiö hins verndaóa umhverfis hcyrði brátt sögunni til og við því yrði að bregðast. Að lokum vék Halldór Blöndal að samciningarmáli Búnaðarfé- lags Islands og Stéttarsambands bænda og kvaö ljóst aó staða bú- greinafélaganna innan nýrra sam- taka væri meó erfiðari málum varðandi sameininguna. Ákvörðun um sameiningu mætti hins vegar ekki slá á frest, til þess væri um- ræðan of langt á vcg komin. Hann cndurtók að því búnu l'yrri yllrlýs- ingar um að hann myndi beita sér l’yrir því að sameining bændasam- takanna myndi ekki leióa til skerðingar á framlögum til lcið- beiningaþjónustu landbúnaðarins. ÞI/Flúðum Svona erindi oft vísbending Ragnar M. Gunnarsson hjá Eftir- litsskrifstofu ríkisskattstjóra kann- aðist vel vió erindi Vilhjálms Inga. „Viö crum rétt að byrja að skoða þetta mál. Það fær sömu meðferð og önnur crindi sem hingaö bcrast. Þctta er rætt hjá yfirstjórn ríkisskattstjóra og síöan vcrður erindinu svaraó, viö kynn- um hlutaðcigandi aðila niðurstöð- una og fylgjum því síðan eftir aó þessu sé framfylgt," sagði Ragnar. Sýnist þér að Neytendafclag Akureyrar og nágrcnnis hall citt- hvað til síns máls? „Svona erindi eru oft vísbend- ing um aó eitthvað sé ekki í lagi. Eg vil hins vcgar ekki tjá mig um það fyrirfram, áður en málið cr rætt hér innan embættisins. Slíkt væri óeðlilegt," sagði Ragnar. Hann sagði crfitt að segja til um hvenær niðurstöðu væri að vænta. „Mál cru afgreidd eftir því sem þau koma inn og það fcr eftir því hvernig okkur gengur aö vinna úr bunkanum hvenær niðurstaða fæst,“ sagói Ragnar. HA Bundið slitlag komið á Öxna- dalsheiði Senn styttist í að þjóðvegur- inn milli Akureyrar og Reykjavíkur verði aílur kom- inn með bundið slitlag. Þetta eru tímamót sem ökumenn hafa lengi beðið eftir og um aðra helgi má gera ráð fyrir að þessi draumur rætist. I fyrrakvöld kl. 19.40 luku vegagerðamenn á Öxnadals- heiöi við lagningu bundins slit- lags á síðasta vegarkafla heið- arinnar og þá var uinfcrð hleypt á veginn til bráðabirgða. Enn er smávægilegur loka- frágangur eftir á veginum og að honum loknum verður leið- in formlega vígð. Senn styttist í verklok í Botnastaðabrekku (Bólstaðar- hlíöarbrekku) í A-HúnavaUis- sýslu. Þar með verður síðasti vegarkaflinn milli Akurcyrar og Reykjavíkur kominn með bundið slitlag. Það er Suðurverk hf. sem annast framkvæmdir í Botna- staðabrekku og Jónas Snæ- bjömsson hjá Vcgagcrð ríkis- ins á Sauðárkróki sagóist reikna með að vegurinn yrói opnaður fyrir umferð um aóra helgi. Þá verður búið að leggja slitlagið. Að hans hans sögn hcfur verkið gcngið nokkuð vel en lokafrágangur yilji oft veróa seinlegri en menn geri ráð fyrir og vegurinn yrði því ekki tilbúinn fyrr en um aðra helgi sem fyrr segir. HA Tilkynning um ferð augnlæknis Loftur Magnússon, augnlæknir verður til viðtals: Á Kópaskeri 29. og 30. ágúst. Á Raufarhöfn 31. ágúst og 1. september. Á Þórshöfn 2. og 3. september. Tímapantanir á viðkomandi heilsugæslustöðvum. Landlæknir. Stunda bankar skattsvik? - um það snýst erindi Neytendafélags Akureyrar og nágrennis til ríkisskattstjóra

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.