Dagur - 26.08.1994, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Föstudagur 26. ágúst 1994
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN:
HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
GEIR A. GUÐSTEINSSON,
LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Sú niöurstaða sem náðist á fundi útvegsmanna
með ráðherrum á Akureyri sl. miðvikudag er tví-
mælalaust sú skynsamlegasta í stöðunni.
Deila Norðmanna og íslendinga um fiskveiði-
réttindi í Barentshafi er þess eðlis að eina rök-
rétta leiðin er að leita eftir samningum við Norð-
menn og eðlilegt er að það verði næsta skref í
deilunni af hálfu íslenskra stjórnvalda. Hins veg-
ar er margt sem bendir til þess að norskir krata-
ráðherrar fáist ekki að samningaborðinu fyrr en
búið verður að telja upp úr kjörkössum vegna
þjóðaratkvæðagreiðslu Norðmanna um ESB-að-
ild. Það er út af fyrir sig í góðu lagi, vegna þess
að það er í raun ekkert sem rekur á eftir íslend-
ingum að leiða málið til lykta.
Þrátt fyrir að Norðmenn hafi hingað til ekki
viljað hlusta á hugmyndir um samninga við ís-
lendinga og í raun talið hugmyndir þar að lútandi
fáránlegar, þá bendir ýmislegt til þess að þeir
telji sér ekki annað fært en að setjast að samn-
ingaborði. Norðmönnum er smám saman að
verða ljóst að málið snýst ekki einungis um veið-
ar íslendinga norður í Barentshafi. Þeir yita að
skynsamlega nýtingu norsk- íslenska síldarstofn-
ins, sem augljóslega styrkist ár frá ári, verður að
marka í samningum íslendinga og Norðmanna.
Þetta vita norsk stjórnvöld, hvað svo sem líður
stóryrtum yfirlýsingum norskra ráðherra.
Það er engum blöðum um það að fletta að víg-
staða íslendinga í deilunni um veiði í Smugu og
Svalbarðasvæði hefur styrkst umtalsvert. Líkurn-
ar á því að íslendingar fái kvóta þarna norðurfrá
hafa aukist.
Deilan um veiðar í Barentshafi er erfið og við-
kvæm og því er afar mikilvægt að íslendingar
stígi ekki feilspor. Næstu skref málsins verða að
vera ígrunduð og ákveðin. íslendingar verða að
halda ró sinni - deilan reynir fyrst og fremst á
taugar Norðmanna. Pressan er á þeim.
Eftír fundinn á Akureyri sl. miðvikudag virðist
Ijóst að stjórnvöld og útgerðarmenn eru sammála
um næstu skref. Þessi samstaða er afar mikilvæg
og mun styrkja stöðu okkar. Á því leikur enginn
vafi.
HVAÐ ER AÐ CERAST?
SSSól í Sjallanum
Stórhljómsveitin SSSól leikur fyr-
ir dansi í Sjallanum á Akureyri í
kvöld, föstudagskvöld. Annaó
kvöld verður diskótek í Sjallanum
og Arnar Guðmundsson verður í
Kjallaranum í kvöld og annað
kvöld.
Kaffíhlaðborð á
Engimýri
Eins og venjulega veróur boóió
upp á kaffihlaðborö nk. sunnudag
á gistiheimilinu Engimýri í Oxna-
dal. Veró pr. mann 600 kr. Hesta-
leiga er á staönum.
Gleðigjafamir á
Hótel KEA
Annaó kvöld, laugardagskvöld,
leikur hljómsveitin Gleóigjafarnir
ásamt söngvurunum Ellý Vil-
hjálms, Bjarna Ara og Andra
Föstudagur 26. ágúst
Listasumar ’94 hefur staöið fyrir
myndlistarsýningum í verslunar-
glugga Vöruhúss KEA í göngugöt-
unni á Akureyri. Nú verður sett þar
upp síðasta verk sumarsins en það er
Brynhildur Kristinsdóttir sem sýn-
ir. Hún stundaði nám við Myndlista-
skólann á Akureyri en lauk námi frá
skúlptúrdeild Myndlista- og handíöa-
skóla íslands 1989. Brynhildur vann
á myndhöggvaraverkstæði á Ítalíu á
árunum 1990 og 1992. Einnig hefur
hún tekið þátt í samsýningum og
haldið eina einkasýningu auk þess að
vinna mcð Önnu Richardsdóttur að
dans- og spunaverkefnum sem hafa
verið sýnd í Reykjavík og á Akur-
eyri.
Vinda Mey. í kvöld kl. 22 vcrða
Pétur Eyvindsson & Co meó dagskrá
í Deiglunni. Pétur er tónsmiður og
einn fremsti gítarleikari í „avent gar-
de“ gítarleik á Akureyri. Hann hefur
starfaó í ýmsum hljómsveitum og
gefið út rit, m.a. Ijóóabókina Verk
ásamt öðrum.
Laugardagur 27. ágúst
Opnuó verður sýning á vefkum Þjóð-
verjans Clas P. Köster. Á árunum frá
1988 til 1991 dvaldi hann mikið á ís-
landi og stundaði m.a. nám við
Myndlista- og handíóaskóla Islands
1990-1991. Vorió 1991 hóf Clas nám
við Freie Kunst-Studien-Stutte í Ott-
ersberg í Þýskalandi þar sem hann
nam listþjálfun og kennslufræði. Með
því námi hefur hann haldió námskeió
í teikningu.
Lokadansleikur Listasumars '94
Bachman fyrir dansi á Hótel
KEA. Mióaverð á dansleikinn kr.
900. Húsió veróur opnað fyrir
aðra en matargesti kl. 23.
Milljónamæringar
og Hunang í 1929
Annað kvöld veróur lokaball
Listasumars ’94 á Akureyri í
skemmtistaðnum 1929. Fyrir
dansi leika Milljónamæringarnir
með Pál Óskar Hjálmtýsson í
broddi fylkingar og Hunang. Á
miönætti veróur efnt til flugelda-
sýningar en síóan heldur fjörið
áfram inni í 1929.
Eyjólfur á
Við Pollinn
Hinn eldhressi Eyjólfur Kristjáns-
son tekur lagið á veitingastaðnum
Við Pollinn á Akureyri í kvöld og
annað kvöld. Rétt er aó minna á
verður í kvöld í 1929 (sjá annars
staðar á síðunni).
Sunnudagur 28. ágúst
Edda Erlendsdóttir, píanóleikari,
heldur tónleika í Safhaóarheimili Ak-
ureyrarkirkju nk. sunnudagskvöld kl.
20.30. Nánar verður greint frá tón-
leikunum í Degi á morgun, laugar-
dag.
Mánudagur 29. ágúst
Næstkomandi mánudag verður af-
mæli Akureyrarbæjar og í tiiefni af
því verður afhjúpað verk eftir Mar-
gréti Jónsdóttur, leirlistakonu, í
Lystigarðinum. Margrét var bæjar-
listamaður árið 1992-1993 og færir
hún bænum þetta verk að gjöf. Verk-
ið tileinkar Margrét bamfóstrum á
Akureyri fyrr og nú og er þeim sér-
staklega boðið að vera við afhjúpun-
ina.
Við athöfhina flytur Hólmfríóur
Benediktsdóttir nokkur lög við undir-
leik Helgu Bryndísar Magnúsdóttur.
Einnig leikur blásarakvintett fyrir
gesti Lystigarðsins. Dagskráin hefst
kl. 17 og eru allir velkomnir. í tilefni
afmælisins eru Öll söfh bæjarins opin
og er aðgangur ókeypis. Einnig er
síðasti sýningardagur á sýningu Að-
alheiðar S. Eysteinsdóttur í Deiglunni
og Jóns Laxdal í Listasafhinu.
Myndlistarsýningar
Eins og áður segir verður opinberuð í
dag í Glugganum í Hafnarstræti sýn-
ing á verkum Brynhildar Kristins-
dóttur og á Café Karolínu verður
opnuð sýning á verkum Clas P. Köst-
er.
Aðrar sýningar um helgina cru
annars vegar sýning Aðalheiðar S.
Eysteinsdóttur í Deiglunni (stutt við-
tal við listakonuna birtist í Degi á
morgun), sem lýkur á mánudag, og
sýning á verkum Jóns Laxdal í
Listasafninu á Akureyri, sem sömu-
leióis lýkur á mánudag.
kaffihlaóboróið á sunnudaginn kl.
15-18. Lifandi tónlist á meöan á
kaffihlaóborðinu stendur.
Sveppatínsluferð
Ferðafélags Akureyrar
Á morgun, laugardag, verður farin
sveppatínsluferð á vegum Ferða-
félags Akureyrar undir leiðsögn
Guðríðar Gyðu Eyjólfsdóttur. Far-
ió verður frá skrifstofu félagsins
eftir hádegi og tíndir sveppir. Að
því loknu verður haldið heim í hús
og þar verður þeim sem það kjósa
boðið upp á leiósögn í meðhöndl-
un sveppanna. Þátttakendur í ferð-
inni þurfa að hafa með sér lítinn
beittan hníf og hentugt ílát, tága-
karfa hentar best, en einnig má
notast viö hörö ílát þar sem loft
getur Ieikið um sveppina. Plast-
pokar henta ekki sem ílát undir
sveppina. Skráning í ferðina er á
skrifstofu félagsins Strandgötu 23,
sími 22720.
Guðbjörg sýnir á
Hjalteyri
Guðbjörg Ringsted sýnir um þcssa
mundir verk sín á Hótel Hjalteyri.
Vert er að minna á að í hönd fer
síóasta sýningarhelgin en sýning-
unni lýkur nk. föstudag.
Göneuferð um
Innbæinn
Nk. sunnudag stendur Minjasafnið
á Akureyri fyrir síðustu göngu-
feróinni um Innbæinn á þessu
sumri. Farnar hafa verió níu ferðir
og hafa yfír 200 manns notió leið-
sagnar um elsta hluta bæjarins. Að
venju verður lagt af stað frá Lax-
dalshúsi kl. 13.30. Gengið verður
um gömlu kaupstaðarlóðina, inn
eftir Fjörunni og endað við Minja-
safnið. Þátttaka er fólki að kostn-
aðarlausu.
Laxdalshús verður opið frá kl.
13 til 17 á sunnudag. Þar hangir
uppi Ijósmyndasýningin „Akur-
eyri - svipmyndir úr sögu bæjar”
sem sýnir þróun byggðar á Akur-
eyri. Einnig veróur sýnt mynda-
bandió „Gamla Akureyri".
Minjasalnið er opið alla daga
frá kl. II til 17 fram til 15. scpt-
ember og er aðgangseyrir 200
krónur. Frítt verður inn á safnið á
afmælisdegi Akureyrarbæjar nk.
mánudag og verður Laxdalshús
jafnframt opið þann dag frá kl. 11
til 17 í síðasta skipti í sumar.
Sniglabandið og
Borgardætur á
Hofsballi
Annaó kvöld, laugardag, verða
Borgardætur með tónleika á Hótel
Tanga á Vopnafirði kl. 21.30 og
síðan taka þær Borgardætur lagið
meö Sniglabandinu á landsfrægu
Hofsballi frá kl. 23. Hofsböllin
eru aö sögn þau allra skemmtileg-
ustu á Austurlandi.
Fyrirlestur og
miðlun
Einar Gröndal verður með fyrir-
lestur um andlega þróun mannsins
og miðlun frá Maitreya í kvöld,
föstudag, kl. 20 í Zontahúsinu Að-
alstræti 54. Aðgangseyrir er kr.
800.
Frumsýning á True
Lies í Borgarbíói
í kvöld kl. 21 verður frumsýnd í
Borgarbíói á Akureyri og Há-
skólabíói og Sambíóunum stór-
myndin True Lies með Arnold
Schwarzenegger og Jamie Lee
Curtis í aðalhlutverkum. Þetta er
sannkölluð stórmynd og hel'ur hún
fengið frábæra dóma bæði vestan
hafs og austan. í kvikmyndatíma-
ritinu Empire fékk myndin til
dæmis fjórar stjörnur, sem þýöir
„mjög góð“. Leikstjóri myndar-
innar er James Cameron.
I umsögnum þekktra kvik-
Jamie Lcc Curtis í hiutvcrki eigin-
konunnar.
myndatímarita er True Lies hlaðin
lofi. Sagt er að myndin sé mjög
vel geró, ekki síst tæknibrellur,
hún sé ótrúlega spennandi og í
henni sé sömuleióis húmor.
I myndinni er greint frá Harry
Tasker (Schwarzenegger), sem
hefur að því er eiginkona hans
(Jamie Lee Curtis) best veit verið
tölvusölumaður í 15 ár. Hiö sanna
hins vegar er að Tasker hefur all-
an tímann starfað sem njósnari.
Eiginkonan kemst að þessu og
ýmislegt óvænt gerist.
Framleiðsla True Lies kostaði
enga smáaura, hvorki meira né
minna en 150 milljónir dollara,
eóa sem svarar til yfir 10 milljarða
íslenskra króna. Sagt er að enginn
kvikmyndaleikstjóri fyrr eða síðar
hafi fengið aðrar eins fúlgur fjár
til framleiðslu einnar kvikntyndar.
En Cameron gat með ákveðninni
og lrekjunni sannfært framlcið-
endur um að hann væri með gull-
egg í höndunum og því lekk hann
endalausar fjárvcitingar. Ekki
verður annað séð en að framleið-
endunum ætti að verða að ósk
sinni, því myndin hefur hlotið gíf-
urlcga aðsókn og rakar saman
pcningum.
Jarnes þessi Cameron er annars
enginn meóal leikstjóri. Hann hef-
ur leikstýrt myndum scm hafa
fengið gríðarlega aðsókn og nægir
þar að nefna Terminators, Aliens
og Thc Abyss.
Arnold Schwarzenegger í hlutverki
Harry Tasker.