Dagur - 28.12.1994, Blaðsíða 4

Dagur - 28.12.1994, Blaðsíða 4
n i i a r~\ k *n n »- M - u nn ,.j.\ .s.;* /j 4 - DAGUR - Miðvikudagur 28. desember 1994 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), KRISTÍN LINDA JÓNSDÓHIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir). LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 LEIÐARI--------------------- Húsnæðismál Háskólans Við lokaafgreiðslu fjárlaga fyrir komandi ár á síð- asta starfsdegi Alþingis fyrir jól var samþykkt heimild til handa fjármálaráðherra til að kaupa húsnæði fyrir Háskólann á Akureyri. Þessi sam- þykkt felur í raun í sér heimild til þess að kaupa núverandi húsnæði Vistheimilisins Sólborgar fyr- ir skólann og í tengslum við það verði á næstu árum byggð kennsluhús á Sólborgarsvæðinu. Þessari niðurstöðu fjárlaganefndar og Alþingis ber vissulega að fagna, hún er í samræmi við vilja allra þeirra sem um málið hafa fjallað, há- skólanefndar, ráðuneyta, bæjaryfirvalda á Akur- eyri og fleiri. Á borði skipulagsyfirvalda á Akureyri eru hugmyndir um framtíðaruppbyggingu Háskól- ans á Sólborgarsvæðinu og forsvarsmenn skól- ans vinna nú að úttekt á því hvernig starfsemi hans verði best fyrir komið á þessu svæði á næstu árum. Ljóst er að núverandi húsnæði Sól- borgar rúmar ekki nema hluta starfsemi háskól- ans og því er ljóst að á næstu árum verður að byggja þarna upp kennsluhús. Háskólinn á Akureyri er ekki gömul stofnun en hann er fyrir löngu búinn að sprengja utan af sér núverandi húsnæði. Vöxtur háskólans hefur verið eftirtektarverður og hann er til marks um framsýni þeirra sem börðust fyrir stofnun skól- ans á sinum tíma. Gagnrýnisraddirnir voru vissulega fyrir hendi og til voru þeir þingmenn sem vildu ekkert af þessum skóla vita og töldu stofnun hans fjarri allri skynsemi. Þessar gagn- rýnisraddir heyrast ekki lengur. Menn viður- kenna að háskólastofnun utan stærsta þéttbýlis- svæðisins er mikilvægur þáttur í að að styrkja byggð á landsbyggðinni. Auðvitað hefur komið á daginn eins og spáð var í upphafi að háskólinn hefur gífurlega mikið að segja í atvinnulífinu á Akureyri. Fyrir utan alla á þá sem við stofnunina starfa skapar skól- inn eftirspurn eftir hverskyns þjónustu og sá þáttur skal ekki vanmetinn. Það fer vel á því að byggja Háskólann á Akur- eyri upp til framtíðar á Sólborgarsvæðinu, 1 hjarta bæjarins. Þetta svæði gefur ýmsa mögu- leika og mun örugglega henta vel sem háskóla- svæði. Mengunarlaust álver við EyjaQörð Fyrir nokkrum árum tóku Norð- lendingar þátt í miklu kapphlaupi sem snéri að því hvort byggja ætti álver við Eyjafjörð. Sitt sýndist hverjum en margir sögðu þetta ekki vera mál sem væri í samræmi við stefnu bæjarins í feróamálum og matvælaiðnaði. Allir vita nú hvemig þetta fór, og er ekki ætl- unin að velta sér upp úr því hér. Eina ástæðan fyrir því að ég minnist á þetta er að nú er annað slíkt tækifæri rétt vió nefið á okk- ur, en það eru hugmyndir varð- andi flutning Islenskra sjávaraf- urða til Akureyrar. Fyrir mér er þetta eitt stærsta tækifæri sem þetta bæjarfélag hefur staðið frammi fyrir undanfarin ár. Er möguleiki að reka eitt af stærstu fyrirtækjum landsins á Akureyri? Hvað er það sem bærinn þarf aó bjóða upp á? Er brúanlegt bil milli þarfa I.S. og þess sem bærinn hef- ur að bjóða? Er þessi hugmynd betur samræmanleg heildarstefnu bæjarins en álverið? Þetta eru allt spurningar sem þarf að svara, en þeim verður ekki svaraó nema menn spyrji fyrst. Þaö er einmitt tilgangur þessara skrifa að vekja almennar umræður urn þetta mik- ilvaíga mál. Áhugi fjölmiðla á þessu máli kom til fyrir rúmum mánuði er Jakob Bjömsson bæjarstjóri á Ak- ureyri viðraði þá hugmynd opin- berlega að Í.S. flytti norður gegn því að Utgerðarfélag Akureyringa færi að selja afurðir sínar í gegn- um þeirra sölukerfi. Þessi hug- mynd olli miklu fjaðrafoki til að byrja með en síðan datt allur vind- ur úr umræðunni er stjóm Ú.A. sagði þetta mál ekki einu sinni hafa komið til umræðu. * Ahrifin fyrir Akureyri Til hvers ætti bæjarstjórn Akur- eyrar að vera að blanda sér í þetta mál? Það ætti að vera öllum ljóst sem um þetta fjalla að tækjust samningar um flutning I.S. til Ak- ureyrar myndi ýmislegt breyta um svip á Akureyri. Fyrir það fyrsta værum við að flytja hingaó allt að fimmtíu hátekjustörf. Ekki er óvarlegt að ætla að hvert slíkt starf gefi af sér 3 önnur störf í tengslum við þjónustu vió svona fyrirtæki. Nægir þar að nefna hótel, veitingastaði, fiug- samgöngur, skipaferðir, og er þá ótaiin sérhæfð þjónusta sem fyrir- tækið þyrfti á að halda, s.s. frysti- geymslur og þess háttar. Hvað þetta þýðir í krónum og aurum get ég ekki gert grein fyrir á þessari stundu. Þó vil ég fara fram á það að bæjarstjóm láti gera allsherjar úttekt á mögulegri heildararðsemi reksturs Islenskra sjávarafurða á Akureyri. Hvað erum vió að tala um mörg ný störf, og hver yrði máttur margföldunaráhrifa á heildardæmið? I öðru lagi væri bærinn að sýna fram á að vel sé hægt að reka eitt stærsta fyrirtæki landsins á Akur- eyri, sem þannig gæfi fyrirtækjum raunverulegan valkost við Reykja- víkursvæðið. I þriðja lagi væri fiutningur I.S. til Akureyrar mikill styrkur fyrir Háskólann á Akureyri, og þá ekki síst sjávarútvegssviðið, sem nú þegar hefur náin samskipti við fyrirtækið. Síðast en ekki síst myndi bær- inn losna úr ákveóinni kreppu- ímynd, sem hefur heltekið íbúa bæjarins og dregið þannig allan mátt úr pólitískri getu til endur- vakningar Akureyrar. Slíkt tæki- færi gæti verið sameiningartáknið sem okkur hefur vantað í síðustu 5-6 ár til að hrista af okkur slenió og móta stefnu og markmió fyrir þetta bæjarfélag sem hafin er yfir alla pólitíska hentistefnu. Hver yrðu áhrif nýrra sölusamtaka fyrir U.A.? Það er mín skoðun að langtíma- áhrif þessarar breytingar yrðu já- kvæð, þó svo að til skemmri tíma væri einhver þekking glötuð. Þetta byggi ég einkum á tvennu. I fyrsta lagi er sala Ú.A. í Bandaríkjunum þaó vel þekkt að ekki myndu vera teljandi áhrif af breyttum sölu- samtökum. Bæói S.H. og I.S. eru nokkurskonar regnhlífarmerki í dag sem sérmerkja allar vörur sín- um uppruna. Þekking kaupend- anna á hæfileikum hvers og eins framleiðanda og jafnvel gæðum hvers einstaks skips er orðin gífur- leg. Þessu til sönnunar má nefna verðlaun sem Mánabergió frá Ól- afsfirði fékk nú nýverið. Jafnvel þótt Mánabergiö selji afuróir sínar endanlegum neytendum í fjarlæg- um heimsálfum, þá vita þeir hvaó- an gott kemur. Á sama hátt hefur frábært starfsfólk Ú.A. unnið fjölda gæðaviðurkenninga, sem gárungamir segja að séu famar að koma í áskriftarformi í nafni Ú.A. Af þessu leióir aó samningsstaða sölusamtakanna rýrnar og styrkur framleiöendanna eykst. I öðru lagi, ber ýmsum, sem ég hef talað við, saman um að S.H. rnyndi vafalaust vilja halda áfram að selja afurðir Ú.Á. í Bandaríkj- unum, enda er Ú.A. stór eignarað- ili í Coldwater USA og þeim mik- ilvægur framleiðandi. Til viðbótar núverandi sölustyrk fyrirtækisins Hólmar Svansson. „Samkvæmt samtölum við menn sem þekkja vel til er mikill áhugi fyrir þessari hug- mynd. Þeir segja að stjórn I.S. (íslenskra sjávarafurða) muni ekki útiloka neinn slíkan val- kost verði sest niður og þessi mál rædd af alvöru. Er raunhæft að svo stórt fyrir- tæki geti verið með aðalstöðv- ar á Akureyri? Ef við lítum til útlanda sjáum við að þar er sí- fellt algengara að fyrirtæki flytji aðalstöðvar sínar út á land þar sem þau fá oftlega mun meiri fyrirgreiðslu en nemur hagræði þess að vera allir á sama blettinum. „ kæmi vöruþróunarstarf þróunar- seturs Í.S. Með þeirri þekkingu sem Ú.A. fengi í gegnum slíkt þróunarstarf yrði fljótgert aó vinna upp missi persónulegra tengsla við núverandi viðskipta- vini með nýjum sölumönnum og nýjum vörum. Þá er ótalinn stærsti kosturinn gagnvart Ú.A. en það er að hafa sölumennina í betri tengslum við framleiðsluferli fyrirtækisins og verða þannig virkari þátttakendur í vöruþróun og vörumeðferð en hægt er í dag með sölumiðstöð í Reykjavík. Áhrif bæjarins á stjórn Ú.A. Þrátt fyrir að bærinn eigi ekki lengur eins stóran hlut í Ú.A. og áður þá hefur sú hefö haldist aö bærinn skipi alla stjórnarmenn. Áður en farið er lengra má velta fyrir sér tilgangi með þátttöku sveitarfélaga í atvinnurekstri, sem er í sjálfu sér efni í margar svona greinar. Bæjarfélag hefur burói sem einstaklingar og jafnvel hópar hafa ekki, en það er að geta stærö- ar sinnar vegna tekið áhættu (í formi ábyrgöa eða hlutafjár) sem leiðir til þess að hægt er að endur- skipuleggja fyrirtækin og snúa fyrirsjáanlegri rekstrarstöðvun í rekstur arðbærs fyrirtækis. Ná- kvæmlega þetta var gert þegar Ú.A. lenti í vandræðum fyrir hart- nær 40 árum en þá tók vió langt árabil sem bærinn setti mikla fjár- muni inn í rekstur Ú.A. og eignast þannig um 85% hlutafjár (þegar mest var) til þess að tryggja áframhaldandi rekstur. Sem betur fer tókst að rétta Ú.A. við og er þaó í dag, að öðrum ólöstuðum, eitt af fremstu útgerðarfyrirtækj- um landsins. Hvað verður þá um hlut bæjarins? Er réttlætanlegt aö bærinn eigi hlutafé í sterkum fyr- irtækjum til að minnka tap á hlutafé í öðrum fyrirtækjum sem ekki hafa gengið eins vel? Mín skoðun er sú aó allir þeir pening- ar, sem bærinn hefur yfir að ráða sem áhættufé til þátttöku í stofnun eða endurskipulagningu fyrir- tækja, skuli vera notaðir þar sem þeir gagnast bænum best. Ef stjórn U.A. er ekki tilbúin að vinna að langtímahagsmunum meirihlutaeiganda fyrirtækisins er eitthvaó aö. Annaó hvort þarf bæj- arstjómin að gera upp við sig hvort hún treystir sér til að þrýsta betur á stjórn fyrirtækisins eða ákveður aö selja hlut sinn á mark- aðsverði og ráóstafa peningunum í eitthvað sem betur þjónar atvinnu- stefnu bæjarins. Hér væri til dæm- is hægt að skoða hvaóa aðstöðu eða aðbúnað I.S. setur sem skil- yrði fyrir því að koma norður, og þá væri hægt aó nýta peningana af hlutabréfasölunni til þess að útbúa slíkar aðstæður. Hvað getum við boðið Í.S.? Fyrst má telja aó Akureyri er þjónustukjarni fyrir svæði þar sem eru nokkur stærstu og bestu sjáv- arútvegsfyrirtæki á landinu. Hvernig sem þessi fyrirtæki standa að í sínum sölumálum í dag, þá er það borðleggjandi að nærvera I.S. myndi bjóða upp á aukna samvinnu báðum aðilum til hagsbóta. I ööru lagi höfum við hér sterk- an þéttbýliskjarna sem er að berj- ast við að komast yfir þröskuldinn að veróa það mótvægi við suð- vesturhorn landsins aó þjóðhags- legt hagræði hljótist af. í þriðja lagi er hér Háskólinn á Akureyri sem býður upp á ýmis tækifæri að samnýtingu nemenda, og kennara. Krafa fyrirtækja um sífellt betur menntaóa starfsmenn fellur vel saman við kröfur Há- skólans, en á þeim grunni geta báðir hagnast af slíkum þekking- arviðskiptum. Er þetta raunhæft? Samkvæmt samtölum við menn sem þekkja vel til er mikill áhugi fyrir þessari hugmynd. Þeir segja að stjóm I.S. muni ekki útiloka neinn slíkan valkost verði sest niður og þessi mál rædd af alvöru. Er raunhæft að svo stórt fyrir- tæki geti verió með aöalstöðvar á Akureyri? Ef við lítum til útlanda sjáum vió að þar er sífellt algeng- ara að fyrirtæki flytji aðalstöðvar sínar út á land þar sem þau fá oft- lega mun meiri fyrirgreiðslu en nemur hagræði þess að vera allir á sama blettinum. Til dæmis í Bandaríkjunum, samkvæmt þess- ari miðstýringarstefnu ættu öll fyrirtæki aó vera meö starfsemi sína á austurströndinni milli New York og Washington, en hver er svo reyndin? Miðríkin (Ohio, Indiana og fieiri) og norðvestur- ströndin (s.s. Oregon), eru um þessar mundir vinsælustu staðirnir fyrir fyrirtæki að koma sér upp aðstöðu. Hverju sætir þetta? Jú, fyrirtækin fá yfirleitt mjög góðar móttökur á þessum stöðum, en ekki síóur eru þau að skapa starfs- mönnum sínum lífvænlegra um- hverfi, umhverfi sem leyfir ein- staklingnum að skipta máli og hafa fjölskyldu sína hjá sér án þess að þurfa stöðugt að óttast um öryggi þeirra. Hvað getum við gert? I mínum augum er tvennt sem brennur á: 1. Ræða þennan möguleika við alla sem málið varðar og komast þannig að því hvað er grundvallar- mál og hvaó er jaóarmál. 2. Umfram allt verður að ræða þetta mál á grunni sem hafinn er yfir pólitík og fiokkadrætti. Þetta er alltof mikilvægt mál til þess að einhver stjórnmálaflokkur megi eigna sér það. Hér er um að ræða mál sem varðar heildarhagsmuni landsbyggðarinnar allrar og þá sérstaklega Norðurlands. Flutn- ingur I.S. til Akureyrar gæti verið grundvallaratriði í því að endur- heimta þá ímynd aó blómlegri byggó og starfsemi í þjónustu- bænum Akureyri. Hólmar Svansson. Höfundur er rekstrarverkfræóingur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.