Dagur - 28.12.1994, Blaðsíða 8

Dagur - 28.12.1994, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 28. desember 1994 í ÞRÓTTI R SÆVAR HREIÐARSSON Á spítala Kenny Dalglish, knattspyrnu- stjóri Blackbum, gat ekki mætt á völlinn og stjómaö sínum mönnum gegn Manchester City á mánudaginn. Hann var fluttur á spítala um jólin og kvartaði yfir magavcrkjum en þaó var þó ekki jólasteikin sem fór svona illa í hann.' Hann var meó spmnginn botnlanga og þurfti í aðgeró. Nýr Gazza Kevin Kecgan, stjóri New- castle, hefur hug á að styrkja lió sitt fyrir átökin á komandi ári. Hann hcfur áhuga á að næla í tengiliöinn Mark Draper frá Leicester og er sagóur til- búinn aó borga allt aö þremur milljónum punda fyrir leik- manninn. Draper er 24 ára og Leicester keypti hann frá Notts County í sumar fyrir 1,3 millj- ónir punda. Hann átti mjög góðan leik gegn Newcastle fyr- ir skömmu og þá hrósaói Ke- egan honum í hástert. Aö láni Notthingham Forest hefur fengið ástralska markvöróinn John Filan að láni frá Cam- bridge United. Filan þykir afar snjall milli stanganna og hefur vakiö athygli stórliða cftir aö hann kont til Englands fyrir tveimur ámm. Ekki til leigu Rúmcnski leikmaöurinn llie Dumitrescu hefur farið fram á sölu frá Tottenham og um jólin sagói Gerry Francis, stjóri liðs- ins, að tvö erlend stórlió hefóu sett sig í samband við félagið og óskað eftir að fá hann lán- aðan út tímabiliö. Francis hefur þó ekki áhuga á að lána strák- inn og selja hann fyrir væna fúlgu. Byrjar aftur Úlfamir hafa fengió mióvöró- inn Brian Law til liós vió sig en hann var áður í landsliði Walcs og leikmaöur með QPR en þurfti að leggja skóna á hill- una fyrir tveimur áruni vegna meiðsla. Liðió borgar QPR 100.000 pund og tryggingarfé- lagi 34.000 pund fyrir aó fá hann í sínar raðir. Vinsæll Stan Collymore, framherji Nottingham Forest, er senni- lega eftirsóttasti leikmaöur enska boltans urn þcssar mund- ir. Roy Evans, stjóri Liverpool, vill fá hann til aó taka við af Ian Rush og neitar ekki orð- rómi um aö hann hafi þegar boðið 6 milljónir punda í kapp- ann. Flugelda- salan er í Hamri íþróttafélagið Þór íþróttamaður Norðurlands 1994: Glæsilegur hópur íþróttamanna - úrslitin kunngerð í Radíónausti á morgun Undanfarnar vikur hefur Dagur staðið fyrir kosningu á Iþrótta- manni Norðurlands 1994 í sam- ráði við lesendur blaðsins. Margir hafa tekið þátt með því að senda inn útfyllta atkvæða- seðla og fjölmargir íþróttamenn verið tilnefndir. Nú er skila- frestur runninn út og búið að telja saman atkvæði. Úrslitin verða kunngjörð í verslun Rad- íónausts á morgun þar sem verðlaun verða afhent. Alls voru það 50 íþróttamenn sem hlutu atkvæöi og eru þeir fulltrúar hinna ýmsu íþróttagreina og félaga. Keppnin um toppsætin var jöfn og eftirfarandi eru nöfn tíu efstu manna í stafrófsröð. Auk þess kemur fram í hvaða íþrótta- grein viðkomandi keppir og íþróttafélag hvers og eins: Einar Gunnlaugsson, torfæra, Bílaklúbbi Akureyrar Guðmundur Benediktsson, knattspyrna, Þór Guðrún Sunna Gestsdóttir, frjálsar íþróttir, USAH Jón Arnar Magnússon, frjálsar íþróttir, UMSS Konráð Oskarsson, körfuknatt- leikur, Þór Kristinn Björnsson, skíði, Leiftur Omar Þorsteinn Arnason, sund, Oðinn Sigurpáll Geir Sveinsson, golf, GA Valdimar Grímsson, handknatt- leikur, KA Vernharð Þorleifsson, júdó, KA Þetta er í 10. sinn sem Dagur stendur fyrir þessu kjöri en í fyrra var það hestamaðurinn Baldvin Ari Guðlaugsson sem varð fyrir valinu. Ljóst er að þaó hefur vafist fyrir mörgum hver ætti titilinn skilinn að þessu sinni og skoðanir manna misjafnar á því. Allt er þetta afreksfólk sem stendur í fremstu röö á íslandi. Einar Gunn- laugsson varð íslandsmeistari í torfæru á Norðdekk drekanum sínum auk þess sem hann lagði Svía nokkuó örugglega að velli á þeirra heimaslóðum. Guðmundur Benediktsson var einn af skemmtilegustu leikmönnum Is- landsmótsins í knattspyrnu og val- inn í lið ársins af leikmönnum 1. deildar. Hann lék sína fyrstu A- landsleiki í sumar og skoraði í sín- um fyrsta leik. Guðrún Sunna Gestsdóttir er ein efnilegasta frjálsíþróttakona landsins en hún var sigursæl á Landsmóti Ung- mennafélaganna og keppti fyrir Islands hönd á erlendri grund. Jón Arnar Magnússon er eini fulltrúi Norðlendinga í vali á Iþrótta- manni ársins hjá íþróttafrétta- mönnum. Hann hefur sennilega aldrei verið sterkari og verður Is- landsmet hans í langstökki lengi í minnum haft. Konráð Óskarsson hefur verið lykilmaður í Þórslið- inu í körfuknattleik í rúman áratug en hefur sjaldan leikið betur en í ár. Hann var lykilmaóur í að koma liðinu upp í Úrvalsdeild í vor og stjórnar liðinu sem herforingi meðal þeirra besf.u. Kristinn Björnsson var maður landsmótsins á skíóum á Siglufirði í apríl þar sem hann varð þrefaldur Islands- meistari og keppti fyrir Islands hönd á Ólympíuleikunum í Lille- hammer. Ómar Þorsteinn Arnason var sigursæll í sundlauginni í ár en mesta athygli vakti sigur hans á Magnúsi Má Ólafssyni, Ægi, í 100 m flugsundi á Sundmeistaramóti Islands í sumar. Sigurpáll Geir Sveinsson sló öllum öðrum kylf- ingum landsins við í sumar og skaust upp á stjörnuhimininn í ís- lensku íþróttalífi. Hann sigraöi á Landsmótinu á Akureyri, varö stigameistari og valinn Kylfingur ársins hjá Golfsambandinu og fé- lagi meistarllokkskylfinga. Valdi- mar Grímsson blómstraði sem skytta í handboltanum hjá KA á síðasta tímabili og var maðurinn á bak við velgengni liðsins. Hann hefur verið óheppinn með meiðsl á árinu en er nú aó koma til og stendur í ströngu með landsliðinu þessa dagana. Vernharð Þorleifs- son er sterkasti júdómaður Islands í dag. Hann varð tvöfaldur Is- lands- og Norðurlandameistari og varð í 9. sæti á Evrópumeistara- mótinu í júdó. Hann kórónaði síð- an árangur sinn með því að leggja gamla goðið, Bjama Friðriksson, fyrir skömmu og var valinn Júdó- maður ársins. Eins og áður sagði voru fjöl- margir aðrir sem fengu atkvæói en komust ekki inn á topp 10. Patrek- ur Jóhannesson hefur atlað sér vinsælda með frammistöðu sinni í vetur í handboltanum með KA og knattspyrnumennirnir Páll Guð- mundsson, Leiftri, Eyjólfur Sverr- isson, Besiktas og Þorvaldur Ör- lygsson, Stoke, voru allir ofarlega á listanum. Kristinn Friðriksson og Sandy Anderson voru vinsælir og sem dæmi um aðra sem fengu atkvæði má nefna Jón Guðlaugs- Baldvin Ari Guðlaugsson var íþróttamaður Norðurlands 1993. Hver verður arftaki hans? Frjálsar íþróttir: Desembermót HSÞ Þann 17. desember var haldið hið árlega Desembermót HSÞ í frjálsum íþróttum innanhúss. Þar voru keppendur 15 ára og eldri og óhætt að segja að góður árangur hafi náðst þrátt fyrir fámenni og mótið gekk vel fyrir sig. Sex héraðsmet féllu, þar af fjögur í flokki 15-16 ára. I 40 m hlaupi 15-16 ára sveina sigraói Snæbjörn Ragnarsson, á 5,1 sek- úndu og er það héraðsmet. I sömu vegalengd hjá meyjunum setti Valgerður Jónsdóttir einnig hér- aðsmet þegar hún hljóp á 5,6 sek- úndum. I 800 metra hlaupi meyja áttust við Ema D. Þorvaldsdóttir og Guðrún Helgadóttir og slógu þær báóar héraðsmetið. Erna sigr- aði á 2.39,1 mínútu en Guðrún hljóp á 2.51 mínútu. Aðrir sigur; vegarar í flokki 15-16 ára voru: í hástökki sigruðu Skafti Stefánsson (1,60 m) og Valgeróur Jónsdóttir (1,40 m). í langstökki án atrennu sigruðu Snæbjörn Ragnarsson (2,85 m) og Hrönn Siguróardóttir (2,30 m). I þrístökki án atrcnnu voru þaó Snæbjörn (8,37 m) og Erna Þorvaldsdóttir (6,93 m) og í kúluvarpi sigruðu Siguróli Sig- urðsson (10,36 m) og Valgeróur Jónsdóttir (7,23 m). I flokki 17-18 ára var einungis einn keppandi en þaó var Magnús Þorvaldsson. Hann keppti í lang- stökki og þrístökki án atrennu og kúluvarpi. Hann sigraði af öryggi í öllum greinum. I flokki 19 ára og eldri voru öllu fleiri keppendur og meiri spenna. I 40 m hlaupi karla sigraði Þorvaldur Guðmundsson á 5,3 sek. en í kvennaflokknum Gunn- hildur Hinriksdóttir á 5,9 sek. I 800 m hlaupi karla sigraði Sigur: björn Arngrímsson á 2.14,9 mín. I Síðasta dag ársins fer fram Gamlárshlaup UFA og er tími til kominn fyrir hlaupara og skokkara Akureyrar og nær- sveita að fara að undirbúa sig. Búast má við að íþróttamenn, eins og aðrir, hafi freistast til að borða um of yfir jólin og þetta því kærkomið tækifæri til að rífa sig upp að nýju. Hlaupið verður innanbæjar á Akureyri og rás- og endamark verður á Iþróttavellinum. Hlaupa- hástökki sigraói Baldur Kristins- son (1,55 m) í karlaflokki en Gunnhildur Hinriksdóttir (1,50 m) í kvennaflokki. Þorvaldur Guð- mundsson sigraði í langstökki án atrenu (2,78 m) og Gunnhildur í kvennaflokki (2,52 m). Þorvaldur tók einnig fyrsta sætið í þrístökki (8,31 m) og Gunnhildur setti hér- aðsmet í kvennaflokknum þegar hún stökk 7,40 metra. I kúluvarpi sigraöi Jón Benónýsson (11,37 m) og Freyja Ingólfsdóttir (7,25 m). vegalengdir verða 10 km lang- hlaup og 4 km skemmtiskokk. Keppt verður í sex aldurshópum: 12 ára og yngri, 13-15 ára, 16-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri. Verðlaun eru fyrir 1. sæti í hverjum tlokki en allir þátttak- endur fá einnig viðurkenningar- pening. Þátttökugjald er 500 kr. og skráning er í vallarhúsi Iþrótta- vallar frá kl. 11.00 en hlaupió hefst kl. 12.00 og þátttakendum býðst búningsaðstaða í vallarhúsi íþróttavallar. Gamlárshlaup UFA: Aukakílóin af son hlaupara, Einvarð Jóhannsson handknattleiksmann og Hauk Bragason markvörð Grindavíkur í knattspymu. A morgun kl. 11.00 verða úr- slitin kynnt í verslun Radíónausts á Akureyri þar sem fimm efstu mönnum verða veitt verðlaun og Iþróttamaður Noróurlands fær glæsilegan farandbikar. Þar verður boðið upp á léttar veitingar og er öllum velkomið að líta við. ú Arsenal-Ast Chelsea-Ma Coventry-N. C. Palace-Q Úrslit rvalsdeild: 3ti Villa 0:0 n. Utd. 2:3 Forest 0:0 PR 0:0 Everton-She Lecds-Newc Leicester-Li Norwich-To Southampto West Ham-I Man. City-B ff. Wtd. 1:4 ístle 0:0 vcrpool 1:2 ttenham 0:2 n-Wimhledon 2:3 pswich 1:1 lackburn 1:3 l.deild: Barnsley-Grimsby 4:1 Burnlcy-Port Valc 1:2* Charlton-Southend 3:1 Notts Count y-MilIwaII 0:1 Oldham-Wolves 4:1 Reading-Luton 0:0 Sheff. Utd.-Middlesbrough 1:1 Stoke-Swindon 0:0 Sunderland-Bolton 1:1 11 alUlltl C"l/cruj Watford-Portsmouth 2:0 WBA-Bristo * Leiknum h ICity 1:0 ætt vegna veðurs Staðan Úrvalsdeild: Blackburn 2014 4 2 44:16 46 Man. Utd. 20 14 2 439:1644 Newcastle 20116 339:2239 Liverpool 20 106 436:1936 N. Forcst 20106 433:2036 Leeds 20 9 5 6 29:25 32 Norwich 20 86 6 19:1730 Tottenham 20 8 5 7 34:34 29 Chelsea 20 84 8 28:2628 Man.City 20 8 4 8 31:34 28 Arsenal 20 67 7 23:2225 Coventry 20 67 7 20:2925 Wimbledon 20 7 4 9 24:35 25 Southampton 20 66 829:3424 SheffWed. 20 66 823:2924 QPR 20 65 929:3523 C.Palace 20 57 8 15:2022 Wcst Ham 20 64 1016:2222 Everton 20 4 7 916:2819 Aston Villa 20 3 8 922:31 17 Leicester 20 3 51220:3514 Ipswich 20 34 13 20:40 13 Middlesbroug 1. deild: h 23 13 5 5 36:20 44 Tranmcre 2311 6 638:2739 Barnsley 2311 5 7 28:24 38 Wolves 2311 4 8 40:31 37 Bolton 23 10 7 637:2837 Reading 23 10 7 6 28:22 37 Sheff. Utd. 23 9 7 7 34:24 34 Stokc 23 9 7 7 26:25 34 Grimsby 23 8 9 6 33:31 33 Watford 23 8 9 6 24:24 33 Oldham 23 9 5 9 32:30 32 Luton 23 8 7 831:3031 Millwall 23 8 7 8 29:2831 Derby 23 8 7 8 24:2231 Southend 23 9 41024:3631 Charlton 22 7 8 735:33 29 Sunderland 23 6 11 625:2129 WBA 23 7 6 10 20:30 27 Swindon 23 6 7 1030:3725 Port Vale 22 6 7 9 26:2925 Burnlcy 21 5 9 721:28 24 Portsmouth 23 5 8 10 22:35 23 Bristol City 23 5 4 14 17:33 19 Notts Connty 23 4 61321:33 18

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.