Dagur - 28.12.1994, Blaðsíða 15

Dagur - 28.12.1994, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 28. desember1994 - DAGUR - 15 Ekkert má spara til vaxtar og viðgangs heimilanna - hugleiðingar Magnúsar Skúlasonar, geðlæknis, á ári Qölskyldunnar Málefni fjölskyldunnar hafa fengið meira rými í þjóðfélags- umræðunni á þessu ári Qöl- skyldunnar en oft áður. Efnt hefur verið til fjölda funda og málþinga um málefni fjölskyld- unnar og eitt þeirra var á kirkjuviku í Akureyrarkirkju á liðnu vori og nefndist „Fjöl- skyldan og samfélagið“. Einn fyrirlesara á málþinginu var Magnús Skúlason, geðlæknir, er ræddi um fjölskylduna í samfé- laginu út frá ýmsum sjónar- hornum. Við lok árs fjölskyld- unnar eiga hugleiðingar Magn- úsar vel við. Dagur fékk leyfi höfundar til að glugga í erindi hans og fara valdir kaflar úr því hér á eftir. í upphafi erindis síns ræddi Magnús Skúlason um margþætt hlutverk heimilisins en einkum þó uppeldishlutverkið sem hann sagði öðrum mikilvægara. Þá ræddi hann um hugtakið mann- vernd sem talsvert hefur verið not- að í ræöu og riti að undanfömu og sagði það í raun ágætt oró til að lýsa mikilvægi þess að hlúö sé að manninum og hinum mannlegu þáttum. Allt uppeldi sé einskonar mannvernd og orðið hafr einnig siðfræðilegt inntak með skyldleika við rækt og þroska. Barnið þarfnast atlætis á hinu tilfinningalega sviði Þá vék Magnús máli sínu að þroska barnsins og sagði: Fræ- kornið að auknum þroska býr innra með barninu og það er cin- mitt sá viðkvæmi gróður sem fal- inn er uppalendum á hendur. Þarf- ir litla barnsins virðast einfaldar, fyrst og fremst holl og nægjanleg næring á réttum tímum, svo og önnur ytri aðhlynning. En ef til vill eru þarfimar flóknari strax frá byrjun. Þörfin fyrir snertingu, hlýju og atlæti á hinu tilfinninga- lega sviði er aftur veitir öryggistil- finningu og innri ró sem er for- senda þess að bamið nái að öðlast nægilega góða sjálfsímynd, innri festu og nauðsynlegan kjark og traust til að stíga öll þau spor er bíða þess í framtíðinni. Mikil átök eiga sér stað á fyrsta æviskeiði Á fyrstu æviskeiðum barnsins eiga sér því stað mikil innri átök í sál þess og einnig við umhverfið. Barnið þarf ákaflega mikið á því að halda aö skynja traustan og óbifanlegan kærleika foreldranna í sinn garð, að þeir bregðist sér ekki hvaó sem á dynur, jafnframt því sem barnið þarf að hafa verulegt svigrúm til sinnar fyrstu könnunar á heiminum og tilburða til sinnar fyrstu sjálfstæðis- og frelsisbaráttu og uppreisnar gegn hinu ytra valdi. Þannig kynnist barniö sjálfu sér, styrk sínum og takmörkunum. Áríðandi er að uppalendur hafi á þessu góðan skilning og sýni þol- inmæði. Þar með er lagður grunn- ur að innra trausti barnsins á sjálfu sér, öðrum og veröldinni. Víðtækt hlutverk heimilisins Magnús kvað hlutverk heimilisins víðtækt og gildi þess margþætt. Oraunhæft væri með öllu að ætla skólum að koma á nokkurn hátt í staðinn fyrir heimilin eóa yfirtaka hlutverk fjölskyldna og uppalenda á þessu sviði. Eg vil þó leyfa mér aö halda því fram að sá þáttur sem hér hefur verið drepið á sé einn hinn mikilvægasti því fari hann úrskeiðis má búast við að aórir þættir geri það einnig, ekki ein- ungis á heimilunum, heldur líka í samfélaginu öllu. Það er vonandi ljóst út frá því sem sagt hefur ver- ið að seint veröi ofmetin nauðsyn þess að hlúa sem best aó heimil- unum og gera þeim kleift að rækja þetta frumverkefni sitt og aö fé- lagsleg kjör sem þeim eru búin séu mannsæmandi og að minnsta kosti nægileg í þessu skyni. Vanmat á hlutverki og gildi fjölskyldunnar Magnús sagði einnig athyglisvert að það að stofna fjölskyldu og heimili og að eignast börn og bera síðan ábyrgð á aðhlynningu þeirra og uppeídi sé eitt af því fáa sem fólk má takast á herðar án þess aó hafa til þess nokkur réttindi eða próf. Nánast engum skilgreindum skilyrðum þurfi að fullnægja. Svo viróist sem litið sé á þetta sem sjálfsagt og sjálfgefið hlutverk í lífi fólks og aó allir hafi með- fædda hæfileika til að inna það af hendi. Hins vegar sé varla til það verksvið eða sú vél á nútíma tækniöld sem ekki þurfi heilmik- inn faglegan undirbúning til að stjóma, langa þjálfun og ströng námskeið. Því sé spurning um hvort þetta bendi til vanmats á hlutverki fjölskyldunnar og þá um leið gildi hennar í mannlegu sam- félagi. Stúlka af eyfirskum ættum slær í gegn vestra Eplið fellur ekki langt frá eik- inni. I>etta eru gömul sannindi og ný og enn einu sinni hafa þau verið staðfest. Ritstjórn Dags barst á dögunum úrklippur úr bandarískum blöðum þar sem fjallað er um uppfærslu á söng- leiknum Funny Girl og með að- alhlutverkið, Fanny Brice, fór Anne Runolfsson, sem á ættir sínar að rekja alla leið norður í Eyjafjörð. Anne er fædd og uppalin í Bandaríkjunum en faðir hcnnar, Guómundur Kjartan Runólfsson, hefur búið þar vestra um árabil. Guðmundur Kjartan er maður söngelskur og músíkalskur, enda sonur Láru Guðmundsdóttur frá Lómatjörn í Grýtubakkahreppi. Ekki þarf að hafa mörg orð um tónlistargáfur þess stóra ættboga og nægir þar að nefna að systir Láru er Sigríður Guómundsdóttir Schiöth, kórstjóri á Akureyri og í Eyjafjarðarsveit til fjölda ára. I úrklippunum er farið afar lof- samlegum orðum um söng Anne Runolfsson og sagt að öðrum frcmur sé hún stjama sýningarinn- ar. óþh Magnús Skúlason, geðlæknir. Samspil heimilis og skóla Magnús benti á að við lifum nú á tímum er erfiðleikar sæki að og á ólguskeiðum kólni oft um fomar dyggðir og þá virðingu sem þeim beri. Menningararfur með brjóst- vit og bókmenntir liðinna kyn- slóða geti rýrnað eða glatast og þar mcð sé hróflað við hyrningar- steinum mannlífs í lar.dinu og þá verði enn mciri þörf fyrir aðgæslu. Við komum aftur að samspili heimilis og skóla. Eg hef gefið í skyn að skólakerfió þurfi að taka sig á. Það er auðvelt að þrástagast á slíkum hversdagslegum staóhæf- ingum. Eg vil einungis margundir- strika að ég á alls ekki við að fieiri fari að annast uppeldið fyrir upp- alendur heldur sé það hlutverk þeirra að efia fræðslu og undir- búning. Þessi undirbúningsfræðsla verði fólgin í ýmsum hagnýtum leiðbeiningum og kennslu á sviði þróunarsálfræði bama, hvað varð- ar sálrænar og félagslegar þarfir þeirra og raunar alls fólks á öllum aldri. Einnig ætti að koma inn á mannleg samskipti almennt og tengsl og þá alveg sérstaklega tengsl vió foreldra innbyróis, tengsl þeirra við böm sín, svo og hlutverk fjölskyldunnar í víðari merkingu. Einnig þarf í slíkum undirbúningi að leggja rækt við jákvætt siðrænt gildismat hvað varðar mannlega þáttinn umfram þá eftirsókn eftir hinum óteljandi ytri gæóum sem nú eru í tísku. Er pólitískur vilji fyrir hendi? Magnús varpaði einnig fram Anne Runolfsson er hér á myndinni í hlutverki sínu í Funny Girl ásamt mótleikara. spurningum um hvemig þessi fræðsla ætti að vera, hvernig út- færa ætti hana tæknilega og hver ætti að annast hana. Sú spurning hlýtur að vakna hvort fyrir hendi sé almennur pólitískur vilji til þess að rækta börnin svo hæfileikar þeirra fái notið sín, það er að segja að kosta til því sem þarf og fóma sér til þess. Samskonar spurningar tengjast eðlilega mörgum öðrum uppeldis- og líknarmálum, ekki síst hvað varóar gamla fólkiö og aðbúnað þess að ógleymdum ýms- um öðrum þjóðfélagshópum með félagsleg og heilsufarsleg vanda- mál. Þetta er spurning um gildis- mat og einnig um menningu. Ekkert má spara til vaxtar og viðgangs heimilanna Magnús kvað hlutverk heimilisins vera aó leggja grunn aö traustu og heilbrigðu sálarlífi hvers einstaks bams og þar meó grunn þess sem farsæls og heilsteypts borgara í hinu flókna samfélagi. Hann kvað hluta af kenningu sinni þann að skólakerfið eigi að styðja og und- irbúa fólk til að rísa undir hlut- verki sínu innan heimila og fjöl- skyldna eins og fyrr er nefnt. En umfram allt þurfi að trcysta mcira á heimilin en nú sé gert. I hinum áðurnefnda jákvæða vaxtarhring heilbrigðs samfélags gegnir heim- ilið lykilhlutverki. Vanræksla eða ■ vanmat á gildi þess og ógnun vió samfélagið allt og andlega velferð okkar allra, og um leið afkomenda okkar sem við öll crum ábyrg gagnvart á sama hátt og við erum einnig ábyrg gagnvart fyrri kyn- slóðum og menningararfinum sem þær hafa lagt okkur í hendur til varðveislu og ávöxtunar. Ef til vill er slík ábyrgðartilfinning gagnvart öórum kynslóðum en okkur sjálf- um aðalsmerki andlegs heilbrigð- is. Hér má því ekkert til spara hvorki samtakaviðleitni allra góðra manna né heldur fjármagn svo þaó varhugaverða hugtak fái að fljóta með. Hamingjan er fylgidís eins og skugginn Magnús Skúlason ræddi að lokum um hamingjuna og sagði meðal annars að þrátt fyrir þær geigvæn- legu framfarir á sviði tækni og vísinda, þá fylgi mönnum enn, furðu líkt og fyrir árþúsundum, óleystar ráðgátur, spumingar um hinstu rök og tilgang lífsins. Hugsuðir fornaldar hafi tekist á vió þessi efni af síst minni leikni en nú tíókast. Vandi mannsins sé í fullu gildi og auðmýkt því við hæfi þótt þar virðist oft á skorta. Enn stöndum við frammi fyrir spurningunni um hvað sé menning - hvað sé andleg velferð - hvað sé hamingja? Sjálft keppikefliö, hamingjan, geti verið óiíkindatól og villuljós, einkum ef eftir henni sé leitað af áfergju. Ef til vill sé sú hamingja merkilegust er maóur hafi varla neitt hugboó um, sú hamingja sem við uppgvötvum fyrst þegar hún er liðin hjá eða eins og Þórarinn Björnsson, fyrr- um skólameistari á Akureyri, geti um í nýlega útkomnu ritsafni; hamingjunni nær maður aldrei beint, heldur óbeint, hún er fylgi- dís líkt og skugginn. Hún er hljóó- lát og fótatak hennar heyrist ekki fremur en skuggans. ★ * ★ ★ Flugeldasalan í Hamri er hafin Opnunartímí 10-22 og á gamlársdag frá kl. 9-16. Frábært úrval stórfenglegra flugelda á enn hagstæðara verðí en í fyrra. V26 eram ódýrarí Bónustilboð: Þeir sem versla fyrír kr. 3000 eða meira fá mánaðarkort í Iíkamsrsktína í kaupbæti. ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Akureyringar! Verslíð hjá okkur og styrkið félag í heímabyggð tíl eflingar æskulýðs- og unglíngastarfí. * Íþróttafélagíð Þór Hamri víð Skarðshlíð.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.