Dagur


Dagur - 28.12.1994, Qupperneq 9

Dagur - 28.12.1994, Qupperneq 9
EN5KA KNATTSPYRNAN Miðvikudagur 28. desember 1994 - DAGUR - 9 Óvenju dapurt um jólin Á annan dag jóla var heil umferð í enska boltanum og sennilega hefur jólasteikin verið of freist- andi íyrir sóknarmenn deildar- innar því þeir voru langt frá sinu besta og fjögur markalaus jafn- tefli litu dagsins Ijós. Manchester United komst á toppinn í nokkra klukkutíma með því að sigra Chelsea en Blackburn átti leik seinna um kvöldið gegn Man- chester City og tryggði sér þá toppsætið að nýju. Tottenham er á mikilli siglingu og sigraði Nor- wich en Everton tapaði í fyrsta sinn í langan tíma, fyrir Sheffield Wednesday. CHELSEA- MAN. UTD. 2:3 Leikmenn Manchester United voru ekki á því að láta ófarir síðasta tímabils, þar sem þeir töpuðu í tví- gang fyrir Chelsea, endurtaka sig. Meistararnir skorðu fyrsta markið á 20. mínútu þegar að Ryan Giggs spretti úr spori upp vinstri kantinn og gaf góðan bolta fyrir markið þar sem Mark Hughes var mættur og skoraði af markteig. Rétt fyrir leik- hlé braut einn leikmanna Chelsea, Craig Burley, illa á Paul Ince, miðjumanni United, sem meiddist og lék ekki með liðinu í síðari hálf- leik. Gary Neville kom inná í hans stað og Roy Keane var færður á miðjuna og gaf það góða raun. Á 48. mínútu stakk Keane sér inn í vítateig Chclsea þar sem hann var felldur af Frank Sinclair og vítaspyrna dæmd. Frakkinn Eric Cantona skoraði af öryggi úr vítinu. Heimamenn voru ekki á því að gef- ast upp og varamaðurinn Mark Stein gerði vel þegar hann „fiskaði“ vítaspyrnu á Gary Pallister á 56. mínútu. John Spencer tók spyrnuna og skoraði af ekki minna öryggi. Eddie Newton hafði ekki skorað í tvö ár fyrir Chelsea en hann jafnaði leikinn á 77. mínútu með skalla eft- ir fyrirgjöf frá Paul Furlong. Leik- menn og aðdáendur Chelsea voru enn að fanga markinu og töldu sig scnnilega vera búnir að tryggja sér annað stigið þegar að United skor- aði sigurmarkið. Strax eftir miójuna geystist Keane fram og kom boltan- um á Cantona og eftir mikla baráttu um boltann féll hann fyrir fætur Brian McClair, sem skoraði með góðu skoti, 3:2. Stuttu fyrir leikslok fékk Mark Stein gott færi til að Andy Town- send var rekinn útaf gegn Arscnal. jafna á nýjan leik fyrir Chelsea en Gary Waísh sá við honum með fal- legri markvörslu. ARSENAL-A. VILLA 0:0 Leikurinn á Highbury var afspyrnu lélegur og ekki að furða aó áhorf- endur bauluðu á leikmenn í leiks- lok. Aston Villa hefur enn ekki tekist að vinna undir stjórn Brian Little og virðist ekki vera líklegt til að rífa sig upp úr botn- baráttunni. Arsenal » var skárri aðilinn í fyrri hálfleik og Kevin Campell komst næst því að skora en flestar til- raunir gestanna komu úr langskotum. Eina verulega mark- verða atvikið í leikn- um kom eftir klukku- f tíma leik þegar Andy \ Townsend, miðju- manni Villa, var vikið af leikvelli fyrir að brjóta á Paul Dickov. Brotið var ekki gróft en Townsend hafði fengið gult spjald fyrr í leiknum. COVENTRY-N. FOR. 0:0 Nottingham Forest var betri aðilinn í leiknum en tókst ekki að nýta þau færi sem liðið skapaði sér. Besta færi liðsins kom á 20. mínútu þcgar að Steve Morgan, vamarmaður Co- ventry, felldi Norðmanninn Lars Bohinen innan vítateigs og dómar- inn benti á vítapunktinn. Harðnagl- inn Stuart Pearce tók spyrnuna af mikilli ákefð og þrumuskot hans small í þverslánni. Stan Collymore náði ekki að nýta sín færi í leiknum og Steve Ogrizovic varði nokkrum sinnum vel, sérstaklega einu sinni frá lan Woan. EVERTON-SHEFF. W. 1:4 Everton hafði ekki fengið á sig mark síðan Joe Royle tók við liðinu og fáir bjuggust viö þessum skell á Goodison Park gegn liði Sheffield Wednesday, sem hafði gengið illa að finna leiðina í netið fram til þessa. Duncan Ferguson kom heimaliðinu yfir á 36. mínútu en forustan stóð ekki lengi og aðeins tveimur mínútum síðar hafði Mark Bright jafnað fyrir gestina. Eftir vel útfærða aukaspyrnu barst boltinn fyrir markið þar sem Bright fékk nægan tíma til að skora. Stuttu fyrir jól nældi Wednesday í framherjann Guy Whittingham frá Aston Villa í skiptum fyrir tengiliðinn Ian Tayl- or. Whittingham var hetja liðsins á Goodison og kom gestunum yfir á 42. mínútu. Tveimur mínút- um eftir hlé bætti síðan sænski landsliðmaðurinn Klas Ingesson þriðja marki Wednesday við og var það hans fyrsta fyrir liðið. Guy Whitt- ingham innsiglaði síðan sigurinn tíu mínútum fyrir leikslok með öðru marki sínu og ef hann heldur svona áfram ætti Wednesday að fara í stórum stökkum upp töfluna. NORWICH- TOTTENHAM 0:2 Tottenham er á mikilli siglingu þcssa dagana og sigur liðsins á Norwich var auðveldur og verð- skuldaður. Nicky Barmby skoraði fyrsta markið á 11. mínútu þegar hann rcnndi í netið eftir góðan und- irbúning frá kantmanninum Darren Anderton. Tottenham geymdi það fram á 88. mínútu að innsigla sigur- inn og aftur var það Anderton sem lagði upp markið. Hann kom bolt- anuni á Teddy Sheringham sem HOIST£» Nicky Iiarniby og félagar hans í Totten- ham stcfna á toppinn. reyndi skot utan teigs. Það fór í Rob Ullathorne, varnarmann Norwich, og í háan boga yfir Bryan Gunn í markinu. Eini leikmaður Norwich sem eitthvað sýndi var nýliðinn As- hley Ward, sem var duglegur í framlínunni. WEST HAM-IPSWICH 1:1 Leikur West Ham og Ipswich bar þess glöggt merki að þama voru tvö af slakari liðum deildarinnar á ferð. Heimaliöið hafði yfirburói allan tímann og tók forustuna á 16. mín- útu þegar að Matthew Rush kom boltanum innfyrir vörn Ipswich þar sem Tony Cottee kom á Guy Whittingham skoraði tvö mörk í fyrsta lcik sínum með Shefficld Wcdncsday. fleygiferð og skoraði. Þrátt fyrir fjölmörg færi náði liðið ekki að bæta við mörkum og Ipswich nýtti sér það. Chris Kiwomya gaf fyrir frá hægri kanti á 73. mínútu og Daninn Claus Thomsen skallaði efst í hornið úr miðjum teignum. Þar með var annað stigið í höfn hjá Ipswich, sem enn hefur ekki ráðið framkvæmdastjóra. George Burl- ey, fyrrum bakvöróur liðsins, 7 þykir nú líklegastur til að taka f við stöðunni. LEEDS-NEWCASTLE 0:0 Lítið fjörugur leikur á Elland Ro- ad, þar sem Newcastle fékk færi framan af leiknum og Andy Cole fór illa með gott færi fyrir hlé. Besta færið fékk þó varnarmaður- inn Steve Howey sem átti goðan að marki Leeds en John Luk- ic sýndi að hann hefur engu gleymt og varði með miklum tilþrifum. Hinum megin bjargaði Pavel Srnicek á síðustu stundu þegar hann náði að slá skallabolta frá Carlton Palmer í þverslána. LEICESTER- LIVERPOOL 1:2 Það er óhætt að segja að Liverpool hafi sloppið vel frá Filbert Street í Leicester þegar liðið fór heim með öll stigin. Robbie Fowler skoraði l'yrsta mark leiksins á 67. mínútu úr mjög umdcildri vítaspyrnu en að- eins mínútu áður hafði David Jam- es, markvörður Liverpool, varið vítaspyrnu frá Steve Thompson. Á 76. mínútu bætti markahrókurinn Ian Rush örðu marki við og sigur- inn virtist í höfn. Ekki bætti það stöðu Leicester þegar að Simon Grayson var vikið af leikvelli fyrir gróft brot cn leikmenn liósins voru þó ekki á því að gefast upp og Iwan Roberts minnkaði muninn á 87. mínútu. Síðustu mínúturnar var mikil spenna og heimamenn gerðu ákafa tilraun til að jafna metin en tókst ekki. David James var hetja Liverpool en hann varði í tvígang meistaralega utan þess að verja vítaspymuna. CRYSTAL PAL.-QPR 0:0 Leikmenn Crystal Palace eiga við vandamál að stríða. Þeim tekst ekki að koma tuðrunni í netið. Liðiö hafði yfirburði gegn QPR en þegar þeir komu upp að markinu voru þcir heillum horfnir. Þeir hafa nú leikið í níu klukkutíma án þess að skora í deildinni og Gareth South- gate fékk bestu færin en skot hans fóru bæði í þverslá og stöng. Gest- irnir áttu fá tækifæri en besta þeirra fékk táningurinn Kevin Gallenn og klúðraði hann því. Dean Holdsworth virðist búinn ná sér af mciðslunum og er farinn að skora á ný. SOUTHAMPTON- WIMBLEDON 2:3 Það var mikið um kunnuglega takta í þessum leik. Jason Dodd skoraði fyrsta mark leiksins á 11. mínútu en skot hans fór beint á Hans Segers, markvörð Wimbledon, sem missti boltann klaufalega framhjá sér og í netið. Tíu mínútum síðar jafnaði Dean Holdsworth af stuttu færi eftir að Bruce Grobbelaar hafði misst frá sér fyrirgjöf. Á 38. mínútu gerði Grobbelaar aftur svipuð mistök en að þessu sinni náði hann ekki fyrir- gjöfinni og Mick Harford skallaöi í netið. Tveimur mínútum fyrir leik- hlé tók Matthew Le Tissier upp galdrasprotann og skoraði með glæsilegu skoti og staöan var jöfn í hléi. Síðari hálfleikur var ekki eins ljörugur en það hitnaði þó í kolun- urn um miðjan hállleikinn þegar Andy Thorn, miðverði Wimbledon, var vísað útaf fyrir tvö gróf brot á sömu mínútunni. Einum færri náðu gestimir þó að tryggja sér sigurinn á 76. mínútu þegar að Efan Ekoku féll um Neil Heaney og vítaspyma dæmd. Holdsworth tók spyrnuna og tryggði sigurinn. 1. DEILD Middlesbrough náði ekki að sigra Sheffield United þrátt fyrir að leika einum leikmanni fleiri allan síðari hálfleik. Á 40. mínútu var Paul Beesley, varnarmanni Sheffield, vikið útaf en efsta lióinu tókst illa að nýta sér liðsmuninn. Glyn Hod- ges skoraði fyrst fyrir Sheffield en Craig Hignett náði að bjarga andliti leikmanna Middlesbrough þegar hann jafnaði seint í leiknum. Ulf- arnir töpuðu fyrir Oldham og enn var það gamla kempan Andy Rithcie sem var á skotskónum. Hann skoraói þrennu í 4:1 sigri og er þetta í annað sinn sem hann leik- ur þann leik í vetur. MANCHESTER CITY-BLACKBURN 1:3 Aftur á toppinn Leikur Manchester City og Blackburn á Maine Road hófst síðar en aðrir leikir í ensku úr- valsdeildinni á annan í jólum. Blackburn nældi aftur í topp- sætið sem Manchester United hafði náð fyrr um daginn. Blackbum byrjaði af krafti og skoraði fyrsta markið í leiknum á 10. mínútu. Graeme Lc Saux gaf fyrir markiö frá vinstri og Chris Sutton stökk manna hæst og skallaöi að markinu. Boltinn hafnaði í þverslánni en beint fyr- ir fætur Álan Shcarer scm klár- aði dæmið. Blackburn var kom- iö á skrió og Mark Atkins bætti öðru marki við meó smá aóstoó frá vamarnianni, sem breytti stefnu boltans framhjá mark- vcróinum. Heimamcnn börðust eins og ljón það sem eftir var fyrri hálfleiks og Niall Quinn kom þeim aftur inn í leikinn með góðu skallamarki fyrir hlé. En á 66. mínútu gerði Le Saux vonir þcirra að engu þcgar hann skoraói glæsilegt mark beint úr aukaspymu. Mikil bleyta var t Manchester og hasar á vellinum. Le Saux var heppinn aö fá ekki rauða spjaldið í leiknum þegar honurn lenti saman við Þjóðverj- ann Uwc Rösler cn báðir sluppu með skrekkinn.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.