Dagur - 19.01.1995, Qupperneq 5
Fimmtudagur 19. janúar 1995 - DAGUR - 5
Styrktartónleikar
á Grenivík
Tónleikar til styrktar séra
Pétri Þórarinssyni voru
haldnir í íþróttahúsinu á
Grenivík sunnudaginn 15. janúar.
Fram komu margir listamenn, sem
sýna viidu séra Pétri og fjölskyldu
hans samhug í því mótlæti og
veikindum, sem á hann hafa herj-
að undanfarna mánuði og ár.
Fyrstir á efnisskrá tóneikanna
voru félagar í Passíukórnum.
Stjórnandi hans er Roar Kvam en
undirleikari með kórnum Richard
Simm. Næst lék Richard Simm
Sónötu í G dúr eftir D. Scarlatti.
Mánakórinn undir stjórn Michaels
Jóns Clarke var næstur á efnisskrá
en undirleikari hans er Guðný
Erla Guðmundsdóttir. Kvartett
skipaður Eileen K. Silcocks,
blokkflautuleikara, Grétu Baldurs-
dóttur, fiðluleikara, Jacqueline
Simm, óbóleikara, og Richard
Simm, semballeikara, lék tvo
þætti úr kvartett eftir G. Th. Tele-
mann. Síðan kom fram Karlakór
Akureyrar Geysir undir stjórn Ro-
ars Kvam og með Richard Simm
TÓNLI5T
HAUKUR ÁCÚSTSSON
SKRIFAR
sem undirieikara á píanó. Tónleik-
unum lauk með samsöng allra
flytjenda. Stjórnendur samsöngs-
ins voru Roar Kvam og Michael
Jón Clarke.
Svo sem sjá má, var hér um af-
ar fjölbreytta tónlistarefnisskrá að
ræða. Hún var vel flutt og öllum
þeim til sóma, sem að stóóu.
Aheyrendur voru margir og gerðu
góðan róm aö flutningi, svo sem
vert var.
Það ágæta tónlistarfólk, sem
hér kom við sögu, lét ekki staðar
numið við tónleikana á Grenivík.
Þeir voru endurteknir á Svalbarðs-
strönd sama dag og síðar í Hlíðar-
bæ. Slíkt lýsir mikilli fómarlund
og ekki síður stórfelldum hlýhug í
garð þeirra, sem styrkja á með
þessum tónleikum. Stundin í
Iþróttahúsinu á Grenivík var líka
áhrifamikil. Hámarki náði hún í
lokasamsöngnum og ekki síst í
laginu Þakkargjörð, sem er eftir
óþekktan höfund. Hinn marg-
menni sameinaði kór söng lagið af
innileika og góðri samhæfmgu.
Það reis erindi af erindi og náði
eðlilegum og hrífandi hápunkti í
lokaversinu.
Þaó vekur hlýju í sál að verða
vitni af fórnfúsu starfi, þar sem
lögð er fram vinna af óeigingirni
fyrir gott og þarft málefni. Sú til-
finning fyllti hugann í Iþróttahús-
inu á Grenivík á styrktartónleik-
unum sunnudaginn 15. janúar.
Hún er góð og hún er mannbæt-
andi fyrir hvern þann sem reynir,
og væntanlega hefur hún verið
allra reynsla jafnt Uytjenda sem
áheyrenda á þessari svifhröóu en
gjöfulu samverustund.
^ V—/ kJ Sendum í póstkröfu.
Þ. Björgúlfsson hf.,
Hafnarstræli 19, 600 Akureyri.
Sími 96-25411. Fax 96-12099.
Alþýðubandalagid
Norðurlandi eystra
Kjördæmisþing
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Norðuriands-
kjördæmi eystra er boðað til fundar í Lárusarhúsi,
Akureyri, sunnudaginn 22. janúar nk. kl. 11.
Dagskrá:
1. Skipan framboðslista Alþýðubandalagsins fyrir kom-
andi alþingiskosningar, tillaga uppstillingarnefndar.
Umræður og afgreiðsla.
2. Kosningaundirbúningur.
3. Málefnaáherslur Alþýóubandalagsins og stjórnmála-
viðhorfið.
4. Umræður og afgreiðsla mála.
5. Önnur mál.
Stjórn Kjördæmisráðs.
Hljómsveitin Rafael á Húsavík:
Fara hvert á land sem er
- að leika fyrir dansi
Hljómsveitin Rafael á Húsavík
hefur starfað í fjögur ár. Að vísu
var einn hljómsveitarmeðlima
sendur í skóla og annar seldur, en
menn hafa komið í manna stað.
Hljómsveitina skipa nú: Þórarinn
Jónsson, sem lemur trommur, Jón
Ingólfsson á hljómborð, Hjálmar
Ingimarsson á bassa og Elvar
Bragason á gítar.
Dagur leit við á æfíngu hjá
Rafael, en hljómsveitina skipa
hressir náungar sem eru til með að
fara hvert á land sem er til að
leika fyrir dansi, og þeir leika
músík eftir óskum viðskiptavin-
anna hverju sinni. Þeir hafa leikið
á svæðinu frá Þórshöfn til Siglu-
fjarðar, og ferðirnar til að spila
ýmist verið farnar í grenjandi stór-
hríóum eða öskrandi blíðviðrum.
Þeir félagar segja að mikið hafi
verið að gera í fyrravetur en í vet-
ur séu óvenju margar hljómsveitir
starfandi á svæðinu og því geti
þeir bætt vió sig verkefnum. Þeir
segja að peningarnir fyrir spila-
mennskuna séu ekki aðalmálið,
heldur sé alveg nauðsynlegur þátt-
ur tilverunnar að æfa og starfa
með hljómsveit. IM
Dansstudioið á Akureyri:
Innritun stendur yfir
Um þessar mundir er verið að inn-
rita á námskcið hjá dansskólanum
Dansstudioinu á Akureyri. Það eru
danskennararnir Sigurbjörg Sig-
fúsdóttir og Anna Breiðfjörð Sig-
urðardóttir, sem báðar eru búsettar
á Akureyri, sem eiga og reka
Dansstudioið. Kennslustaður er
Oseyri 6, efri hæð.
Fjölbreytt þjónusta er í boði
lyrir fólk allt frá fjögurra ára aldri.
Hver kennslustund fyrir börn er
50 mínútur og er hluti tímans nýtt-
ur til skemmtilegra og áhugavekj-
andi leikja og leikdansa en hinn
hlutinn í beina kennslu í dansi.
Tímarnir fyrir fullorðna hjá
Dansstudioinu eru ein og hálf
klukkustund í senn. Kennslan
stendur yfir í tíu vikur og l'er fram.
einu sinni í viku. Boðið er upp á
sérnámskeið fyrir félagasamtök og
hópa Og einkatíma. Fréttatilkynning.
Laimagreiáendur!
Lau nam iðuni
ber að skila
í síðasta lagi
21. janúar
Allir sem greitt hafa laun á árinu
1994 eiga að skila launamiðum
ásamt launaframtali á þartil gerðum
eyðublöðum til skattstjóra.
%
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Skilafrestur
rennur út
21. janúar
—..