Dagur - 19.01.1995, Side 7
Fimmtudagur 19. janúar 1995 - DAGUR - 7
Aðalstcinn Bcrgdal í hlutverki sínu. Stuðst var við gamlar ljósmyndir af Davíð Stefánssyni í karlgcrvunum í sýning-
unni.
mannsson, Rósa Guðný Þórsdótt-
ir, Sigurþór Albert Heimisson,
Sunna Borg og Þórey Aóalsteins-
dóttir.
Tónlistin spilar stórt hlutverk í
sýningunni enda eru mörg þeirra
laga sem gerð hafa verið við ljóð
Davíðs Stefánssonar vel þekkt.
Tónlistarflutningurinn er í hönd-
um leikhúskvartetts sem Atli Guð-
laugsson, tónlistarstjóri, setti sam-
an vegna uppfærslunnar. Auk Atla
skipa kvartettinn þau Jóhannes
Gíslason, Jónasína Arnbjörnsdótt-
ir og Þuríður Baldursdóttir. Undir-
lcikari þeirra er Birgir Karlsson.
Tvö verk samhliða hjá LA
„A svörtum fjöðrum“ er tveggja
tíma löng sýning og verður frum-
sýningin kl. 20.30 á laugardags-
kvöld. A sunnudag verða svo tvær
sýningar, þ.e. kl. 16 og 20.30.
Jafnframt þessari nýju sýningu
heldur Leikfélag Akureyrar áfrarn
að sýna „Ovænta heimsókn", jóla-
sýningu félagsins sem fengið hef-
ur góða aðsókn.
Loks má geta þess að meðan á
sýningum „A svörtum fjöðrum“
stendur hjá LA verður sýning á
ljóðum Davíðs Stefánssonar á
veggjum samkomuhússins. JÓH
Stuðst við Davíð sjálfan
í karlgervunum
- segir Olöf Kristín Siguröardóttir, búningahönnuður
Ólöf Kristín Siguróardóttir, hann-
aði búninga fyrir leikverkið „A
svörtum fjöðrum“. Hún hefur áður
komið lítillega við sögu í búninga-
hönnun í leikhúsi en þetta er
hennar fyrsta búningaverkefni fyr-
ir Leikfélag Akureyrar. Ólöf
Kristín segir textann aðalatriðið í
sýningunni en lcikarar og búning-
arnir hjálpi til að mynda heild-
stæðar myndir í atriðunum.
„Það er ekki mjög flókin svið-
setning í sýningunni þannig aö
hreyfingar leikaranna og búning-
arnir gera textann áhrifaríkari fyrir
áhorfandann,“ segir Ólöf.
Búningana segir hún í raun og
veru klassíska. Gengió var út frá
árunum um og fyrir 1930, þegar
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
var maóur á besta aldri. Ljóðabók-
in „Svartar fjaðrir“ kom út árið
1919 þannig aó segja má að það
sé tímabilið frá 1919 til 1930 sem
byggt var á þegar búningarnir
voru hannaðir.
„Það er síóan stuðst vió hann
sjálfan í karlgervunum, þeir eru
allir eins klæddir og endurspegla
einn mann sem samt sem áður er
að segja frá sammannlegum upp-
lifunum. Við erum samt sem áður
ekki að reyna að búa til Davíð
Stefánsson á sviðinu en styójumst
viö útlit hans eins og við höfum
séð hann á Ijósmyndum frá þess-
um tíma,“ segir Ólöf.
Umgerðin um sýninguna segir
hún mjög einfalda, bæði leikmynd
og búninga enda er það orðið
sjáft, ljóóatextinn sem skiptir
mestu máli. „En það er mjög
dramatískur andi í sýningunni og
djúpar tilfmningar. Þetta er spenn-
andi sýning scm ég vona að nái til
fólks,“ sagði Ólöf. JÓH
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, búningahönnuður, scgir búningana byggða á
timabilinu milli 1919 og 1930, eða árunum eftir að Ijóðabókin „Svartar
fjaðrir“ kom út.
Dagskrá í Möðruvalla-
kirkju á aldaraímæli
Davíðs Stefánssonar
í tilefni af aldarafmæli Davíðs Stef-
ánssonar skálds frá Fagraskógi á
laugardag gangast íbúar Arnames-
hrepps fyrir klukkutíma dagskrá
um skáldið í kirkjunni á Möðru-
völlum í Hörgárdal á afmælisdag-
inn, en Davíð er jarðsettur þar.
Allir eru velkomnir á samkom-
una, sem hefst kl. 14 nk. laugar-
dag, 21. janúar. Þar mun Gunnar
Stefánsson, dagskrárfulltrúi, flytja
crindi um skáldið og tengsl hans
við heimahagana. Einn af kunn-
ingjum Davíös mun í stuttu rnáli
segja frá kynnum sínum af hon-
um. Þá mun Tjarnarkvartettinn
syngja nokkur lög við ljóð Davíðs
og leikararnir Arnar Jónsson og
Rósa Guðný Þórsdóttir lesa úr
verkum hans. Dagskránni lýkur
með því að blómsveigur verður
lagður á leiði skáldsins.
YVA
HITA- OG VATNSVEITA
AKUREYRAR
Gjaldskrá Hita- og vatnsveitu
Akureyrar fyrir kalt vatn
1. gr.: Vatnsgjald.
Af öllum fasteignum í lögsagnarumdæmi Akureyrar, sem liggja við
vegi eða opin svæði, þar sem vatnsæðar liggja, skal greiða árlega
vatnsgjald.
Sama er og um aðrar fasteignir utan lögsagnarumdæmisins sem fá
vatn úr veitukerfi kaldavatnskerfi HVA.
2. gr.: Álagningarstofn vatnsgjalds.
Álagningarstofn vatnsgjalds skal vera afskrifað endurstofnverð húsa
og mannvirkja, margfaldað með markaðsstuðli fasteigna í Reykjavík,
samkvæmt matsreglum Fasteignamats ríkisins, sbr. 3. gr. laga um
tekjustofna sveitarfélaga nr. 90/1990. Stofn til álagningar vatnsgjalds
á lóðir og lönd skal vera fasteignamat.
3. gr.: Hundraðshluti vatnsgjalds af álagningarstofni.
Af öllum fasteignum, sem eru vatnsgjaldsskyldar samkvæmt 1. gr.,
skal greiða vatnsgjald, sem nemur 0,16% af álagningarstofni sam-
kvæmt 2. gr.
Vatnsgjald skv. 1. mgr. skal hlíta eftirfarandi ákvæðum um minnsta
og mesta gjald á rúmmetra í byggingum á viðkomandi lóð, að við-
bættum 0,16% af álagningarstofni lóðar. Af jörðum skal þó minnsta
og mesta gjald á rúmmetra miðast við íbúðarsvæði á jörðum, að við-
bættum 0,16% af álagningarstofni útihúsa og landa jarða:
Vörugeymslur og annað ótilgreint húsnæði I minnst 13,85 kr/m3 en
mest 16,64 kr/m3.
Iðnaðarhúsnæði II minnst 16,64 kr/m3 en mest 19,95 kr/m3.
Verslunar,- skrifstofu- og annað sérstætt húsnæði III minnst 19,95
kr/m3 en mest 23,94 kr/m3.
íbúðarhúsnæði og bílskúrar IV minnst 25,30 kr/m3 en mest 30,36
kr/m3.
Lágmarks- og hámarksgjöld á rúmmetra, samkæmt þessari grein,
breytast árlega í hlutfalli við ákvörðun yfirfasteignamatsnefndar um
framreikningsstuðul á fasteignamati.
Vatnsgjald samkvæmt þessari grein má hæst nema allt að 0,3
hundraðshlutum af álagningarstofni.
4. gr.: Aukavatnsgjald.
Auk vatnsgjalds samkvæmt 1. gr., skulu fyrirtæki og aðrir, er nota
vatn til annars en heimilisþarfa, greiða aukavatnsgjald.
Aukavatnsgjald skal að jafnaði innheimta samkvæmt mældri notkun
og lætur vatnsveitan greiðendum aukavatnsgjalds í té vatnsmæla.
Aukavatnsgjald skal vera kr. 10.00 fyrir hvern rúmmetra vatns, mið-
að við vísitölu byggingarkostnaðar í des. 1994, 199,1 stig.
Aukavatnsgjald breytist í samræmi við ákvarðanir stjórnar veitustofn-
ana.
5. gr.: Vatnssala til Akureyrarhafnar.
Endurgjald hafnarsjóðs til vatnsveitunnar, vegna endursölu vatns til
skipa og báta í Akureyrarhöfn, skal vera kr. 20.00 fyrir hvern rúm-
metra vatns, miðað við vísitölu byggingarkostnaðar í des. 1994,
199,1 stig.
Verð á vatni til hafnarinnar breytist í samræmi við verðbreytingar
sem verða á aukavatnsgjaldi.
6. gr.: Heimæðargjald.
Heimæðargjald, vegna lagningar heimæðar frá götuæð vatnsveit-
unnar í stofnkrana húss, skal reiknast 8 hundraðshlutar af gatna-
gerðargjaldi sem álagningarstofni, samkvæmt reglugerð um gatna-
gerðargjöld á Akureyri.
Heimæðargjald skal þó aldrei vera lægra en sem svarar til heimæð-
argjalds af 400 rúmmetra íbúðarhúsi. (Þetta gildir t.d. um hús með
bráðabirgðarleyfi, hesthúsog önnur „smáhýsi")
í heimæðargjaldi er innifalin ein heimæð allt að 30 m að lengd frá
götuæð í stofnkrana húss.
Húseigandi skal greiða kostnað við heimæð umfram 30 m sam-
kvæmt ákvörðun Hita- og vatnsveitu. Þurfi að bora eða brjóta fyrir
inntaksvinkli skal húseigandi greiða þann kostnað er af því hlýst.
Minnt skal á reglur HVA um inntök og 21. gr. reglugerðar fyrir vatns-
veitur sveitarfélaga, nr. 421/1992, um ídráttarrör.
7. gr.: Um gjalddaga.
Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður
fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu vatnsgjalds hagað á sama hátt
og innheimtu fasteignaskatts. Aukavatnsgjald og endurgjald hafnar-
sjóðs til vatnsveitu, vegna vatns til endursölu skipa og báta í Akur-
eyrarhöfn, skal innheimta eftir á eftir nánari ákvörðun Hita-og vatn-
sveitu Akureyrar.
Heimæðargjald skal innheimt samkvæmt starfsreglum um greiðslu
heimæðargjalda Hita- og vatnsveitu Akureyrar. Greiðslustaður er hjá
bæjargjaldkera eða HVA.
8. gr.: Ábyrgð á greiðslu gjalda.
Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslum gjalda samkvæmt
gjaldskrá þessari.
Vatnsgjald og heimæðargjald samkvæmt gjaldskrá þessari eru
tryggð, ásamt vöxtum og áföllnum kostnaði, með lögveðsrétti í fast-
eign eiganda næstu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti tyrir
hvers konar samningsveði og aðfararveði. Aukavatnsgjald má taka
fjárnámi.
Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Akureyrar
er sett samkvæmt lögum um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 81/1991,
6. og 9. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 og reglugerð fyrir vatns-
veitur sveitarfélaga nr. 421/1992 og gildir frá 1. janúar 1995. Jafn-
framt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Akureyrar, sem sam-
þykkt var í bæjarstjórn Akureyrar, 21. janúar, 1992, og síðari breyt-
ingar á minnsta og mesta gjaldi á rúmmetra (Flokkar I, II, III og IV).
Samþykkt í bæjarstjórn Akureyrar,
10. janúar 1995.
Hita- og vatnsveitustjóri.