Dagur - 07.02.1995, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 7. febrúar 1995
ÍÞRÓTTIR
SÆVAR HREIÐARSSON
Það kemur hvergi betur í Ijós en
í íþróttunum hversu stutt er á
milli sorgar og gleði. Á laugar-
daginn gátu KA-menn glaðst yf-
ir fyrsta bikarnum í handboltan-
um en Valsarar voru svekktir að
horfa á eftir honum norður.
Flestir voru á einu máli um að
leikurinn hafi verið sigur fyrir
handboltann, vel leikinn og
skemmtilegur og úrslitin sann-
gjörn. Þetta höfðu leikmenn og
forráðamenn félagana að segja í
leikslok:
Allir spiluðu vel
Alfreó Gíslason, þjálfari KA:
„Það var ekki hægt aó hafa þetta
betra. Ég er alveg rosalega stoltur
af strákunum, liðió baröist sem
einn maður og þótt sumir hafi
spilaó frábærlega þá spiluðu allir
vel. Ég hafói allan tímann trú á að
vió gætum unnió hvað sem gekk á
í leiknum. Ég var að spila minn
besta leik í vetur enda reynt aó
byggja mig upp fyrir þennan leik
með því aö taka því rólega. Ég vil
ekkert segja á þessari stundu um
hvort ég held áfram að spila fyrst
við erum komnir í Evrópukeppni
en mióað við líðan mlna núna þá
fmnst mér eins og ég eigi aldrei
eftir að spila handbolta framar.“
Gunnarsson var fenginn til það að
messa aðeins yfír okkur í hádeg-
inu í dag og það hjálpaði mér mik-
ið.“
Tekinn í gegn
Sigmar Þröstur Oskarsson KA:
„Vömin var rosalega góð og sókn-
in líka og þá kemur markvarslan.
Ég einbeitti mér vel fyrir leikinn
og náði að byrja vel. Við höfðum
fulla trú á þessu frá byrjun eins og
sést á því að við erum að vinna þá
þrisvar í einum leik. Jóhann Ingi
tók mig aóeins í gegn á fundinum
í dag og ég var ákveðinn að reka
af mér allar bollaleggingar um að
ég væri ekki í þessu til þess að
vinna titla. Vió munum standa
okkur vel í Evrópukeppninni. Er
ekki mottóió, eitt sinn KA-maður,
ávallt KA-maður“?
Sætara og sárara
Valdimar Grímsson KA: „Frá
þeim degi að við komumst í úrslit
hef ég verið ákveóinn í því að við
myndum vinna. Við vorum fyrir-
fram litla liðið í þessu og þvj spar-
aði maður yfirlýsingamar. Ég var
fyrst og fremst svekktur þegar ég
r
: ■
”
Eins og flestir bjuggust við var þetta leikur hinna sterku varna og ekki geflð þumlung eftir. Valur Arnarson fær hér
óblíðar viðtökur frá Jóni Kristjánssyni og Valgarð Thoroddsen. Mynd: si.
Alfreð Gíslason, þjálfari KA:
„Rosalega stoltur af strákunum“
- „lífið heldur áfram,“ segir Þorbjörn Jensson
Lífíð heldur áfram
Þorbjöm Jensson, þjálfari Vals:
„Við misstum þá of mikið fram úr
okkur í byrjun og kannski það hafi
gert útslagið. Maður er alltaf
hundsvekktur þegar maður tapar
en þetta eru hlutir sem reikna
verður meó. Tapið er staðreynd og
vió það lifí ég. Við eram enn inni
í báráttunni um tvo titla og við
mætum bara ákveðnir til næsta
leiks. Ég þekki vel tilfinninguna
að vinna titil og maður er alltaf að
reyna að öðlast hana aftur og aft-
ur. Engu aö síður er ég viss um að
sigurinn er sætari fyrir þá en okk-
ur. Þetta er jú þeirra fyrsti bikar.“
Hárrétt ákvörðun
Patrekur Jóhannesson KA: „Þetta
er minn fyrsti titill og ég er rosa-
lega ánægður með að þetta skyldi
ganga svona upp. Þetta er fyrsta
árið mitt með nýju félagi og segir
mér ekki neitt annað en það að
ákvörðun mín um að skipta fyrir
tímabilið hafi verið rétt. Ég var
ánægður með eigin frammistöðu,
stemmningin í liðinu var frábær
og menn voru virkilega að spila
með KA-hjartanu. Jóhann Ingi
brenndi af vítinu örlagaríka en var
staðráðinn í aó bæta fyrir það.
Þetta var sætt en alveg hryllilega
erfitt. Það var í senn sætara og
sárara þaö skyldi vera Valur sem
við lögðum af velli.“
Barningur og spenna
Jón Kristjánsson Val: „Þetta var
fyrst og fremst skemmtun fyrir
áhorfendur, mikill bamingur og
spenna. Við áttum undir högg að
sækja og mér fannst eins og þeir
svartklæddu, eins og svo margir
aðrir, væru búnir aó ákveða að
kominn væri tími á að bikarinn
færi norður. Vió vorum allan tím-
ann að bíta úr nálinni með það,
t.d. varóandi brottrekstra í tíma og
ótíma. Sigur KA var verðskuldað-
ur í lokin og þeir léku vel.“
Sætur sigur
Þorvaldur Þorvaldsson, formaður
KA, meö bikarinn í hendinni:
„Tilfmningin að halda á gripnum
er alveg ótrúleg. Ég vissi að þetta
yrói rosalega erfitt en var bjart-
sýnn á að þetta myndi ganga.
Stuðningsmenn KA-liðsins voru fjölmargir og létu vel í sér heyra. Hér eru
nokkrir af þeim dyggustu stríðsbúnir. Mynd: SH.
Alfreð Gíslason dreif sína menn
áfram þegar þörfln var mest og
hann kann að fagna. Mynd: sh.
Strákamir stóðu sig frábærlega og
ég á eiginlega ekki til orð til að
lýsa líðan minni eins og er. Þetta
þegar maður tapar en leikurinn var
stórkostlegur og það var gaman að
sjá þessa tæra gleði KA-manna.
Leikurinn var fyrst og fremst sigur
Sigmars Þrastar. Hann varði hreint
stórkostlega og markvarsla hans
réö úrslitum í leiknum og ekkert
annað.“
Leó Örn Þorleifsson lék mjög vel á línunni og hélt Geir Sveinssyni í skugga
SÍnum. Mynd: SH.
var fyrst og freinst sætur sigur eft-
ir tapið í fótboltanum um árið.“
Sigur Sigmars
Brynjar Harðarson, formaður
Vals: ..Maður er alltaf svekktur
Valdimar Grímsson fór oft illa með sína gömlu félaga þrátt fyrir að þeir hafl
tekið fast á honum. Mynd: SH.
Byrjunin gerði útslagið
Geir Sveinsson, fyrirliði Vals:
„Maður er alltaf svekktur að tapa
úrslitaleik og ég neita því ekkert
að eftir að Gummi varði vítið í lok
leiksins og eftir að við unnum upp
forskot þeirra í fyrri framlenging-
unni fannst mér eins og forlögin
væru að segja okkur aö við ættum
að vinna leikinn. Það sem kannski
má segja að hafi gert útslagið voru
fyrstu fimmtán mínúturnar. Ég átti
von á leik af þessu tagi, þó ekki
tveimur framlengingum, og óska
KA til hamingju með sigur sem
þeir áttu skilið.“ SV