Dagur - 07.02.1995, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 7. febrúar 1995
MINNINÚ
Ingólf Lórenz Halldórsson
Fæddur 23. febrúar 1904 - Dáinn 25. janúar 1995
Það er ekki hægt að lýsa honum
afa í orðum, minningamar einar
geyma það. Hann afi, Lórenz
Halldórsson, var engum líkur.
Það er margt sem sækir á þegar
að ég sit og skrifa þessar línur. Afi
var fæddur á Eskifirði 23.02.1904
og var því tæplega 91 árs þegar að
hann lést. Það var alltaf stutt í
hláturinn hjá honum afa. Eg var
ekki há í loftinu þegar að ég kom
til þeirra fyrst í Fróðasundió á Ak-
ureyri og þar líkaði mér vel að
vera. Þar var ég meira og minna
til sextán ára aldurs, eftir aó ég fór
þaðan hafði gamli maðurinn oft
orð á því „að enginn hafi beðið
mig um aó fara“. Það var mitt
verk að sjá um að klippa neglum-
ar og raspa fætumar á honum eftir
fótabað og fékk ég borgað fyrir
það 25 kr. sem þóttu miklir pen-
ingar í þá daga. Hann afi var alla
tíó mikill vinnuþjarkur enda fyrir
stóm heimili að sjá. Hann afi
hafði góöa konu sér við hlið, hana
ömmu. Hún amma hét Aðalheiður
Antonsdóttir og var myndarkona í
öllu sem hún tók sér fyrir hendur
bæði í hannyrðum sem og í öðmm
verkum. Amma lést skyndilega
1978 og var það honum mikill
missir. Hann Afi vann við ýmiss
störf en lengst af stundaði hann
sjómennsku sem honum var í blóð
borin. Það vom ófár sögumar sem
VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN 04.02.1995
CN J ( CVI —y
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.50(5 3 4.871.030
r\ 4 al 5 r1 Plús k 7 3 358.020
3. 4 0(5 262 7.070
4. 3 a( 5 8.844 480
Heildarvinnlngsupphæð: 21.784.610
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
hann sagói okkur af sínum stráka-
pörum á sjónum. Hann afi stund-
aði mikið veiðar hér á ámm áður,
bæði skotveiði og laxveiði sem
hann hafði mikla unun af og vom
ófáar veiðisögumar sem hann
sagði, trúlega getur enginn sagt
þær eins og hann. Honum vom
bamabömin alltaf hugljúf og
bamabamabömin þegar að þau
komu í heiminn, hann hugsaði
alltaf fyrir því að eiga eitthvað
góðgæti í dós í skápum hjá sér og
þótti þeim stuttu ekki amalegt að
koma í heimsókn til langafa þar
sem hann bjó í Víóilundi hjá
Gunnari syni sínum. Þaö sem
langafabömunum þótti mest
spennandi var að fá karamellur
sem héngu á hring og líktist
kransi. Aðalsportið var að næla
sér í eina karamellu án þess að
foreldrarir sáu til og undmðust
bömin mikið hvar hann hefði
fengió allt þetta góðgæti. Þá sagð-
ist hann eiga vinkonu í Reykjavík
sem hann myndi spyrja hvort hún
ekki gæti gert karmellukrans fyrir
þau. Og sú ósk hefur verió upp-
fyllt, þau em búin að fá sína
kransa.
Það er um eitt ár síðan hann afi
veikist en hann náði sér af þeim
veikindum. Síðastliðið ár vissi
enginn hvort þeir komu til afmæl-
isveislu eða jarðarfarar, en hann
afi kom öllum á óvart með því að
halda góða afmælisveislu. Upp úr
því fór honum mikið fram enda
hafði hann góóan lækni, Nick, sér
við hlið bæói varðandi veiðiferðir
og annað, Nick var orðinn eins og
einn af fjölskyldunni.
Synir hans komu til hans því
sem næst daglega og fóm með
hann í bíltúr niður á bryggju eða
út í Bót til að kíkja á bátasjómenn-
ina þegar þeir komu að bryggju.
Ekki má nú gleyma sumarbú-
staóaferóunum í sumarbústað
Gunnars á sumrin sem vom hon-
um mikils virði og ekki langt að
fara, rétt hinum megin við Pollinn,
og áttu þeir feðgar Gunnar og afi
þar góðar stundir saman. Gunnar
hefur verið afa stoð og stytta síðan
að amma féll frá og var afi eigin-
gjam á Gunnar. Síóastliðið sumar
fékk ég lánaðan sumarbústaðinn
eins og oft áður.
Feðgamir komu að venju og
heimsóttu mig og Ágúst. Eg veikt-
ist daginn eftir að ég kom norður
og þurfti upp á sjúkrahús, hafði sá
gamli miklar áhyggjur. Ég mátti
ekki hreyfa mig úr rúmi, þá var
hann komin með stafinn og sagði
„þú átt að liggja í rúminu stelpa“,
svo lá leiðin suður og ég lögð inn
á sjúkrahús. Hann afi, orðinn þetta
fullorðinn, hringdi sjálfur án
nokkurrar hjálpar á spítalann til að
fá upplýsingar um líðan mína og
spjalla, svona var hann afi. Einn
af þeim siðum sem skapaðist eftir
að ég hætti siglingum var að tala
við afa á hverjum degi í síma, þar
var mikið rætt, allt frá ítölskum og
kínverskum uppskriftum og að
könnun hans á örbylgjuofninum,
sem hann hafði mikið gaman af.
Nú verður mikill söknuóur, hann
afi er allur en alltaf verður hann
ofarlega í huga mínum.
Þegar að ég var að sigla og
kom á Seyðisfjörð þá komu hann
og Gunnar alltaf einu sinni á
sumri að heimsækja mig og bauð
ég afa að koma með í eina ferð, en
honum fannst hann of gamall, en
sá síðar eftir því að hafa ekki þeg-
ið boðið. Enda var hann afi alltaf
ungur í anda. Nú þegar hann afi er
kominn yfir á æðri tilverustig, þar
sem ég veit að amma hefur tekið á
móti honum með útbreiddan
faðminn, þá vil ég þakka afa fyrir
samverustundimar sem við áttum
saman. Starfsfólki lyfjadeildar
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
sendi ég mínar bestu kveöjur fyrir
góða umönnun og góðan hug til
afa.
Elsku Gunnsi, ég veit að sökn-
uður þinn verður hvað mestur, en
góðar minningar um hann afa
munu ylja þér og okkur öllum um
ókomin ár. Ég, Ágúst, Haukur
Ingi og Anna biðjum góðan guö
að gefa þér og systkinunum styrk
á þessum erfiðu tímamótum. Lífió
heldur álfam og mun minningin
um afa og langafa lifa í hugum
okkar allra.
Alla Gunna.
Einar Stefán Sigurðsson
Fæddur 23. desember 1916 - Dáinn 15. janúar 1995
Þann 15. janúar andaðist í hjúkr-
unarheimilinu Seli á Akureyri
Einar Stefán Sigurðsson, sambýl
ismaður Huldu systur minnar. Hjá
þeim dvaldi ég oftast ef ég staldr-
aói við fyrir norðan á síðustu ár-
um. Var það með ólíkindum
hversu vel hann tók mér og umbar
þessa flökkukind aó sunnan á
hverju sumri og ekki var talið eftir
sér að skjóta manni bæjarleið. Var
hann jafnan fljótari til að bjóða
greiðann en ég að kvabba. Árið
1976 dvöldum við hjónin í sumar-
húsi á Illugastöóum í Fnjóskadal.
Þangað heimsóttu þau okkur Einar
og Hulda og var þá haldið bæði í
Skuggabjörg og út á Flateyjardal.
Þetta voru bjartir hásumardagar
og nutum við öll samverunnar og
ferðalagsins.
Fyrir nokkrum árum fór heilsu
Einars mjög að hraka og lagðist
þá allt á eitt þó astminn væri hon-
um þungbærastur. Fór nú ferðum
þeirra um landið að fækka en þau
ferðuðust töluvert meðan heilsa
hans leyfði, báðum til mikillar
ánægju og nú var sjón hans einnig
tekin að daprast og orðið erfiðara
aö stjóma ökutækinu. Fyrir fáum
ámm hittist þannig á að ég sótti
meóöl fyrir Einar í apótek. Mér
fannst þessi sekkur síga í, enda
komu upp úr honum tíu tegundir
af lyfjum. Og ég spurói sjálfa mig
í fávisku minni: Getur mannslík-
aminn nýtt sér og unnió úr öllu
þessu, heilsu sinni til hagsbóta?
Ég efaðist og efast enn um slíka
hluti, enda þekking mín af skom-
um skammti á því sviði. Síðan
bættist við súrefnistækið og allar
hinar vélamar sem áttu að létta
undir. Síðastliðið vor var Einar
orðinn langlegusjúklingur í Dval-
arheimilinu Seli og fyrir jólin varð
hann að fara á sjúkrahúsið til
stuttrar dvalar. Er hann kom aftur
upp í Sel hafði hann orð á því að
honum fyndist hann vera að koma
heim og segir það sína sögu um
aðhlynninguna í Seli.
Ég heimsótti Einar í Sel síðast-
liðið sumar og gat hann þá setið
úti um stund með tækin sín og tól-
in sem nú voru orðin honum
ómissandi. Samt gladdist hann yf-
ir góðum fréttum öómm til handa
þó hann vissi að hann ætti ekki
afturkvæmt til betri heilsu. Þegar
ég hugsa til baka held ég að hlý-
hugur til þeirra sem höllum fæti
stóðu og greiðasemi við náungann
hafi verið honum eðlislægur.
Ég flyt kveóju frá Hildi Jakob-
ínu, dóttur minni. í hennar huga
voru Einar og Hulda sem afi og
amma.
Þetta em örfá minningarbrot,
síðbúin kveðja norður yfir heiðar.
Huldu systur minni, sem alltaf
hefur verið að styrkja einhvem og
styðja síóan ég man eftir mér, flyt
ég samúóarkveðju. Ástvinum Ein-
ars sendi ég einnig samúðarkveðju
og bið honum blessunar, vona aó
nú sé loks fengin hvíld frá lang-
vinnum þrautum.
Kristín Guðnadóttir.
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107,600 Akureyri
Sími 96-26900
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107, 3.
h., Akureyri, föstudaginn 10. febrúar
1995 kl. 10.00, á eftirfarandi eignum:
Aðalstræti 63, Akureyri, þingl. eig.
Kristján Jóhannsson og Anna G.
Torfadóttir, gerðarbeiðendur Akur-
eyrarbær, Landsbanki íslands,
Tryggingastofnun ríkisins og Vá-
tryggingafélag fslands.
Ásholt 8, Árskógshreppi, eignarhl.,
þingl. eig. Óðinn Valdimarsson,
gerðarbeiðandi Olíuverslun ís-
lands.
Borgir, Grímsey, þingl. eig. Harald-
ur Jóhannsson, gerðarbeiðandi
Sýslumaðurinn á Akureyri.
Brekkugata 10, neðsta hæð, Akur-
eyri, þingl. eig. Tryggvi Kjartans-
son, gerðarbeiðandi Samvinnulíf-
eyrissjóðurinn.
Einholt 6a, Akureyri, þingl. eig.
samkv. kaupsamningi Baldvin Þor-
valdsson, gerðarbeiðendur Lands-
banki íslands, Vátryggingafélag fs-
lands h.f. og íslandsbanki h.f.
Fiskverkunarhús Efri-Sandvík,
Grímsey, þingl. eig. Haraldur Jó-
hannsson, gerðarbeiðandi Sýslu-
maðurinn á Akureyri.
Fjólugata 13, neðri hæð, Akureyri,
þingl. eig. Sigurgeir R. Gissurarson
og Anna S. Arnardóttir, gerðarbeið-
endur Akureyrarbær, Byggingar-
sjóður ríkisins og Samvinnulífeyris-
sjóðurinn.
Gamla búð, Svalbarðseyri, þingl.
eig. Lárus Hinriksson, gerðarbeið-
endur Landsbanki íslands og
Sýslumaðurinn á Akureyri.
Geldingsá, íb. 00-01, Svalbarðs-
strandarhreppi, þingl. eig. Jó-
hannesína Svana Jónsdóttir, gerð-
arbeiðendur Sýslumaðurinn á Ak-
ureyri og íslandsbanki h.f.
Gránufélagsgata 46, ásamt öllum
vélum og tækjum, Akureyri, þingl.
eig. Oddi h.f„ gerðarbeiðandi Iðn-
lánasjóður.
Grund, Grýtubakkahreppi, þingl.
eig. Sigurður Helgason, gerðar-
beiðendur Sýslumaðurinn á Akur-
eyri og Vátryggingafélag (slands
h.f.
Hafnarstræti 79, efsta hæð, Akur-
eyri, þingl. eig. Baldvin Arngríms-
son, gerðarbeiðendur Akureyrar-
bær, Lífeyrissjóður KEA og Lífeyr-
issjóður sjómanna.
Hallgilsstaðir, hluti lands, Arnarnes-
hreppi, þingl. eig. Skúli Torfason,
gerðarbeiðendur Kaupfélag Eyfirð-
inga og íslandsbanki h.f.
Hánefsstaðir, íbúðarhús og lóð,
Svarfaðardal, þingl. eig. Alfreð Vikt-
or Þórólfsson, gerðarbeiðendur Fell
h.f. og Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins.
Hella, loðdýrabú (minkahús) Ár-
skógsshreppi, þingl. eig. Höfðafell
h.f., gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn
á Akureyri.
Hjalteyrargata 2, austurhl. Akureyri,
þingl. eig. Vélsmiðjan Oddi h.f.,
gerðarbeiðandi Iðnlánasjóður.
Jaðar, ris og hl. miðhæðar, Dalvík,
þingl. eig. Georg W. Georgsson,
gerðarbeiðandi íslandsbanki h.f.
Kartöflugeymsla og verksmiðja,
Svalbarðseyri, þingl. eig. BDS Virki
h.f., gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn
á Akureyri.
Keilusíða 7h, Akureyri, þingl. eig.
Marta E. Jóhannsdóttir, gerðar-
beiðendur Akureyrarbær og Vá-
tryggingafélag fslands h.f.
Klapparstígur 19, eignarhl. Ár-
skógshreppi, þingl. eig. Valur
Höskuldsson, gerðarbeióendur
Bókhaldsskrifstofan og Olíuverslun
íslands.
Langamýri 18, Akureyri, þingl. eig.
Sigþrúður Siglaugsdóttir, gerðar-
beiðandi íslandsbanki h.f.
Langholt 24, Akureyri, þingl. eig.
Lilja Margrét Karlesdóttir, gerðar-
beiðendur Kaupþing h.f. og fs-
landsbanki h.f.
Laufásgata 1,2 bogaskemmur, Ak-
ureyri, þingl. eig. Vélsmiðjan Oddi
h.f., gerðarbeiðendur Iðnlánasjóður
og Lífeyrissjóður KEA.
Melasíða 3, íb. 301, eignarhl. Akur-
eyri, þingl. eig. Þórólfur Jóhanns-
son, gerðarbeiðendur Sparisjóður
vélstjóra og fslandsbanki h.f.
Múlasíða 1h, Akureyri, þingl. eig.
Álfheiður Pálína Magnúsdóttir,
gerðarbeiðandi Akureyrarbær.
Múlasíða 5f, íb. 203, Akureyri,
þingl. eig. Júlía Skarphéðinsdóttir,
gerðarbeiðendur Akureyrarbær og
Byggingarsjóður verkamanna.
Möðrufell, Eyjafjarðarsveit, þingl.
eig. Bjarni R. Guðmundsson og
Ragnheiður Austfjörð, gerðarbeið-
andi Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins.
Norðurgata 19, neðri hæð, eignar-
hl. Akureyri, þingl. eig. Rúnar Ei-
ríksson, gerðarbeiðandi Kristmund-
ur Stefánsson.
Reykjasíða 3, Akureyri, þingl. eig.
Vilhelm Ágústsson, gerðarbeiðandi
fslandsbanki h.f.
Smárahlíð 18i, íb. 301, Akureyri,
þingl. eig. Sigríður J. Gísladóttir,
gerðarbeiðendur Akureyrarbær,
Byggingarsjóður verkamanna og
Vátryggingafélag fslands.
Sunnuhlíð 12, X-hluti Akureyri,
þingl. eig. Pálína s.f., gerðarbeið-
andi íslandsbanki hf.
Sveinbjarnargerði 2, Svalbarðs-
strönd, þingl. eig. Fjöregg h.f.,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á
Akureyri.
Vestursíða 36, íb. 202, Akureyri,
þingl. eig. Sólveig H. Sverrisdóttir,
gerðarbeiðandi Vátryggingafélag
Islands h.f.
Þverá í Skíðadal, Svarfaðardals-
hreppi, þingl. eig. Ingvi Eiríksson,
gerðarbeiðandi Stofnlánadeild
landbúnaðarins.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
6. febrúar 1995.