Dagur - 15.02.1995, Page 2

Dagur - 15.02.1995, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 15. febrúar 1995 FRÉTTIR Olíugjald tekið upp í staö þungaskatts á díselbílum: Gjaldbyrðin á ekki að breytast - FÍB fagnar breytingunni en hvetur til lækkunar gjaldsins Endurgreiðsla oftekinna skatta oggjalda Rfldsstjórnin hefur samþykkt tillögu ijármálaráðherra um að leggja firam á Alþingi frumvarp til laga um endur- greiðslu oftekinna skatta og gjatda. Með þessu er komið á nauðsynlegri réttarbót gagn- vart skattgreiðendum. Sérstaklega eru nefnd þrjú atriði í þessu sambandi. í fyrsta lagi eru tekin af öll tvímæli um ótvíræðan rétt skattgreiðcnda á endurgreiðslu, í öðru lagi verða endurgreiðsiumar með vöxtum og í þriðja lagi eru í sumum til- fellum greiddir dráttarvextir. Þá samþykkti ríkisstjómin tillögu fjármálaráðherra um breytingu á frumvarpi til laga um staógreiðslu opinberra gjalda, tekjuskatt og eignarskatt og yfirskattanefnd. Breyting- amar lúta að greiðslu veróbóta á staðgreiðslufé scm cndur- greitt er á staðgreiðsluárinu. Er þetta gert til samræmis við reglur sem gilda um endur- greiðslu eftir að álagningu skatta iýkur. Breyting á lögum um tckju- skatt og eignarskatt tckur til þess að vaxtaprósentan verður sú sama og kveðið er á uni í al- menna frumvarpinu og að iög- fest vcrði ákvæði um greiðslu dráttarvaxta í þeim tilvikum þcgar mál fara fyrir yfirskatta- nefnd og úrskuröur er ckki kveðinn upp fyrr en eftir að iögbundnir frestir eru iiónir. Ennfremur er lagt til að í öllum tilvikum verði greiddir dráttar- vextir frá þeim tíma er dórns- mál telst hðfðaó vegna ágrein- ings um greiósluskyldu eóa fjárhæó skatts. Auk framangreinds er í frumvarpinu ákvæði um breyt- ingar á lögum um yfirskatta- nefnd, í þá veru aó lögfesta ákveðna fresti til úrskuróar í öllum kærumálum, segir í fréttatilkynningu frá fjármála- ráðuneytinu. KK Sem kunnugt er hafa eigendur bifreiða sem brenna dfselolíu til þessa þurft að greiða svokallað- an þungaskatt, sem kemur í raun í stað þeirrar skattlagning- ar sem er á bensín og er inni í bensínverðinu. Þann 1. júlí nk. verður núverandi þungaskatts- kerfi lagt niður og þess í stað tekið upp svokallað ohugjald. f framkvæmd vinnur kerfið með sama hætti og skattlagningin á bensín nú. Því hækkar verð á olíulítra og verður á sama róli og bensínverð. Olíugjaldinu er í megin atrið- um ætlað að leggjast á sömu aóila og þungaskatturinn gerir og því veróur um endurgreiðslu að ræða til þeirra notenda olíu sem ekki bera þungaskatt nú, t.d. olía til út- gerðar, sérleyfishafa og eigenda almenningsvagna, olía til húshit- unar og búrekstrar, svo dæmi sé tekið. I stað endurgreiðslukerfis- ins kom einnig til greina að taka upp litunarkerfi, þ.e. að lita skatt- frjálsa olíu, en horfið var frá því sökum þess hversu kostnaðarsamt væri að koma slíku dreikerfi upp til viðbótar því kerfi sem fyrir er. Einn heisti kosturinn við nýja kerfið er að undanskot frá núver- andi kerfi eru umtalsverð, þau ættu að minnka mikið. Einnig er kostnaður við framkvæmd mun minni í nýja kerfinu. Þungaskatts- kerfi þekkist auk þess nánast hvergi nema á Islandi. Með þessu er gjaldtaka af dísel- og bensínbif- reiðum samræmd og gjaldtakan breytist frá því að vera gjald á ekna kílómetra yfir í gjald á notað eldsneytismagn og því veróur hvati til þess að eiga frekar spar- neytnari díselbifreiðar. Díselbif- reiðar eru um 10% dýrari í inn- kaupi en sambærilegar bensínbif- reiðar en á móti kemur að þær eyða minna eldsneyti á ekinn km. Sú spurning sem eigendur dís- elbifreiða spyrja sig í þessu sam- bandi er hvort reksturskostnaður bílsins hækki. Upptaka olíugjalds- ins miðast við það að kostnaður- inn breytist sem minnst hjá þeim sem skilvísir eru í núverandi kerfi. Þeir sem hafa stundað undanskot veröa hins vegar væntanlega að greiða meira en verið hefur. Lík- legt er að verð á olíulítra verði milli verðs á 92 og 95 oktana bensíni og það fer því eftir eyðslu bílsins hvort gjaldbyrði hækkar eða lækkar. Fyrir þá sem nú eru á föstu þungaskattsgjaldi (ekki með mæli) og aka mikið, verður nýja kerfiö dýrara. Svo dæmi sé tekið af díselbíl sem er 1,1 tonn og eyóir um 7,2 1/100 km þá verður ódýrara í nýja kerfinu aó reka bílinn meðan ekið er undir 33-35 þús. km á ári. Sé ekið meira verður kostnaðurinn hærri en áóur. Tölumar em að sjálfsögðu breytilegar eftir þyngd bíla og eyðslu, en sem fyrr segir er ákveðinn hvati í nýja kerfinu til að eiga frekar spameytnari bif- reiðar og ástunda spameytni við akstur, miðað við það sem nú er. Runólfur Ólafsson hjá FÍB sagði menn þar á bæ fagna þessari kerfisbreytingu en hins vegar væri olíugjaldið og þar með útsöiu- verðió of hátt og í þessu væri falin skattahækkun. „Ef við miðum við löndin í kringum okkur þá er dís- elolían 6 til 25% ódýrari en lítra- verð á ódýrara bensíni. Hér stefnir í að verðið verði um 70,83 kr., eða hærra en 95 okt. bensín. Virðis- aukaskattur af 71,83 kr. er mun hærri en af 22,90 kr„ sem er verð á díselolíulítranum í dag. Þama er því um að ræða a.m.k. 200 millj- óna aukatekjur í ríkissjóð. Það er að okkar mati vansæmandi að nota sjálfsagða kerfisbreytingu, sem er réttlætismál til skattahækk- ana. FÍB fagnar því olíugjaldinu sem slíku en hvetur til lækkunar á því miðað við núverandi tiliögur." Einnig hafa verið leidd rök að því að þar sem díselbifreiðar eru dýrari í innkaupi muni ekki borga sig fyrir „meóaljóninn" að fjár- festa í díselbíl í nýja kerfinu. Það þykir mörgum súrt í broti þar sem ný díselfólksbifreið eyðir um 30% minna eldsneyti en væri hún knúin bensínhreyfli og mengar auk þess minna. HA Jónas G. Rafnar látinn Rússneskt skip landaði á annað hundrað tonnum af fiski á Húsavík um hclg- ina, en hélt síðan til Sauðárkróks. Rússar vinna sjálfir við löndun úr skip- inu. Mynd: IM Meðalúrkoma á Siglu- firði 130 mm í janúar - varð mest árið 1990 sl. 12 ár Jónas Gunnar Rafnar, fyrr- verandi alþingismaður og bankastjóri, er látinn á sjötug- asta og fimmta aldursári. Jónas fæddist 26. ágúst 1920. Foreldrar hans voru Jón- as Rafnar, yfirlæknir á Krist- neshæli, síðar á Akureyri, og Ingibjörg Bjamadóttir Rafnar, húsfreyja. Árið 1940 lauk Jónas G. Rafnar stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og lögfræðiprófi frá Háskóla ís- lands árið 1946. Hann rak lög- fræðistofu á Akureyri frá miðju ári 1946 til ársloka 1962. Árið 1961 var hann settur banka- stjóri við Utvegsbanka íslands í Reykjavík til ársloka og aftur 1. nóvember 1963 til 1. júní 1984. Jónas G. Rafnar tók virkan þátt í stjómmálum og var al- þingismaður Akureyringa fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1949-1956 og 1959. Hann var landskjörinn varaþingmaóur í maí 1957 og alþingismaður Norðurlands- kjördæmis eystra 1959-1971. Á ámnum 1967-1971 var Jónas G. Rafnar forseti efri deildar Alþjngis. Á ámnum 1958 til 1962 var hann bæjarfulltrúi á Akureyri og átti auk þess sæti í stjóm Ut- gerðarfélags Akureyringa hf. 1958-1960. Hann átti og sæti í stjóm Laxárvirkjunar 1956- 1971. Auk þessa sat hann í fjölda nefnda og stjórna og gegndi fjölmörgum trúnaðar- störfum fyrir Sjálfstæð- isflokkinn. Eftirlifandi eiginkona hans er Aóalbjörg Bjamadóttir Rafn- ar, hjúkrunarkona. Þau eignuð- ust þrjár dætur; Halldóm f. 1947, Ingibjörgu Þórunni f. 1950 og Asdísif. 1953. óþh Meðalúrkoma á Siglufirði í janúarmánuði sveiflast mjög mikið milli ára, var um 130 mm í janúarmánuði og hefur ekki verið meiri síðan á árinu 1990, en þá fór hún í liðlega 190 mm. Það er langmesta úrkoma á Siglufirði í janúarmánuði í 12 ár. Minnst var úrkoman árið 1987, aðeins tæpir 20 mm, og varla hef- ur það glatt siglfirska skíðamenn, en kannski mætti úrkoman vera minni og jafnari. Á meðfylgjandi súluriti sést vel hversu sveiflumar hafa verið miklar á janúarúrkom- unni á Siglufirði undanfarin ár. GG Nýtt landbúnaöar- blaögefiöút Bændasamtökin hafa ákveð- ið að gefa út nýtt landbúnað- arblað sem komí út hálfs- mánaðarlega og verði 1 dag- blaðsbroti. Blaöinu veröur dreift endurgjaidslaust inn á hvert heimili t landinu. Áætl- að er að útgáfa blaðsins hefjist f næsta mánuði. Frá þessu er greint f nýjasta tölublaði Freys. Þar kemur fram að Áskell Þórisson, fyrrverandi ritstjóri Dags og núverandi upplýsingafuIItrúi Samkeppnisstofnunar, hefur verið ráðinn ritstjóri þessa nýja blaðs. Jafnframt veröur blaösföufjöldi Freys minnk- aður um sem næst helming og sömuleiðis fjöldi tölu- blaöa Freys. Júlíus hættlr Svarfdælingurinn Júlfus Jón Danfelsson hefur látiö af starfi ritstjóra búnaðarblaðs- ins Freys, en því hefur hann gegnt frá árinu 1980. Júlfus varð sjötugur 6. janúar sl. Útbrelddur misskilningur Lesandi blaösins haföi sam- band við ritsljóm og sagðist hafa orðiö vör viö þann út- breidda misskilning meðal framhaldsskólanema að þeir gætu notiö atvinnuleysis- bóta í yfirvofandi verkfalli kennara. Það er rétt að undirstrika aö þetta er aivarlegur mis- skilningur, lög gera ekki ráð fyrir þvf að framhaldsskóia- nemar hafi rétt til atvinnu- leysisbóta þótt lærifeður þeirra fari í verkfall. Lýsirfuröu á afnagi á Alþingi Á kjördæmisfundi Þjóövaka í Noröurlandskjördæmi eystra, sem var haldinn sl. laugardag var samþykkt ályktun þar sem lýst er furðu „yfir því afnagi sem fram hefur komið á Alþingi, vegna flutnings embættis veiöi- stjóra til Akureyrar." í ályktuninni er einnig harmaö „aö Eyjafjarðar- svæöið, sem er eina mót- vægi við höfuðborgarsvæö- ið, skulí þurfa aö búa við úti- bú varöandi þróun og sölu fiskafurða þegar höfuðstöðv- ar eru í boöi.“ Þjóðvaki telur aö kjark og framsýni þurfi f málefnum landsbyggðarinnar, ný at- vinnutækifæri til atvinnu og uppbyggingar skapist ekki meðan ráðamenn ríghaldifí óbreytt ástand. Verktækníhf. gjaldþrota HéraðsdÓmur Noröurlands eystra hefur tekið bú Verk- tækni hf., Þrastarlundi á Ak- ureyri, til gjaldþrotaskipta. Ólafur Birgir Ámason hrl. á Akureyri hefur veriö skipaður bústjóri þrotabúsins. Fyrsti skiptafundur veröur haldinn 28. apiil nk.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.