Dagur - 15.02.1995, Page 9
Miðvikudagur 15. febrúar 1995 - DAGUR - 9
Á slóðum Ferðafélags Akureyrar:
Kristnes - Súlumýrar
í nágrenni Akureyrar er fjöldi
skemmtilegra gönguleióa, hvort
sem er á vetri eða sumri. Velja má
leiðir á láglendi, í miðjum hlíðum
eða upp á hæstu tinda. I skamm-
degi og misjöfnum veðrum er oft
heppilegra að hætta sér ekki of
hátt upp í fjöllin enda má finna
skemmtilegar leiðir með miklu út-
sýni þótt ekki sé farið upp fyrir
miðjar hlíðar. í þessari grein er
lýst einni slíkri gönguleið: frá
Krismesi í Eyjafjarðarsveit norð-
vestur yfir Stórhæð og Súlumýrar,
að sorphaugum Akureyrar á Gler-
árdal.
Við hefjum feróina hjá Krist-
nesspítala í Eyjafjarðarsveit.
Sagnir herma að Kristnes sé land-
námsjöró Helga magra. Arið 1927
var stofnaó hér hæli fyrir berkla-
sjúklinga en í dag eru á Kristnes-
spítala endurhæfingardeild og
öldrunarlækningadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri.
I brekkunum ofan Kristnesspít-
ala er stórt skógræktarsvæði, um
27 hektarar lands. Agætt er að
ganga upp brekkuna norðan undir
skógræktargirðingunni. A árunum
1941-1961 voru gróðursettar um
50 þúsund plöntur hér í hlíðinni
og er þetta nú hinn vöxtulegasti
skógur, Kristnesskógur. Þegar
gengið er upp hlíðina norðan
Kristnesskógar verða á leið okkar
nokkur gömul barrtré, greni og
fura, greinilega ekki hluti Krist-
nesskógar. Hér er „Stjömureitur",
kenndur við guðspekistúkuna
„Bláu Stjömuna“. Bræður í þess-
ari stúku gróðursettu hér tré, lík-
lega um eöa fyrir 1920, sem af-
mörkuðu femingslaga reit, um 50
m á hvem kant. Hér var lengi blá
stjarna á hliðstólpa við reitinn en
stjarnan eyðilagðist er hermenn
höfðu hana að skotspæni í heims-
styrjöldinni síðari.
Við norðvesturhom Kristnes-
skógar er tilvalið að blása mæð-
inni. Nú höfum við hækkað okkur
um 140 metra og héöan er hið feg-
ursta útsýni yfir Kristnessvæðið
og bróðurpartinn af Eyjafjarðar-
sveit. Héðan stefnum við til norð-
vesturs, skáhallt upp hlíðina, í
stefnu á Stómborg, klettahæð upp
frá bænum Ytragili í Eyjafjarðar-
sveit.
Hlíðin norður frá Kristnesi er
þægilega aflíðandi, ágætt göngu-
skíðaland á snjóþungum vetri. Við
fömm yfir lækinn Bróká, á landa-
merkjum Reykhúsa og Teigs.
Uppi í brúninni er farið rétt ofan
vió upptök Gilsárgils og heitir þar
Botnhóll við gilendann. Er þá
skammt að rótum Stómborgar
sem rís töluvert yfir nánasta um-
hverfi sitt, 486 m yfir sjó. Af
borginni er mjög gott útsýni aust-
ur og suðaustur yfir Eyjafjarðar-
sveit. Vestan við Stómborg er
efsti hluti Súlumýra og standa þar
grýttir hólkollar, Geitklappir, upp
úr flóanum eins og eyjar.
Frá Stóruborg er stutt og greið
leið, um 1,5 km, norðvestur á
Stórhæð. Við göngum upp að
vörðu syðst á hæðinni, um 520 m
yfir sjó. Héðan er hið fegursta út-
sýni, bæði austur yfir Eyjafjarðar-
sveit, norður um Eyjafjörð og
vestur í Hlíðarfjall. I suðaustri
gnæfa Súlur og eru sennilega
hvergi tignarlegri að siá en héðan
frá Stórhæð.
Við rætur Stórhæðar að vestan
er komið á Súlumýrar. Hér er
jafnan mikið fannkyngi á vetrum
og mjög þægileg gönguskíðaleið
undan brekku niður með Heimari
Hlífá í stefnu á sorphaugana á
Glerárdal. Er þá best að halda sig
norðanvert við Heimari Hlífá og
fara niður gildrag norðan árinnar
sem nær niður undir sorphaugana.
Má hér oft finna auóvelda göngu-
skíðaleið allt niður að bílastæðinu
vió haugana.
Ferðafélag Akureyrar (FFA)
efnir til skíðaferðar frá Kristnesi
um Stórhæð og Súlumýrar að
sorphaugunum á Glerárdal laugar-
daginn 18. febrúar nk., sjá
meðfylgjandi kort af leiðinni. Far-
ið verður frá skrifstofu FFA í
Strandgötu 23 kl. 09 að morgni og
ekið í Kristnes. Gönguleiðin er
um 8 km, hækkun frá Kristnesi
upp á Stórhæð um 440 m, áætlað-
ur göngutími 3-4 klst., létt ganga.
I lokin verða þátttakendur sóttir á
bílastæðið við sorphaugana.
Ingvar Teitsson,
formaður gönguleiðanefndar
FFA.
Heimildir:
1) Brynjólfur Ingvarsson, Reykhúsum: Munn-
leg heimild þ. 11.02.95.
2) Magnús Kristinsson: Fjallabálkurinn um-
hverfis Glerárdal. Árbók Feróafélags íslands
1991, bls. 67-134.
3) Skógræktarfélag Eyfirðinga: Útivistarsvæói
í Kristnesskógi, tillögur, 1993.
Yfirlitskort af gönguleiðinni frá Kristnesi um Súlumýrar að sorphaugunum
á Glerárdal. Hjalti Jóhannesson staðfærði eftir korti Landmæiinga ísiands.
skíðaferð með FFA á Súlumýrum vorið 1992. Súlur í baksýn.
Ljósmynd: Ingvar Teitsson
Laugardagskvöldíb 18. febrúar
Á rshátíÖ
Starfsmannafélags
Kaupfélags Eyfírðinga
S.K.E.
119
Húsið opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.30
ÍðÉMiiðeig
A tilboði alla daga - öll kvöld:
Súpa dagsins
B.B.Q. lambaframhryggjarsneið
og kaffi
Verð aðeins kr. 690
Ennfremur okkar vinsæla hamborgaratilboð alla daga
Sími22200