Dagur - 15.02.1995, Page 15

Dagur - 15.02.1995, Page 15
Miðvikudagur 15. febrúar 1995 - DAGUR - 15 IÞROTTIR SÆVAR HREIÐARSSON Frjálsar íþróttir - Meistarmót íslands 15-18 ára: Glæsilegur árangur Norðlendinga Þórsarar sendu a- og b-lið til keppni og hér sjást hressir strákar úr b-liðinu ásamt þjálfurum sínum. Sigurvegarari í keppni c-liða var lið KA C1 og strákarnir voru greinilcga stoltir af því að leggja félaga sína í C2 á hlutkesti. ar 1977 og 1978. í 50 metra hlaupi skipuðu norðanstúlkur þrjú efstu sætin. Linda Olafsdóttir, USAH og Valgerður Jónsdóttir, HSÞ, komu jafnar í mark á 6,8 sekúndum og næst þeim kom Hildur Bergsdóttir, UFA á 7,2 sekúndum. Valgerður varð aftur í 2. sæti í 50 metra grinda- hlaupi, á 8,5 sekúndum, og stalla hennar úr HSÞ, Amfríður Gígja Amgrímsdóttir kom henni næst á 9,2 sekúndum. Valgerður tók einnig 2. sætið í langstökki þar sem hún stökk 5,24 metra og Hildur Bergsdóttir varð þriðja með 5,05 metra. Hildur sigraði síðan í langstökki án atrennu þar sem hún hafði mikla yfirburði og stökk 2,50 metra. Linda Ólafsdóttir varð í 2. sæti í þrístökki með 9,94 metra og Ólöf Björg Þórðardóttir, HSÞ, varð í 3. sæti í kúluvarpi með kast upp á 9,98 metra. Skíðaganga: Haukur sigraði á KA-móti Haukur Eiríksson frá Akureyri sigraði í KA-mótinu í skíðagöngu, sem fram fór í Hlíðarfjalli sl. sunnudag. Haukur átti að venju í harðri baráttu við Kristján Hauks- son frá Ólafsfirði en Haukur var átta sekúndum á undan þegar upp var staðið. í kvennaflokknum hafði Svava Jónsdóttir frá Ólafs- firði talsverða yfirburði og sigraði örugglega. Gengið var með frjálsri aðferð og úrslit urðu sem hér segir: Drengir 8 ára og yngri: (Gengið 1 km) 1. Hjalti Már Hauksson Ó 4.26 2. Guðni Guðmundsson A 5.41 3. Jóhann Freyr Egilsson A 5.53 Stúlkur 9 ára og yngri: (Gengið 1 km) 1. Katrín Ámadóttir A 5.27 2. Elsa Jónsdóttir Ó 5.31 3. Katrín Rolfsdóttir A 5.39 Drengir 9-10 ára: (Gengið 1.5 km) 1. Andri Steindórsson A 5.12 2. Hjörvar Maronsson Ó 5.28 3. Páll Þór Ingvarsson A 6.04 Stúlkur 10-12 ára: (Gengið 2 km) 1. Hanna Dögg Maronsdóttir Ó 8.19 2. Eva Guójónsdóttk Ó 10.12 3. Brynja Guðmundsdóttir A 11.36 Drengir 11-12 ára: (Gengið 2.5 km) 1. Bjöm Blöndal A 2. Einar Páll Egilsson A 3. Jón Þór Guómundsson A Konur 13 ára og eldri: (Gengið 5 km) 1. Svava Jónsdóttir Ó 2. Svanhildur Jónasdóttir A Drengir 13-14 ára: (Gengið 5 km) 1. Ámi Gunnarsson Ó 2. Baldur Ingvarsson A 3. Ragnar Pálsson Ó Drengir 15-16 ára: (Gengið 8.5 km) 1. Þóroddur Ingvarsson A 2. Garðar Guðmundsson Ó 3. Helgi Jóhannesson A Karlar 17-34 ára: (Gengið 10 km) 1. Haukur Eiríksson A 2. Kristján Hauksson Ó 3. Gísli Harðarson A Karlar 35-49 ára: (Gengið 10 km) 1. Pálmi Einarsson A 2. Kristinn Eyjólfsson A 3. Ingvar Þóroddsson A Karlar 50 ára og eldri: (Gengið 10 km) 1. Þorlákur Sigurðsson A 10.06 10.49 11.06 18.41 27.00 16.15 18.15 18.33 26.14 27.19 30.01 29.59 30.07 34.52 39.26 42.12 45.47 40.44 Um síðustu helgi fór fram Meist- aramót íslands í frjálsum íþróttum innanhúss fyrir unglinga á aldrin- um 15-18 ára. Glæsilegur hópur af Norðurlandi frá sex ungmenna- og héraðssamböndum tók þátt og ár- angurinn lét ekki á sér standa. Keppt var í fjórum flokkum: sveina, drengja, meyja og stúlkna. HSK varð stigahæst í sveina-, meyja- og drengjaflokknum en HSÞ nældi sér í flest stig í stúlkna- flokknum. Keppnisfólk frá UFA stóð sig einnig mjög vel en félagið sendi sex keppendur og þau fjögur sem kepptu í eldri fiokkunum komu öll til baka með íslands- meistaratitla. Sveinaflokkur: í sveinaflokki eru strákar sem fæddir eru 1979 og 1980. Þrír Norðlending- ar komust á verðlaunapall en það voru þeir Einar Karl Hjartarson, USAH, sem varð í 2. sæti í hástökki þar sem hann fór yfir 1,75, sem reyndar er sami árangur og efsti maður náði. Haraldur Logi Hrings- son, UMSE, sigraði í þrístökki án atrennu þar sem hann stökk 8,39 metra eða tveimur sentimetrum lengra en næsti keppandi. Haraldur Logi lenti síðan í 3. sæti í langstökki án atrennu þar sem hann stökk 2,79 en sá sem varö í 2. sæti stökk sömu lengd. Birgir Óli Sigmundsson, UMSS varð í 2. sæti í kúluvarpi með því að kasta 12,18 metra. Drengjaflokkur: í drengjaflokki eru strákar sem fæddir eru 1977 og 1978. í 50 metra hlaupi varð Freyr Ævarsson, UFA, í öðru sæti á 6,3 sekúndum og Freyr sigraði síðan í langstökki án atrennu þar sem hann átti best 3,02 metra. í 50 metra grindahlaupi varð Jóhann Finnbogason, UFA, í 1. sæti á 7,6 sekúndum og Róbert Már Þorvalds- son, UMSE, varð þriðji á 7,8 sek- úndum. í hástökki voru þrír efstu menn að norðan og allir stukku þeir yfir 1,80 metra. Smári Stefánsson, UFA, endaði í 1. sæti, Jóhann Finn- bogason í öðru og Sigmundur Isak Þorsteinsson, USAH, í því þriðja. Smári varð í 3. sæti í þrístökki þar sem hann stökk 12,27 metra og Sig- mundur í 2. sæti í stangarstökki þeg- ar hann fór yfir 3,20 metra. I kúlu- varpi kastaði Eiður Magnússon, USAH, 12,37 metra og tryggði það honum 3. sætið. Meyjaflokkur I meyjaflokki eru stelpur fæddar 1979 og 1980 en þar náðu Norð- lendingar engum gullverðlaunum. Næst því komst þó sennilega Þórunn Erlingsdóttir, UMSS, sem kom jafn- hliða Guðnýu Eyþórsdóttur, IR, í mark í 50 metra hlaupinu á 6,7 sek- úndum en Þórunn varð að sætta sig við 2. sætið. Hún varð síðan í 3. stæti í þrístökki án atrennu og kúlu- varpi en í þrístökkinu stökk hún 7,24 metra og kastaði 8,35 metra í kúlu- varpinu. í hástökki náði Hallbera Gunnarsdóttir, USAH, í 3. sætið þegar hún fór yfir 1,50 metra og í langstökki varð Heiður Vigfúsdóttir, HSÞ, í 2. sæti á 5,05 metrum. í há- stökki án atrennu varð Sigurlaug Níelsdóttir, UMSE, í 3. sæti þar sem hún stökk yfir 1,25, sem er reyndar sami árangur og stúlkumar í tveimur efstu sætunum náðu. Stúlknaflokkur: I stúlknaflokknum em stelpur fædd- Handknattleikur - yngri flokkar: Frábær árangur Um helgina var heilmikið að gerast hjá ungu handknattleiks- fólki en Qöldi ungra Akureyr- inga lagði leið sína suður til að taka þátt í íslandsmóti. Keppt var í 6. flokki um hinn eftirsótta Kópavogsbikar, sem mun vera elsta mót fyrir þennan aldurs- hóp sem haldið er hér á landi. Mótið var í senn hluti af íslands- móti og þriðja og síðasta stóra mótið fyrir úrslitakeppni sem haldin verður á Akureyri í mars. KA náði glæsilegum árangri á mótinu og sigraði í flokki a- og c-Iiða. í keppni a-liða lék KA gegn Haukum í úrslitaleik og eftir mjög spennandi leik þar sem aldrei munaði meira en einu marki á lið- unum hafði KA sigur, 7:6. Þórsar- ar lentu í erfiðum riðli en þeir luku mótinu með stæl þegar liðið sigraði Fylki í leik um 9. sætið, 10:5. B-lió KA hefur ávallt staðið sig vel og unnið síðustu fimm mót sem liðið hefur tekið þátt í. Að þessu sinni náói liðió sér þó ekki á strik og endaði í 9. sæti eftir haröa keppni og Þórsarar cnduðu í 11. sæti. KA sendi þrjú lið í keppni c- liða og tvö þeirra, C1 og C2, mættust í úrslitaleik. Að lokum þurfti tvær framlengingar og hlut- - KA sigraði í flokki a- og c-liða kesti til að skera úr um úrslit. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 6:6, eftir fyrri framlengingu 8:8 og lokastaðan var 10:10. Lið KA C1 hafói betur í hlutkestinu. Lið KA C3 endaði í fimmta sæti. Þetta var þriðja og síðasta stór- mótió í þessum aldursflokki og heildarstigatala úr þessum mótum telur. Atta efstu liðin fara í úrslit og KA og Þór verða bæði með í úrslitakeppni a-liða og eiga þar bæði góða möguleika á verólaun- um. Auk þess verður KA meó lið í 6. flokks flokki b-liða og þrjú lið í flokki c- liða. Þórsarar voru með fleiri flokka á höfuðborgarsvæðinu um helgina sem spiluðu í samskonar mótum. A móti 7. flokks enduðu Þórsarar í 8. sæti en keppt var í Framhúsinu. í Seljaskóla var keppt í 5. flokki kvenna og þar áttu Þórsarar tvö lið. A- liðið endaði í 12. sæti og b- liðió í 8. sæti. Það er því óhætt að segja að framtíðin sé björt í „handbolta- bænum“ Akureyri. Leikmenn og þjálfarar a-liðs KA stilla sér upp með sigurlaunin, Kópavogs- bikarinn. Handknattleikur: Patrekur í bann Patrekur Jóhannesson, landsliðs- maður í KA, hefur verið dæmd- ur í eins leiks bann af aganefnd HSÍ eftir að hafa vcrið ranglega rekinn af velli í síðasta leik KA, gegn ÍH. Patrekur tekur út bannið nk. laugardag þegar Aft- urelding kcmur i heimsókn til Akureyrar í lokaumferð hefð- bundinnar deildarkeppni. Mikið hefur verið fjallað um mál Patreks síðan KA sýndi fram á með myndbandsupptöku að rauða spjaldið sem hann fékk gegn IH var óverðskuldaó. Patrekur tók vítaskot sem markvörðurinn varði meó höndinni en féll rneð tilþrif- um í gólfið. Dómarar leiksins létu blekkjast og ráku Patrek útaf. Aganefndin neitaói aö taka mark á þeim rökunt og sönnunar- gögnum sem KA lagói fram og Patrckur var því dæmdur í eins leiks bann fyrir þau fimm refsistig sem hann hefur fengið í vetur. Dóntarar leiksins hafa haft sam- band vió Patrek og beðist afsðkun- ar á mistökum sínum. Það er kannski lán í óláni að strákurinn verður í banni í leik sem að öllum líkindum skiptir engu máli um stöðu KA í deildinni. KA á þó enn möguleika á að færa sig upp um sæú en til þess þarf 15 marka sigur á Afntreldingu og það cr allt hægL Þess má gcta að KA sigraði í leik lióanna í fyrra með 15 marka mun, 31:16. r_—— °q°DD°q° pp — 'lil 1 11°°°° pq Munið ódýru morgun- tímana frá kl. 9-14 Aðeins kr. 270,- Sólstofan Hamri Sími 12080

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.