Dagur - 25.02.1995, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 25. febrúar 1995
|lga||° °°aaa
Félagsvist
verður spiluð í Hamri
sunnudaginn
26. febrúar kl. 20.00.
Veglegir vinningar.
Allir velkomnir.
Hamar
félagsheimili Þórs
sími 12080.
keðjur
Raf-
geymar
Bása-
moffur
Réttarhvammi 1
Sími12600
Tvær leiðir
eru hentugar til þess
að verja ungbarn í bíl
Látið barnið annaðhvort liggja
i bílstól fyrir ungbörn eða
barnavagni sem festur er
með beltum.
yUMFERÐAR
RÁÐ
FRETTIR
Hvað verður um Fræðsluskrifstofu
Norðurlands eystra?
- skiptar skoðanir sveitarstjórna í kjördæminu um málið
Bæjarstjórn Akureyrar telur
eðlilegt að verkefni Fræðslu-
skrifstofu Norðurlands eystra
verði flutt til sveitarfélaganna í
óbreyttri mynd og er sú niður-
staða í samræmi við tillögu 1 í
skýrslu starfshóps sem tilnefnd-
ur var á aðalfundi Eyþings sl.
haust.
Jafnhliða flutningi grunnskól-
ans frá ríki til sveitarfélaga færast
verkefni fræðsluskrifstofa einnig
yfir til sveitarfélaganna. Eyþing,
samtök sveitarfélaga á Norður-
landi eystra, skipaði þriggja
manna starfshóp til þess að skoða
hvemig þessu máli væri best fyrir
komið og skilaði hún nýlega af sér
skýrslu sem sveitarfélögin á Norð-
urlandi eru þessa dagana að taka
afstöðu til. Starfshópurinn leggur
ekki ákveðið til í skýrslu sinni
hvaða leið verði farin en setur upp
tvo valkosti.
Tillaga 1 felur í sér að verkefni
Fræðsluskrifstofu Norðurlands
eystra verði flutt í óbreyttri mynd
yfir til sveitarfélaganna.
Tillaga 2 felur í sér að tekið
verði upp samstarf við aðrar stofn-
anir sem annast aðstoð við ein-
staklinga og fjölskyldur, Svæðis-
stjóm um málefni fatlaðra og fé-
lagsmálanefndir og -ráð, fyrst og
fremst hvað varðar bamavemdar-
mál. Hugmyndin gerir ráð fyrir að
málefni Fræðsluskrifstofu, Svæð-
isstjómar auk bamavemdarmála
verði sett undir einn hatt. Hins
vegar verði ekki ein skrifstofa fyr-
ir þessa málaflokka í kjördæminu,
heldur verði settar upp þrjár skrif-
stofur; á Akureyri, Dalvík og
Húsavík. Hugmyndin gerir ráð
fyrir að yfir þessum þrem skrif-
stofum verði ein sameiginleg
stjóm.
Eins og áður segir samþykkti
bæjarstjóm Akureyrar sl. þriðju-
dag þá tillögu Jakobs Bjömssonar,
bæjarstjóra, að verkefni Fræðslu-
Atvinnuástandskönnun Þjóðhagsstofnunar:
Atvinnurekendur vilja fækka um
125 manns á landsbyggðinni
Samkvæmt atvinnukönnun
Þjóðhagsstofnunar í janúar vilja
atvinnurekendur á landsbyggð-
inni fækka um 125 manns eða
sem svarar 0,4% af mannafla.
Munar þar mest um fækkun um
100 manns í fiskiðnaði sem at-
vinnurekendur telja æskilega.
Könnunin sýnir að heldur meiri
vilji er hjá atvinnurekendum á
höfuðborgarsvæðinu til að
fækka fólki en á landsbyggðinni.
Könnun Þjóðhagsstofnunar var
gerð til að fá yfirlit yfir atvinnu-
horfur frá sjónarhóli fyrirtækja.
Hliðstæð könnun er einnig gerð í
apríl og september.
Athyglisvert er aó þrátt fyrir
Húsavík:
Fötin úr brunanum fundin
Fatnaðurinn sem hvarf úr gámi
við Fatahreinsun Húsavíkur að-
faranótt 3. febrúar er kominn
fram. Fatnaðinum var skilað til
lögreglunnar á Húsavík á
fimmtudagskvöld.
Forsögu málsins má rekja til
brunans sem varð í versluninni
Þingey aðfaranótt 30. janúar. Þá
bjargaöist íbúi á efri hæð naum-
lega úr húsinu, en missti innbú
sitt. Hann tíndi saman fatnað og
rúmfatnaó úr íbúðinni og sendi í
Fatahreinsunina, ef bjarga mætti
einhvcju af því. Þar var fatnaður-
inn geymdur í ólæstum gámi, og
það ótrúlega skeði: hann hvarf.
Fjölmiðlar hvöttu þann sem hefði
fatnaðinn undir höndum að skila
honum og nú hefúr viókomandi
hugsað sig um og látið verða af
því. Engin eftirmál munu verða af
þessu ferðalagi fatnaðarins, sem
nú er í vörslu Sigurðar Þórarins-
sonar, fatahreinsunarstjóra. IM
Vetrarleikar
Léttis
ÍDL
vAKUREYRI >
verða haldnir á Leirutjörn laugardaginn
4. mars og hefjast kl. 10.00.
Keppnisgreinar: Tölt A og B
(opið mót) unglinga og barna
200 m skeið, (peningaverðlaun)
Gæðingaskeið.
Skráning í Hestasporti og Hestaríki fyrir 1. mars.
Sýningaratriði hefjast kl. 13.00.
Ræktunarbú, stóðhestar, hryssur, gæðingar, ung-
lingasýning, áhættuatriði og margt fleira.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningaratrið-
unum hafi samband við Höskuld í heimasíma
11042 og vinnusíma 12550 eða Sigrúnu í heima-
síma 27778 eða vinnusíma 11241.
Ætlast er til að knapar séu snyrtilega klæddir.
Tölvugjöf til GSI
Fyrirtækin Tæknival hf. í Reykjavík og Tölvutæki - Bókval hf. á Akurcyri,
hafa gefið Golfsambandi íslands vandaðan töivubúnað til afnota á skrifstofu
sambandsins. Tölvubúnaðurinn sem um ræðir er Hyundai 486/66 mhz tölva
með 540 mb. diski, ásamt vönduðum bleksprautuprcntara. Jón Ellert
Lárusson, framkvæmdastjóri Tölvutækja - Bókvals, afhenti Hannesi Guð-
mundssyni, forseta Golfsambandsins, gjöfina á Golfþingi á Akureyri fyrir
skömmu og var þessi mynd tekin við það tækifæri.
skrifstofu Norðurlands eystra
verði flutt yfir til sveitarfélaganna
í óbreyttri mynd. Hins vegar segir
orðrétt í bókuninni: „Bæjarstjóm
telur tillögu 2 frá starfshópnum
um margt mjög áhugaverða og því
eðlilegt að til hennar sé horft við
framtíðarmótun starfseminnar,
þótt bæjarstjóm telji samþykkt til-
lögunnar ekki tímabæra, eins og
hún liggur nú fyrir.“ Þessa tillögu
samþykktu 10 bæjarfulltrúar. Ásta
Sigurðardóttir (B), formaóur
skólanefndar, sat hjá. Skýringin á
hjásetu hennar mun vera sú að
skólanefnd hallaðist að tillögu 2.
Degi er kunnugt um að skiptar
skoðanir em meóal sveitarstjóma
á því hvor tillagan sé vænlegri.
Þannig samþykkti sveitarstjóm
Öxarfjarðarhrepps á dögunum að
styðja tillögu 2.
Að fengnu áliti sveitarstjóma á
Norðurlandi eystra mun stjórn Ey-
þings fjalla um málið og væntan-
lega verður það rætt á aðalfundi
Eyþings næsta haust. óþh
vilja atvinnurekenda til að fækka
um 380 manns 1 störfum á landinu
öllu er það innan við helmingur af
sambærilegri tölu í fyrra. Atvinnu-
rekendur em með öómm orðum í
betra atvinnulegu skapi nú en í
fyrra. Mesta fækkunarþörf töldu
þeir vera nú í málm- og skipa-
smíðaiónaði og fiskiðnaói.
Fram kom einnig vilji til að
fjölga fólki í sumum starfsgrein-
um. Þannig vildu atvinnurekendur
á landsbýggðinni fjölga starfsfólki
á sjúkrahúsum um 2,3% á sama
tíma og vilji var til fækkunar
starfsfólks sjúkrahúsanna á höfuð-
borgarsvæðinu.
Framboó sumarstarfa sam-
kvæmt könnuninni er um 13.500 í
sumar. Samkvæmt upplýsingum
Þjóðhagsstofnunar em þetta held-
ur fleiri sumarstörf en í fyrra. JÓH
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Með bréfi dags. 15. febrúar
sl. frá Viðari Eggertssyni, leik-
hússtjóra LA, til bæjarráós er
leitað eftir stuóningi ffá Akur-
eyrarbæ vegna leiksýningar
Samíska þjóðleikhússins í
íþróttaskemmunni á Akureyri
4. mars nk. með því að fella
nióur leigugjald fyrir húsið.
Bæjarráð samþykkti í gær að
styrkja sýninguna með 75 þús-
und króna framlagi.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
ffá Foreldrafélaginu Hólmasól,
sem er félag foreldra bama á
leikskólanum Klöppum við
Brekkugötu. í bréfinu er bent á
að aðkoma að leikskólanum
geti skapað slysahættu og lagt
er til að komið verði upp lýs-
ingu við bílastæði skólans og
varúðarskilti sett upp í Brekku-
götu til að draga úr umferðar-
hraða. Bæjarráð vísaði erind-
inu til Rafveitunnar og tækni-
deildar bæjarins til úrlausnar.
Jafnlfamt bendir bæjarráð á aó
í áætlunum þessa árs er gert
ráð fyrir að bæta lýsingu við
bílastæði leikskólans KJappa
og setja upp varúðarskilti al-
mennt við leikskóla bæjarins.
■ Með bréfi dags. 20. febrúar
frá Slippstöðinni-Odda hf. er
hluthöfum boðinn forkaups-
réttur að hlutafjáraukningu fyr-
irtækisins í hlutfalli við skráða
hlutafjáreign þcirra. Bæjarráð
samþykkti í gær að hafna for-
kaupsrétti.
HELGARVEÐRIÐ
I dag spá veðurfræðingar
Veðurstofunnar éljum og
noróankalda, frostið verður
1-3 stig. Á morgun er spáð
sunnan eóa suðaustan átt,
kalda eða stinnigskalda og
3-7 stiga frosti. Á mánudag-
inn verður norðaustanátt en
á þriðjudaginn verður hann
að norðan og þá verður
komið 8-10 stiga frost um
allt iand.