Dagur - 25.02.1995, Page 5
MANNLIF
Laugardagur 25. febrúar 1995 - DAGUR - 5
Hátíðarsamkoma Kvenfélags
Húsavíkur í tilefni 100 ára af-
mælisins er talin vera ein glæsi-
legasta samkoma sem menn
minnast að haldin hafi verið í
bæjarfélaginu.
Um 180 manns tóku þátt í sam-
komunni, en þar komu fram marg-
ir listamenn og skemmtikraftar.
Karlakvartett kvenfélagsins söng,
„ballettflokkur“ átta kvenfélags-
kvenna sýndi dans. Asgeir Stein-
grímsson lék á tropet við undirleik
föður síns Steingríms Birgissonar.
Söngkonumar Margrét Pálmadótt-
ir, Kristjana Stefánsdóttir og Anna
Sigríður Helgadóttir sungu við
undirleik Aðalheiðar Þorsteins-
Karlakvartett kvenfélagsins: Baldur Baldvinsson, Hörður Arnórsson, Hauk-
ur Haraldsson og Helgi Bjarnason.
Kvenfélag Húsavíkur 100 ára:
„Þakklátar fyrír hlýhug
og höfðínglegar gjafir“
- segir Svala Hermannsdóttir, formaður
dóttur. Katrín Eymundsdóttir ann-
aðist veislustjórn.
„Við ætluóum okkur aó halda
Sigríður Jónasdóttir og Jóhanna
Sigfúsdóttir fylgjast með hótíðar-
dagskránni.
hátíðlega og vandaða samkomu
og þaó hafa margir lýst yfir
ánægju sinni með hvemig til
tókst. Viö erum mjög ánægðar og
þakklátar fyrir kveðjur, btóm,
skeyti og gjafir sem mikill hlý-
hugur í okkar garð fylgdi. Það ylj-
ar okkur um hjartarætumar að
fmna allan þennan hlýhug og
meðbyr sem til okkar hefur borist
síðustu dagana og við emm þakk-
látar fyrir höfóinglegar gjafir,“
sagði Svala Hermannsdóttir, for-
maður.
Félaginu barst forláta bréfa-
hnífur úr silfri frá fyrrverandi for-
manni sínum, Astu Jónsdóttur í
Hafnarfirði og manni hennar, Am-
ljóti Sigurjónssyni. Peningagjafir
til félagskvenna bárust frá Húsa-
víkurbæ og Verkalýðsfélagi Húsa-
víkur. Einnig bárust tvær peninga-
gjafir frá einstaklingum: Það voru
minningargjafir um látnar félags-
konur. Gjöf barst frá bömum Sig-
ríðar Sigurjónsdóttur, sem fæddist
á stofnári félagsins og starfaði
með því um áratugaskeið. Einnig
barst gjöf frá hjónunum Jónasi
Egilssyni og Huldu Þórhallsdóttur
Átta kvenfélagskonur skipuðu ball-
ettflokk og sýndu dans. Á myndinni
eru Ásdís Kjartansdóttir og Bertha
Pálsdóttir.
og var til minningar um mæður
þeirra: Kristbjörgu Sveinsdóttur
og Sigfríði Kristinsdóttur og
ömmu, Ónnu Vigfúsdóttur. IM
Halldóra Kristín færði Arnari Jónssyni leikstjóra blómvönd í frumsýningarlok.
Myndir: IM
Halldóra Kristín Bjarnadóttir frá
Aðalbóli var kvenna best klædd á
frumsýningunni í Ljósvetningabúð.
Draugaglettur
frumsýndar
Draugaglettur voru frumsýndar í Ljósvetningabúð um síðustu helgi.
Verkið er eftir Iðunni Steinsdóttur og Arnar Jónsson leikstýrir.
Leikendur koma úr leikfélaginu Búkollu.
I hléi var frumsýningargestum boóinn vel þeginn kaffisopi og voru
þeir hinir ánægðustu. I auglýsingu segir að Draugaglettur séu bráð-
skemmtilegt leikrit fyrir alla fjölskylduna, og það er alveg satt. Þetta er
verk sem fjallar um venjulegt fólk og þess fylgjur, svolítið ýktar persón-
ur, en í rauninni ekki svo mikió þar sem hálf þjóðin er með annan fótinn
á miðilsfundum. Leikendur Búkollu standa sig vel í stykkinu og það er
yndislegt að koma í Ljósvetningabúð og hlægja dátt eina kvöldstund á
þessum kalda vetri.
E.s: Gleymið ekki að taka krakkana með. IM
HYRNAMT
BYGGINGARVERKTAKI / TRÉSMIÐJA
Dalsbraut 1 • Akureyri ■ Simi 96-12603 • Fax 96-12604
Smíðum fataskápa, baðinnréttingar,
eídhúsinnréttingar og innihurðir
Teiknum og gerum föst verðtilboð, þér að kostnaðarlausu
Greiðsluskilmálar við allra hæfi
raimffinijnymG
Aðalfundur Dagsprents hf.
verður haldinn aS Strandgötu 31, Akureyri,
mánudaginn 6. mars nk. kl. 17.30.
Stjórnin.
Kafflhlaðborð
alla sunnudaga
Míkíð úrval af heímabökuðum bollum
\
Líndín við Leíruveg
símí21440
s
Orðsending
til bænda
frá Stofnlánadeild landbúnaðarins
Stofnlánadeild landbúnaðarins hefur ákveðið að gefa
bændum kost á því að breyta lausaskuldum sem orðið
hafa til v/búrekstrar í föst lán.
Lánin verða verðtryggð með 15 ára lánstíma og 5,8%
vöxtum.
Það er skilyrði fyrir því að skuldbreyting geti farið fram
að viðkomandi lánadrottnar taki a.m.k. 80% skuldar í
innlausnarbréfum til 15 ára, verðtryggð með 5% vöxt-
um.
Þá þurfa að vera fyrir hendi rekstrarlegar forsendur og
fullnægjandi veð til þess að af skuldbreytingu geti orð-
ið.
Þeir sem hyggjast sækja um skuldbreytingalán sendi
umsókn til Stofnlánadeildar landbúnaðarins, Lauga-
vegi 120, 105 Reykjavík sem fyrst og eigi síðar en 31.
mars nk.
Með umsókn skal fylgja:
1. Veðbókarvottorð fyrir viðkomandi jörð.
2. Afrit af staðfestu skattframtali fyrir rekstrarárið
1994 eða rekstrar- og efnahagsreikning.
3. Umsækjandi leggi fram 5 ára búrekstraráætlun.
Umsóknareyðublöð fást hjá Stofnlánadeild landbúnað-
arins og útibúum Búnaðarbanka íslands úti á landi og
Búnaóarsamböndum.
Nánari upplýsingar veittar hjá Stofnlánadeild landbún-
aðarins í síma 91-25444.