Dagur - 25.02.1995, Page 8
8 - DAGUR - Laugardagur 25. febrúar 1995
SKÓLALÍF - GLERÁRSKÓLI Á AKUREYRI
Félagslíf í Glerárskóla
Nemendaráó hefur umsjón með
félagslífi Glerárskóla og í því eru
tveir fulltrúar úr hverri bekkjar-
deild í 8.-10. bekk. Innan nem-
endaráösins eru formaður, vara-
formaður, gjaldkeri, ritari og með-
stjómandi og svo varamenn. Jan
Larsen kennari hefur yfimmsjón
með nemendaráði. Formaður er
Hildur Ösp Gylfadóttir en varafor-
maður Óskar Stefánsson.
Óskar: „Nemendaráð hefur
ýmsar uppákomur svo sem böll,
spumingakeppni og bingó.“
Hildur: „Já, vió reynum að hafa
böll mánaðarlega og svo erum við
búin að hafa gistiball, það er
krakkamir gista í skólanum eftir
ball. Einnig stefnum vió að því að
reyna að halda annað gistiball sem
fyrst en það getum við ekki nema
nokkrir foreldrar nenni líka að
gista.“
Óskar: „Núna emm við að
reyna að fá einhverja hljómsveit á
árshátíðina svo sem SSSól eða-
Spoon og auðvitað ætla allir að
mæta.“
Hildur: „Spumingakeppnin fór
þannig fram: Kennarar sömdu
spumingar og lögðu fyrir umsjón-
arbekkinn sinn og nemdaráð gekk
í bekki og lét nemendur fá kringl-
ur og kókómjólk en það var gjöf
frá foreldrafélaginu."
Óskar: „ Við viljum einnig nota
tækifærið og vekja athygli á öm-
urlegu félagslífi hér í bæ. Akveðn-
ir aöilar em að eyðileggja félagslíf
unglinga með því t.d. að loka
Dynheimum kl. 24.00 og félags-
miðstöðvunum kl. 22.00. Til
hvers, spyrjum við unglingar bara,
og hvetjum þessa aðila til að end-
urskoða afstöðu sína. Þetta getur
ekki orðið til góðs því unglingar
hanga þá bara frekar niðri í bæ því
þessar aðgerðir virðast ekki þess
valdandi að unglingamir fari fyrr
heim.“ Hildur og Óskar.
Óðinshani
Phaleropus lobatus
Óðinshaninn er af vaðfuglsætt.
Óóinshaninn er lítill fugl, um 17-
19 cm á lengd, með örmjótt og
fremur langt nef, svart á litinn.
Óðinshaninn hefur verið kall-
aður mörgum nöfnum á Islandi
eins og til dæmis skrifari og torf-
grafarálft.
Kvenfuglinn er bæði stærri og
skrautlegri á litinn en karlfuglinn.
Kvenfuglinn er blágrár að ofan
með ryðgular rákir eftir bakinu, er
að mestu hvítur að neðan. Fætum-
ir em grágrænir. Áberandi ein-
kenni á kvenfuglinum er skær-
rauðgulur hálskragi. Liturinn á
karlfuglinum er allur daufari.
Kvenfuglinn verpir í hreiórið 4
eggjum, grágrænum eóa gulgræn-
um á lit, með dökkum skellum og
dílum. Ungamir koma úr eggjun-
um eftir 17-20 daga. Karlinn ann-
ast um þá með mikilli natni næstu
þrjár vikumar en þá em þeir orðn-
ir fleygir og færir í flestan sjó.
Hann hefur tvo varpbletti á bring-
unni, en kvenfuglinn engan. Óð-
inshaninn dvelur á sjó á vetuma
og lifir þá á ýmiskonar svifdýrum
sem hann veiðir á yfirborðinu.
Hulda, Garðar og Andri,
Náttúrufræði, 6. bekkur.
Atli Jens teiknaði þessa mynd sem lýsir staðsetningu Glerárskóla mjög vel,
hann er utan Glerár og að sjálfsögðu er það Þórsarinn sem er að skora
glæsimark með skalla. Atli Jens er í 3. bekk.
Úr skólalífinu. Tómas Lárus Vilbergsson ásamt nemendum sínum.
Ljóðskáld í
6. bekk Glerárskóla
paD oar titt sínn
aö gömlu kona
ták sokkínn minn.
p aö oar nú soona.
Túk hón nokkuD sokkínn þinn?
<ðg oar hxtt aD þora aD oona,
aD hún kxmi mcD sokkínn minn.
paD oar nú soona.
Halldóra Magnúsdóttir.
Hrjáls crtu fuslinn mínn,
flúsur um hímininn.
Víst crtu oxnsta skinn
pcím í bcsta kofann þinn
fljúsum oiD oinur mínn.
íris Egilsdóttir.
Þetta gerum við
á bólutsaíinínu
Þprhildur F. Kristjánsdóttir, 10. bekk
„Eg nota bókasafnið frekar mikió
m.a. vegna þess að ég er oft í eyð-
um. Þar er gott næði og hægt að
nota tímann til þess að læra fyrir
næsta dag og fá lánaðar orðabæk-
ur. ^
Ég kem á safnið til þess að
vinna heimaverkefni, fá heimildir
í ritgerðir, lesa tímarit og fá lánað-
ar bækur. Á safninu get ég líka
fengið að komast í ritvél og stund-
um er hægt að tefla. Við komum
líka á lesstofu safnsins í ýmsar
kynningar eða fræóslustundir t.d.
um brunavamir og tóbaksvamir. I
janúar vomm við að setja ritdóma
um enskar bækur inn í tölvuna á
safninu í samvinnu við ensku-
kennarann okkar. Þegar ég var
yngri höfðum við sérstaka bóka-
safnstíma fyrir bekkinn. Fyrir jól-
in eru svo bókmenntakynningar á
vegum nemendaráðs skólans og
bókasafnsins." Þórhildur.
Sara Dögg Jakobsdóttir og
Fjóla Einarsdóttir, 6. bekk
„Við fáum lánaðar bækur heim
eða lesum á bókasafninu. Stund-
um fömm við í lesstofuna á safn-
inu og lærum fyrir næsta dag.
Einnig hefur bekkurinn fastan
tíma á safninu. Þá er okkur kennt
Þórhildur F. Kristjánsdóttir, 10.
bekk.
Sara Dögg Jakobsdóttir og Fjóla
Einarsdóttir, 6. bekk.
ýmislegt um hvemig á að nota
heimildarit o.fl. Við lukum nýlega
við verkefni sem kennarinn okkar
og skólasafnskennarinn unnu með
okkur. Það var verkefni um alþýð-
legar bókmenntir. Okkur var skipt
í hópa. Við fengum hefti með
nokkrum sögum og þulum og
byrjuðum aó lesa sögumar upp-
hátt yfir hópinn. Síðan flokkuðum
við textana sem okkur fannst
passa saman. Þá rökstuddum við
flokkunina og sögðum frá ein-
kennum hvers flokks. Síðan voru
búin til veggspjöld þar sem flokk-
amir voru tilgreindir og þau
myndskreytt. Svo samdi hver
nemandi eitt verkefni í flokkinn. I
lokin komu allir saman, settu upp
sýningu og lásu upp ritverkin sín.
Sýningin er núna á bókasafninu
og verður þar næstu vikur. Okkur
fannst þetta mjög gaman og von-
umst til að fá að gera eitthvað
svipað aftur.“ Sara og Fjóla.
Jóhannes Vollertsen, 3. bekk
„Ég kem á bókasafnið til að fá
lánaðar skemmtilegar bækur til að
lesa. Ég les mikið og kem oft á
bókasafnið og fer líka á Amts-
bókasafnið. Það er líka gaman að
koma á safnið og vinna verkefni
um þaó hvemig bókasöfn eru og
hvemig á að raða bókum. Stund-
um er sögustund. Það var mjög
gaman að heyra Skilaboðaskjóð-
una. Það eru til margar bækur á
dönsku á skólasafninu en þær
mættu vera fleiri fyrir unglinga
eins og til dæmis hana systur
mína.“ Jóhannes.
Kínduniar koma af fjöllunum
allar mcD lömbín sín oxn.
Voru þxr kannski hjá tröllunum
scm buDu þcim i gcum;
Hulda.
Qinu sínní oar,
bclja scm bar.
Fúr ínn í hús,
sá hún þar mús.
iVlúsín oar á stúlnom þar
stúllinn datt,
ofan í hatt,
hatturinn flaug,
út aD míDbaug.
Gottskálk Helgi Jósepsson.
Xifið
Til hucrs aD lifa?
IjífiD cr of stutt,
suo aD þaD tckur sig uarla,
aD lifa cins og rús,
liflr og fúlnar.
enginn tilgangur.
Ijífsganiga
Fúlh og böm sitja ínni í skúla
og hugsa,
cn til hocrs?
ViD fxDumst, Ixrum, oínnum
ddumst og dcujum.
pocr cr tilgangurinm
pjá sumu fúlkí cr ást og kxrlcikur
hjá öDrum hatur og sorg.
paD cr lcpdarmál scm
cnginn
fxr aD oita.
X>sugsun
‘BauDí, sorg, hatur og tár,
oond upplifun.
plátur, glcDí, skcmmtun og ást,
pdislcg upplifun.
én cf oiD oiljum upplifa,
gúDa tíma,
ocrDur aD upplifa
þá uondu lika.
Dauðínn
Oft cr hxgt aD misskílja dauDann.
'OauDínn cr ckki sorg og tár.
Tár sncrta þá látnu,
þú þcir bcu ckki í sama hcimí.
Gn glcDi og hlátur
þá fpst luftist sál þcirra upp.
pú þcir síu látnir
taka þcir þátt
í glcDi okkar og sorg.
Dagbjört Pálsdóttir 9a.
Við sjávarsíðuna
I vetur hefur 4. bekkur unnið með verkefni
sem tengt er samfélagsfræói og kallast, Við
sjávarsíóuna.
Nemendur veltu því fyrir sér við hvaó
væri unnið í sjávarplássum. Hvaða atvinnu-
greinar tengjast útgerð og fiskvinnslu. í því
sambandi voru fyrirtæki eins og Slippurinn
og Útgerðarfélagið heimsótt. Lífið í sjónum
var tekið fyrir og inn í það fléttaðist mengun.
Farið var í fjöruferð og ýmsu safnað og þaó
sem fannst flokkað. Nemendur veltu því fyrir
sér hvað ætti heima í fjörunni og hvað ekki.
I tengslum við verkefnið fengu nemendur
spumingar sem reynt var að vinna úr. Svo
sem: Hvaó er sjávarpláss? Við hvað vinnur
fólk í sjávarplássí? Hvemig, hvers vegna...?
Á myndinni má sjá hluta verkefnisins, Við
sjávarsíðuna. Nemendur í 4. bekk.